1 / 61

UPPRIFJUN FYRIR PRÓF Í SÁLFRÆÐI 203

UPPRIFJUN FYRIR PRÓF Í SÁLFRÆÐI 203. Þrenns konar nútímauppeldi. Bandaríski sálfræðingurinn Diana Baumrind Greinir foreldra í þrjá hópa eftir uppeldisháttum Leiðandi foreldrar Skipandi foreldrar Eftirlátir foreldrar. Frh. Leiðandi foreldrar Krefjast þroskaðrar hegðunar af barni

dillon
Download Presentation

UPPRIFJUN FYRIR PRÓF Í SÁLFRÆÐI 203

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. UPPRIFJUN FYRIR PRÓF Í SÁLFRÆÐI 203

  2. Þrenns konar nútímauppeldi • Bandaríski sálfræðingurinn Diana Baumrind • Greinir foreldra í þrjá hópa eftir uppeldisháttum • Leiðandi foreldrar • Skipandi foreldrar • Eftirlátir foreldrar

  3. Frh. • Leiðandi foreldrar • Krefjast þroskaðrar hegðunar af barni • Setja skýr mörk um hvað er tilhlýðilegt og hvað ekki • Skýra sín sjónarmið • Hvetja börn til að skýra út sín sjónarmið • Leggja áherslu á umræður t.d. tengt reglum • Sýna mikla hlýju og uppörvun

  4. Frh. • Skipandi foreldrar • Stjórna með boðum og bönnum • Orð þeirra lög • Refsa fyrir misgjörðir • Nota sjaldan röksemdir • Sýna litla hlýju og uppörvun

  5. Frh. • Eftirlátir foreldrar • Mikið frjálsræði, jafnvel stjórnleysi • Skipta sér lítið af • Hugsa lítið um að örva sjálfstraust og sjálfstæði • Setja fáar reglur og fylgja þeim ekki • Gera litlar kröfur um þroskaða hegðun • Sýndu meiri hlýju en skipandi foreldrar

  6. Niðurstöður • Börn leiðandi foreldra - sjálfstæð, öguð, hafa trú á sjálfum sér, vingjarnleg og samvinnufús • Börn skipandi foreldra - hafa nokkra trú á sjálfum sér, eru bæld og vansæl, óvinveitt, tortryggin og vantreysta öðrum • Börn afskiptalausra foreldra - sýna minnsta trú á sjálfum sér, skort á sjálfsaga og eru árásargjörn

  7. 2. KAFLI • Er þroskaferillinn samfelldur eða stigbundinn? • Hvort skipta erfðir eða umhverfi meira máli fyrir þroska? • Má finna næmis- eða hættuskeið í þroskun? • Hvernig rannsóknum er best að beita þegar þroski er rannsakaður? • G. Stanley Hall – Fyrsti þroskasálfræðingurinn • Alfred Binet – Fyrsta greindarprófið og tilgangur þess

  8. Er þroskaferillinn samfelldur eða stigbundinn? • Samfelldur þroski: Jafn og hægur. • Þroski í stökkum: Miklar breytingar á afmörkuðum tímabilum. • Kenningar um félags- og tilfinningaþroska gera yfirleitt ráð fyrir samfelldum þroska. • Kenningar um vitsmuni og hreyfiþroska gera ráð fyrir þroska stökkum. • Mynd 2.2 bls. 41 sýnir mun á stökum og samfelldum þroskaferli. • Kenningar Piaget, Freud og Kohlberg gera ráð fyrir þroskastigum.

  9. Hvort skipta erfðir eða umhverfi meira máli fyrir þroskun? • Erfðahyggjumenn: Telja að arfgerð ráði mestu um þroska mannsins og umhverfi hafi takmörkuð áhrif. • A.R. Jensen og H.J. Eysenck telja að 80% greindar ákvarðist af erfðum. • Umhverfishyggjumenn: Telja að umhverfi ráði mestu um þroska mannsins. • Leon Kamin telur að 80% greindar ákvarðist af umhverfi. • Skoðið mynd 2.4 bls. 45. Hún sýnir vaxandi fylgni greindar með vaxandi skyldleika. Styður frekar erfðahyggju.

  10. Má finna næmis- eða hættuskeið í þroskun? • Það eru vísbendingar um að áhrif umhverfis á lífverur séu mest þegar þroskinn er örastur, þ.e. í æsku. • Ekki þar með sagt að hægt sé að móta börn að vild. • Ákveðin örvun á ákveðnum tímabilum er nauðsynleg til að ná þroska. • Næmiskeið: Tímabil þar sem áhrif ákveðinna umhverfisþátta eru í hámarki. • Hættuskeið: Tímabil þar sem lífvera er móttækileg fyrir ákveðnum umhverfisáhrifum og lærir ekki að svara þeim umhverfisáhrifum nema verða fyrir þeim á viðkomandi tímabili.

  11. frh. • Mörkun: Tilhneiging ungviðis til að elta það fyrsta sem er á hreyfingu eftir að þau fyrst koma í heiminn. (sjá nánar á mynd 2.3 á bls.44). • Ekki er talið að þroskun manna sé eins mikið komin undir hættuskeiðum eins og margra annarra dýra. Þroski taugkerfisins gerir manninn sveigjanlegri. • Sumir telja að næmisskeið geðtengsla sé á tímabilinu 6-18 mánaða hjá börnum. • Næmisskeið máltöku er frá 2-12 ára aldurs. • Næmisskeið félagsmótunar er 3-6 ára.

  12. Beinar athuganir • Beinar athuganir er gerðar bæði í eðlilegu umhverfi og við sérstakar rannsóknaraðstæður. • Beinar athuganir eru dýrar og tímafrekar. • Erfiðara er að gera nógu víðtækar rannsóknir til að alhæfa út frá þeim. • Eðlilegt umhverfi. • Dæmigerðir hlutir eru til staðar. • Barnið er vant aðstæðum. • Barnið er ekki truflað. • Sérstakar rannsóknaraðstæður. • Meiri stjórn en í eðlilegum aðstæðum. • Auðveldara að nota sérstakan búnað s.s. heilarit.

  13. G. Stanley Hall • Oft kallaður fyrsti þroskasálfræðingurinn. • Hafði verið nemandi Wundt. • Var frumkvöðull í sálfræði í Bandaríkjunum, stofnaði sálfræðirannsóknarstofu 1883, varð háskólakennari í sálfræði 1884 og hóf útgáfu sálfræðitímarits árið 1887. • Áhugi Hall beindist frekar að hagnýtri en fræðilegri sálfræði.

  14. Alfred Binet • Binet bjó til fyrsta greindarprófið ásamt fleirum. • Binet-prófið er enn í notkun í endurbættum útgáfum. • Rannsakaði minni og vitsmuni með nútímalegum aðferðum. • Rannsakaði meðal annars spönnun minnis.

  15. 3. KAFLI • Hugmyndir og kenningar Sigmunds Freud • Þrískipta persónuleikakerfið, þroskastigin, kenningin um orsakir taugaveiklunar og varnarhættirnir

  16. HELSTU KENNINGAR UM ÞROSKUN

  17. Freud • Hann taldi að mótun persónuleikans færi fram í æsku. • Hann lagði áherslu á mikilvægi sálarafls. • Sálarlífið knýr okkur áfram, gefur okkur kraft. • Hann taldi framan af að kynhvötin væri aðal sálarlífið. • Hann taldi að dauðahvöt hefði einnig mikil áhrif á hegðun okkar.

  18. PERSÓNULEIKAKERFIN ÞRJÚ • Freud skipti persónuleikanum í það(id), sjálf(ego) yfirsjálf(superego) YFIRSJÁLF SJÁLF ÞAÐ

  19. VARNARHÆTTIR • Frávarp: Að eigna öðrum neikvæða eiginleika sem maður hefur sjálfur. • Andhverfing: Að hegða sér öfugt við það sem maður vill. • Afneitun: Að neita að eitthvert ástand sem er til staðar sé til staðar. • Bæling: Að bæla óþægilegar minningar og reynslu. • Tilfærsla: Neikvæðum tilfinningum er beint að öðrum en þeim sem vekja þær. • Réttlæting: Að vinna skynsamlegar skýringar á því að manni langi ekki að gera ákveðna hluti sem mann langar í raun og veru að gera. • Varnarhættirnir byrja að myndast á forskólaaldri en verða meira áberandi eftir því sem líður á miðbernskuna.

  20. ÞROSKASTIGIN ÞRJÚ

  21. KENNINGAR UM ORSAKIR TAUGAVEIKLUNAR • Kynferðisleg togstreita úr bernsku er helsta ástæða taugaveiklunar á fullorðinsárum. • Kenningin var byggð á frásögnum sjúklinga Freuds. • Meirihluti sjúklinganna voru konur. • Margar þeirra sögðu honum frá kynferðislegri áreitni í æsku. • Í fyrstu trúði Freud konunum. • Seinna breytti hann kenningu sinni vegna þess að samkvæmt viðtölunum var kynferðisleg misnotkun lygilega algeng. • Hann taldi þá að flestar frásagnirnar væru kynórar. Freud átti þátt í því að gera menn vonbetri um að hægt væri að lækna geðraskanir.

  22. 4. KAFLI • 4. KAFLI • Segðu frá helstu kynslóðabreytingum á líkamsþroska? • Hvað er það sem helst er kannað hjá nýburum? • Hefur umhverfi áhrif á hreyfiþroska? • Hver eru tengsl kynmótunar og kynhlutverka? • Hvaða áhrif hefur bráður eða seinn þroski á sjálfsmynd unglinga?

  23. KYNSLÓÐABREYTINGAR Á LÍKAMSÞROSKA • Undanfarin hundrað ár hafa yngri kynslóðir að jafnaði tekið fyrr út þroska en þær eldri. Undantekningar eru á þrengingartímum. • Endanlegur þroski er meiri, þ.e. fólk er stærra. Þar munar þó ekki eins miklu og í þroskaldri. • Dæmi: Upphaf tíðablæðinga í Noregi: • 1840: 17,3 ár. • 1980: 13,1 ár. • Hæð fullorðinna hefur aukist um 0,6 cm á áratug á tímabilinu 1880-1960.

  24. ÞAÐ SEM HELST ER SKOÐAÐ HJÁ NÝBURUM • Þrjú viðbrögð tengjast fæðutöku: • Höfuðsnúningur • Sog • Kynging • Nokkur viðbrögð eru skoðuð til að meta ástand taugakerfisins. • Babinski-viðbragð: Barn fettir tærnar þegar strokið er undir ilina. • Moro-viðbragð: Barn baðar út öllum öngum ef óvæntar breytingar verða í umhverfinu.

  25. Hefur umhverfi áhrif á hreyfiþroska? • Rannsókn Dennis á börnum Hopi-indíana benti ekki til þess að umhverfi hafi veruleg áhrif. • Fyrstu 9 mánuði lífs eru Hopi börn bundin á vöggubretti án þess að geta hreyft sig. • Við 12-15 mánaða aldur reyndist hreyfiþroski þeirra vera hinn sami og hjá börnum sem ekki höfðu verið bundin á vöggubretti. • Fyrirvarar: • Hopi börnin voru bundin á vöggubrettin á daginn en fengu að vera frjáls á kvöldin. • Nokkrir mánuðir liðu frá því að hætt var að hafa þau á vöggubrettum og þar til hreyfiþroskaprófið var gert.

  26. FRH. • Rannsókn Hilgards: Tveggja ára börn voru þjálfuð í 12 vikur í að klifra upp stiga, hneppa hnöppum og beita skærum. Hreyfiþroski þeirra reyndist ekki meiri en þeirra sem ekki höfðu fengið viku þjálfun. • Fyrirvarar • Börn eru fljót að bæta sér upp svo viku þjálfun kynni að hafa verið nægileg. • Verkefnin voru heldur erfið fyrir tveggja ára börn. • Rannsóknir eru misvísandi um gildi þess að þjálfa upp hreyfiþroska barna en góður árangur virðist geta náðst hjá fötluðum.

  27. FRH. • Kynmótun leiðir okkur inn í kynhlutverk • Við tileinkum okkur hegðun, viðhorf, skoðanir og lífsstíl karla og kvenna • Foreldrar hafa mikil áhrif • Fatnaður, leikir, tal og fleira • Sumir haga sér í anstæðu við almennt einkenni síns kyns • Afneita kyni sínu og vilja vera af gagnstæðu kyni • Kynskiptingar

  28. Hvaða áhrif hefur bráður eða seinn þroski á sjálfsmynd unglinga? • Þroski unglingsáranna er eitt erfiðasta verkefnið sem einstaklingar þurfa að takast á við á lífsleiðinni. • Róttækar breytingar unglingsáranna koma róti á sjálfsmyndina. • Unglingurinn fer að miða sig meira við félagahóp sinn en fjölskyldu. Hann tekur upp norm hópsins. • Staðalímyndir hafa veruleg áhrif. • Staðalímynd karla gerir ráð fyrir að þeir séu stórir og sterkir. Því er það hagstætt fyrir stráka að vera bráðþroska. • Útlit er unglingum sérstaklega hugstætt og er það oftar nefnt í könnunum meðal unglinga en félagslegir eða vitsmunalegir þættir.

  29. Frh. • Bráðþroska strákar eru að jafnaði taldir meira aðlaðandi en þeir sem eru seinþroska. • Seinþroska strákar voru ósiðaðri, eirðarlausari og raupsamari. • Bráðþroska strákar reyndust hógværari, öruggari með sig og sýndu jákvæðari hegðun. • Munurinn á hópunum hélst að nokkru fram eftir unglingsárunum og fram að 33 ára aldri. • Bráðþroska stelpur eru ekki vinsælar framan af en eftir því sem líður á unglingsárin verða þær aftur vinsælar. • Bráðþroskaða stelpur sýna þroskaðri hugsunarhátt, og jákvæðari sjálfsmynd en seinþroska stelpur.

  30. 5. KAFLI • Hvað er greind og upphaf greindarprófa – Binet og Simone, gagnrýni og rök með. • Piaget – kenningar hans • Skynhreyfistig 0 – 2 ára • Foraðgerðastig 2 – 7 ára • Stig hlutbundinna aðgerða 7 – 11 ára • Stig formlegra aðgerða 11 – 15 ára

  31. HVAÐ ER GREIND? • Að læra og nota nám sitt og þekkingu til að laga sig að nýjum aðstæðum og leysa ný verkefni (Sigurjón Björnsson) • Hæfni til að laga sig að umhverfinu, einkum nýjum aðstæðum (Helms og Turner) • Meðfæddur hæfileiki til að afla sér þekkingar og nýta hana til að laga sig að umhverfinu (Piaget) • Hæfni til að læra af reynslunni • Hæfileikinn til sértækrar hugsunar • Greindarhugtakið á að ná yfir alla getu fólks til að vinna úr upplýsingum og skapa eitthvað nýtt (Howard Gardner)

  32. GREINDARPRÓF • Upphaf greindarprófa: Fræðsluyfirvöld í París vildu fá próf sem mældi námshæfni barna til að geta hjálpað þeim sem áttu erfitt með að læra. • Markmiðið bættur árangur einstaklinganna frekar en flokkun þeirra. • Binet og Simon voru fengnir til að útbúa greindarpróf 1904. • Greindarprófin áttu að mæla meðfædda hæfileika.

  33. FRH. • Stundum er talað um A- og B-þætti greindar. • A-þáttur er meðfæddur hæfileiki. • B-þáttur er þekking eða kunnáttu á hverjum tíma. • Prófin mæla í raun B-þáttinn. Greindarpróf mæla almenna hæfileika og kunnáttu.

  34. Kröfur greindarprófa: • Réttmæti: • Að prófin mæli það sem þau eiga að mæla. Oft er miðað við (viðmiðunar-réttmæti) eitthvað sem almennt er talið tengjast greind, t.d. skólaeinkunnir. • Áræðanleiki: • Að prófið gefi svipaða niðurstöðu við endurteknar prófanir. Til að próftakar læri ekki svörin utan að er oft stuðst við tvær útgáfur af sama prófinu. • Stöðlun: • Staðla þarf hvert próf fyrir þann hóp (menningarsvæði) sem nota á prófið á.

  35. Þekktustu greindarprófin • Fyrsta greindarprófið Binet-prófið kom út í Frakklandi 1905. • Því var ætlað að prófa hæfni barna á aldrinum 2-16 ára. • Verkefnin voru t.d. að skilgreina orð og raða kubbum. • Þegar Binet-prófið var staðlað í Bandaríkjunum var notast við normalkúrvu. • Það er ýmist nefnt Stanfor-Binet prófið eða Terman-Merrill prófið. • Það er ætlað fyrir börn á aldrinum 2,5-18 ára. • Það prófar einkum málleikni en lítið hreyfileikni. Málleikni er góð forspá um skólaárangur. • Verkþættir eru t.d. minni, ályktunarhæfni og röðun kubba (bálkur 5.3 bls. 167).

  36. Gagnrýni á greindarpróf Félagsleggagnrýni

  37. Fræðileg gagnrýni

  38. Stig Piagets í þroskun hugsunar tafla 5.2

  39. 6. KAFLI • Chomsky – máltökukenningin • Roger Browns - máltökurannsóknir • Stig máltöku – 6 þrep • Hvað er átt við með alhæfingum í barnamáli?

  40. Kenning Chomskys • Samvæmt Chomskys fæðist maðurinn með áskapaðar hugmyndir um mál og þess vegna er hann eina dýrið sem hefur svo flókið táknkerfi. • Hið áskapaða veldur því að börn læra mál en það er umhverfið sem ræður því hvert tungumálið er. • Með máltökutækinu búa börn sér til reglur sem gerir þeim kleyft að skilja og mynda nýjar setningar. • Á 2,5 árum, milli 1,5-4 ára aldurs, læra flest börn mikilvægustu reglur tungumálsins. • Chomsky taldi að styrking gæti ekki skýrt þennan mikla hraða. • Máltökutækið er eins í öllum tungumálum, það er algilt.

  41. Máltökurannsóknir Roger Browns • Rannsóknir Browns hafa sýnt að foreldrar umbuna miklu frekar fyrir sannleiksgildi setninga en rétta málfræði þeirra. • Brown: Ef styrking mótaði málið með einföldum hætti ættu börn að tala sannar en málfræðilega rangt mál. Það er ekki svo. • Brown telur einnig að sá munur sem er á máli barna í sama umhverfi hljóti þá að skýrast af mismunandi taugafræðilegum þroska og upplagi.

  42. Stig máltökumá skipta í 6 þrep sem ekki eru bundin við ákveðinn aldur en koma í tiltekinni röð.

  43. Alhæfingar í barnamáli • Orðaforði 2 ára barna er um 50 orð. Það er þá engin furða að þeim hættir til að alhæfa þessi orð. • Samkvæmt merkingarþátta-kenningu Evu Clark spretta alhæfingar barna af því að þau styðjast ekki við eins marga merkingarþætti og fullorðnir. • Þau skortir því merkingarþætti sem skilja að mismunandi hluti. • Dæmi: Merkingarþáttinn sem skilur milli hunda og katta.

  44. 7. KAFLI • Bolwby - Geðtengsl – Hegðunarmynstur – Tvær meginnálganir • Aðskilnaður og aðskilnaðarkvíði • Rannsóknir Harlows – apa ungarnir – víramamma og mjúk mamma • Mary Salter hefur gert ítarlegar kannanir á því hvers konar umönnun sé nauðsynleg til að börn þrífist eðlilega. • Rutter – gagnrýni á móðurafrækslukenninguna • Rannsókn Tizard og Hodges • Er það sjálfgefið að hægt sé að bæta fyrir afrækslu á börnum? • Hvaða áhrif hefur daggæsla á börn? • Hvaða áhrif hafa ofbeldi og vanræksla á börn?

  45. HUGTAKIÐ GEÐTENGSL • Skilgreining geðtengsla: Geðtengsl eru tilfinningalegt samband sem myndast venjulega milli foreldra og barns á fyrstu árunum. • Þau endurspeglast meðal annars í því að þau sækjast eftir að vera í návist við hvort annað. • Geðtengsl eru gagnkvæm. • Fyrstu geðtengsl eru: • Vanalega við eina manneskju, oftast móður. • Koma fram um 7 mánaða aldur (barn kemst í uppnám ef það er aðskilið frá móður).

  46. Hegðunarmynstur sem tengjast geðtengslum • Bros er félagsleg svörun sem kemur mjög við sögu myndunar geðtengsla. • Bros gengur í gegnum fjögur þroskastig (tafla 7.1 bls. 247). • Því nánari og tíðari sem geðtengsl eru þeim mun tíðari eru bros við 18 mánaða aldur (mynd 7.1 bls 248). • Mest brosa börn sem alast upp hjá foreldrum sínum og eru að jafnaði í návistum við foreldra. • Næst mest brosa börn á ísraelskum samyrkjubúum sem eru í návistum við foreldra sína á kvöldin. • Minnst brosa börn á stofnunum sem er óvist að séu það mikið í návistum við nokkurn fullorðin að sterk geðtengsl myndist þeirra á milli. • Það eru ekki aðeins viðbrögð foreldris sem móta barnið – viðbrögð barnsins móta líka hegðun foreldra. • Brosmild börn njóta líklega meiri umhyggju.

  47. Kenningar um myndun geðtengsla • Tvær meginnálganir varðandi myndun geðtengsla eru: • Tilfinningatengsl eru lærð tengsl við grundvallar líffræðilegar þarfir. • Tilfinningatengsl eru sjálfstæðar grundvallar líffræðilegar þarfir. • Freud: Taldi að geðtengsl mynduðust við þá aðila sem fullnægðu einföldum líffræðilegum hvötum eins og næringu og þrifum. Það var fyrst og fremst móðirin.

  48. MÓÐURAFRÆKSLUKENNINGIN • John Bowlby hélt því fram að móðurást væri börnum nauðsynleg til að þroskast eðlilega; börn sem ekki nytu móðurástar gætu ekki orðið eðlileg. • Bowlby taldi að það væri hættulegt geðheilsu barna ef móðirin annaðist það ekki allan sólarhringinn. • Kenning Bowlbys hafði mikil áhrif vegna þess að Alþjóðheilbrigðisstofnunin studdist við hana snemma á starfsferli sínum.

  49. Áhrif aðskilnaðar við foreldra á börn • Skammvinnur aðskilnaður (miðaður við veru á sjúkrahúsum). • 6 mánaða til 4 ára börn komast helst í tilfinninglegt uppnám ef þau eru skilin eftir. • Yngri börn sýna lítil eða engin viðbrögð. • Skammvinnur aðskilnaður er helst skaðlegur ef hann truflar myndun geðtengsla. • Ef foreldrar heimsækja börn sín títt er lítil hætta á geðtengsl truflist. (Nú til dags dveljast foreldrar oft á sjúkrahúsum með börnum sínum eða á sjúkrahótelum).

  50. Frh. • Kenning Bowlbys: Bowlby gerði ráð fyrir því að nærvera væri sjálfstæð líffræðileg grunnþörf. • Bowlby setti fram móðurafrækslukenninguna. • Rannsóknir Harlows: Sýndu að næringarþörf og þörf fyrir nærveru eru aðskildar þarfir sem eru aðeins lauslega tengdar. • Harlow gerði tilraun á apaungum. Hann lét útbúa víramömmu og dúkamömmmu. • Óháð því hvort næringin var hjá dúkamömmu eða víramömmu kusu apaungarnir að dvelja mun lengur hjá dúkamömmu. • Harlow ályktaði að hjúfurþörf væri meðfædd.

More Related