1 / 26

Icelandair og Hönnunarmiðstöð Íslands 9. júní 2011

Icelandair og Hönnunarmiðstöð Íslands 9. júní 2011. REFRESHING ICELANDIC TRAVEL EXPERIENCE. Hönnun mikilvæg. Í loforðinu fellst upplifun, íslensk ferðaupplifun

rehan
Download Presentation

Icelandair og Hönnunarmiðstöð Íslands 9. júní 2011

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Icelandair og Hönnunarmiðstöð Íslands 9. júní 2011

  2. REFRESHING ICELANDIC TRAVEL EXPERIENCE

  3. Hönnun mikilvæg • Í loforðinu fellst upplifun, íslensk ferðaupplifun • Markmið okkar er því að skapa íslenska stemningu um borð sem kennir viðskiptavinum okkar eitthvað um íslenska hönnun, menningu, sögu, tónlist og kvikmyndir • Mikilvægt að vinna náið með listamönnum • Viðskiptavinir sem fljúga um Ísland fá áhuga á Íslandi • Ánægðir viðskiptavinir segja frá upplifuninni sem aldrei fyrr • ...og upplifunin byggir á íslenskri hönnun • Íslensk hönnun er því mjög mikilvægur hlekkur í starfi Icelandair

  4. Snertingar

  5. Hvaðerumviðaðgera um borð í vélunumokkar?

  6. Íslenskir þemadagar • Bóndadagur (Þorri) • Bolludagur • Sprengidagur • Öskudagur • Konudagur (Góa) • Páskadagur • Sumardagurinn Fyrsti • Lýðveldisdagurinn • Aðventa (Jólaþema) • Jólasveinar koma til byggða • Aðfangadagur

  7. Snúumokkurnúnaaðkeppninni

  8. Markaðsstefna REFRESHING ICELANDIC TRAVEL EXPERIENCE

  9. hönnunarsamkeppni • Verkefnið: • Hönnunarsamkeppni Icelandair og Hönnunarmiðstöðvar Íslands beinist að því að bæta og styrkja matarupplifun farþega Icelandair með nýju útliti og umbúðum. • Verkefnið felst í því að hanna nýjar matarumbúðir fyrir kalda rétti sem boðnir eru farþegum Icelandair á Economy Comfort og Economy Class farþegarýmum.

  10. hönnunarsamkeppni • Markmið: • Þjónustumarkmið Icelandair snýst alltaf um að auka gæði upplifunar farþega sinna. Þetta verkefni er mikilvægur liður í að ná því markmiði. • Matartengd þjónusta Icelandair nær ekki upplifunarmarkmiðum sínum ef gæðum matarins er áfátt. Þar kemur að mikilvægi góðra umbúða. • Umbúðir geta verið meira en ílát fyrir mat sem búnar eru til úr plasti eða pappír. Góðar og vel hannaðar umbúðir geta komið með nýja vídd í matarupplifunina. Það er þannig sem Icelandair lítur á þetta verkefni.

  11. hönnunarsamkeppni • Verðlaunafé: • Verðlaunahafi hlýtur verðlaun að verðmæti 1.000.000 kr. • 2. verðlaun er gjafabréf hjá Icelandair að upphæð 300 000 kr. • 3. verðlaun er gjafabréf hjá Icelandair að upphæð 100 000 kr. • Auk þess verður gerður samningur við vinningshafa um nánari útfærslu hugmyndarinnar. • Ef engin hugmynd virkar eða kemur til greina mun dómnefnd geta ákveðið að setja engan í verðlaunasæti - mikilvægt að við komum þessu frá okkur á einhvern snyrtilegan máta.

  12. hönnunarsamkeppni • Umsóknarferli: • Tillögum skal skila í lokuðu umslagi merktu dulnefni í Hönnunarmiðstöð Íslands, Vonarstræti 4b, 101 Reykjavík, fyrir kl. 12.00, fimmtudaginn 15. september 2011. • Í umslaginu skal vera annað lokað umslag merkt dulnefni en inni í því þarf rétt nafn hönnuðar, heimilisfang og sími að koma fram. Tillögum skal skila útprentuðum á A4 blaði í lit (hámark 5 síður). Tillögur skulu einnig fylgja með á diski með pdf skjölum. • Úrslit samkeppninnar verða tilkynnt fimmtudaginn 29. september 2011.

  13. hönnunarsamkeppni • Dómnefnd skipa: • Einar Örn Steindórsson –  Íslenska auglýsingastofan • Rannveig Eir Einarsdóttir – Icelandair • Consept hönnuður – Garðar Eyjólfsson • Grafískur hönnuður – Snæfríð Þorsteinsdóttir • Tinna Gunnarsdóttir, vöruhönnuður Keppnisritari: Haukur Már Hauksson Dómnefnd hefur rétt á að hafna öllum tillögum.

  14. hönnunarsamkeppni • Nánari lýsing: • Hvað eiga umbúðirnar að geyma: • Kaldan mat sem framreiddur er á Comfort farrými og Economy farrými í vélum félagsins. • Sem dæmi má nefna umbúðir utan um smurbrauð, kalda rétti s.s. kjúkling með grænmeti, salat, kleinur o.s.frv.

  15. hönnunarsamkeppni • Kostnaður: • Kostnaðarþátturinn er mikilvægur í verkefninu þar sem Icelandair kaupir ríflega 700.000 einingar á ársgrundvelli og því mikilvægt að kostnaði sé haldið í lágmarki.

More Related