1 / 10

Vandað og skilvirkt regluverk er allra hagur

Ráðstefna 6. júní 2006: Einfaldara og betra regluverk í þágu atvinnulífs og almennings Halldór Grönvold, aðstoðaframkvæmdastjóri ASÍ. Vandað og skilvirkt regluverk er allra hagur. Samráð er þáttur í góðum löggjafarháttum. Um hvað er samstaða?.

gaura
Download Presentation

Vandað og skilvirkt regluverk er allra hagur

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Ráðstefna 6. júní 2006: Einfaldara og betra regluverk í þágu atvinnulífs og almennings Halldór Grönvold, aðstoðaframkvæmdastjóri ASÍ Vandað og skilvirkt regluverk er allra hagur Samráð er þáttur í góðum löggjafarháttum

  2. Um hvað er samstaða? • Löggjöf á að byggja á skýrum og þekktum markmiðum sem sett eru fram í reglunum sjálfum • Löggjöf á að vera vönduð í framsetningu og skilgreina með skýrum og markvissum hætti réttindi og skyldur þeirra sem hún beinist að • Löggjöf á að vera þannig að sem einfaldast/augljósast sé hvernig á að framkvæma hana og fylgja eftir • Löggjöf á að geyma viðurlög sem fela í sér varnaðaráhrif og möguleika til að beita þeim ef þörf krefur

  3. Regluverkið: Magn og gæði • Mikilvægt er að greina með skýrum hætti á milli: • Magns – fjölda reglna af ýmsu tagi • Gæða þeirra reglna sem settar eru • Markmiðið getur hvorki verið að hafa reglurnar sem fæstar eða flestar heldur • Að regluverkið uppfylli sem best þau markmið sem því er ætlað að ná

  4. Magn/fjöldi reglna • Mikill fjöldi reglna þarf ekkert að segja til um gæði reglusetningarinnar • Er fjöldi reglna sem skarast og skapa óþarfa kostnað (fyrir samfélagið, fyrirtæki og einstaklinga) og gerir alla framkvæmd ómarkvissa og óskilvirka? • Lítill fjöldi/fækkun reglna þarf heldur ekkert að segja til um gæði reglusetningar • Er skortur á löggjöf og reglum sem varða réttindi og jafnræði einstaklinga og fyrirtækja? • Krafan um minni reglusetningu endurspeglar oft hugmyndir um að auka frjálsræði og draga úr skyldum fyrirtækja á kostnað réttinda og verndar launafólks og einstaklinganna

  5. Gæði löggjafar og regluverksins • Um hvað snýst opinber reglusetning? • Er verið að tryggja réttindi, möguleika og jafnræði einstaklinga og fyrirtækja • Skortir reglur á alþjóðavísu og hér á landi varðandi: • Réttindi neytenda? • Réttindi launafólks? • Jafna samkeppnisstöðu fyrirtækja? • Pólitískum spurningum verður ekki svarað út frá tæknilegum forsendum • Í stað þess að tala um magn, á gagnrýnin þá ekki frekar að beinast að skorti á gæðum reglna hvað varðar skýrleika, samhengi við annað regluverk og kerfisbundna kynningu/innleiðingu?

  6. Verkefnin framundan • Kerfisbundið mat á áhrifum mögulegrar löggjafar og reglna er af hinu góða svo framarlega sem það byggir á: • að meta efnahagsleg, félagsleg og umhverfis áhrif reglusetningar á jafnræðisgrunni • að samstaða sé um þær forsendur sem matið byggir á og hvaða viðmið eigi að leggja til grundvallar • Slíkt mat mætti jafnframt nota við mat á gildandi löggjöf og reglum og mögulegum úrbótum

  7. Samráð er mikilvægt þáttur í góðum löggjafarháttum • Grundvöllur sáttar um forsendur og viðmið varðandi mat á nýjum opinberum reglum og endurmat á núgildandi reglum er að víðtækt samráð verði haft við skipulagða hagsmuni í samfélaginu. • Mikilvægt að viðhaft sé markvisst, raunverulegt samráð við þá aðila “sem málið varðar” • Hér hafa verkalýðshreyfingin og aðilar vinnumarkaðarins lykilhlutverki að gegna vegna stöðu sinnar í samfélaginu • Grænbókar – hvítbókar aðferðin?

  8. Svör við nokkrum álitaefnum • Hverjir eru algengustu annmarkar hins opinbera regluverks? Varast ber alhæfingar, en nefna má: • Óskýr markmið • Óljósar skyldur og réttindi þeirra sem reglurnar beinast að • Óljós eða skortur á viðurlögum vegna brota á reglunum • Stjórnsýslan fylgir ekki eftir af nægilegri festu • Vantar forsendur til að framkvæma • Óvissa um raunverulegan vilja löggjafans

  9. Leiðir til úrbóta • Lagafrumvörp komi fyrr fram: • Lengri tími gefist til samráðs og það verður markvissara • Meginefni viðeigandi reglugerða fylgi - ef kostur er • Löggjöf hafi skýra framsetningu: • Sett verði almenn viðmið um gerð og efni lagafrumvarpa • Skoða sérstaklega kynningu á nýrri löggjöf/reglum: • Hvar - hvernig – gagnvart hverjum? • Sett verði fram tímasett áætlun um endurskoðun núgildandi regluverks eftir ráðuneytum og/eða málaflokkun • Skilgreint markmið að auka markvissa framkvæmd á viðkomandi sviði

  10. Að lokum • Siða- og starfsreglur sem fyrirtæki setja sér geta almennt ekki komið í stað opinberrar reglusetningar • Hins vegar geta slíkar siða- og verklagsreglur verið mikilvægur þáttur þegar kemur að eftirliti með framkvæmd opinberra reglana • Viðurkennd gæðakerfi og verklagsreglur geta að hluta til komið í staðin fyrir opinbert eftirlit • Kostnaðarmat vegna opinberrar reglusetningar er mjög vandmeðfarið: • Hver er raunverulegur kostnaður? • Hver er raunverulegur arður/hagnaður? • Einstaklinga – atvinnulífs – samfélagsins alls • Hver er kostnaðurinn við að hafa engar reglur

More Related