1 / 13

Jólaleikurinn hugmyndir, útfærsla og staða

Jólaleikurinn hugmyndir, útfærsla og staða. Punktar úr vinnu við Flash-verkefnið Jólaleikurinn Hugmyndir sem lágu að baki og hinar sem komu heldur seinna. Góðar útfærsluleiðir og aðrar aðeins síðri. Staðan í dag og hugsanleg framtíð. Kryddað með vekjandi hljóðum í lok langrar annar.

jihan
Download Presentation

Jólaleikurinn hugmyndir, útfærsla og staða

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Jólaleikurinnhugmyndir, útfærsla og staða Punktar úr vinnu við Flash-verkefnið Jólaleikurinn Hugmyndir sem lágu að baki og hinar sem komu heldur seinna.Góðar útfærsluleiðir og aðrar aðeins síðri.Staðan í dag og hugsanleg framtíð. Kryddað með vekjandi hljóðum í lok langrar annar. Ath: Verkefnið Jólaútvarpið tengist sama vef og Jólaleikurinn og er hugsað sem drög að staðgengli ,,syngjandi fánatrjánna” sem aldrei báru sitt barr.

  2. Jólaleikurinnhugmyndir, útfærsla og staða • Margmiðlun með tilgangi • Leikurinn sem leið til náms • Gagnvirkur stafaleikur sem tengist vefleiðangrinum Jólaboðið • Markmið leikjarins að koma stöfunum í merkingarbæra röð • Umbunin birtist í jólapakka sem inniheldur m.a. mynd af hugtakinu, fróðleik sem hægt er að nota í vefleiðangrinum. • Tenging við fög, lönd og bjargaflokka í Jólaboðinu • Þrjú þyngdarstig • Vísbendingar

  3. Jólaleikurinnhugmyndir, útfærsla og staða • Prófað að setja upp flæðirit: • Nokkrar útlitsleiðir settar upp á pappír / í PPT • ,,Storyboard” aðlagað að Flash: • Bakgrunnur / umhverfi Movie-clips / leikendur Tímalínur og hnappar / söguþráður • Og vaðið út í Flash á þó nokkurt dýpi • Allar útlitsleiðir reyndust of flóknar fyrir núverandi tæknifærni ..en ákveðið að tjalda því sem til var.

  4. Jólaleikurinnhugmyndir, útfærsla og staða • Hverju skilar verkefnið ? • Klappað og klárt ? • Að læra af reynslunni

  5. Jólaleikurinnhugmyndir, útfærsla og staða Þrjú þyngdarstig Þyngdin byggir annars vegar á lengd orðanna, hins vegar á hugtökunum sjálfum. Þyngdarflokkur valinn á forsíðu. Sjálfgefið er miðstig.

  6. Jólaleikurinnhugmyndir, útfærsla og staða Vísbendingar Sama hjálparveran alltaf til staðar.Vísbendingarnar þurfa að vera í knöppum texta, líka á þyngri stigum.

  7. Jólaleikurinnhugmyndir, útfærsla og staða Tenging við fög, lönd og bjargaflokka í Jólaboðinu Fög: Heimilisfræði, tónmennt, upplýsingamennt. Lönd: Danmörk, Finnland, Pólland og Þýskaland Bjargir: Jólamatur, -tónlist, -siðir, -skraut

  8. Jólaleikurinnhugmyndir, útfærsla og staða Hverju skilar verkefnið ?Ég sé fyrir mér að fullbúinn Jólaleikur geti orðið góð viðbót við vefleiðangurinn Jólaboðið. Námið í leiknum felst í auknum skilningi á verkefninu og leiðum til að leysa það. Þetta er hugsað sem viðbótaraðgangur að björgum í gegn um leik. Á þennan hátt má hugsa sér að leikurinn verði til þess að skapa nýjar tengingar sem ella hefðu ekki blasað við. Ef nemendur lenda í sjálfheldu, eða verða uppiskroppa með hugmyndir, má beina þeim í leikinn. Ef hugtakaval, þyngdarstig og fróðleiksmolar eru úthugsuð, má ímynda sér að leikur af þessu tagi geti víða nýst. Þar sem vönduð útfærsla á leik sem þessum tekur nokkurn tíma, myndi því borga sig að þróa hann þ.a. hægt væri á einfaldan hátt að breyta um þema, hvort sem er í hugtökum eða útliti.

  9. Jólaleikurinnhugmyndir, útfærsla og staða Klappað og klárt ? Hugmyndir eru að fá á sig mynd. Fyrstu drög má skoða hér: Jólaleikurinn Herslumuninn vantar á að fylgst sé með að stafir séu dregnir á réttan stað og brugðist við því (athuga-hnappurinn).Til að hægt verði að vera með tilviljanakennda röð á orðum innan hvers þyngdarflokks, þarf að notast við útfærslu sem enn er ekki á valdi undirritaðrar.Þetta eru aðeins dæmi um það sem bíður betri tíma.

  10. Jólaleikurinnhugmyndir, útfærsla og staða Að læra af reynslunni Togstreytan var á milli þess að gera einfalt sýndarverkefni eða ráðast í stærra verkefni án þess að hafa til þess nægar forsendur. Ég tel mig hafa valið seinni kostinn og lært margt á því. Stærsti lærdómurinn er sá að skýr markmið og vönduð greining á grundvelli þeirra, eru forsenda þess að vitræn afurð verði til (innan skikkanlegra tímamarka). Fullkomin tækni dregur síst úr mikilvægi þessa. Annað hef ég ég lært:Það getur reynst þrautin þyngri að koma góðri hugmynd yfir í Flash.Þetta hefur aðallega háð mér í öllu sem snertir myndmálið. Og enn einu sinni ætti ég að hafa lært:Að tíminn flýgur, ekki síst á Vefnum, þar sem margar stundir hafa farið í leit að myndum, hljóði, krækjum sem tengjast margmiðlun í námi fullorðinna, námi með leik o.m.fl. ...

  11. Jólaleikurinnhugmyndir, útfærsla og staða Bakgrunnur / Umhverfi Fastur bakgrunnur samanstendur af tré, poka, kúlum og stjörnu.Fyrsta tilraun var teiknuð / máluð og skönnuð inn. Auk þess voru ýmsir hlutir skannaðir inn, en allt kom fyrir ekki.Annað hvort skilaði þetta sér illa, erfitt reyndist að fjarlægja bakgrunn, eða myndirnar urðu of stórar.Þá var ráðist í að teikna í Flash. Eftir nokkrar tilraunir var ljóst að tíminn/færnin dugði skammt og farin einföld leið sem sjá má hér: Jólaleikur

  12. Jólaleikurinnhugmyndir, útfærsla og staða Movie-clips / Leikendur Helstu gerendur eru stafir, Vísir og pakkar, auk hnappannaStafir renna inn á sviðið í upphafi og hafna í jólapoka. Þaðan er ætlast er til að þeir séu dregnir á jólakúlu. Vísir gægist fram undan trénu.Ef smellt er á hann, birtist texti með vísbendingu um orðið sem verið er að leita eftir. Pakki rennur inn undir tréð þegar staðfest hefur verið að orðið sé rétt.Ef smellt er á hann, opnast upplýsingar sem tengjast hugtakinu.Eftir því sem fleiri orðum hefur verið svarað rétt, fjölgar pökkum undir trénu. Sjá: Jólaleikur

  13. Jólaleikurinnhugmyndir, útfærsla og staða Tímalínur og hnappar / Söguþráður UpphafLeikurinn hefst á kynningarglugga.Síðan er beðið er eftir ákvörðun um að byrja(nýtt orð) eða hætta.Nýtt orð Í næstu senu renna stafirnir sér inn á sviðið.Leikmaður getur dregið þá til að vild og ákveður hvenær hann athugar hvort rétta orðið sé komið. Hér getur hann líka valið nýtt orð eða hætt.AthugaEf orðið er rétt, rennur pakki undir tréð. Ef orðið er rangt birtist athugasemd.Í báðum tilvikum er síðan beðið eftir ákvörðun um að velja nýtt orð eða hætta. HættaFarið til baka á síðuna sem kallaði á leikinn. Sjá: Jólaleikur

More Related