1 / 22

Staða raunfærnimats á Íslandi Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir

Staða raunfærnimats á Íslandi Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir. Samningur. Samningur ASÍ og SA við menntamála-ráðuneytið frá árinu 2003 Nýr þjónustusamningur í janúar 2006

arlene
Download Presentation

Staða raunfærnimats á Íslandi Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Staða raunfærnimats á Íslandi Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir

  2. Samningur • Samningur ASÍ og SA við menntamála-ráðuneytið frá árinu 2003 • Nýr þjónustusamningur í janúar 2006 • Að þróa aðferðir við mat á óformlegu námi og námsárangri í samvinnu við menntamálaráðuneytið, atvinnulífið og fræðsluaðila ásamt því að þróa aðferðir við mat á raunfærni einstaklinga. FA skal vinna með menntamálaráðuneytinu að stefnumótun, uppbyggingu kerfis og prófun á því bæði fyrir fólk á vinnumarkaði með litla grunnmenntun svo og faglærða starfsmenn á vinnumarkaði. Unnið skal að öllum þáttum raunfærnimats; til styttingar á námi, bættrar stöðu á vinnumarkaði, svo og almennrar færniuppbyggingar. Einnig skal FA þróa aðferðir við uppbyggingu námsferilsskrár (nemendabókhalds) í samstarfi við fræðsluaðila og menntamálaráðuneytið þar sem tekið verði mið af mati á óformlegu námi og raunfærni.

  3. Forgangsverkefni • Forgangsverkefni að meta raunfærni til styttingar á námi á framhaldsskólastigi. • 2004 Upplýsingaröflun m.a frá Noregi • Ráðstefnur • Tilraunaverkefni

  4. EQF - NQF • Evrópskur hæfnirammi EQF • ESB flokkunarkerfi fyrir færni-, þekkingar- og hæfnimarkmið • Íslenskur hæfnirammi NQF • Íslenskt flokkunarkerfi sem byggir á því evrópska • Skýrsla “Menntun og þjálfun til 2010”

  5. Hvað er raunfærnimat? • Raunfærnimat er staðfesting og mat á raunfærni einstaklings án tillits til þess hvernig eða hvar hennar hefur verið aflað • Kaupmannahafnaryfirlýsingin 2002 – Evrópskar viðmiðunarreglur • Hlutverk aðila atvinnulífsins

  6. Hvers vegna raunfærnimat? • Ástæður raunfærnimats • Mikilvægi mannauðsins • Hagvöxtur eykst með jöfnuði í menntun • Dýrt að læra aftur það sem maður kann fyrir • Þörf atvinnulífsins fyrir þekkingu - 1996 • Þeir sem nýta tíma sinn í símenntun þurfa að geta fengið þekkingu sína metna af óháðum aðila • Könnun fyrir Samtök iðnaðarins 2004 • 66,8% svarenda eru hlynntir því að starfsfólk geti fengið vottað nám á vinnustöðum, sem gefi starfsréttindi

  7. Forsendur raunfærnimats • Samkvæmt eigin óskum einstaklingsins og honum til framdráttar – upplýst ákvörðun • Traust og trúnaður á milli aðila • Gagnsætt og auðvelt í notkun • Óhlutdrægni og skilgreindir staðlar • Niðurstöður gildar á milli fræðsluaðila

  8. Tillögur • Fullorðnir eiga rétt á raunfærnimati • Stór hópur fullorðinna sem ekki hefur lokið framhaldsskólanámi • Tvær leiðir í boði • Framhaldsskólaleið • Fullorðinsfræðsluleið

  9. Tvær leiðir • Framhaldsskólaleið • Í aðalnámskrá framhaldsskólanna segir • Skólameistari ber ábyrgð á að meta fyrra nám nemenda, hvort sem um formlegt eða óformlegt nám er að ræða • Nemandinn á þess kost að fá metna starfsreynslu sem hann hefur aflað sér í upphafi starfsnáms • Leiki vafi á hvernig rétt sé að meta nám er eðlilegt að láta nemandann njóta vafans eða vísa honum í stöðupróf

  10. Tvær leiðir • Framhaldsskólaleið • Framhaldsskólarnir hafa það hlutverk að raunfærnimeta einstaklinga sem þess óska • FA hefur verið í samstarfi við framhaldsskóla og fleiri aðila í tilraunaverkefnum í raunfærni-mati • Einstaklingar eiga oft erfitt með að fóta sig innan framhaldsskólans að loknu matinu

  11. Tillögur • Framhaldsskólaleið • Raunfærnimatið þarf að vera hluti af fram-kvæmdaráætlun starfseminnar og gefið vægi innan hennar • Fjármagna þarf raunfærnimat innan skólanna • Víðtækt samstarf þarf að nást við atvinnulífið og starfsgreinaráðin • Raunfærnimatið sé framkvæmt eftir gæðavið-miðum sem byggja á evrópskum leiðbeiningum

  12. Tvær leiðir • Fullorðinsfræðsluleið • Símenntunar- og fræðslumiðstöðvar hafa nú möguleika á að bjóða upp á vottaðar námsleiðir • Þær geta einnig boðið náms- og starfsráðgjöf, sem er mikilvæg í raunfærnimatsferlinu • Opnar val á milli formlegrar og óformlegrar nálgunar að raunfærnimati • Hlutleysi aukið gagnvart námi og námskrám

  13. Tillögur • Fullorðinsfræðsluleið • Fullorðinsfræðsluaðilar taki á móti fólki í raunfærnimat vegna návígis við vinnumarkað og sérhæfingu í fullorðinsfræðslu • Fái heimild til að votta nám á framhaldsskólastigi – FA fái heimild í upphafi • Víðtækt samráð við aðila vinnumarkaðarins í allri þróun • Gæðaviðmið og evrópskar leiðbeiningar hafðar að leiðarljósi

  14. Einstaklingurinn velur sér leið til raunfærnimats Framhaldsskólar Fullorðinsfræðsluaðilar Matskerfi Þjálfun/Gæði Vottun Sérhannaðar námsleiðir Framhalds- skólar Háskólar Þróun raunfærnimats

  15. Tillögur • Niðurstöður raunfærnimats séu gildar á milli fræðsluaðila á sama stigi og innan hverrar stofnunar • Tryggja yfirfærslumöguleika matsins milli formlegra og formlegra aðila – þróun NQF • Raunfærnimat sé framkvæmt samkvæmt lýsingum námskrár – ekki kennslumiðað • Árangursmiða námsmarkmið – gátlistar • Stofnanir/skólar geti ekki hafnað mati, sem framkvæmt er af viðurkenndum aðilum

  16. Tillögur • Réttur fullorðinna til náms á framhalds-skólastigi • Framhaldsskólar þurfa að geta tekið á móti fullorðnu fólki í nám – jafn réttur • Fullorðinsfræðsluaðilar þurfa að geta boðið nám á framhaldsskólastigi – sérhannaðar leiðir • Kostur á að taka hluta af námsáföngum í samræmi við niðurstöður mats • Tryggja rétt fullorðinna til námslána

  17. Tillögur • Gæði raunfærnimatskerfisins séu tryggð • Tilgangur raunfærnimatsins þarf að vera skýr – gagnsætt ferli • Réttur einstaklingsins í brennidepli – trúnaður, eignarréttur niðurstöðu - áfrýjunarmöguleiki • Ábyrgð stofnana og hagsmunaaðila skýr – ráðgjöf, stuðningur, lögmætar niðurstöður • Trúnaður og traust er grundvöllurinn – ferlið í lagi • Hlutleysi matsaðila sé tryggt –hlutverk og ábyrgð skýr • Lögmæti og trúverðugleiki sé fyrir hendi – hagsmunaaðilar með

  18. Raunfærni – yfirlit ferlis Upplýsingar Skráning á raunfærni Sjálfsmat Greining á raunfærni matssamtal Staðfesting á raunfærni Viðurkenning vottun Portfolio Self-assessment Assessment interview Verification/confirmation process Recognition Information Education Nám Starf Work Endurgjöf - ráðgjöf Feedback - guidance Uppfyllir viðmið Meets standards Nánari staðfesting Further verification Nám Education Uppfyllir ekki viðmið Does not meet standards Work Starf

  19. Tillögur • Samstarfshópur FA og menntamálaráðuneytis vinni að útfærslu • Aðaláherslan á mat til styttingar náms á framhaldsskólastigi eftir tveimur leiðum • Aðferðirnar byggi á sama grunni hvað varðar aðferðafræði og gæðamál • Hópurinn útbúi aðgerðaáætlun og þrói nánari útfærslu

  20. Tillögur • Tilraunatímabil til þriggja ára • Aðgerðaáætlun • Aðlögun laga og reglugerða • Áhersla á samstarf hagsmunaaðila • Þjálfun matsaðila • Leiðir til að leysa ágreiningsmál • Þróun í samræmi við markmið EQF/NQF • Breytingar á framhaldsskólakerfi • Greinar sem best henta í forgangi á tilraunatímabili

  21. Þróun raunfærnimats • Endurskoðun á tillögu í ljósi reynslu eigi sér stað 2010 • Mat og endurskoðun verði gerð með hliðsjón af reynslugreiningu og eftir gæðastöðlum

More Related