1 / 9

Íslenska tvö Kafli 2, bls. 86-92

Íslenska tvö Kafli 2, bls. 86-92. Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 203 Herdís Þ. Sigurðardóttir. Æsir og ásynjur Gylfaginning. Afkvæmi Loka Þegar hefur verið sagt frá því að Loki átti börn með konu sinni, Sigyn: Nari /Narfi Váli (hefur reyndar ekki verið kynntur enn)

cutler
Download Presentation

Íslenska tvö Kafli 2, bls. 86-92

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Íslenska tvöKafli 2, bls. 86-92 Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 203 Herdís Þ. Sigurðardóttir

  2. Æsir og ásynjurGylfaginning • Afkvæmi Loka • Þegar hefur verið sagt frá því að Loki átti börn með konu sinni, Sigyn: • Nari /Narfi • Váli (hefur reyndar ekki verið kynntur enn) • Í þessum kafla segir frá fleiri afkvæmum Loka. • Loki átti þrjú afkvæmi með tröllkonunni Angurboðu úr Jötunheimum: • Fenrisúlfur • Miðgarðsormur (Jörmungandur) • Hel

  3. Æsir og ásynjurGylfaginning • Afkvæmi Loka, frh. • Goðin komust að tilvist barnanna sem Loki átti með Angurboðu og grunaði að illt myndi af þeim leiða. • Óðinn lét því kalla þessi systkini til sín: • Kastaði orminum í sjóinn. Hann liggur nú í miðju hafi umhverfis öll lönd og bítur í sporð sér. • Kastaði Hel í Niflheim og gaf henni vald yfir 9 heimum. Til hennar fara allir sótt- og ellidauðir menn. • Salur hennar heitir Élúðnir. • Hungur heitir diskur hennar. • Sultur heitir hnífur hennar. • Ganglati heitir þræll hennar en Ganglöt heitir ambáttin. • Þröskuldur hennar heitir Fjallandforað. • Kör heitir sæng hennar. • Blíkjandböl heita lokrekkjutjöld hennar. • Æsir fóðruðu úlfinn heima.

  4. Æsir og ásynjurGylfaginning • Afkvæmi Loka, frh. • Týr einn hafði hugrekki til að færa úlfinum mat. • Þegar goðin sáu hvað úlfurinn óx hratt ákváðu þau að reyna að fjötra hann. • Þau gerðu þrjár tilraunir til þess. • Læðingur hét fyrsti fjöturinn sem búinn var til en úlfurinn náði að leysa sig úr honum (losnaði úr Læðingi). • Drómi hét næsti fjötur sem búinn var til en úlfurinn náði einnig að losna úr honum (drap sig úr Dróma). • Gleipnir hét þriðji og sterkasti fjöturinn. Hann var búinn til af dvergum úr eftirfarandi hlutum: • dyn kattarins • skeggi konunnar • rótum bjargsins • sinum bjarnarins • anda fisksins • fugls hráka

  5. Æsir og ásynjurGylfaginning • Afkvæmi Loka, frh. • Fjöturinn Gleipnir var sléttur og blautur en ákaflega sterkur. • Æsir fóru út í hólmann Lyngva í vatninu Ámsvartni og skoruðu á úlfinn að reyna að slíta fjöturinn. • Úlfurinn krafðist þess að einhver ásanna legði höndina í kjaftinn á sér sem tryggingu fyrir því að hann yrði leystur ef hann gæti ekki losað sig sjálfur. • Týr einn þorði að leggja hönd sína í gin úlfsins. • Svo fór að Týr missti höndina.

  6. Æsir og ásynjurGylfaginning • Afkvæmi Loka, frh. • Festi fjötursins nefndu æsir Gelgju og drógu hana í gegnum mikla hellu sem þeir nefndu Gjöll. Þessa hellu festu þeir langt niðri í jörð. • Til að tryggja að hellan væri rækilega fest tóku æsir steininn Þvita og ráku hann enn lengra ofan í jörðina. Hann var notaður sem festarhæll.

  7. Æsir og ásynjurGylfaginning • Afkvæmi Loka, frh. • Úlfurinn reyndi að glefsa í æsi en þá skutu þeir sverði í munn hans. • Námu hjöltin við neðri góminn en blóðrefillinn (oddurinn) við efri góminn. • Úr munni úlfsins rennur slefa en hún myndar ána Vón. • Svona mun úlfurinn liggja til ragnaraka. • Ástæðan fyrir því að æsir drápu ekki úlfinn var sú að þeir vildu ekki saurga griðastaði sína. • Þó kveða spár á um að úlfurinn muni granda Óðni.

  8. Verkefni í kennslustundI • Lesið ljóðið Fenrisúlfur e. Hannes Pétursson á bls. 90 í Íslensku tvö. • Svarið spurningunum í bókinni: • Hver er hinn þráði vopnadynur sem talað er um í fyrsta erindi ljóðsins? • Hver eru hin spáðu endalok? • Hver er það sem gleypir sól hér? Er það í samræmi við lýsingu Snorra-Eddu? • Hver eru einkenni sonnettu? • Hvaða tilfinningu miðlar ljóðið?

  9. Verkefni í kennslustundII • Lesið kaflann um gríska goðafræði á bls. 91-92. • Hvað er líkt með: • Seifi – Óðni? • Seifi – Loka? • Seifi – Tý? • Póseidon – Nirði? • Heru – Frigg? • Afródítu – Freyju? • Appólon / Artemis – Frey / Freyju? • Hvar bjuggu grísku goðin og hvernig minnir bústaður þeirra á Ásgarð?

More Related