1 / 21

Samtök um kvennaathvarf

Samtök um kvennaathvarf. Ofbeldi í samböndum og á stefnumótum Kynning fyrir framhaldsskóla vor 2004 Drífa Snædal Fræðslu- og kynningarstýra. Saga Kvennaathvarfsins.

inez-kirk
Download Presentation

Samtök um kvennaathvarf

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Samtök um kvennaathvarf Ofbeldi í samböndum og á stefnumótum Kynning fyrir framhaldsskóla vor 2004 Drífa Snædal Fræðslu- og kynningarstýra

  2. Saga Kvennaathvarfsins • Samtök um kvennaathvarf voru stofnuð árið 1982 að frumkvæði kvenna úr hinum ýmsu kvennahreyfingum ásamt konum sem höfðu kynnst áhrifum heimilisofbeldis í starfi sínu • Hið persónulega er pólitískt • Kvennaathvarfið er sjálfseignarstofnun – félagasamtök • Fyrsta athvarfið tekið í gagnið í desember 1982 á Lindargötu – núverandi húsnæði það fimmta í röðinni, teygjuhús

  3. Markmið og starfsemi • Að reka athvarf, annars vegar fyrir konur og börn þeirra þegar dvöl í heimahúsum er þeim óbærileg vegna ofbeldis og hins vegar fyrir konur sem verða fyrir nauðgun • Að veita rágjöf og upplýsingar, efla fræðslu og umræðu um ofbeldi innan fjölskyldu – auka skilning í þjóðfélaginu á eðli ofbeldis og afleiðingum þess • Konan er sérfræðingur í sínum málum – lausnamiðuð meðferð • Þjónusta athvarfsins er þríþætt: • Athvarf • Símaráðgjöf - 561 1205 • Viðtöl • Stuðningshópur – opið hús á fimmtudögum

  4. Tölfræði Kvennaathvarfsins

  5. Nýting og umfang • Frá upphafi hafa komið 5.986 konur í athvarfið með 2.290 börn en alls eru gistinæturnar ca 80.000 (21 árs tímabil) • Aðsóknin er mjög sveiflukennd á milli ára en hefur farið vaxandi í heildina • Tilhneygingin að konur nýta sér viðtöl í meiri mæli en áður • Starfsfólk gengur vaktir; alls 7 stöðugildi auk barnastarfsmanns, framkvæmdastjóra, rekstrarstjóra og fræðslu- og kynningarstýru • Kvennaathvarfið er fjármagnað með opinberum styrkjum frá ríki og sveitarfélögum að stærstum hluta en einnig félagsgjöldum, gjöfum og styrkjum.

  6. Um heimilisofbeldi • Karlar eiga frekar á hættu að þola ofbeldi af hendi ókunnugra eða kunninga en einhverra nákominna. • Algengasta ofbeldið gegn konum er af hendi maka • Ofbeldi gegn konum er eitt af stærstu heilsufarsvandamálum í heimi • 10-69% kvenna verða fyrir heimilisofbeldi í heiminum • Konur upplifa oftar en karlar að verið sé að beita ofbeldi • Birtingamynd, gefnar ástæður og aðstæður heimilisofbeldis eru svipaðar hvar sem er í heiminum

  7. Birtingamyndir heimilisofbeldis • Einangrun: Konan er einangruð frá vinum og fjölskyldu og jafnvel komið í veg fyrir að hún sæki skóla, vinnu eða félagsstarf • Efnahagsleg stjórnun: Konan hefur ekki aðgang að peningum og jafnvel ekki vitneskju um fjármál heimilisins • Hótanir: Morðhótanir eða sjálfsmorðshótanir. Ógnandi framkoma • Tilfinningaleg kúgun: Makinn niðurlægir konuna, ásakar og gagnrýnir stöðugt • Kynferðisleg misnotkun: Nauðgun, niðurlæging í kynlífsathöfnum • Líkamlegt ofbeldi: Ýtir, hrindir eða slær. Makinn heldur konunni fastri og varnar útgöngu. Skaðar líkamlega

  8. Könnun á Íslandi 1996

  9. Könnun á Íslandi 1996

  10. Nokkrar staðreyndir • Ef karl beitir maka sinn ofbeldi eru yfir helmingslíkur á að það gerist aftur • Fæstar konur sem búið hafa með ofbeldismönnum fara aftur í sambúð með manni sem beitir ofbeldi • 70% kvenna sem beita ofbeldi hafa sjálfar verið beittar ofbeldi, en aðeins 37% karla • Menntun, starf og tekjur kvenna sem beittar hafa verið ofbeldi virðist ekki skipta máli • Erlendar konur eru í minnihluta þeirra sem sækja Kvennaathvarfið

  11. Af hverju er gripið til hnefanna? • HEIMILISOFBELDI ER TIL Í ÖLLUM STÉTTUM • Reynsla af ofbeldi á bernskuheimili eykur líkur á heimilisofbeldi – flestir sem hafa alist upp við heimilisofbeldi beita því þó ekki. • Áfengi og önnur vímuefni – orsök eða afleiðing? • Valdatogstreita á heimilinu – hefðbundin hlutverk kynjanna • Fátækt, atvinnuleysi og streita

  12. Af hverju fer viðkomandi ekki? • Ást – tilfinningalega háð • Töpuð sjálfsmynd – ég er ekkert án makans • Hræðsla við maka eða samúð • Er háð makanum fjárhagslega • Vill ekki svifta börnum því að alast upp hjá báðum foreldrunum

  13. Ástæða þess að leitað sé til athvarfsins

  14. Hringrás ofbeldissambanda • Tilhugalíf • Ofbeldissambönd geta byrjað eins og önnur sambönd • Saman öllum stundum • Gefa gjafir og eru ástrík • Uppbygging spennu • Einangrun • Kvartanir yfir smámunum • Gagnrýnt og/eða hótað • Sprenging • Andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt ofbeldi • Iðrun • Tilhugalíf tekur aftur við

  15. Gerir kærasti/kærasta þinn/þín svona? • Hefur þig undir eftirliti • Kemur í veg fyrir að þú hittir vini þína • Segir þér hvernig þú átt að klæðast • Virðir ekki skoðanir þínar og tilfinningar • Sakar þig um svik eða framhjáhald án ástæðu • Gagnrýnir þig fyrir minnstu hluti • Niðurlægir þig á almannafæri • Eyðilegur persónulegar eigur þínar • Lemur, kýlir, slær, sparkar, bítur eða grípur í þig • Neyðir þig til samfara • Hótar sjálfsmorði • Hótar þér lífláti • Hótar að hætta með þér

  16. Ert þú beitt/beittur ofbeldi? • Talaðu við einhvern sem þú treystir – vin, fjölskyldumeðlim eða ráðgjafa • Leitaðu stuðnings hjá Kvennaathvarfinu • Hringdu • Komdu í viðtal • Dveldu hjá okkur • Komdu á opið hús • Tryggðu öryggi þitt • Þetta er ekki þér að kenna!

  17. Traustur vinur getur gert kraftaverk • Hlustaðu án þess að dæma • Fáðu hjálp frá fullorðnum aðila og tryggðu öryggi vinar/vinkonu • Það getur tekið langan tíma að losna úr ofbeldissambandi • Talaðu EKKI við gerandann nema vinur/vinkona hafi samþykkt það fyrst • Ekki kenna vini/vinkonu um ofbeldið – það er aldrei réttlætanlegt að beita ofbeldi – og aldrei sök þess sem verður fyrir því • Mundu að bæði þú og félagi þinn getið átt góða og slæma daga

  18. Beitir þú ofbeldi? • Viðurkenndu að þú eigir við vanda að stríða og berir ábyrgð á ofbeldi • Leitaðu hjálpar hjá fagaðilum til að finna orsakir og taka á þeim • Forðastu áfengi og önnur vímuefni

  19. Mannréttindayfirlýsingin Ég hef réttinn ... ... til að bjóða á eða neita stefnumóti ... til að stinga upp á athöfnum ... til að neita athöfnum þó svo hinn aðilinn sé spenntur fyrir þeim ... til að hafa tilfinningar og tjá þær ... til að neita kynlífi ... til að eiga vini og rými sem er mitt eigið ... til að segja nei ... til að segja já ... til að stjórna eigin örlögum

  20. Mannréttindayfirlýsingin Það er mín ábyrgð ... ... að virða mörk annarra ... að setja mín eigin mörk og gildi ... að tjá mig skýrt og hreinskilnislega ... að biðja um hjálp þegar mig vantar hana ... að sýna tillitssemi

  21. -takk fyrir mig- www.kvennaathvarf.is

More Related