1 / 14

Kraftur og hreyfing

Kraftur og hreyfing. 3. kafli. 3-1 Vegalengd og hraði. Hreyfing... er breyting á staðsetningu eða stöðu hlutar Til að mæla hreyfingu þarf að skoða þrjá þætti: Vegalengd: fjarlægð milli tveggja staða, mæld í metrum (m)

finley
Download Presentation

Kraftur og hreyfing

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Kraftur og hreyfing 3. kafli

  2. 3-1 Vegalengd og hraði Hreyfing... • er breyting á staðsetningu eða stöðu hlutar • Til að mæla hreyfingu þarf að skoða þrjá þætti: • Vegalengd:fjarlægð milli tveggja staða, mæld í metrum (m) • Ferð: vegalengd sem hlutur fer á ákveðnum tíma án tillits til stefnu, mæld í m/sek eða km/klst • Hraði: ferð hlutar í ákveðna stefnu, mældur í km/klst átt (Austur, Norður, Vestur, Suður)

  3. Hraði bílsins er 50 km/klst Norður. Jón skríður yfir pallinn á hraðanum 2 km/klst Norður. Hvað er hraði Jóns mikill? Báturinn siglir upp Amazon fljótið á 25 km/klst Vestur. Áin rennur á 20 km/klst Austur Hver er hraði bátsins? Að leggja saman hraðaDæmi

  4. 3-2 Hraðabreytingar Hröðun... • er hraðabreyting á tímaeiningu, þ.e. hún segir hvað hraði breytist mikið á ákveðnum tíma. • er reiknuð:hröðun = lokahraði – upphafshraði tími • hefur mælieininguna km/klst2, eða m/sek2 • Hröðun er þegar hlutir auka hraðannNeikvæð hröðun (hraðaminnkun) er þegar hlutir hægja á sér (reiknað á sama hátt)

  5. 3-2 Hraðabreytingar Hringhreyfing: • Hraði er háður stefnu hlutarins • Hlutur sem fer í hring er sífellt að breyta um stefnu og því hefur hann hröðun þótt ferðin (km/klst) breytist ekki neitt • kynningarmyndband um öll lögmál Newtons

  6. 3-3 Lögmál um hreyfingu Fyrsta lögmál Newtons • kallast líka tregðulögmálið • Tregða er viðleitni hluta til að halda óbreyttri stöðu eða hreyfingu. Tregðulögmálið segir: • Það þarf kraft til að yfirvinna tregðu hluta: • og breyta stefnu • og breyta ferð (auka hana eða minnka) Myndband

  7. 3-3 Lögmál um hreyfingu Annað lögmál Newtons • Lýsir tengslum milli krafts, massa og hröðunar • kraftur = massi x hröðun • Skýrir m.a. af hverju það þarf meiri kraft til að ná þunghlöðnum vörubíl upp í 50 km/klst en litlum fólksbíl • myndband

  8. 3-3 Lögmál um hreyfingu Þriðja lögmál Newtons... • Felur í sér að í hverjum verknaði megi alltaf finna bæði átak og gagntak, þ.e. þegar hlutur A verkar með krafti á hlut B veitir hlutur B jafn mikinn kraft á móti • myndband átak gagntak

  9. 3-3 Lögmál um hreyfingu Skriðþungi: • Allir hlutir sem hreyfast hafa skriðþunga • Skriðþungi = massi x hraði Dæmi: Hvora kúluna er erfiðara að stöðva?12 kg kúlu á hraðanum 30 km/klst austur 20 kg kúlu á hraðanum 18 km/klst austur

  10. 3-4 Þyngd og hreyfing Hröðun fallandi hluta: • Allir fallandi hlutir hafa sömu hröðun, þ.e. hraði þeirra eykst alltaf jafn mikið á leiðinni niður sama hver massi hlutanna er • Hröðun fallandi hluta er 9,8 m/sek2 • Það eina sem getur dregið úr þessari hröðun er loftmótstaðan

  11. Fíll og mús detta af húsþaki Fall með loftmótstöðu Fall án loftmótstöðu

  12. 3-4 Þyngd og hreyfing Loftmótstaða... • ... orsakast af viðnámi lofts við hlut sem fellur í gegnum loftið • ... verkar sterkast á flata og létta hluti • ... verkar á alla hluti sem falla og veldur því að hraði þeirra í fallinu verður ekki óendanlega mikill – hlutir í löngu falli ná lokahraða

  13. 3-4 Þyngd og hreyfing Þyngdarkraftur... • ... er aðdráttarkraftur sem býr í öllu efni í alheiminum • Krafturinn býr í efninu og verkar milli hluta þannig að þeir dragast að hver öðrum.

  14. 3-4 Þyngd og hreyfing Þyngdarlögmál Newtons... • ... segir að þyngdarkraftur verki alltaf milli hluta sem eru úr efni. • Stærð kraftsins er háð tveimur þáttum: • Massa hlutanna: massameiri hlutir hafa meiri aðdráttarkraft • Fjarlægðinni á milli þeirra: aðdráttarkrafturinn minnkar með meiri fjarlægð

More Related