1 / 27

Kafli 1

Kafli 1. Félagsfræði, sjónarhorn og aðferðir. Íslenskt samfélag um árið 1700. Ímyndaðu þér að þú hefðir fæðst fyrir um 300 árum eða um 1700. Hvernig var samfélagið á þeim tíma? . Íslenskt samfélag um árið 1700. Hvernig var að búa á Íslandi á 18. öld?

roch
Download Presentation

Kafli 1

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Kafli 1 Félagsfræði, sjónarhorn og aðferðir

  2. Íslenskt samfélag um árið 1700 • Ímyndaðu þér að þú hefðir fæðst fyrir um 300 árum eða um 1700. Hvernig var samfélagið á þeim tíma? FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  3. Íslenskt samfélag um árið 1700 Hvernig var að búa á Íslandi á 18. öld? • Mikil harðindi gengu yfir landið – frostavetur • Skæðar farsóttir, t.d. Stórabóla • Um 67% tilheyrðu fjölskyldunni, um 20% voru vinnuhjú. Um 14% voru flakkarar eða eða sveitarómagar (ómagi er barn sem komið er fyrir hjá öðrum til framfærslu). FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  4. Íslenskt samfélag um árið 1700 Hvernig var að búa á Íslandi á 18. öld? • Einokunarverslun enn við lýði. • Engar borgir, einungis nokkar hjáleigur umhverfis höfuðbólið Reykjavík. • Ferðalög fátíð og fólk umgekkst ekki marga. • Bóndinn réði öllu, hann stjórnaði fjölskyldu sinni og vinnufólki eins og sjálfstæður atvinnurekandi. FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  5. Íslenskt samfélag um árið 1700 Hvernig var að búa á Íslandi á 18. öld? • Skilyrði fyrir hjúskaparleyfi voru að fólk ætti kost á jörð til að búa á. • Hraðskreiðasta farartækið á þessum tíma var hesturinn. • Fólk þekkti ekki til kosninga og stóð ekki til boða að velja sér framhaldsskóla eða trúarsamfélag FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  6. Afríkuríkið Sierra Leone um 2007 https://www.cia.gov/cia/publications/factbook/geos/sl.html FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  7. Afríkuríkið Sierra Leone um 2007 Örlítill samanburður á aðstæðum í Sierra Leone og Íslandi árið 2006 • Lífslíkur karla í Sierra Leone er 36 ár en kvenna 39 ár. Lífslíkur á Íslandi um helmingi hærri • Ungbarnadauði í Sierra Leone er 316 af hverjum 1000 börnum fyrir 5 ára aldur. Á Íslandi er ungbarnadauði einn sá allægsti í heimi eða 6 af hverjum 1000 börnum (miðað við fyrsta aldursár). FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  8. Afríkuríkið Sierra Leone um 2007 Örlítill samanburður á aðstæðum í Sierra Leone og Íslandi árið 2006 • Á Íslandi sóttu 94% 10. bekkinga um og fengu framhaldsskólavist árið 2006. • Möguleikar stráka í Sierra Leone á framhaldsskólavist eru 1 á móti 50. Möguleikar stelpna eru nær engir m.a. vegna ólæsis (82%). FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  9. Afríkuríkið Sierra Leone um 2007 Örlítill samanburður á aðstæðum í Sierra Leone og Íslandi árið 2006 • Á Íslandi eru sjónvarpstæki á um 98% heimila og það sama er um nettengdar tölvur. • Í Sierra Leone eru 17 sjónvarpstæki á hverja 1000 íbúa. Einkatölvur þar sem víðast annars staðar í Afríku afar fágætar. FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  10. Til umhugsunar • Hvernig heldur þú að líf þitt væri ef þú kynnir ekki að lesa, ættir ekki farsíma eða hefðir ekki aðgang að nettengdri tölvu eða sjónvarpstæki? FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  11. Íslenskt samfélag árið 2107 Hvernig væri líf þitt ef þú fæddist eftir 100 ár? • Glasafrjóvganir og fæðing glasabarna. • Erfðatækni /klónaðir einstaklingar. • Tækninýjungar átakafletir milli þeirra sem ráða yfir tækninni og þeirra sem ekki gera það? FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  12. Hver ertu? • Hvar þú fæddist – og hvenær hefur afgerandi áhrif á hver þú ert, hvað þú kannt og hvað þú getur gert. FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  13. Félagslegt sjónarhorn • Fólk er afsprengi þeirra félagslegu skilyrða sem það býr við. Það þýðir að: • Líf fólks þróast ekki eftir beinni línu þar sem tækifæri og breytingar koma í réttri röð. • Fólk getur ekki heldur beitt því sem heimspekingar kalla frjálsan vilja við það að framkvæma eða hugsa. Af hverju ekki? (bls. 13). Svarið liggur í félagslegum skilyrðum. FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  14. Samfélag • Hugtakið samfélag merkir hóp fólks sem býr á ákveðnu svæði, hefur samskipti sín á milli og hefur sameiginleg einkenni sem greinir það frá öðrum hópum (bls. 13). FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  15. Samfélag • Margir rugla saman hutökunum samfélag og þjóðfélag. Hver er munurinn á þessu tvennu? • Samfélag er víðara hutak en þjóðfélag. Samfélag getur verð lítið eða stórt, t.d. Skólinn, bekkurinn, fjölskyldan þín eða allt mannkynið. FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  16. Þjóðfélag Þjóðfélag er þrengra hugtak en samfélag. • Þjóðfélag er hópur fólks sem lifir saman í skipulögðu ríki, með sameiginlegu stjórnkerfi og gjaldmiðli. Íslenska ríkið er dæmi um þjóðfélag. FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  17. Félagsleg skilyrði (bls. 14) • Með félagslegum skilyrðum er átt við þær aðstæður sem fólk býr við (samfélag) og hvernig þær hafa áhrif á athafnir og ákvarðanir hvers og eins. Félagslegu skilyrðin setja ramma eða mörk utan um hvernig við tökum ákvarðanir um líf okkar. FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  18. Um félagsfræði og félagsfræðileg sjónarhorn Félagsfræði er: • Kerfisbundin og gagnrýnin rannsókn á mannlegu samfélagi • Hún fjallar um rannsóknir á hópum og samfélögum, sérstaklega í iðnvæddum löndum • Með félagsfræði er hægt að greina, útskýra og segja fyrir um mannlegt atferli FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  19. Um félagsfræði og félagsfræðileg sjónarhorn Um félagsfræði og félagsfræðinga • Hafa sérstakan áhuga á að skilja á hvaða hátt samfélagið hefur áhrif á og mótar líf okkar. • Félagsfræðin hjálpar okkur að verða virkari í að skoða samfélagið sem við búum í, að spyrja spurninga og að skilja betur þá reynslu sem við verðum fyrir. • Þú lærir að skoða samfélagið á gagnrýninn hátt, þetta er eins og að læra að hjóla – erfitt fyrst en síðan ekkert mál. Fyrsta boðorð félagsfræðinnar er: Ekki er allt sem sýnist (Peter Berger). FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  20. Félagsfræðilegt sjónarhorn Peter Berger: Félagsfræðilegt sjónarhorn felur í sér að: • sjá hið almenna í því einstaka og að sjá almenn félagsleg hegðunarmynstur í hverjum einstaklingi. • Með þessu er átt við að þótt hver og einn sé sérstakur þá endurspeglast samfélagið á mismunandi hátt í ólíkum hópum. FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  21. Félagsfræðilegt sjónarhorn Félagsfræðilegt sjónarhorn er gleraugu sem við skoðum samfélagið með. Þau sýna okkur t.d. mikilvægi kynferðis sem áhrifavalds í lífi hvers og eins. FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  22. Félagsfræðileg hugsun • Félagsfræðileg hugsun byrjar þegar við áttum okkur á hvernig hóparnir sem við tilheyrum móta og hafa áhrif á lífsreynslu okkar sem einstaklinga. FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  23. Til umhugsunar Aldurskeið (t.d. elli) erutúlkuð á mismunandi hátt eftir samfélögum – lýstu því nánar. Hvað er átt við með fullyrðingunni að samfélagið sé eins og fangelsi (bls. 16)? FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  24. Að sjá hið ókunna í því venjulega • Þegar þú beitir félagsfræði til að skoða samfélagið verður þú að temja þér nýjan hugsunarhátt og hætta að taka hluti sem gefna (P. Berger). • Fyrsta reglan í félagsfræði er: Ekkert er eins og það sýnist FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  25. Að sjá hið ókunna í því venjulega • Flestir halda að athafnir manna byggi á sjálfstæðum og fyrirfram hugsunum fólks. Svo er ekki! • Valmöguleikar og hegðunarmynstur fólks stýrist af þeim mörkum sem samfélagið setur (P. Berger). FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  26. Að sjá hið ókunna í því venjulega • Hlutverk félagsfræðinnar er að rannsaka sambandið á milli þess hvernig samfélagið breytir okkur og hvernig við breytum okkur sjálf. • Í öllum samfélögum eru félagslegir kraftar að verki sem hafa og munu hafa áhrif á hvernig líf þitt þróast. FEL 203. Kafli 1: Félagsfræði ... Garðar Gíslason

  27. Við erum komin að hnattvæðingunni á bls. 18

More Related