40 likes | 291 Views
Sögumaður/sjónarhorn. Sambærilegt hugtak við ljóðmælanda í ljóði. Hugtakið er notað þegar höfundur lætur e-a persónu segja söguna í 1. persónu. Varast bera að blanda saman sögumanni og höfundi.
E N D
Sögumaður/sjónarhorn • Sambærilegt hugtak við ljóðmælanda í ljóði. • Hugtakið er notað þegar höfundur lætur e-a persónu segja söguna í 1. persónu. Varast bera að blanda saman sögumanni og höfundi. • Í endurminningasögum er 1. pers. sjónarhornið tvöfalt. Sagt er frá út frá sjónarhorni barns í 1. pers. en mat hins fullorðna sögumanns kemur einnig í gegn.
Persónusköpun • Persónulýsingar. • Beinar: Upplýsingar frá höfundi. • Óbeinar: Hvernig persóna lýsir sér sjálf með orðum og athöfnum. Hvað aðrir segja um persónuna og hvernig aðrir koma fram gagnvart henni. • Persónulýsingar mótast af vali á sjónarhorni. Þær snerta ytra útlit og hegðun og innri mann. • Hlutlægt sjónarhorn nær aðeins til ytri lýsingar, þess sem sést og heyrist en alvitur höfundur getur gert hvort tveggja að lýsa persónum utan frá en einnig getur hann skoðað í hug þeirra, lýst tilfinningum og hugsunum.
Sögubygging • Hefðbundin bygging: Kynning aðstæðna - flækja – lausn Verkefni bls 42.
Málsgrein - efnisgrein • Málsgrein: Segð milli tveggja punkta. Er a.m.k. ein aðalsetning en getur innihaldið nokkrar auka-setningar. ÞUMALPUTTAREGLA: Varast ber að hafa málsgreinar mjög langar. Frá þessari reglu eru býsna margar undantekn-ingar. • Efnisgrein: Segð sem afmarkast af greinaskilum. Byggð upp af nokkrum málsgreinum. Hver efnisgrein er byggð líkt og lítil rit-gerð: Upphaf – miðja – niðurlag.