1 / 9

Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir 14. febrúar 2008

verðbréfa- markaður. lánamarkaður. vátrygginga- markaður. lífeyris- markaður. Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir 14. febrúar 2008. Pillar III ákvæði:Opinber upplýsingagjöf (gr.50-55). Innihald upplýsinga um gjaldþol og fjárhagslega stöðu.

redford
Download Presentation

Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir 14. febrúar 2008

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. verðbréfa- markaður lánamarkaður vátrygginga- markaður lífeyris- markaður Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöfHalldóra Elín Ólafsdóttir 14. febrúar 2008

  2. Pillar III ákvæði:Opinber upplýsingagjöf (gr.50-55)

  3. Innihald upplýsinga um gjaldþol og fjárhagslega stöðu • Félög skulu árlega birta skýrslu um fjárhagslega stöðu og gjaldþol og hafa til hliðsjónar grein 35 í tilskipuninni • Upplýsingar þessara skýrslna skulu a.m.k. innihalda: • lýsingu á félaginu og frammistöðu þess • lýsingu á stjórnkerfi félagsins og hæfni félagsins til að stýra áhættu sinni • lýsingu á hverri áhættu fyrir sig, áhættustigi félagsins (risk exposure), næmni félagsins fyrir áhættu, samþjöppun og áhættustýringu • lýsingu á eignum, skuldum og vátryggingaskuld, hvaða matsaðferðir eru notaðar og tilgreina um frávik í öðrum matsaðferðum • lýsingu á fjárhagslegri stjórnun t.d. uppbyggingu á eiginfjárgrunni (own funds) og gæði eiginfjárliða og breytingar og flytjanleika (transferability) • SCR og MCR • útskýringar á muninum á milli staðalformúlunnar (standard formula) og innra módels við útreikning á gjaldþoli

  4. Innihald upplýsinga um gjaldþol og fjárhagslega stöðu (2) • upphæð gjaldþols samkvæmt þeirri aðferð sem félagið notar • tilgreina ef viðbótargjaldþolskrafa (capital add on) er til staðar • tilkynna ef á einhverjum tímapunkti félagið uppfyllti ekki lágmarksgjaldþol eða gjaldþolshlutfall, ástæður þess og hvað var gert til að uppfylla gjaldþolið • Allar aðrar upplýsingar skal birta opinberlega í samræmi við önnur lög eða til að uppfylla eftirlit • Félag skal upplýsa sérstaklega ef að gjaldþol þess ertil matsmeðferðar hjá Fjármálaeftirlitinu

  5. Upplýsingar til CEIOPS og skýrslur gerðar af CEIOPS • Fjármálaeftirlitið skal útvega árlega upplýsingar um meðal viðbótargjaldþolskröfu (capital add on) hvers félags og dreifingu þess sýnt sem hlutfall af gjaldþoli fyrir öll vátryggingafélög. Þessar upplýsingar skal senda til CEIOPS • CEIOPS skal árlega birta opinberlega upplýsingar um heildar dreifingu viðbótargjaldþolskrafna fyrir öll aðildarríki, og fyrir hvert og eitt aðildarríki, sýnt sem hlutfall af gjaldþoli fyrir öll vátryggingafélög • CEIOPS skal senda fyrrnefndar upplýsingar til framkvæmdastjórnarinnar auk skýrslu um samleitni í eftirliti á viðbótargjaldþolskröfum hjá fjármálaeftirlitum í hverju aðildarríki

  6. Viðeigandi meginreglur sem viðhafðar eru við upplýsingagjöf um gjaldþol og fjárhagslega stöðu • Fjármáleftirlitið á að leyfa vátryggingafélögum að upplýsa ekki opinberlega um atriði sem: • gefa samkeppnisaðila mikið forskot • fela í sér að skuldbinding til vátryggingataka eða til annarra mótaðila felur í sér trúnað eða þagmælsku af hálfu félagsins • Fjármáleftirlitið hefur samþykkt sérstaklega að ekki eigi að birta og ástæða þess skal getið í uppgjöri og gjaldþolsskýrslu félagsins • undanþága á opinberri upplýsingagjöf á ekki við um atriði sem fjalla um fjármálastjórnun félags (capital management) • Fjármálaeftirlitið getur leyft vátryggingafélögum að vísa í eða nota eldri opinbera tilkynningu ef sú upplýsingagjöf er fullnægjandi fyrir efnisatriðið sem á að upplýsa um • Í þessari grein (nr.52) er meðalhófsreglunni t.d. beitt, þar sem ekki telst nauðsynlegt að birta fyrrgreindar upplýsingar

  7. Uppfærslur og viðbótarupplýsingar sem gera þarf opinberar varðandi gjaldþol og fjárhagslega stöðu • Upplýsa skal um allar meiriháttar breytingar á fjárhag eða gjaldþoli félags og skal meta hversu miklar upplýsingar skal gefa eftir eðli og áhrifum breytingarinnar • Það sem telst a.m.k meiriháttar breyting er þegar lágmarksgjaldþol (MCR) er ekki uppfyllt og fjármálaeftirlitið telur að félagið muni ekki ná að leggja fram raunhæfa endurbótaáætlun innan eins mánaðar. Félaginu ber að upplýsa strax um upphæðina, útskýra ástæðu þessarar breytingar, afleiðingar og áætlaðar endurbætur. Ef félag leggur fram raunhæfa endurbótaáætlun sem það hefur ekki getað uppfyllt tveim mánuðum síðar skal upplýsa um það opinberlega í lok þessara 2ja mánaða. • Einnig telst það meiriháttar breyting þegar félag uppfyllir ekki gjaldþolskröfu (SCR) og Fjármálaeftirlitið telur að félagið muni ekki ná að leggja fram raunhæfa endurbótaáætlun innan 2ja mánaða. Félaginu ber að upplýsa strax um upphæðina, útskýra ástæðu þessarar breytingar, afleiðingar og áætlaðar endurbætur. Ef félag leggur fram raunhæfa endurbótaáætlun sem það hefur ekki getað uppfyllt fjórum mánuðum síðar skal upplýsa um það opinberlega í lok þessara 4ja mánaða.

  8. Stefna og samþykki á upplýsingum um gjaldþol og fjárhagslega stöðu • Aðildarríki skulu gera kröfur á vátryggingafélög um að kerfi og uppbygging í hverju félagi fyrir sig uppfylli fyrrgreind ákvæði, auk þess að hafa skriflega stefnu sem tryggir áframhaldandi viðeigandi upplýsingagjöf • Skýrslur um fjárhagslega stöðu og gjaldþol félaga skulu vera samþykktar af stjórnendum/stjórn félaga og skulu ekki vera birtar opinberlega fyrr en eftir fyrrnefnt samþykki

  9. Útfærsluatriði (implementing measures) á tilskipuninni varðandi upplýsingagjöf um gjaldþol og fjárhagslega stöðu • Framkvæmdastjórnin skal útfæra einstök atriði í tilskipuninni er varða hvaða upplýsingar er nauðsynlegt að birta opinberlega og helstu leiðir til þess • CEIOPS telur að til þess að veita aðilum markaðsaðhald þá skuli reglur um opinbera upplýsingagjöf gilda bæði fyrir lítil og stór vátryggingafélög • Tekið verður hins vegar tillit til meðalhófsreglunnar og verður því stundum ekki viðeigandi að upplýsa opinberlega um ákveðin tilvik (sbr. 52.gr). Þetta er metið á grundvelli eðlis tilviksins og hvort upplýsingar séu efnislega viðeigandi

More Related