html5-img
1 / 30

Skattaréttur 2005 20. janúar

Skattaréttur 2005 20. janúar. 1. kennsludagur. H ö rður Guðmunds. Kennarar. Hörður Guðmundsson, hdl. hgudmundsson@kpmg.is Bernhard Bogason, hdl. bernhardbogason@kpmg.is Kennsludagur 3. Stjórnarskrá, réttarheimildir o.fl Kennsludagur 20. Alþjóðlegur skattaréttur

millie
Download Presentation

Skattaréttur 2005 20. janúar

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Skattaréttur 200520. janúar 1. kennsludagur. Hörður Guðmunds.

  2. Kennarar • Hörður Guðmundsson, hdl. hgudmundsson@kpmg.is • Bernhard Bogason, hdl. bernhardbogason@kpmg.is • Kennsludagur 3. Stjórnarskrá, réttarheimildir o.fl • Kennsludagur 20. Alþjóðlegur skattaréttur • Soffía Björgvinsdóttir, hdl. sbjorgvinsdottir@kpmg.is • Kennsludagar 17 – 19. Virðisaukaskattur. • Einar Ólafsson, endurskoðandi. eolafsson@kpmg.is • Kennsludagar 11 – 13. Skattalegir útreikningar hjá lögaðilum. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  3. Próf • Próf í skattarétti er tvískipt og gildir hvor hluti um sig 50%. • Munnlegt próf verður úr öllum þáttum kennslunnar. • Skriflegt próf verður varðandi þrjá þætti: • Skattlagning einstaklinga (28. jan. – 10. feb) Kennari HG. • Skattalegir útreikningar (24. febrúar – 3. mars) Kennari EÓ. • Virðisaukaskattur (17. mars – 31. mars) Kennari SB. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  4. Hugtakið skattur - skilgreining • Almenn greiðsla sem óákveðinn fjöldi einkaaðila er þvingaður til að greiða hinu opinbera án þess að eiga rétt á beinu endurgjaldi í staðinn. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  5. Skilgreining á skattarétti • Skattaréttur er sú fræðigrein lögfræðinnar er skýrir réttarreglur varðandi : • 1) skyldu einstaklinga, félaga, stofnana og sjóða að greiða skatt til hins opinbera, • 2) reglur varðandi skattstofninn, sem greiðslan miðast við, • 3) og loks reglur um framkvæmd og eftirlit með því, að hver skattaðili greiði það sem honum ber, þ.á.m. reglur um innheimtu, ábyrgð og viðurlög. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  6. Gagnlegar heimasíður í skattarétti • www.rsk.is • www.kpmg.is • www.yskn.is • www.fjarmalaraduneyti.is/ • www.althingi.is S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  7. Hlutverk skattalögfræðinga • Ráðgjafahlutverk. • Samskipti við skattyfirvöld. • Dómsmál. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  8. Skattar og pólitík • Hlutverk ríkisvaldsins. • Meðferð fjármuna. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  9. Af hverju skattur ? • Einn háskólanemi á ári = 600.000 kr. • Eitt stk. útskrifaður stúdent = 2,4 milljónir króna • Íslenskur landbúnaður = 26.000 kr. á ári á íbúa • Ein mjaðmakúluaðgerð = 700.000 kr. • Einn nýburi = 155.000 kr.  (tekin m. keisara 400.000 kr.) • Sinfóníutónleikar = 13.000 kr. á gest • Leiksýningar = 8.000 kr. á gest • Bundið slitlag = 2,5 m.kr. á km S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  10. Hvaðan koma tekjur ríkisins ? S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  11. Skipting skattbyrðarinnar • Notkunarkenningin • Greiðslugetukenningin S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  12. Helstu flokkar skatta • Beinir skattar vs. óbeinir skattar. • Ríkisskattar vs. sveitarfélagaskattar. • Flokkun eftir gjaldsstofnum. • Tekjuskattar. • Eignarskattar. • Launaskattar. • Vöru og þjónustuskattar. • Veltuskattar. • Nefskattar. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  13. Stjórnsýslan S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  14. Fræðikerfi lögfræðinnar • Einkaréttur vs. opinber réttur • Ef annar aðili réttarsambandsins er handhafi opinbers valds er réttarsviðið á sviði opinbers réttar. • Einhliða boð og bönn í opinberum rétti. • Réttarreglur opinbers réttar mælir fyrir um opinbera hagsmuni en einkaréttar um samskipti milli borgaranna. • Skattaréttur telst til opinbers réttar. • Skattaréttur fjallar um skyldu aðila til að greiða skatt, og álagningu og innheimtu hins opinbera á einkaaðila. • Um viðurlög við skattabrotum er fjallað í skattarefsirétti en ekki á þessu námskeiði. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  15. Fræðikerfi lögfræðinnar • Tengsl skattaréttar og einkaréttar. • Skilgreining hugtaka, t.d. fasteign, barn o.fl. • Gildi einkaréttarlegra samninga skv. skattarétti. • Óvenjuleg fjárskipti / Skattasniðganga. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  16. Uppbygging laga nr. 90/2003 • Tilvísanir algengar. • 9. gr. 1. mgr. “Tekjur skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr., vegna kaupa manns á hlutabréfum samkvæmt kauprétti sem hann hefur öðlast vegna starfa fyrir annan aðila, sbr. þó 10. gr., skulu ákveðnar eins og kveðið er á um í þessari grein.“ • Breytingar algengar. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  17. Uppbygging laga nr. 90/2003 • Kaflaskipting laganna. • I. kafli Skattskyldir aðilar. • II. kafli Skattskyldar tekjur. • III. kafli Frádráttur frá tekjum. • V. kafliÝmis ákvæði um tekjur. • V. kafliTekjuskattsstofn. • VI. kafliTekjuskattsútreikningur, afslættir og barnabætur. • VII. kafliEignarskattur. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  18. Uppbygging laga nr. 90/2003 • VIII. kafliSkattumdæmi, skattstjórar, ríkisskattstjóri,skattrannsóknarstjóri, yfirskattanefnd o.fl. • IX. kafliFramtöl og skýrslugjafir. • X. kafli Álagning, kærur o.fl. • XI. kafli Ýmis ákvæði um skattyfirvöld. • XII. kafli Viðurlög og málsmeðferð. • XIII. kafli Innheimta og ábyrgð. • XIV. kafli Ýmis ákvæði. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  19. Skattskyldir aðilar – I. kafli Tsl. • 1. gr. Skattskylda manna. • 2. gr. Skattskylda lögaðila. • 3. gr. Takmörkuð skattskylda. • 4. gr. Aðilar undanþegnir skattskyldu. • 5. – 6. gr. skattskylda hjóna og barna. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  20. Skattskyldir aðilar – skattskylda manna. • Skylda til að greiða tekjuskatt af öllum tekjumsínum, hvar sem þeirra er aflað, og eignarskatt af öllum eignum sínum, hvar sem þær eru, hvílir á þessum mönnum: • Þeim sem heimilisfastir eru hér á landi. • Þeim sem heimilisfastir hafa verið hér á landi en flutt úr landi og fellt hafa niður heimilisfesti sitt hér, nema þeir sanni að þeir séu skattskyldir í öðru ríki • Þeim sem dvelja hér á landi lengur en samtals 183 daga á sérhverju 12 mánaða tímabili, þar með talin eðlileg fjarvera héðan af landi vegna orlofs og þess háttar. • Þeir sem starfa um borð í loftfari eða skipi sem skráð er hér á landi. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  21. Skattskyldir aðilar – skattskylda manna. • Ótakmörkuð skattskylda manna sbr. 1.gr. • Menn heimilisfastir hér á landi sbr. 1. tl. • Hvað er heimilisfesti í skattaréttarlegum skilningi? • Flutningur til Íslands. • Flutningur frá Íslandi. • Menn sem hafa verið heimilisfastir hér á landi. Þriggja ára reglan sbr. 2. tl. • Tilgangur ákvæðisins að koma í veg fyrir að menn sleppi við að greiða skatta þ.s. þeir séu hvergi skattskyldir. • Tekur jafnt til Íslendinga og útlendinga. • Óháð lengd heimilisfestar. • Til að undanþága sé möguleg þarf að sanna skattskyldu í öðru ríki. • Til að undanþága sé möguleg þarf skattskyldu að vera fullnægt. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  22. Skattskyldir aðilar – skattskylda manna. • Ótakmörkuð skattskylda manna sbr. 1.gr. frh. • Menn sem dvelja hér lengur en 183 daga á sérhverju 12 mánaða tímabili sbr. 3.tl. • Ekki er miðað við almanaksárið. • Menn sem ekki falla undir 1-3 tl. en starfa lengur en 183. daga um borð í skipi eða loftfari skráðu hér á landi sbr. 4.tl. • Úrskurðarvald RSK um ótakmarkaða skattskyldu. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  23. Skattskyldir aðilar – skattskylda lögaðila. • Skylda til að greiða tekjuskatt af öllum tekjum sínum, hvar sem þeirra er aflað, og eignar­skatt af öllum eignum sínum, hvar sem þær eru, hvílir á þessum lögaðilum: • Hlutafélögum, samlagshlutafélögumog öðrum félögum með takmarkaðri ábyrgð félagsaðila, enda séu þau skráð hér á landi. • Gagnkvæmum vátryggingar- og ábyrgðarfélögum, kaupfélögum, öðrum samvinnufélögum og samvinnufélagasamböndum, enda séu þau skráð hér á landi. • Samlagsfélögum og sameignarfélögummeð ótakmarkaðri ábyrgð félagsaðila, enda sé félagið skráð í firma­skrá hér á landi, þess óskað við skráningu að félagið sé sjálfstæður skattaðili. • Samlögum og samtökum sem hafa það að meginmarkmiði að annast vinnslu eða sölu á framleiðsluvörum félagsaðila sinna, innkaup á rekstrarvörum eða þjónustu í beinum tengslum við atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi þeirra, enda séu þau skráð í firmaskrá hér á landi og þess getið við skráningu að þau séu sjálfstæðir skattaðilar. • Öðrum félögum, sjóðum og stofnunum, þar með töldum sjálfseignarstofnunum, sem hér eiga heimili, sbr. þó 5. tölul. 4. gr., svo og dánarbúum og þrotabúum. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  24. Skattskyldir aðilar – skattskylda lögaðila. • Félag, sjóður eða stofnun telst eiga hér heimili ef það er skráð hér á landi, telur heimili sitt hér á landi samkvæmt samþykktum sínum eða ef raunveruleg framkvæmdastjórn þess er hér á landi. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  25. Takmörkuð skattskylda • Skilgreining • Skylda til að greiða tekjuskatt af tekjum sem uppruna eiga hér á landi og eignarskatt af eignum sem hér eru, án tillits til þeirra tekna sem þeir kunna að afla annars staðar á sama tíma eða sama almanaksári og eigna sem þeir kunna að eiga annars staðar. • Tvísköttunarsamningar. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  26. Takmörkuð skattskylda • Takmörkuð skattskylda sbr. 3. gr. • Menn sem njóta launa og dvelja hér á landi í 183 daga eða skemur sbr. 1. tl. • Almenn skattprósenta skv. 1. tl. 70. gr. Reikniregla í 2. mgr. 69. gr. • Menn sem njóta launa eða hliðstæðra greiðslna frá íslenskum aðilum sbr. 2. tl. • Skattprósenta er 15% af tekjuskattstofni. • Ath. sérreglu 2. ml. 2. tl. 1. mgr. 70. gr. um aðila sem kemur til skemmtunar eða keppni. • 10% Brúttótekjuskattur. • Ath. sérreglu 3. ml. 2. tl. 1. mgr. 70. gr. varðandi eftirlaunaþega og lífeyrisþega, tekið er tillit til persónuafsláttar. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  27. Takmörkuð skattskylda • Takmörkuð skattskylda sbr. 3. gr. frh. • Aðilar/Menn sem fá greitt fyrir þjónustu hér á landi sbr. 3. tl. 15% • Skattprósenta er 15% af tekjuskattstofni. • Ath. sérreglu 2. ml. 2. tl. 1. mgr. 71. gr. um aðila sem kemur til skemmtunar eða keppni. • 10% Brúttótekjuskattur. • Aðilar/Menn sem reka hér fasta starfsstöð sbr. 4. tl. • Almenn skattprósenta skv. 3. tl. 70. gr. Ekki tekið tillit til persónuafsláttar. • Tekjuskatt lögaðila skal reikna skv. almennum reglum 71. gr. • Aðilar/Menn búsettir erlendis með tekjur af fasteign sbr. 5. tl. • Almenn skattprósenta. Ekki tekið tillit til persónuafsláttar. • Tekjuskatt lögaðila skal reikna skv. almennum reglum 71. gr. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  28. Takmörkuð skattskylda • Takmörkuð skattskylda sbr. 3. gr. frh. • Aðilar/Menn búsettir erlendis með tekjur af leigu o.fl. lausafé sbr. 6. tl. • Almenn skattprósenta. Ekki tekið tillit til persónuafsláttar. • Tekjuskatt lögaðila skal reikna skv. almennum reglum 71. gr. • Aðilar/Menn búsettir erlendis með tekjur af hlutabréfum, stofnbréfum o.fl. sbr. 7. tl. • Skattprósenta er 15% af tekjuskattstofni nema 10% af arði, leigutekjum og söluhagnaði. • Erlendir sendiherrar o.fl. sbr. 8. tl. • Almenn skattprósenta nema 10% af arði, leigutekjum og söluhagnaði. Ekki tekið tillit til persónuafsláttar. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  29. Aðilar undanþegnir skattskyldu – 4. gr. • Þessir aðilar greiða hvorki tekjuskatt né eignarskatt: 1.  Ríkissjóður, ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki sem hann rekur og ber ótakmarkaða ábyrgð á svo og Fiskifélag Íslands. 2.  Sýslu- og sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir sem þau reka og bera ótakmarkaða ábyrgð á. 3.  Erlend ríki og alþjóðastofnanir, af fasteignum sem þær nota vegna viðurkenndrar starfsemi sinnar hér á landi. 4.  Þeir lögaðilar sem um ræðir í 2. gr. og hér eiga heimili, ef þeir verja hagnaði sínum einungis til almenningsheilla og hafa það að einasta markmiði samkvæmt samþykktum sínum. 5.  Félög, sjóðir og stofnanir, sbr. 5. tl. 2. gr., sem ekki reka atvinnu. 6.  Aðilar sem undanþegnir eru skattskyldu með sérstökum lögum. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

  30. Skattskylda hjóna og barna – 5. og 6. gr. • Hjón eru sjálfstæðir skattaðilar hvort um sig og skal þeim ákveðinn tekjuskattur og eignarskattur hvoru í sínu lagi. • Bera samt ábyrgð á skattgreiðslum hvors annars • Barn, sem er innan 16 ára aldurs á tekjuárinu, er ekki sjálfstæður skattaðili sé það á framfæri foreldra sinna (þar með taldir kjörforeldrar, stjúpforeldrar, fósturforeldrar). Þó skulu launatekjur barns skattlagðar sérstaklega. S K A T T A R É T T U R - I N N G A N G U R

More Related