1 / 86

2. Krítverjar bls. 1-6 (gl.2)

2. Krítverjar bls. 1-6 (gl.2). Mínos fékk sent sænaut frá sjávargu ð inum Póseidon sem hann átti a ð fórna en fórna ð i í sta ð þ ess lakara nauti. Póseidon reiddist þ essu og kom þ ví til lei ð ar a ð kona Mínosar eigna ð ist son me ð nautinu sem fékk nafni ð Mínótárus.

sanaa
Download Presentation

2. Krítverjar bls. 1-6 (gl.2)

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. 2. Krítverjar bls. 1-6 (gl.2) • Mínos fékk sent sænaut frá sjávarguðinum Póseidon sem hann átti að fórna en fórnaði í staðþess lakara nauti. • Póseidon reiddist þessu og kom því til leiðar að kona Mínosar eignaðist son með nautinu sem fékk nafnið Mínótárus. • Ungu fólki frá Aþenu var fórnað í kjaft Mínótárusar en Þeseifur drap skrímslið.

  2. 2. Krítverjar bls. 1-6 (gl. 3) • Þeseifur átti að sigla heim undir hvítum seglum ef hann næði að drepa Mínótárus • Þeseifur og Aríaðna, dóttir Mínosar urðu ástfangin en hún varð eftir á eyjunni Naxos og varð kona vínguðsins Díonýsosar. • 1600-1400 f.Kr. aukast samskipti við Mýkenumenn(Akkea). Egear taka upp línuletur B sem tekist hefur að ráða.

  3. 3. Mýkenumenn bls. 6-12 (gl. 4) • Mýkenumenn bjuggu syðst á Grikklandi og urðu herrar Eyjahafsins um 1400 f.Kr. • Fólk sem talaði indóevrópskt mál (grísku) kom fyrst til Grikklands um 2000 f.Kr. • Helstu borgríki Mýkenumanna (Akkea) voru Mýkena, Týrins, Argos og Pýlos.

  4. 3. Mýkenumenn bls. 6-12 (gl.5) • Hómer var uppi á 8.öld f.Kr. en hann samdi Ilions- og Odysseifskviðu (Hómerskviður) en þær segja frá Trójustríðinu um 1200 f.Kr. • Heinrich Schliemann las Hómerskviður og hóf fornleifauppgröft um 1870 e.Kr. vegna áhuga síns á Trójuborg. Hann fann borgina í Litlu-Asíu og gróf svo upp Mýkenuborg.

  5. 3. Mýkenumenn bls. 6-12 (gl.6) • Mýkenumenn voru í upphafi undir miklum áhrifum frá Krít. Byggingastíll var þó frábrugðinn og meiri áhersla á hernað. • Mýkenumenn (Akkear) voru herraþjóð frá um 1400-1100 f.Kr. og stofnuðu margar nýlendur, t.d. á Ródos og Kýpur. • Dórar taka völdin á Grikklandi um 1100 f.Kr. þeir réðu yfir járnvopnum.

  6. II.1. Hellenar bls. 12-15 (gl.7) • Saga Grikkja hinna fornu hefst um 800 f.Kr. en þá fara handiðn, verslun og siglingar að hefjast til vegs að nýju eftir 300 ára hlé. • Útflutningur á járnáhöldum, vopnum, leirkerum og ullarvöru verður áberandi. • Borgríki (pólis) sem ná yfir borg, smáþorp og sveitahérað fjölgar í samræmi við aukinn fólksfjölda.

  7. II.1. Hellenar bls. 12-15 (gl.8) • Í fyrstu er talið að hafi verið konungsstjórn (um 800 f. Kr.) í borgríkjunum en um 700 f.Kr. komst víða á svokölluð höfðingjastjórn (aristókratí). • Víða varð einræði (tyranní) ríkjandi um 600 f.Kr. í kjölfar átaka milli borgarastéttar og höfðingja. • Lýðræðisfyrirkomulag fór aðþróast í sumum borgríkjum á 5.öld f.Kr. (Aþena). • Borgríki risu einnig utan Grikklands.

  8. II.2. Nýlendutíminn bls.15-16 (9) • Grikkir stofnuðu nýlendur á árunum 750-550 f.Kr. Þær tengdust borgríkjum á Grikklandi og seldu þeim korn. • Dæmi um borgir í Evrópu sem upphaflega voru grískar nýlenduborgir eru Barcelona, Marseilles, Napolí, Sýrakúsa og Istanbul. • Með nýlendustofnun dreifðist grísk menning um Miðjarðarhafssvæði.

  9. Kort

  10. Grískir þjóðflokkar og mállýskur eftir innrás Dóra.

  11. II.3. Sameining... bls. 16-20 (10) • Grikkir voru sundrungarmenn en áttu þó ýmislegt sameiginlegt eins og tungumál og að telja sig yfir aðra hafna. • Grísku skáldin voru fræg um allt Grikkland og var Hómer frægastur. Auk Hómers má nefna Hesíodos, Saffó og Pindar. • Grikkir áttu sér sameiginlega helgistaði en merkilegastir þeirra voru Delfi og Ólympía.

  12. II.3. Sameining... bls. 16-20 (11) • Keppt var í íþróttum bæði í Delfí og Ólympíu fjórða hvert ár. • Ólympíuleikarnir urðu umfangsmeiri og kepptu frjálsbornir karlmenn (naktir) frá öllu Grikklandi í mörgum greinum. • Ólympíuleikarnir voru ekki bara íþróttaleikar heldur einnig trúarhátíð til heiðurs Seifi.

  13. II.3. Sameining... bls. 16-20 (12) • Fyrstu Ólympíuleikarnir voru haldnir árið 776 f.Kr. og miðuðu Grikkir tímatal sitt viðþað. • Síðustu Ólympíuleikarnir voru haldnir árið 393 e.Kr. en voru þá bannaðir af trúarástæðum • Leikarnir voru svo endurreistir með nútímasniði árið 1896.

  14. II.4 Vöxtur Aþenu bls. 20-23 (13) • Borgríkið Aþena var á Attíkuskaga en henni fylgdi hafnarborgin Píreus. Helstu auðlindir voru leir, marmari og silfurnámur. • Íbúarnir voru af jónískum ættum • Í fyrstu var konungsstjórn í Aþenu en seinna voru kosnir arkonar á þjóðfundi sem urðu svo meðlimir í öldungaráðinu. • Stórlandeigendur höfðu einir kosningarétt.

  15. II.4 Vöxtur Aþenu bls.20-23 (14) • Sólon var gerður að arkon um 595 f.Kr. en hann lagði bann við skuldaþrældóm og leysti bændur undan skuldum. • Hann skipti þjóðfélaginu í fjórar stéttir eftir eignum og kom á ráði allra stétta,(400 manna ráðið) sem tók þátt í lagagerð. • Sólon forðaði meðþessu Aþenu frá stéttaátökum og fékk lof fyrir.

  16. II.4 Vöxtur Aþenu bls. 20-23 (15) • Um 560 f.Kr. fóru Aþeningar inn í týrannatímabil en þá komst Peisistratos til valda. • Á þessu tímabili óx Aþena upp í að verða forysturíki og menningarlíf blómstraði. • Kleisþenes efldi svo aftur þjóðfundinn(500 manna ráðið), en hann máttu allir 18 ára frjálsbornir karlmenn sækja, og er hann oft kallaður faðir hins aþenska lýðræðis.

  17. II.5 Sparta bls. 23-24 (15) • Sparta var í Lakóníuhéraði á Pelópsskaga en þar réðu Dórar ríkjum yfir fyrri íbúum sem urðu þrælar þeirra og voru kallaðir helótar. • Hringbyggjar (períókar), bjuggu umhverfis Spörtu og stunduðu verslun og iðnað. • Íbúar Spörtu stunduðu nær eingöngu hernað og ríkið átti allar eignir. 7 ára voru drengir sendir í herbúðir og aldir þar upp.

  18. II.5 Sparta bls. 23-24 (16) • Í öldungaráði Spartverja sátu 28 öldungar með neitunarvald en tveir konungar ríktu ætíð samtímis í Spörtu (fámennisstjórn). • Um 560 f.Kr. stofnuðu Spartverjar Pelópsskagabandalagið. Þeir litu hornauga þau borgríki þar sem lýðræði ruddi sér rúms.

  19. II. 6 Persastríð bls. 24-27 (16) • Um 500 f.Kr. komust grísku borgríkin í kast við Persa sem var þá öflugasta ríki heims. • Persar höfðu lagt undir sig Lýdíu um 550 f.Kr. og náðu þeir því yfirráðum yfir grískum borgríkjum í Litlu-Asíu. • Jónísk borgríki gerðu uppreisn gegn yfirráðum Persa árið 499 f.Kr. og fengu aðstoð frá frændum sínum á Grikklandi.

  20. II. 6 Persastríð bls. 24-27 (17) • Dareios I Persakonungi þótti Aþeningar hafa móðgað sig meðþví að hjálpa nýlendunum og vildi aðþeir sýndu undirgefni sem Aþena gerði ekki. • Hann sendi því herskipaflota til Grikklands árið 490 f.Kr. og tók hann land við Maraþon • Aþeningar höfðu sigur og var sendiboði sendur hlaupandi til Aþenu frá Maraþon.

  21. II. 6 Persastríð bls. 24-27 (18) • Sonur Dareios I., Xerxes tók við Persaveldi og hugði á hefndir en þær drógust á langinn vegna átaka í Egyptalandi. • Grikkir voru ekki á eitt sáttir um hvernig best væri að búa sig undir komandi átök. • Silfurnámur höfðu fundist og undir forystu Þemistóklesar var loks ákveðið að nota gróðann í að smíða 200 herskip.

  22. II. 6 Persastríð bls. 24-27 (19) • Árið 480 f.Kr. kom til mikillar orrustu milli Grikkja og Persa sem endaði með sigri Grikkja á persneska flotanum við Salamis. • Persar náðu að hernema hluta Grikklands og brenndu Aþenuborg. • Árið 479 f.Kr. sigruðu svo grísku borgríkin hernámslið Persa í orrustu við Plateu.

  23. II.7 Stórveldið Aþena bls. 27-28 • Aþena hafði forystu um að stofna deleyska sjóborgasambandið árið 477 f.Kr. og tókst bandalaginu að vinna aftur grísku borgríkin í Litlu-Asíu. • Um 450 f.Kr. má segja að Persastríðum sé lokið. • Með sjóborgasambandinu náði Aþena stjórnmála- og efnahagslegum yfirburðum.

  24. II.7 Stórveldið Aþena bls. 27-28 • Fimmta öldin eða 460-430 f.Kr. (Periklesar- öld) er oft kölluð gullöld Aþenu. • Perikles (strategos autokrator) hafði stuðning frá miðstéttum og lágstéttum en hann hóf launagreiðslur fyrir opinber störf. • Perikles efldi enn meir hag Aþenu og hlúði að menningarmálum og lét t.d. byggja Meyjahofið (Parþenon).

  25. II.8 Pelópsskagastríð bls.28-31 • Pelópsskagastríðið stóð frá 431-404 f.Kr. en í því tókust á Pelópsskagabandalagið og deleyska sjóborgasambandið. • Að einhverju marki má segja að ástæða stríðsins hafi verið útþenslustefna Aþenu. • Stríðið varð langvinnt vegna þess að veldi Aþenu var á sjó en Spartverja á landi.

  26. II.8 Pelópsskagastríð bls. 28-31 • Aþeningar reyndu að svelta Spartverja inni meðþví að koma í veg fyrir kornflutninga. • Árið 430 f.Kr. kom upp drepsótt í Aþenu og í kjölfarið hrökklaðist Perikles frá völdum. • Árið 421 f.Kr. sömdu Aþeningar og Spartverjar frið sem fór út um þúfur. 405 f.Kr. var Aþena sigruð og komið á stjórn týranna en árið 403 var lýðræði komið á.

  27. II.9 Hnignun borgríkja bls. 31-33 • Eftir Pelópsskagastríð var allt Grikkland í sárum og á því högnuðust Persar. • Persar stóðu fyrir hinum svokallaða konungsfriði árið 387 f.Kr. en hann tryggði þeim aftur yfirráð yfir borgríkjum í L-Asíu. • Makedóníumenn högnuðust síðan á átökum Spörtu og Þebu 371 f.Kr. og síðar Spörtu og Aþenu gegn Þebu árið 362 f.Kr.

  28. II.9 Hnignun borgríkja bls. 31-33 • Makedónía sem er fyrir norðan Grikkland var fyrst og fremst landbúnaðarland þar sem konungsstjórn og jarðeignaaðall ríktu. • Árið 359 f.Kr. varð Filippus II. konungur í Makedóníu. • Undir forystu Filippusar varð Makedónía að miklu herveldi sem sigraði sameinaðan her Aþenu og Þebu við Keróneu árið 338 f.Kr.

  29. II. 9 Hnignun borgríkja bls. 31-33 • Filippus fékk Grikki í bandalag með sér, enda réði hann nú Bysantion við Sæviðarsund, og ætlaði að ráðast á Persa. • Hann var myrtur árið 336 f.Kr. og kom þaðþví í hlut sonar hans að hrinda herförinni í framkvæmd en hann hét Alexander mikli.

  30. II.10 Herferð Alexanders bls.33 • Við konungaskiptin í Makedóníu reyndu Grikkir að gera uppreisn en hún var bæld niður af mikilli hörku. • Árið 334 f.Kr. lagði Alexander af stað í herförina og byrjaði á að frelsa grísku borgríkin í Litlu-Asíu eftir að hafa unnið sigur á Persum við Graníkosfljót. • Dareios III. réð ríkjum í Persaveldi.

  31. II.10 Herferð Alexanders bls. 33 • Alexander mætti miklum her Dareiosar III. við Issos árið 333 f.Kr. og hafði sigur. • Því næst vann hann borgina Týros eftir 7 mánaða umsátur. • Alexander frelsaði síðan Egypta, sem höfðu verið undir stjórn Persa, við mikinn fögnuð. • Hann stofnaði borgina Alexandríu við óshólma Nílar.

  32. II.10 Herferð Alexanders bls. 33 • Árið 331 f.Kr. hélt hann loks inn í land og mætti Dareiosi aftur og gjörsigraði hann við Gágamela. • Dareios var myrtur í kjölfarið og Alexander lét brenna Persepolis. • Alexander vildi skapa eitt samstætt ríki úr þeim löndum sem hann hafði unnið. • Hvatti hann Grikki til að flytja til Persíu og kvænast persneskum konum(3ja landnámið)

  33. II.10 Herferð Alexanders bls.33 • Alexander komst til Indusfljóts áður en hann sneri við til að skipuleggja ríki sitt. • Hann ætlaði í annan leiðangur þegar hann lést (úr hitasótt) 33 ára árið 323 f.Kr. • Grísk tunga og menningaráhrif urðu áberandi við austanvert Miðjarðarhaf og grísk menning varð fyrir áhrifum austan að. • Þessi samruni var kallaður hellenismi.

  34. II.11Eftirmenn Alexanders bls.37 • Eftir dauða Alexanders börðust landstjórar hans um hver ætti að taka við. • Ríki hans skiptist í þrjú stórríki, Makedóníu, Sýrland og Egyptaland (hellenísku ríkin). • Makedónía hafði þá sérstöðu að vera þjóðríki og hafði mikil áhrif á Grikkland. • Sýrland var ósamstæðast þessara ríkja (ríki Selevkída) og brotnaði fljótt upp úr því. • Ptólemearnir fóru með völd í Egyptalandi.

  35. II.11Eftirmenn Alexanders bls.37 • Verslun og viðskipti blómguðust mjög í Sýrlandi og varðþar Antíokkía stórborg. • Egyptaland blómstraði á þessum tíma undir Ptólemeunum allt fram á daga Kleópötru. • Þar réði grísk-makedónsk yfirstétt og flutti mikið af Grikkjum og Gyðingum þangað. • Alexandria var fyrsta borgin þar sem mynduðust sérstök Gyðingahverfi.

  36. II.11Eftirmenn Alexanders bls.37 • Í Alexandríu var Múseion, ein helsta menntastofnun á fornum tíma. • Litla-Asía skiptist í mörg smáríki sem stórríkin tókust á um. Eitt þeirra var Pergamon en þar blómstruðu listir og fræði. • Eyjan Rhódos varðþekkt fyrir bankastarfs. • Makedónía var innlimuð í Rómarveldi árið 148, Sýrland 63, Egyptaland árið 30 f.Kr.

  37. III.1 Grísk goðafræði bls. 41 • Grísk goðafræði hefur haft áhrif allt fram á okkar daga, listamenn endurreisnarinnar sóttu innblástur í goðafræðina (myþologia). • Mikilvægasta heimildin um goðafræðina eru Hómerskviður frá 8. öld f.Kr. • Goðsögurnar fléttast oft saman og oft voru fleiri en ein útgáfa í gangi. • Rómverjar fengu í arf guðaheim Grikkja.

  38. III.2 Upphaf... bls.42-43 • Í upphafi var gapandi tóm (Kaos). Síðan kom móðir jörð (Gaia) og myrkir undirheimar (Tartaros). • Gaia gat af sér himininn (Úranos). Þau gátu af sér kýklópa og títana. • Krónos (sem var títan) steypti föður sínum af stóli og gerðist drottnari heimsins.Krónos eignaðist börn með systur sinni Rheu.

  39. III.2 Upphaf... bls. 42-43 • Börn Rheu og Krónosar voru: Seifur (þrumur og eldingar), Hades (huliðshjálm),Póseidon (þríforkur),Demeter, Hestía og Hera. • Krónosi var steypt í undirheima og réðu þá systkinin ríkjum og fékk Seifur himininn, Hades undirheima og Póseidon hafið. • Prómeþeifur bjó svo til mennina úr leir og gyðjan Aþena gaf þeim líf.

  40. III. 2 Upphaf... bls. 42-43 • Seifi þótti lítið til mannanna koma og reyndi að fá Prómeþeif til að afneita þeim. • Sonur Prómeþeifs, Devkalion og kona hans Pyrrha lifðu af syndaflóð sem Seifur sendi. • Devkalion færði Seifi fórn eftir flóðið og fengu þau að skapa nýtt mannkyn.

  41. III. 3 Heimsmynd... bls.43-44 • Samkvæmt goðafræðinni var jörðin kringla sem flaut á sjónum umlukin Ókeanosi. • Vesturmörkin töldu menn vera Gíbraltar en austurmörkin voru Kákasusfjöll. • Í miðjunni var Delfi, nafli alheimsins. • Atlas hélt uppi himinhvelfingunni (Úranos). • Ólympsguðir bjuggu á Ólympsfjalli en þeir voru 12, Seifur og hirð hans.

  42. III.4 Ólympsguðir bls.44-52 • Ólympsguðir voru systkinin Seifur, Hera, Póseidon og Demeter. • Viðþau bættust svo börn Seifs, þau Ares og Hefaistos og svo Aþena, Apollon, Artemis, Afrodíta, Hermes og Díonýsos. • Ólympsguðirnir höfðu allir sitt verksvið og einkenni (attribut).

  43. III.4 Ólympsguðir bls.44-52 • Seifur var æðstur guðanna, og yfirráðasvæði hans var himinninn. • Hann var einnig æðsti vörður laga og reglu og naut aðstoðar réttlætisgyðjunnar Dike. • Einkennistákn: Eldingin, örninn og Ægisskjöldurinn. • Seifur var faðir margra kappa enda átti hann í mörgum ástarævintýrum.

  44. III.4 Ólympsguðir bls.44-52 • Hera, kona Seifs, var drottning himnanna og verndargyðja hjónabandsins. • Einkennistákn: Páfuglinn. • Póseidon var konungur sjávarins og hestar og naut voru helguð honum. Hann var einnig talinn guð jarðskjálfta. • Einkennistákn: Þríforkurinn sem hann ýfði sjóinn með.

  45. III.4 Ólympsguðir bls. 44-52 • Aþena var Seifi kærust barna hans en móðir hennar var Metis (viskan). • Hún var gyðja visku, snilli, hernaðarkænsku, handiðna og lista. • Auk þess var hún verndari borgríkjasamfélagsins og meygyðja. • Einkennistákn: Vopn og herklæði, ugla og stundum Ægisskjöldur Seifs.

  46. III.4 Ólympsguðir bls.44-52 • Apollon var einn ástsælasti guð Grikkja. • Móðir Apollons hét Letó og tvíburasystir Artemis. Þau fæddust á eyjunni Delos. • Hann var guð líkamsfegurðar, hreysti, ljóss, tónlistar, skáldskapar, bogfimi og fleira. • Hann grundvallaði véfréttina í Delfi meðþví að drepa slönguna Pýþon. • Einkennistákn: Harpa, lárviður og bogi.

  47. III.4 Ólympsguðir bls. 44-52 • Artemis, systir Apollons var veiðigyðja, verndari alls ungviðis og fæðingargyðja. • Einkennistákn: Hind, bogi og örvar. • Ares var hernaðarguð Grikkja og guð hinnar óheftu bardagagleði. Hann var sonur Seifs og Heru og heitir Areopagos hæðin í Aþenu eftir honum.

  48. III.4 Ólympsguðir bls. 44-52 • Afródíta var ástargyðjan og gyðja fegurðar, þokka, gróðurs og blóma. Maður hennar var Hefaistos sem þótti ófríðastur Ólympsguða. • Ástarguðinn Eros var sonur Afródítu og oft í fylgd með henni ásamt þokkagyðjunum. • Einkennistákn: Gulleplið, dúfan og rósin.

  49. III.4 Ólympsguðir bls. 44-52 • Hefaistos var guð eldsins og seinna guð handiðna og smíða. Hann var talinn sonur Seifs og Heru og þótti ljótur við fæðingu. • Hliðstæða hans í rómverskri goðafræði var Vulcanus. • Einkennistákn: Húfa handiðnaðarmanna.

  50. III.4 Ólympsguðir bls. 44-52 • Hermes var sendiboði guðanna, en hann var einnig guð mælskulistar, vegfarenda, hjarðmanna, kaupmanna, þjófa og íþrótta. • Hann hafði einnig það hlutverk að fylgja sálum framliðinna til undirheima. • Hann var sonur Seifs og Maju. Hann stal nautum Apollons en gaf honum hörpu. • Einkennistákn: Vængjaskór, sproti og hattur.

More Related