1 / 24

Hvorfor gøre det enkelt når man kan gøre det kompliceret? Er verið að flækja málin?

„ mál telst vera barnaverndarmál þegar barnaverndarnefnd hefur tekið formlega ákvörðun um að hefja könnun ”. Hvorfor gøre det enkelt når man kan gøre det kompliceret? Er verið að flækja málin?. Að skilgreina hugtakið barnaverndarmál samanburður við nágrannalönd.

kaoru
Download Presentation

Hvorfor gøre det enkelt når man kan gøre det kompliceret? Er verið að flækja málin?

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. „mál telst vera barnaverndarmál þegar barnaverndarnefnd hefur tekið formlega ákvörðun um að hefja könnun” Hvorfor gøre det enkelt når man kan gøre det kompliceret? Er verið að flækja málin? Guðrún Kristinsdóttir

  2. Að skilgreina hugtakið barnaverndarmál samanburður við nágrannalönd • Umfjöllun starfshóps borgarstjóra • Spurningar sem fjallað er um í skýrslu okkar. Samanburður • Niðurstöður og álit Guðrún Kristinsdóttir

  3. Þrjú atriði í áliti starfshóps borgarstjóra 2003. • Svo virðist sem eðlismunur sé á stuðningsmálum og formlegum málum. • Munur er á málum eftir því hvort foreldrar leita eftir aðstoð eða hvort grunur er um refsivert athæfi eða vanhæfi þeirra. • Hugtakið virðist skilgreint víðar hér en í nágrannalöndum. Dæmi: tilkynningar til lögreglu eru skilgreind sem barnaverndarmál. Guðrún Kristinsdóttir

  4. Margvísleg afmörkun. Merking hugtaksins „barnaverndarmál” er í senn stjórnsýsluleg, pólítísk, fagleg og almenn. • Mat á vanda að baki mála nær til félagslegra, lagalegra, tilfinningalegra, siðferðilegra og heilsufarslegra þátta. • Mat á aðstæðum/atburðum/ hegðun málsaðila er háð því hver skynjar þau og skilgreinir og það stjórnast af stöðu hvers aðila (Lundström 2000). • Ríkjandi viðhorf ásamt lögum og faglegri umræðu hafa mikil áhrif á hvaða aðstæður kalla á aðgerðir og til hvaða aðgerða er gripið. Guðrún Kristinsdóttir

  5. Afmörkun efnisins í álitsgerð: • Hvenær ber barnaverndaryfirvöldum að hefjast handa? • Hvenær ber að tilkynna mál til barnaverndaryfirvalda? • Hvernig eru mörk dregin milli stuðnings- og þvingunarmála? • Er gerður greinarmunur á málum eftir stöðu og aldri geranda ? (þetta átti einungis við um bandarísk ákvæði). Guðrún Kristinsdóttir

  6. * risikohugtak í Danm. um þvingun Guðrún Kristinsdóttir

  7. 1. Hvenær ber að hefjast handa um úrræði? • Norræn lög – kveða öll á um snemmtæka íhlutun, beitt er samhliða félagsþjónustu og barnavernd. • Samhliða víð velferðaráhersla og þrengri áhersla á afskipti (vernd) í alvarlegum málum (welfare/protection). • England og Wales gera á svipaðan hátt ráð fyrir að mæta þörfum barna og hafa sértæk úrræði þegar hætta steðjar að heilsu og þroska þeirra. • Í Bandaríkjunum virðist sem ofbeldi eða vanræksla þurfi að vera fyrir hendi til að mál verði barnaverndarmál. Guðrún Kristinsdóttir

  8. 2. Lögbundin tilkynningarskylda víðtækust hér og í Svíþjóð. Guðrún Kristinsdóttir

  9. 3. Mörk stuðnings og þvingunar Forsendur aðgerða með eða án samþykkis • Lágmarksíhlutun er almenn frumregla í helstu samanburðarlöndum. • Markmið: Veita stuðning, tryggja öryggi og mæta sérstökum þörfum barna. • Tilhneiging til velferd/risiko - falskar markalínur stuðningur/þvingun.(Noregur) (bls.53). • a) aðstæður og b) hegðun, stundum tvískipt, sænsk álitsgerð hnykkir á því að skiptingin sé einfölduð í mati sem hverfa þurfi frá a) yngri, b) eldri börn). Guðrún Kristinsdóttir

  10. Er umtalsverður munur á lögum og skilyrðum fyrir ráðstöfunum eftir því hvort áhersla er lögð á velferð eða hættu? • Nei, þrátt fyrir ólíka orðanotkun er í helstu samanburðarlöndum skýrt tekið fram að líkur á hættu eigi að vera tilefni afskipta, skaðinn þurfi ekki að vera skeður og um mikilvægi snemmtækrar íhlutunar. Guðrún Kristinsdóttir

  11. Spurningar til umræðu Er munur á eðli máls eftir því hvar það „hefst”, t.d. hvort leitað er fyrst til sjúkrahúss eða barnaverndar? Ætti að endurskilgreina löggjöfina út frá réttindum barnsins en ekki þörfum eða slæmum skilyrðum sem það er í/getur lent í? Sums staðar hafa mál þróast í átt til tvískiptingar, annars vegar áherslu á velferð og hins vegar áherslu á hættu/vernd. Hvar stöndum við? Guðrún Kristinsdóttir

  12. Skiptar skoðanir um heimildir til að beita úrræðum á sviði félagsþjónustu og barnaverndar • barnaverndarlög hafa að geyma nokkuð skýr ákvæði um úrræði sem ber að hafa tiltæk, þetta útiloki ekki að sams konar úrræðum sé beitt á grundvelli annarra laga, svo sem félagsþjónustulaga, t. d. stuðningsfjölskyldur. • bv.l. útiloki að samskonar úrræðum sé beitt á grundvelli annarra laga nema þau lög kveði sérstaklega á um beitingu slíkra úrræða. • Um 2: Rök megi færa fyrir því að ekki sé um samskonar úrræði að ræða, því að (ólíkar) þarfir einstaklinga eigi að kalla á annars konar beitingu úrræða og séu þau þar af leiðandi í raun annars konar úrræði. • Um 1: Markmiðum bv. m.a. náð með því að beita ýmsum stuðningsaðgerðum bv.l í félagsþjónustu. Guðrún Kristinsdóttir

  13. Leiðir til skilgreiningar – Ætti • að skilgreina mál út frá þörf fyrir tiltekið úrræði? EÐA • horfa f.o.f. til aðstæðna/ stöðu barns og foreldris? • EÐA til þess hvort eru (fyrirhuguð) afskipti og aðgerðir með eða án samþykkis foreldra? 3. er hafnað í álitagerðinni. Lítum nánar á 1 og 2 Guðrún Kristinsdóttir

  14. Úrræði markar skilgreiningu • Ýmsir vankantar • Meðalhófsregla mælir gegn því, úrræði á að stýrast af mati á aðstæðum, beita á vægustu úrræðum en íþyngjandi ef markmið nást ekki með öðrum hætti. • Varasöm leið þegar úrræði eru færri en þarfir kalla á. • Erlendar rannsóknir sýna að hefð virðist hindra þróun nauðsynlegra úrræða. Guðrún Kristinsdóttir

  15. Aðstæður/staða barns/foreldra markar skilgreininguÞessi leið er víða farin og m.a. hérlendis. Matið er þó vanda bundið og fleiri áhrif að verki en aðstæður, hegðun og líðan: • Mat á málum er oft óljóst þrátt fyrir rannsóknir og ítarlegar tilraunir til markalína (England/Wales). • Forvarnir, velferðaráhersla. Faglegt svigrúm mikið (Finnland). • Mat oft óljóst. (Noregur). • Starf oft án trausts þekkingargrunns (Svíþjóð). • Staðfest þekking lítil. Lítil vinna farið fram (Ísland). Guðrún Kristinsdóttir

  16. Ein af niðurstöðum úttektarinnar er • Að sú leið að skilgreina barnaverndarmál þannig að staða barns/foreldris stýri sé bæði vænleg og raunhæf en vörðuð erfiðleikum: Guðrún Kristinsdóttir

  17. Mat mála er vanda bundið Veikleikar felast í þáttum eins og • áhrifum fagmanna, • hefðum sem tengjast vinnulagi og aðgerðum, • faglegu umhverfi og • stjórnsýslu. Guðrún Kristinsdóttir

  18. Lykilatriði í mati • Ekki ástand heldur afleiðingar sem máli skipta. • Aðstæður ber að athuga í heildarsamhengi, með lengri og skemmri tíma í huga og meta afleiðingar liðinna atburða. (einstakur atburður, sem virðist í fyrstu alvarlegur þarf ekki að hafa leitt til skaða, meta ber heildaráhrif). • Meta þarf líkur á þróun framundan í lífi barnsins OG • Styrkleika barns og verndandi þættir í umhverfi þess sem kunna að vega upp á móti veikleikum. Guðrún Kristinsdóttir

  19. Einnig mætti ræða... • Á að endurskilgreina íslensku löggjöfina út frá réttindum barnsins en ekki þörfum þess eða slæmum skilyrðum þess eða hættu á slíku? • Svíar ræða um að snúa dæminu við og skilgreina hvaða aðstæður og skilyrði börn eigi rétt á að búa við - í stað þess að tilgreina ófullnægjandi aðstæður/skilyrði. Guðrún Kristinsdóttir

  20. Áhersla á heilbrigði og réttindi er athygliverð Álit hérlendis við lagasetningu að viðunandi aðstæður verði seint skilgreindar til fulls (aths. frv. 1990, s.26). Margir telja að hætta (sem steðjar að barni) sé að aukast. Hérlend lagaleg þróun og framkvæmd virðist vísa í þá átt, sbr. aukið vægi réttarfarsleiðar. . stuðningur vernd réttarfars-leiðin forvarnir Guðrún Kristinsdóttir

  21. Ef hættuáherslan sækir á verður að teljast þeim mun mikilvægara að skilgreina Heilbrigðismerki og styrkleikaþætti barns/fjölskyldu og Réttindi barna fremur en vankanta á stöðu þeirra. Snúa þannig skilgreiningardæminu við. Svíar hafa sett sum ákvæði BSÞ inn í sín lög til að hnykkja á þessu og á sjónarhóli barnsins við mat og ákvarðanatöku. Guðrún Kristinsdóttir

  22. Athygliverð atriði fyrir okkur í norrænum úttektum: • Barnavernd byggir aðgerðir ekki nægilega á fræðilegri þekkingu. • Mjög skortir rannsóknir á afleiðingum afskipta og á því hvaða aðgerðir leiða til vænlegs árangurs (Lundström 2000). • Skipulagsbreytingar algengar og ná oft ekki tilætluðum árangri. Aðgerðir félagsþjónustu taka ekki miklum breytingum, nokkrar tegundir aðgerða eru algengar og þeim viðhaldið. • Nýlegar rannsóknir í Danmörku, Noregi, Svíþjóð sýna bresti í ákvarðanatöku eftir að tilkynning berst. Guðrún Kristinsdóttir

  23. Niðurstöður dregnar saman • Skiptar skoðanir í hópnum um heimildir til að beita úrræðum sviði félagsþjónustu og barnaverndar. • Ekki eðlismunur á málum fremur stigsmunur. • Velferðaráherslur skýrari í norrænum rétti en engilsaxneskum (child welfare/child protection). • Vænleg og raunhæf leið að „staða” barns /foreldra stýri skilgreiningu. Mat samþætti athugun á aðstæðum, hegðun, líðan, stöðu og atburðum. • Ríkar vísbendingar um að í samanburðarlöndunum hafi stjórnsýsluhefðir, faglegt svigrúm og tíðar skipulagsbreytingar mikil áhrif á mat og ákvarðanatöku. Líklegt að svo sé einnig hérlendis. Þarf að viðurkenna og vinna frekar úr. Guðrún Kristinsdóttir

  24. Málin eru ekki flækt – en... • Hérlendar skilgreiningar eru ekki víðari en í samanburðarlöndum, flestar meginreglur svipaðar. • Lögbundin tilk. skylda er víðtæk og almenn. • Auka þarf þekkingu á mati mála og áhrifaþáttum í framkvæmd. • Í samanburðarlöndum hefur mikil forvinna verið lögð í afmarkanir og skilgreiningar með hliðsjón af úttektum á áhrifaþáttum. • Þetta skortir hérlendis. M.a. þarf að útfæra betur en nú greinargerð um 21. grein bv. laga. • Mikilvægt - ná þarf meiri sátt um skipan og túlkanir. Guðrún Kristinsdóttir

More Related