1 / 28

Sigurbjörg Sæmundsdóttir umhverfisráðuneyti

Haustfundur Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga með Umhverfisstofnun, Matvælastofnun, umhverfisráðuneyti og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti 13. október 2010. Sigurbjörg Sæmundsdóttir umhverfisráðuneyti. Lagafrumvörp sem umhverfisráðherra hyggst flytja á 139. löggjafarþingi 2010 - 2011.

calais
Download Presentation

Sigurbjörg Sæmundsdóttir umhverfisráðuneyti

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Haustfundur Heilbrigðiseftirlitssveitarfélaga með Umhverfisstofnun, Matvælastofnun, umhverfisráðuneyti og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti13. október 2010 Sigurbjörg Sæmundsdóttirumhverfisráðuneyti

  2. Lagafrumvörp sem umhverfisráðherra hyggst flytja á 139. löggjafarþingi 2010 - 2011

  3. Frumvarp til laga um mannvirki Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á byggingarþætti skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um brunavarnir nr. 75/2000 Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem gera þarf á lögum um brunavarnir til samræmis við frumvarp til laga um mannvirki auk annarra breytinga í ljósi reynslu af framkvæmd laganna.

  4. Frumvarp til laga vegna innleiðingar á INSPIRE Markmið frumvarpsins er að innleiða tilskipun 2007/2/EB, um stofnun innra skipulags fyrir staðbundnar landupplýsingar innan Evrópusambandsins (INSPIRE) í íslensk lög.

  5. Frumvarp til laga um stjórn vatnamála Markmið frumvarpsins er að innleiða tilskipun 2000/60/EB um aðgerðarramma bandalagsins um stefnu í vatnsmálum í íslensk lög.

  6. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 44/1999 Frumvarpið felur í sér breytingu á 17. gr., 37. gr. og 41. gr. laga um náttúruvernd sem varðar m.a. akstur utan vega, sérstaka vernd jarðmyndana og vistkerfa og innflutning, ræktun og dreifingu lifandi lífvera. Frumvarp til laga um náttúruvernd Heildarendurskoðun laganna.

  7. Frumvarp til laga um fullgildingu Árósasamningsins Með frumvarpinu er ætlunin að fullgilda Árósasamninginn, um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum frá 1998

  8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002 Frumvarpið mælir fyrir um breytingar á upphæð úrvinnslugjalds á tiltekna vöruflokka.

  9. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 52/1988 um eiturefni og hættuleg efni og lögum nr. 45/2008 um efni og efnablöndur Innleiðing á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna. Reglugerðin gerir kröfur um samræmdar reglur um merkingu, flokkun og umbúðir efna á EES-svæðinu.

  10. Frumvarp til laga um umhverfisábyrgð Markmið frumvarpsins er að tryggja að sá sem ábyrgð ber á umhverfistjóni eða yfirvofandi hættu á umhverfistjóni komi í veg fyrir tjón ef tjón hefur orðið og beri kostnað af ráðstöfunum sem af því leiða. Með frumvarpinu er ætlunina að innleiða tilskipun 2004/35/EB, um umhverfisábyrgð, í íslensk lög.

  11. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003 meðhöndlun úrgangs Frumvarpið felur í sér innleiðingu nokkurra EB-gerða - tilskipun 2006/66/EB um rafhlöður og rafgeyma og tilskipun 2006/21/EB um námuúrgang. Einnig mun í frumvarpinu vera mælt fyrir um framleiðendaábyrgð á drykkjarvöruumbúðir með skilagjaldi og nauðsynlegar breytingar tengdar framkvæmd framleiðendaábyrgðar á raf- og rafeindatæki.

  12. Frumvarp til breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 Frumvarpið varðar breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir er varðar eftirlit með starfsleyfisskyldri starfsemi.

  13. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 Frumvarpið er til innleiðingar á tilskipun 2005/35/EB um mengun frá skipum og samræmd refsiákvæði vegna brota. Jafnframt mælir frumvarpið fyrir um viðbrögð við bráðamengun hafs og stranda, um viðbragðsaðila og lágmarks mengunarvarnabúnað í höfnum.

  14. Nýjar reglugerðir

  15. Reglugerð um styrk brennisteinsvetni í andrúmslofti Markmiðið að draga úr mengun frá jarðhitavirkjunum og mögulegum neikvæðum áhrifum hennar á heilsu fólks. Vegna ríkra hagsmuna almennings er lögð áhersla á að setja hámarksreglur um leyfilegan styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti. Reglugerðin er fyrsta skrefið í að draga úr mengun frá jarðvarmavirkjunum. Í ráðuneytinu er nú verið að meta hvort setja þurfi fyrirtækjum sérstök losunarmörk sem yrðu strangari en mörk um leyfilegan styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti.

  16. Reglugerð um kjölfestuvatn Markmið reglugerðarinnar að koma í veg fyrir að framandi lífverur og meinvaldar, svo sem veirur og sýklar, berist með kjölfestuvatni til hafsvæða og stranda umhverfis Ísland með því að takmarka losun þess.

  17. Reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðumReglugerðin gildir um búnað, hreinlæti og þrif á sund- og baðstöðum og í nánasta umhverfi þeirra, hreinsun og sótthreinsun baðvatns, aðbúnað gesta, öryggi og mengunarvarnir.Ákvæði reglugerðarinnar gilda um alla sund- og baðstaði sem almenningur hefur aðgang að. Reglugerðin gildir einnig um baðstofur og setlaugar sem reknar eru í tengslum við annan atvinnurekstur sem er eftirlitsskyldur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Undanskilin ákvæðum reglugerðarinnar eru sundlaugar og setlaugar við eða í heimahúsum og frístundahúsum, sem eingöngu eru ætlaðar til einkanota. Reglugerðin gildir ekki um sjóböð og náttúrulaugar.

  18. Væntanlegar reglugerðir

  19. Reglugerð um fráveitur sveitarfélaga Reglugerðin á að gilda um uppbyggingu og rekstur fráveita í eigu sveitarfélaga. Markmið verður að tryggja rekstraröryggi og auka sveigjanleika í uppbyggingu og rekstri fráveitna, stuðla að tæknilegum framförum og setja reglur um réttindi, skyldur og ábyrgð notenda annars vegar og þjónustu fráveitu við íbúa hins vegar. Í framhaldi af því verður sett af stað vinna við endurskoðun á reglugerð um fráveitur og skólp.

  20. Reglugerðir á grundvelli laga um stjórn vatnamálaRáðherra er heimilt, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar, að setja í reglugerð ákvæði um atriði er varða framkvæmd og útfærslu laganna ásamt viðmiðunarmörkum fyrir efni og umhverfi sem sett eru til að vernda og meta ástand vatns.Annars vegar reglugerð/reglugerðir til innleiðingar á viðaukum tilskipunar 2000/60/EB og EB-gerðum tengdum tilskipuninni.Hins vegar reglugerð um hlutverk og starfsemi vatnaráðs, skiptingu vatnaumdæmis í vatnasvæði, landfræðilega afmörkun vatnasvæða og samsetningu og hlutverk vatnasvæðanefnda, hlutverk ráðgjafanefnda, fulltrúa, fjölgun ráðgjafanefnda og nánari skiptingu þeirra og skipan starfs nefndanna.

  21. Byggingarreglugerð - endurskoðunMarkmiðið er framsæknasta byggingarreglugerð á Norðurlöndum hvað varðar sjálfbæra þróun þar sem opin stjórnsýsla, gagnsæi og lýðræðisumbætur eru höfð að leiðarljósi.

  22. Þættir sem sérstaklega tengjast heilbrigðiseftirliti:Sjónarmið er lúta að neytendavernd.Vistvænni byggð, með markmið sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi, þar með talið vistvænni samgöngumáta, til dæmis með því að huga vel að fjölda og staðsetningu bílastæða, reiðhjólastæða, hjólageymsla, sköpun betri aðstæðna til flokkunar úrgangs í íbúðar- og atvinnuhúsnæði og hagkvæmri orkunotkun í byggingum.Hljóðvist, m.a. í skólum með tilliti til nýrra kennsluhátta með það að markmiði að tryggja vandaða hljóðhönnun í skólaumhverfi barna og ungmenna.Byggingar sem eru ætlaðar börnum og ungmönnum s.s. skólar og íþróttamannvirki með það að markmiði að skapa örugg skilyrði fyrir börn til lífs og þroska, sbr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

  23. Annað Hollustuháttareglugerðin Náttúrulaugar Geymsla, losun og notkun á skít frá þauleldi

  24. ÚrgangsmálInnleiðing á úrgangstilskipun.Endurskoðun á lögum og reglugerðum um meðhöndlun úrgangs með þarfir almennings og umhverfis að leiðarljósi, svo markmið um minni urðun og meiri endurvinnslu náist.

  25. ÖryggismálSkilgreina hvað fellur undir öryggisþætti í 2. mgr. 3. gr. laga nr. 7/1998 og hvort það þurfi að styrkja lagastoðina. Margþætt starfsemi – samráð og gagnkvæmar tilkynningar.Merkingar.

  26. HollustuhættirInniloft – viðmiðunarreglur og mæliaðferðir.Starfssvið heilbrigðisnefnda – samræmingarhlutverk UST.

  27. Umhverfi barnaInnivist, hávaði, öryggismál og heilsa í tengslum við efni og efnamengun í umhverfi.Leikvallatæki og leiksvæði – lagfæring á reglugerð.

  28. Kærar þakkir

More Related