1 / 27

Kynningarfundur 12. nóvember 2011

Borgaraleg ferming 2012. Kynningarfundur 12. nóvember 2011. Efni kynningarfundar. Bakgrunnur Hver er kynnirinn, Hope Knútsson? Saga Borgaralegrar fermingar á Íslandi. Hvað er borgaraleg ferming? Hvað er Siðmennt? Undirbúningsnámskeiðið. Hátíðleg athöfn – kynningarmyndband.

lamar
Download Presentation

Kynningarfundur 12. nóvember 2011

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Borgaraleg ferming 2012 Kynningarfundur 12. nóvember 2011

  2. Efni kynningarfundar • Bakgrunnur • Hver er kynnirinn, Hope Knútsson? • Saga Borgaralegrar fermingar á Íslandi. • Hvað er borgaraleg ferming? • Hvað er Siðmennt? • Undirbúningsnámskeiðið. • Hátíðleg athöfn – kynningarmyndband. • Hagnýtar upplýsingar – kostnaður o.fl. • Upplýsingaskil - fylla út eyðublað vegna námskeiðs.

  3. Bakgrunnur – hver er Hope Knútsson • Hope Knútsson frá New York borg. • Hef búið á Íslandi síðan 1974. • Iðjuþjálfi að mennt. • Er ekki kristin, hef aldrei verið kristin. • Þegar börnin mín nálguðust fermingaraldur ræddum við um valkosti.

  4. Bakgrunnur– Hope kannar málið • Hafði lesið um borgaralega fermingu annars staðar. • Var haldin á öllum Norðurlöndunum - byrjaði í Danmörku 1914, í Noregi 1951. • Er líka víða annars staðar í Evrópu. • Aflaði upplýsinga erlendis frá.

  5. Bakgrunnur - fyrsti hópurinn • Skrifaði í dagblöðin 1988. • Börnin mín fyrstu íslendingarnir í BF. • Spurði hvort það væru fleiri. • 16 fjölskyldur vildu vera með. • Unglingar allt að 15-16-17 ára.

  6. Bakgrunnur – af litlu fræi vex oft stórt tré • Bjuggum til nefnd og settum saman námskeið. • Hermdum eftir Norðmönnum - höfum verið að þróa námskeiðið síðan. • Ætlaði að gera þetta einu sinni, en virðist ætla að verða að ævistarfi. • Erum að fara af stað núna í tuttugasta og fjórða skiptið. • Síðan 1989 hafa nú tæplega 1600 íslensk börn fermst borgaralega. • Um 21.000 manns verið viðstaddir þessar athafnir.

  7. Bakgrunnur – í hinu stóra samhengi • Íslenskt samfélag er fjölmenningarlegt. • Hér búa um 20.000 manns sem eru fæddir annars staðar. • Það eru ekki lengur allir eins. Um 20% þjóðarinnar „trúa ekki” á æðri mátt samkvæmt könnun árið 2004. • Bráðnauðsynlegt í öllum samfélögum að hafa val. • Kjörorð okkar – það er allt í lagi að vera öðruvísi!

  8. Hvað er borgaraleg ferming? (1) • Valkostur við kristilega fermingu. • Fyrir unglinga sem eru ekki reiðubúnir til að strengja trúarheit. • Sum eru annarrar trúar eða trúa á guð á sinn hátt. • Önnur eru ekki trúuð. • Eða hafa af einhverjum ástæðum ekki áhuga á kristilegri fermingu, en vilja samt halda upp á þessi tímamót í lífinu.

  9. Hvað er borgaraleg ferming? (2) • Fermingabörnin sækja vandað námskeið þar sem þau læra ýmislegt sem er góður undirbúningur fyrir það að verða fullorðin með öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgja. • Boðskapur: að efla heilbrigt og farsælt viðhorf unglinganna til lífsins. • Lögð áhersla á umburðarlyndi, gagnrýna hugsun, siðfræði, mannleg samskipti og ábyrgð einstaklingsins í nútíma þjóðfélagi. • Snýst ekki um trúarbrögð og er óháð trúarbrögðum. • Ekkert kennt á námskeiðinu sem er andstætt kirkjunni.

  10. Af hverju orðið ferming? (1) • Er ekki upphaflega íslenskt orð. • Dregið af latneska orðinu confirmare sem þýðir að styðja eða að styrkjast. • Í alþjóðlegum orðabókum er orðið confirmare skilgreint á 7 mismunandi vegu. • Trúarleg skilgreining er aðeins ein af 7 og ekki sú sem fyrst er upp talin. • Ungmenni sem fermast borgaralega eru einmitt að styrkjast í þeirri ákvörðun að verða ábyrgir borgarar.

  11. Af hverju orðið ferming? (2) • Gott að hafa í huga að engin getur haft einkaleyfi á orði. Kristnir menn eiga ekki orðið ferming. • Íslendingar nota rammheiðið orð jól frekar en kristsmessa. • Þegar kristnir menn á Íslandi hætta að nota orðið jól, þá munum við e.t.v. endurskoða nafnið borgaraleg ferming. • Okkur finnst sjálfsagt að nota orðið ferming því að annars staðar þar sem þessi valkostur er fyrir hendi, heitir það oftast borgaraleg ferming. • Þess má geta að Norðmenn árið 2007, skiptu út lýsingarorðinu við nafn athafnarinnar eftir 56 ár, í húmanísk ferming í stað borgaralegrar fermingar, en þeir halda orðinu ferming.

  12. Hvað er Siðmennt? (1) • Félag siðrænna húmanista á Íslandi - stofnað 1990. • Lífsskoðunarfélag sem hefur siðferði og skynsemi að leiðarljósi. Lífsskoðunarfélag er félag sem fjallar um: • Siðferði, t.d. breytni einstaklinga eða siðferðileg álitamál. Mannvirðing, velvilji, frelsi og samábyrgð eru meðal áherslna. • Þekkingarfræði, þ.e. Hvernig öflum við haldbærrar þekkingar? Hvað er hlutlægni, huglægni, skynjun o.s.frv.? • Félagslegar athafnir fjölskyldna, sbr. borgaralega fermingu • Félagið er málsvari manngildisstefnu (húmanisma) og frjálsrar hugsunar, óháð trúarsetningum og stendur fyrir veraldlegum athöfnum á mikilvægum tímamótum í lífi fólks.

  13. Hvað er Siðmennt? (2) Helstu verkefni • Félagslegar athafnir fjölskyldna – „tímamótaathafnir”. • Þann 29. maí 2008 (jarðskjálftadaginn) setti félagið á fót athafnaþjónustu fyrir nafngjafir, giftingar og útfarir. • Á vegum hennar starfa 11 athafnarstjórar sem stýra athöfnum á veraldlegan máta með húmaníska lífssýn að leiðarljósi. • Umsjónarmaður Athafnaþjónustu Siðmenntar er Svanur Sigurbjörnsson. Panta má athöfn á vefsíðu Siðmenntar.

  14. Hvað er Siðmennt? (3) Helstu verkefni ... frh. • Barátta fyrir raunverulegu trúfrelsi/sannfæringarfrelsi. • jöfn réttindi og staða ólíkra lífsskoðunarfélaga. • aðskilnaður ríkis og kirkju, • veraldlegt skólahald þar sem börnum er ekki mismunað vegna trúar eða lífsskoðana foreldra. • Barátta fyrir mannréttindum almennt.

  15. Aðeins nánar um aðrar athafnir félagsins • Útför – persónuleg athöfn með heimspekilegri hugvekju athafnarstjóra og minningarorðum. • Nafngjöf – hugvekja og ávarp til foreldra ásamt formlegri nafngjöf með innilegum og persónulegum blæ. • Felur ekki í sér vígslu eða inngöngu í félag/söfnuð og því fær barnið að ákveða sjálft sína lífsskoðun og félagsaðild þegar það kemst á sjálfræðisaldur. • Gifting – Innileg, hlý og persónuleg athöfn með gleðilegu yfirbragði. Athafnarstjóri fer með hugvekju og ávarp til parsins áður en þau fara með heityrði sín.

  16. Borgaraleg fermingarnámskeið Siðmenntar • Umsjónarkennari Siðmenntar, Jóhann Björnsson heimspekingur og grunnskólakennari mun segja nánar frá tilhögun næsta námskeiðs. • Efnisflokkar námskeiðsins, hvar og hvenær. • Þess má geta að Jóhann er einstaklega skilningsríkur, sveigjanlegur, og skemmtilegur maður!

  17. Fermingarathafnir Siðmenntar • Dagsetningar: Tvær athafnir verða haldnar í stóra sal Háskólabíós sunnudaginn 15. apríl 2012 fyrir börn í Reykjavík, Mosfellsbæ og af landsbyggðin þar sem eru ekki nógu margir til að halda sér athöfn. • Fyrri athöfnin verður kl.11:00 og seinni athöfnin kl.14:00. • Ein eða jafnvel tvær athafnir í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 22. apríl 2012 fyrir börn úr Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Álftanesi og Suðurnesjum. (kl. 11 og 13:30). • Æfingarnarfara fram daginn áður þ.e. laugardaginn 14. apríl í Háskólabíói og 21. apríl í Salnum. • Akureyrarathöfn í Hofi sunnudaginn 13. maí 2012 • Unglingunum verður skipt í fyrri og seinni athöfn útfrá því námskeiði sem þau taka þátt í.

  18. Fermingarathöfnin • Eftir nokkrar mínútur verður sýnt stutt myndband frá fermingarathöfnunum vorið 2011 til að gefa ykkur hugmynd um hversu hátíðleg, falleg, þjóðleg og skemmtileg athöfnin er! • Þar koma fram einn utanaðkomandi ræðumaður og nokkur fermingarbörn sem flytja stutt ávörp, lesa ljóð, spila á hljóðfæri, syngja eða dansa. • Athöfnin tekur um eina klukkustund. • Hópmyndataka (í Rvk og Kóp) fer fram strax að lokinni athöfn og tekur ca. 20 mínutur.

  19. Fermingarskjalið • Í lokin fá fermingarbörnin skrautskrifað skjal til staðfestingar á því að viðkomandi hafi sótt námskeiðið til undirbúnings borgaralegri fermingu. • Textinn á fermingarskjalinu: „Það er von okkar að þú munir færa þér í nyt þá fræðslu og leiðsögn sem þú hefur fengið og verðir víðsýn og heilsteypt manneskja. Vertu velkomin(n) í hóp hinna fullorðnu með þeirri ábyrgð sem því fylgir“.

  20. Skipulag athafnarinnar (1) • Er í höndum stjórnarmanna og athafnarstjóra Siðmenntar með aðstoð nokkurra foreldra. • Öllum var gefinn kostur á að vera í undirbúningsnefndinni við skráninguna á netinu. • Nefndin hefur yfirleitt verið 6-8 manns en nú buðu um 60 foreldra sig fram, sem er frábært en ópraktískt! Ég er ekki viss hvernig þetta verður, hvort við munum hittast eða vera í tölvupóstsambandi. • Upplýsingar um hver er í hvaða námskeiði og hvenær og hvar á að mæta verða sendar út fyrir miðjan desember.

  21. Skipulag athafnarinnar (2) • Spurningar verða sendar út með tölvupósti eftir áramót til allra fjölskyldna. Spurt er um tillögur um ræðumenn og hvaða börn hafa áhuga á að koma fram. Bráðnauðsynlegt er að svara spurningunum þar sem athafnirnar eru byggðar á upplýsingum úr þeim. • Í mars verður kannað hverjir vilja panta hópmynd og/eða DVD. Hópmynd og DVD eru EKKI innifalin í verði vegna athafnarinnar.

  22. Kostnaður og greiðslufyrirkomulag... • Kostnaður: fermingarnámskeiðið kostar kr. 26.000 og athöfnin kr.8.000 • Bæði námskeiðsgjaldið og athafnagjaldið verður rukkað saman í einu þáttttökugjaldi samtals kr. 34.000 . • Gjalddagi er 3. desember og eindagi 3. janúar. Foreldrar verða að greiða þátttökugjaldið áður en námskeiðin byrja. Enginn fær að halda áfram í námskeiðinu sé ekki búið að greiða í lok síðasta virks dags í fyrstu kennsluviku (13.jan). • Afslættir: • Systkinaafsláttur (systkin sem eru í BF á sama tíma) er 20%. • Afsláttur félaga (foreldra) í Siðmennt fer eftir tímalengd aðildar: • 10% fyrir fyrstu tvö ár aðildar, 20% frá og með þriðja ári aðildar

  23. Kostnaður og greiðslufyrirkomulag... • Í lok nóvember fær foreldri greiðsluseðil fyrir heildargjaldi í heimabanka • Hægt er að fá sendan póstgíróseðil heim hafi foreldri ekki heimabanka, en það þarf að biðja sérstaklega um það. Vegna aukakostnaðar við gíróseðil bætast kr. 300 á hann. Vinsamlegast látið okkur vita ef þið viljið póstgíróseðil. • Fólk í fjárhagsvanda getur samið við gjaldkera um greiðsludreifingu yfir 2-3 mánuði. Fyrsta innborgun 3. des. (t.d. 12 þús í des.-> 12 í jan -> 10 í feb). Félagsmálayfirvöld hafa hjálpað í sumum tilvikum.

  24. Gott að vita: • Hætti barn við þátttöku er endurgreitt að fulla sé látið vita fyrir lok sunnudags (15. janúar) fyrstu kennsluviku, en eftir það er haldið eftir krónum 3000 í umsýslugjald. • Engin endurgreiðsla (nema kr. 8000 vegna athafnar) fæst hætti barn að loknum helmingi námskeiðs eða meira. • Láta skal vita með því að senda netpóst til athafnir@sidmennt.is eða hringja í: • Hope Knútsson umsjónarmann (s: 557 3734, 694 7486), • Jóhann Björnsson kennslustjóra (s: 844 9211) eða • Svan Sigurbjörnsson gjaldkera (s: 896 3465).

  25. Upplýsingaskil – fylla út eyðublöð • Nú verður dreift eyðublöðum þar sem þið fyllið út allar upplýsingar sem við þurfum til að tryggja skráningu. • Mjög mikilvægt er að merkja við þau námskeið sem hentar best (fyrsta, önnur og þriðja val) og einnig daga/tíma sem passa alls ekki. • Óákveðnir eru beðnir um að láta Hope vita sem fyrst um hvort þau verða með eða ekki, því við verðum að raða fermingarbörnunum á námskeiðin í byrjun desember. Stórt púsluspil fyrir okkur!

  26. Til fróðleiks: Á næstu dögum fáið þið senda þessa upplýsinga-glærusýningu en hún nýtist bæði þeim sem mættu á kynningarfundinn ásamt þeim sem komust ekki.

  27. Kærar þakkir!

More Related