1 / 7

Hitatemprun líkamans

Hitatemprun líkamans. Líkami okkar manna er gæddur ótrúlegum hæfileika með að viðhalda líkamshita okkar sem næst 37°C Líkaminn notar neikvæða afturverkun til þess að stjórna líkamshita, þ.e. ef líkamshitinn hefur lækkað þá reynir líkaminn að auka líkamshitann aftur og svo öfugt.

jules
Download Presentation

Hitatemprun líkamans

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Hitatemprun líkamans • Líkami okkar manna er gæddur ótrúlegum hæfileika með að viðhalda líkamshita okkar sem næst 37°C • Líkaminn notar neikvæða afturverkun til þess að stjórna líkamshita, þ.e. ef líkamshitinn hefur lækkað þá reynir líkaminn að auka líkamshitann aftur og svo öfugt.

  2. Hitatemprun líkamans • Hitastillistöð líkamans er í undistúku heilans og er hún með skynnema í: • Sjálfri undirstúkunni sem nemur hitann á blóðinu sem kemur til heilans (kjarnhiti) • Leðurlagi húðar, en þeir skynnemar meta hitann á húðinni og þar með hitann í umhverfinu

  3. Þegar líkamshiti hækkar • Ef líkamshitinn hækkar þá getur líkaminn gripið til tveggja aðgerða: • 1) Æðar í leðurlaginu víkka út (roðnun), blóðflæði til húðar eykst og hiti tapast úr blóðinu út í umhverfið. • ATH: þessi aðferð virkar aðeins ef umhverfishitinn er hærri en líkamshitinn.

  4. Þegar líkamshiti hækkar • 2) Svitakirtlar losa svita sem kælir líkamann þegar hann gufar upp af húðinni. Það kostar húðina hitaorku í að láta svitann gufa upp af húðinni og því kælist húðin • Svipað og það kælir heita hellu að setja vatnsdropa á hana • ATH: einungis sá hiti sem gufar upp kælir, sviti sem lekur af gerir ekkert gagn og í raun töpum við bara vatni og söltum á því • Sviti gufar ekki upp í röku umhverfi og því kælir sviti í þannig aðstæðum.

  5. Þegar líkamshiti hækkar • Að auki breytum við hegðun okkar þegar okkur er heitt. Við t.d.: • Sækjum frekar í skugga • Fækkum fötum eða klæðumst efnisminni fötum • Kælum okkur með köldum drykkjum eða sækjum í vatn, t.d. svala sturtu o.s.frv.

  6. Þegar líkamshiti lækkar • Ef líkamshitinn hækkar þá getur líkaminn gripið til þriggja aðgerða: • Æðar í leðurhúð dragast saman, blóðflæði til húðar minkar (fölnun) og því tapast minni hiti úr blóðinu í umhverfið. • Rákóttir vöðvar fara að dragast ófsjálfrátt saman og við förum að skjálfa => hitamyndun eykst því mikill hiti myndast í vöðvum við hreyfingu • Hárin í húðinni rísa og við fáum gæsahúð Þetta kerfi á að kyrrsetja loft á milli háranna og veita þannig auka einangrun en í raun er þetta kerfi arfleið frá fortíðinni og gerir lítið gagn fyrir okkur. Að auki þá auka nýrnahetturnar og skjaldkirtillinn losun á hormónunum adrenalíni og þýroxíni sem auka brennslu og hitamyndun í líkamanum.

  7. Þegar líkamshiti lækkar • Að auki breytum við hegðun okkar þegar okkur er kalt líkt og við gerum þegar okkur er heitt. Við t.d.: • Klæðum okkur í hlý föt • Hjúfrum okkur saman sem takmarkar hitatap • Hjúfrum okkur saman við aðra til þess að fá hita frá þeim • Drekkum heita drykki eða hitum okkur við arinn

More Related