1 / 13

Snorra-Edda Gylfaginning, kaflar 40-45

Snorra-Edda Gylfaginning, kaflar 40-45. Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 212 Herdís Þ. Sigurðardóttir. Gylfaginning. Kafli 40: Valhöll Gangleri spyr hvort ekki sé þröngt í Valhöll fyrst þangað sé stöðugt streymi vopndauðra manna.

liana
Download Presentation

Snorra-Edda Gylfaginning, kaflar 40-45

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Snorra-EddaGylfaginning, kaflar 40-45 Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 212 Herdís Þ. Sigurðardóttir

  2. Gylfaginning • Kafli 40: Valhöll • Gangleri spyr hvort ekki sé þröngt í Valhöll fyrst þangað sé stöðugt streymi vopndauðra manna. • Hár segir að Valhöll sé svo gríðarstór að aldrei er þröngt um allan þann mannfjölda sem þar dvelur. • Til marks um stærð Valhallar: • 540 dyr • Um hverjar dyr geta 800 einherjar gengið í einu • Það er því ekki þrengra um menn innan dyra en utan.

  3. Gylfaginning • Kafli 41: Skemmtun einherja • Gangleri spyr hvernig einherjar skemmti sér. • Hár segir að þegar einherjar hafi klæðst á morgnana, vígbúist þeir og taki til við að berjast. • Þeir leika sér að því að fella hver annan. • Baninn sem menn hljóta í þessum bardögum er þó ekki varanlegur því þegar líður að morgunverði ríða menn aftur til Valhallar og setjast sáttir við drykkju. • Mönnum ætti því ekki að leiðast lífið í Valhöll!

  4. Gylfaginning • Kafli 42: Borgarsmiðurinn • Gangleri spyr út í hestinn Sleipni • Hár segir að þegar byggð goðanna hafi verið ung hafi smiður nokkur komið til þeirra og boðist til að byggja varnarmúr í kringum byggðina á þremur misserum. • Varnarmúrinn átti að vera svo sterkur að hann stæðist ágang bergrisa og hrímþursa. • Sem laun fyrir verk sitt vildi smiðurinn fá Freyju, sól og mána. • Æsir gengu að þessum samningi að því tilskyldu að ef eitthvað vantaði upp á að múrinn væri fullgerður hinn fyrsta dag sumars fengi smiðurinn ekki kaup sitt. • Smiðurinn bað um að fá að nota hestinn Svaðilfara við verk sitt. • Loki réð því að smiðnum var leyft þetta.

  5. Gylfaginning • Kafli 42: Borgarsmiðurinn, frh. • Hinn fyrsta vetrardag tók smiðurinn til við bygginguna. • Hann notaði hestinn til að draga grjót og vann hesturinn hálfu meira þrekvirki en smiðurinn sjálfur. • Bygging varnarmúrsins gekk vel og farnar voru að renna tvær grímur á æsi. • Þegar 3 dagar voru til sumars gengu æsir á fund Loka og hótaði honum öllu illu ef hann kæmi ekki í veg fyrir að smiðurinn nái að klára verkið á settum tíma.

  6. Úr Gylfaginningu • Borgarsmiðurinn, frh. • Loki brá sér þá í líki merar og tældi Svaðilfara inn í skóg. • Á meðan gat smiðurinn ekki unnið. • Hann reiddist mjög og færðist í jötunmóð. • Æsir kölluðu á Þór sem drap jötuninn með hamrinum Mjöllni. • Nokkru síðar kastaði Loki folaldi. • Það var grátt og hafði átta fætur. • Sá hestur var nefndur Sleipnir.

  7. Gylfaginning • Kafli 43: Skíðblaðnir • Gangleri spyr hvort skipið Skíðblaðnir sé ekki best og stærst allra skipa. • Hár segir að Skíðblaðnir sé best allra skipa og gert með mestum hagleik en Múspell eigi hins vegar stærsta skipið. • Það heitir Naglfari. • Hár segir að dvergar nokkrir hafi smíðað Skíðblaðni og gefið Frey það. • Skipið sé svo mikið að allri æsir komist fyrir á því með vopnum og herbúnaði. • Skipið er jafnframt þannig úr garði gert að þegar segl þess er dregið upp hefur það byr hver sem farið skal en þegar það er ekki í notkun má vefja það saman sem dúk og geyma í pyngju sinni.

  8. Gylfaginning • Kafli 44: Viðureign Þórs og Útgarða-Loka • Gangleri spyr hvort Þór hafi einhvern tímann átt við ofurefli að etja sakir afls óvinarins eða fjölkyngi. • Hár færist undan því að svara þessu og segir að allir séu skyldugir til að trúa því að Þór sé máttugastur. • Gangleri spyr þá hvort enginn sé nógu fróður til að geta sagt sér frá þessu. • Jafnhár vísar þá spurningunni á Þriðja. • Þriðji segir frá því þegar Ökuþór fór í ferð með hafra sína ásamt Loka. • Að kvöldi komu þeir til bónda nokkurs og fengu hjá honum gistingu.

  9. Gylfaginning • Kafli 44: Viðureign Þórs og Útgarða-Loka • Bóndinn átti tvö börn, þau Þjálfa og Röskvu. • Þór slátraði höfrum sínum og bauð heimilisfólki að eta með sér. • Þegar fólkið var orðið satt bað Þór það um að henda beinum hafranna á hafurskinnin. • Þjálfi skar hins vegar lærlegg hafursins með hníf sínum og braut legginn til mergjar. • Morguninn eftir tók Þór eftir því að lærleggur annars hafursins var brotinn. • Hann reiddist mjög.

  10. Gylfaginning • Kafli 44: Viðureign Þórs og Útgarða-Loka • Fólkið á bænum varð ákaflega hrætt og sagðist vera tilbúið að bjóða honum hvað sem væri ef hann þyrmdi lífi þess. • Þegar Þór sá hræðslu fólksins rann honum reiðin. • Hann tók Þjálfa og Röskvu sem sáttagjöf og þau fylgja honum alla tíð síðan.

  11. Gylfaginning • Kafli 45: Viðureign Þórs og Skrýmis • Þór heldur til Jötunheima ásamt Þjálfa og Röskvu. • Þau koma að miklum skógi. • Þegar myrkur skellur á leitar samferðafólkið sér náttstaðar í skála nokkrum miklum. • Um nóttina verður mikill jarðskjálfti. • Þór og föruneyti hans leitar skjóls í afhúsi í skálanum. • Næsta dag sér Þór hvar tröllvaxinn maður liggur sofandi. • Þór spennir um sig megingjörðunum svo honum vex ásmegin.

  12. Gylfaginning • Kafli 45: Viðureign Þórs og Skrýmis, frh. • Þegar risinn vaknar segist hann heita Skrýmir og spyr Þór hvort hann hafi séð hanskann sinn. • Þá uppgötvar Þór að skálinn sem hann gisti í um nóttina er hanski Skrýmis en afhúsið er þumall hanskans. • Skrýmir spyr Þór hvort hann vilji samfylgd hans og Þór þiggur það. • Skrýmir býður Þór upp á að þeir deili með sér nesti. • Þegar allir hafa matast bindur Skrýmir matinn í bagga og leggur á bak sér. • Um kvöldið leggst Skrýmir til svefns en Þór vill opna nestisbaggann og fá sér að borða.

  13. Gylfaginning • Kafli 45: Viðureign Þórs og Skrýmis, frh. • Þór tekst ekki með nokkru móti að opna baggann. • Þá reiðist hann mjög og lemur í höfuð Skrýmis með hamrinum Mjöllni. • Skrýmir vaknar og spyr hvort laufblað hafi fallið á höfuð sér. • Þegar Skrýmir er aftur sofnaður lemur Þór hann enn með hamrinum. • Skrýmir vaknar og spyr hvort akarn hafi fallið á höfuð sér. • Enn sofnar Skrýmir og Þór lemur hann í höfuðið í þriðja sinn. • Skrýmir vaknar og spyr hvort fuglar séu trénu fyrir ofan sig; hann gruni að þeir hafi látið kvisti falla á vanga sinn. • Nú fara Skrýmir og Þór á fætur og ferðbúast. • Skrýmir ráðleggur Þór að hafa hægt um sig í Útgörðum því menn Útgarða-Loka muni ekki þola háðsyrði frá smástrákum á borð við Þór.

More Related