1 / 11

Samvinna lögreglu og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga Stefán Eiríksson, lögreglustjóri

Samvinna lögreglu og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga Stefán Eiríksson, lögreglustjóri 13. október 2010. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. Yfirlit. Meginefni erindis: Samspil og samskipti heilbrigðiseftirlits í sveitarfélögum og lögreglu

Download Presentation

Samvinna lögreglu og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga Stefán Eiríksson, lögreglustjóri

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Samvinna lögreglu og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga Stefán Eiríksson, lögreglustjóri 13. október 2010 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

  2. Yfirlit • Meginefni erindis: Samspil og samskipti heilbrigðiseftirlits í sveitarfélögum og lögreglu • Farið yfir hlutverk heilbrigðisnefnda og hlutverk lögreglu • Aðkoma lögreglu að starfi heilbrigðiseftirlits með tvennum hætti: • Aðstoðarhlutverk • Rannsóknarhlutverk • Dæmi um málaflokka og úrlausnarefni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

  3. Skipulag heilbrigðiseftirlits í sveitarfélögum • Fjallað um skipulag heilbrigðiseftirlits í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 • Þar má meðal annars sjá hvernig landinu er skipt í eftirlitssvæði – þrjú eftirlitssvæði sem falla undir starfssvæði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu • Hlutverk heilbrigðisnefnda tilgreint í 13. gr. laganna: • Framfylgja lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir • Vinna að bættu heilbrigðiseftirliti á sínu svæði • Annast fræðslu fyrir almenning • Efla samvinnu við önnur yfirvöld og aðila sem vinna að þessu málum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

  4. Hlutverk og verkefni lögreglu tilgreint í 1. gr. lögreglulaga • Öryggishlutverkið – gæta almannaöryggis, tryggja réttaröryggi o.fl. • Forvarnahlutverkið – stemma stigu við afbrotum • Rannsóknarhlutverkið – vinna að uppljóstrun brota, stöðva ólögmæta háttsemi o.fl. • Þjónustu- og hjálparhlutverkið – greiða götu fólks og aðstoða þegar hætta steðjar að • Aðstoðarhlutverkið – veita yfirvöldum vernd eða aðstoða við framkvæmd starfa sinna • Samstarfshlutverkið – starfa í samvinnu við önnur stjórnvöld og stofnanir sem hafa með höndum verkefni sem tengjast starfssviði lögreglu • Önnur verkefni – allt sem ótalið er Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

  5. Úrræði heilbrigðiseftirlits við framkvæmd starfa sinna • Valdsvið og þvingunarúrræði heilbrigðisnefnda og heilbrigðisfulltrúa tilgreind í VI. kafla laga um hollustuhætti og mengunarvarnir • Heimildir til að veita áminningu, frest til úrbóta, leggja á dagsektir, til að stöðva eða takmarka starfsemi og til að framkvæma úrbætur á kostnað hlutaðeigandi • Heimilt að leita aðstoðar lögreglu ef með þarf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

  6. Aðkoma lögreglu að málum á verksviði heilbrigðisnefnda • Aðkoma lögreglu í megindráttum með tvennum hætti: • Aðstoðarhlutverk skv. lögreglulögum og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir • Rannsóknarhlutverk – rannsókn refsiverðra brota sem heilbrigðisnefndir eða heilbrigðisfulltrúi beina til lögreglu með formlegum hætti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

  7. Aðstoðarhlutverk lögreglu • Mælt fyrir um þetta í lögreglulögum og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir • Hvað er um að ræða? • Aðstoð við lokanir og stöðvun starfsemi • Aðstoð við að fjarlægja hluti eða dýr • Aðstoða við að framfylgja öðrum ákvörðunum sem teknar eru og kalla á aðstoð eða valdbeitingu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

  8. Rannsóknarhlutverk lögreglu • Lögregla annast rannsóknir brota, þ.e. brota á lögum þar sem refsing liggur við • Fjölmörg lög og reglugerðir sem falla undir eftirlitssvið heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og refsiákvæði í þeim flestum • Hvernig skal málum komið til lögreglu þar sem grunur hefur vaknað um refsiverða háttsemi? • Ekki með einfaldri tilkynningu um að hér sé eitthvað grunssamlegt á ferð • Með rökstuddri kæru hins sérhæfða eftirlitsaðila, þ.e. heilbrigðisnefndar eða heilbrigðisfulltrúa Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

  9. Nánar um rannsóknarhlutverk lögreglu og aðkomu hins sérhæfða eftirlitsaðila • Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga flokkast sem sérhæfður eftirlitsaðili á tilteknu sviði. Hvað felst í því? • Mikilvægur skilgreiningar- og túlkunaraðili um gildissvið reglna og framkvæmd • Sá aðili sem hefur heildaryfirsýn yfir málaflokkinn og er því í lykilaðstöðu til að gæta að grundvallarsjónarmiðum eins og jafnræðisreglu • Mikilvægur skilgreiningar- og túlkunaraðili um þá háttsemi/athafnaleysi sem um ræðir og hvaða lagaákvæði sé verið að brjóta Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

  10. Nánar um rannsóknarhlutverk lögreglu • Kærur til lögreglu þurfa að vera skýrar og nákvæmar um öll framangreind atriði, þar á meðal þarf að skilgreina nákvæmlega háttsemina og brot á hvaða lögum um sé að ræða • Lögreglan hefur viðamikla reynslu af samspili af þessu tagi og samskiptum við sérhæfða eftirlitsaðila á ýmsum sviðum. Dæmi: Landhelgisgæslan, Fjármálaeftirlitið, Innheimtustofnun sveitarfélaga, Skattrannsóknarstjóri, Samkeppniseftirlitið o.m.fl. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

  11. Dæmi um samstarf á ákveðnum sviðum - dýramálefni • Munur á úrræðum eftir því hvort um er að ræða brot á reglum um dýravernd eða dýrahald • Dýraverndarlög geyma skýr úrræði og skýrar heimildir fyrir eftirlitsaðila og lögreglu ef grunur vaknar um brot á lögunum – sjá t.d. 18. gr. dýraverndarlaga • Dýrahald fer á hinn bóginn eftir samþykktum í hverju sveitarfélagi – sjá 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir – aðkoma lögreglu fyrst og fremst aðstoðarhlutverk Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

More Related