1 / 23

Landafræði – allt um heiminn

Landafræði – allt um heiminn. Maður • Auðlindir • Umhverfi (bls. 8 – 14). Landafræði - Geografi. Landafræði er þverfagleg fræðigrein um jörðina, fyrirbæri á yfirborði hennar og tengsl mannsins við umhverfi sitt

zihna
Download Presentation

Landafræði – allt um heiminn

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Landafræði – allt um heiminn Maður • Auðlindir • Umhverfi (bls. 8 – 14)

  2. Landafræði - Geografi • Landafræði er þverfagleg fræðigrein um jörðina, fyrirbæri á yfirborði hennar og tengsl mannsins við umhverfi sitt • Hún er rannsókn á nýtingu mannsins á auðlindum jarðar og lýsir einnig hvernig ólík svæði eru háð hvert öðru í viðskiptum, samgöngum og öðrum samskiptum • Landafræðin sækir aðferðir sínar til náttúru-, félags- og hagvísinda auk sagnfræðinnar Valdimar Stefánsson 2006

  3. Landafræði - Geografi • Hvers vegna að læra landafræði? • Til þess að læra að skipuleggja og byggja upp landsvæði og nýta náttúruauðlindir rétt • Landafræðin hjálpar okkur einnig að taka á móti og meta rétt allar upplýsingar sem berast til okkar víða úr heiminum • Góð þekking á öðrum samfélögum, menningu og umhverfi veita okkur einnig dýpri skilning og aukið víðsýni Valdimar Stefánsson 2006

  4. Náttúrulegar hringrásir • Efni og orka í sífelldri hringrás eru undirstaða ólíkra vistkerfa heimsins • Dæmi: hringrás vatns á jörðinni og hringrás orku í lífverum jarðar • Náttúrulegar hringrásir eru grundvöllur lífsins og umgjarðar þess á jörðinni Valdimar Stefánsson 2006

  5. Náttúrulegar hringrásir • Innan hvers vistkerfis lifa plöntur og dýr í flóknu samspili hvert við annað, svo og við jarðveg, loft og vatn • Ef auðlindanýting mannsins raskar þessum hringrásum leiðir það til umhverfisvandamála í framtíðinni Valdimar Stefánsson 2006

  6. Dæmi um röskun á jafnvægi • Efrat og Tígris (Mesópótamía) • Maya-ríkið í Mið-Ameríku • Regnskógarnir • Aralvatn • Orkunotkun iðnríkja Valdimar Stefánsson 2006

  7. Skógeyðing • Helstu orsakir: • Hröð fólksfjölgun og vaxandi þörf á matvælum • Skógar ruddir til að stækka akurlendi, afla eldiviðar og hráefnis til iðnaðar • Vítahringur: • Skógeyðing veldur aukinni jarðvegseyðingu sem aftur leiðir til aukinnar skógeyðingar Valdimar Stefánsson 2006

  8. Sjálfbær þróun – nýting til framtíðar • Sjálfbær þróun byggist á því að maðurinn fullnægi þörfum sínum og nýti náttúruna án þess þó að ganga á auðlindir hennar til lengri tími og þannig spilla afkomumöguleikum komandi kynslóða • Krefst þess að maðurinn tileinki sér hringrásarnýtingu á náttúruauðlindum Valdimar Stefánsson 2006

  9. Brundtlandskýrslan 1987 • Skýrsla um umhverfis- og þróunarmál unnin á vegum SÞ • Mestu vandamálin eru í iðnríkjunum • Draga verður úr orkunotkun iðnríka um 50% til ársins 2020 • Bent á nauðsyn sjálfbærrar þróunar til lengri tíma litið Valdimar Stefánsson 2006

  10. Hvað eru náttúruauðlindir? • Náttúruauðlind er eitthvað á eða undir yfirborði jarðar sem menn hafa gagn og/eða ánægju af • Dæmi: Frjósamur jarðvegur, málmar, orkulindir, fiskur, góðar baðstrendur • Náttúrauðlindir eru oftast notaðar sem hráefni til framleiðslu á neysluvörum Valdimar Stefánsson 2006

  11. Þrjár tegundir náttúruauðlinda • 1. Þær sem endurnýjast; endurnýjanlegar auðlindir • 2. Þær sem ekki endurnýjast; óendurnýjanlegar auðlindir • 3. Þær sem endurnýjast með ákveðnum takmörkunum; hálfendurnýjanlegar auðlindir Valdimar Stefánsson 2006

  12. 1. Endurnýjanlegar auðlindir • Auðlindir sem endurnýjast í sífellu og engar áhyggjur þarf að hafa af hvað varðar aðgengi að þeim í framtíðinni • Þær eru ákjósanlegustu auðlindirnar hvað nýtingu varðar • Dæmi: vatnsorka, vindorka, sólarorka Valdimar Stefánsson 2006

  13. 2. Óendurnýjanlegar auðlindir • Auðlindir sem aðeins eru til í takmörkuðu magni og endurnýjast ekki eða mjög hægt • Þær eru varasömustu auðlindirnar hvað nýtingu varðar • Dæmi: málmar, kol, olía, jarðgas Valdimar Stefánsson 2006

  14. 3. Hálfendurnýjanlegar auðlindir • Þær auðlindir sem aðeins endurnýjast á tilteknum tíma og/eða við tilteknar aðstæður • Nauðsynlegt er að stýra nýtingu hálfendurnýjanlegra auðlinda út frá hugmyndinni um sjálfbæra þróun • Dæmi: fiskistofnar, skógar, gróðurmold Valdimar Stefánsson 2006

  15. Átök um auðlindir • Sumar náttúruauðlindir eru lífs-nauðsynlegar (dæmi: ferskvatn, gróður-mold) • Að hafa aðgang að náttúruauðlindum hefur áhrif á þróun efnahagsmála og viðskipti • Átök á milli þjóða og hagsmunahópa um arð af auðlindum geta leitt til styrjalda Valdimar Stefánsson 2006

  16. Skipting landafræðinnar • Eðlisræn landafræði (náttúrulandafræði): • Fjallar um náttúrlegt landslag og fjölbreytileika þess, hvernig náttúruöfl eins og vatn, vindur og eldvirkni byggja upp og brjóta niður land (innræn og útræn öfl) Valdimar Stefánsson 2006

  17. Skipting landafræðinnar • Mannvistarlandafræði: • Skýrir hvernig auðlindanýting mannsins breytir landslagi og skapar ólíkar gerðir mannvistarlandslags • Skýrir hvernig athafnir mannsins tengja saman ólíka staði með viðskiptum og samskiptum Valdimar Stefánsson 2006

  18. Yfirsýn landafræðinnar • Staðbundin yfirsýn: sveitarfélag, dalur, fjörður, fjallgarður • Svæðisbundin yfirsýn: landshluti, heilt land, innhaf, heimsálfa, úthaf • Hnattræn yfirsýn: Allt yfirborð jarðar og samspilið á milli ólíkra svæða Valdimar Stefánsson 2006

  19. Landslag • Landslag er lykilhugtak landafræðinnar þar sem greinin fjallar um margbreytileika yfirborðs jarðar og auðlindanýtingu mannsins sem ávallt hlýtur að breyta umhverfi hans • Hvert einasta svæði á jörðinni hefur sín sérkenni Valdimar Stefánsson 2006

  20. Landslag • Mismunandi gerðir landslags: • Náttúrulegt landslag • Þar sem engin ummerki um athafnir mannsins eru til staðar • Mannvistarlandslag • Ýmsar gerðir mannvistarlandslags: landbúnaðarlandslag skógræktarlandslag iðnaðarlandslag Valdimar Stefánsson 2006

  21. Kjarnasvæði – jaðarsvæði • Hvernig þróast ólík svæði og breytast? • Samspil kjarnasvæðis og jaðarsvæðis • Kjarnasvæði eru svæði sem eru þróuðust, fjölmenn, þéttbýl og með fjölbreytt atvinnulíf • Jaðarsvæði eru strjálbýl, hafa lægra þjónustustig og fábreyttara atvinnulíf Valdimar Stefánsson 2006

  22. Staðsetningarmynstur • Allir hlutir og fyrirbæri taka ákveðið rými eða hafa tiltekna útbreiðslu • Samspil staðsetningar og útbreiðslu skapa staðsetningarmynstur • Staðsetningarmynstur veita upplýsingar um það hvernig nýta má yfirborð jarðar og auðlindir þess Valdimar Stefánsson 2006

  23. Net og dreifing • Fjarskiptaleiðir og samgöngukerfi mynda landfræðilegt net • Leiðirnar mætast í tengipunktum þaðan sem flæðinu um netið er stjórnað • Flest mannleg fyrirbæri eiga sér tiltekin upptakastað þaðan sem fyrirbærin dreifast um heiminn Valdimar Stefánsson 2006

More Related