1 / 25

Nám sem ferð milli ólíkra athafnakerfa Rannsókn á fjarnámi til grunnskólakennaraprófs við KHÍ

Nám sem ferð milli ólíkra athafnakerfa Rannsókn á fjarnámi til grunnskólakennaraprófs við KHÍ. Þuríður Jóhannsdóttir Málstofa í Skriðu miðvikudaginn 19. janúar kl 16:15 - 17:30. Fjarnám í ljósi félags- og menningarbundinna námskenninga.

aileen
Download Presentation

Nám sem ferð milli ólíkra athafnakerfa Rannsókn á fjarnámi til grunnskólakennaraprófs við KHÍ

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Nám sem ferð milli ólíkra athafnakerfaRannsókn á fjarnámi til grunnskólakennaraprófs við KHÍ Þuríður Jóhannsdóttir Málstofa í Skriðu miðvikudaginn 19. janúar kl 16:15 - 17:30

  2. Fjarnám í ljósi félags- og menningarbundinna námskenninga • Vinna í samtímasamfélagi einkenninst af fjölþættu samhengi (polycontextuality) – fólk tekur þátt í margs konar athafnasamfélögum (communities of practice) • Fólk þarf að læra að fara yfir mærin milli kerfa – Áhugavert rannsóknarefni að skoða hvernig fólk fer yfir mærin milli ólíkra kerfa sem það tekur þátt í • Reglur sem mynda ramma um skólastarf svo sem skipulag tíma og rýmis eru oft talin standa í vegi fyrir breytingum í skólum • Í fjarnámi eru margir af þessum römmum ekki til staðar á meðan aðrir breytast mjög í fjarnámi • Hvaða möguleikar felast í þessu? • Er að þróast nýtt námsform – og í hverju felst það ef svo er?

  3. Rannsókn á fjarnámi • Nám til grunnskólakennaraprófs við Kennaraháskóla Íslands frá sjónarhóli kennaranema sem búa og vinna í dreifbýli – hér á Vestfjörðum • Tilgangurinn er að kanna hvernig má skýra og skilja fjarnám ef það er skoðað frá sjónarhóli athafnakenningarinnar (e. activity theory) • Hér verða einkum skoðuð hugtökin þátttaka í mismundandi athafnakerfum og yfirfærsla sem árangur af yfirferð mæra milli kerfa(e. boundary crossing)

  4. Líkan athafnakenningarinnar http://www.edu.helsinki.fi/activity/pages/chatanddwr/activitysystem/ Verkfæri SAMHENGI Afrakstur Gerandi Viðfang Reglur Verkaskipting Samfélag

  5. Sögulegur þáttur • Mikilvægt er samkvæmt athafnakenningunni að greina sögu þess athafnakerfis sem til rannsóknar er • Ég er byrjuð á því: • Greining á viðtölum við þrjá fjarnema í fyrsta hópnum sem bauðst fullt kennaranám í fjarnámi 1993 með aðstoð Internetsins • Skortur á fagmenntuðum kennurum í dreifbýli og þrýstingur á að bætt yrði úr því áttu stóran þátt í að fjarnáminu við KHÍ var komið á • Skilyrði til inntöku voru að nemar byggju á landsbyggðinni þar sem kennaraskortur var og að þeir hefðu kennslureynslu og stöðu sem leiðbeinendur við skóla í heimabyggð sinni • Hin nýja samskiptatækni með netinu var notuð til að hvort tveggja réttlæta og gera fjarnámið framkvæmanlegt • Sjá niðurstöður á http://namust.khi.is og greinar á síðustu glærunni • Yfirlit yfir mína fyrirlestra http://ust.khi.is/tjona/fyrirlestrar1.htm

  6. Mynd frá rannsóknarhópunum Workplace Learning and Developmental Transfer in Helsinkihttp://www.edu.helsinki.fi/activity/pages/research/transfer

  7. Lykilhugtak • Þróuð yfirfærsla (e. Developmental transfer): • Að skilja nám sem lárétt ferli þar sem athafnakerfi hagnast af samspili sem á sér stað milli þeirra • Það er gagnlegt ef við viljum að nám leiði til þróunar fyrir bæði einstaklinga og samfélög • Viðmið fyrir þróaða yfirfærslu: • Ávinningur af samspili tveggja ólíkra athafnakerfa fyrir bæði athafnasamfélögin (e. communities of practice) Ávinningurinn er fyrir starfsemina sem fram fer í báðum (eða fleiri) kerfum.

  8. Aðferðir, þátttakendur, samhengi • Viðtöl við þrjá fjarnema sem stunda nám núna og einn skólastjóra • Búa allir á Vestfjörðum • Frásagnir þeirra skoðaðir með gleraugum athafnakenningarinnar • Athuga hvort það að skoða fjarnámið í ljósi athafnakenningarinnar getur eflt skilning okkar á eðli þess • Þátttaka fjarnema í mismunandi athafnakerfum • Hvernig þeir fara á milli kerfa og fara yfir mæri? • Hvað virðist ýta undir yfirfærslu frá einu kerfi til annars? • Möguleikar jafnt athafnakerfanna sem í hlut eiga og fjarnemanna sem einstaklinga til að læra • breytast – þroskast – þróast (e. expand?)

  9. Breyttar reglur • Ekki lengur inntökuskilyrði að: • Búa á landsbyggðinni • Hafa starf sem leiðbeinandi í skóla • Hafa reynslu af að kenna • Tengsl KHÍ við skóla þar sem fjarnemar vinna ekki lengur hluti af því líkani sem byggt er á • Skólaárið 2003-2004, bjuggu 61% fjarnema á grunnskólakennarabaut á landbyggðinni

  10. Líkan athafnakenningarinnar http://www.edu.helsinki.fi/activity/pages/chatanddwr/activitysystem/ Verkfæri SAMHENGI Afrakstur Gerandi Viðfang Reglur Verkaskipting Samfélag

  11. Fjarnemar sem gerendur í athafnakerfi fjarnámsins: Sara (34 ára) • á öðru ári í náminu þegar viðtöl voru tekin í febrúar og maí 2004 • reynslu af að vera stuðningskennari með fötluðum nemanda og eins árs reynslu sem bekkjarkennari • starfar sem leiðbeinandi í skóla með um 150 nemendum í um 100 manna bæ • hún er eini kennarinn í skólanum sem er í fjarnámi í sínum árgangi

  12. Hverjir eru fjarnemar? Emma (31 ára) og Samúel (45 ára) • Höfðu nýlokið fyrsta ári í fjarnámi þegar viðtal var tekið við þau í maí 2004 • Höfðu bæði einhverja kennslureynslu • Hafa starf sem leiðbeinendur í litlum skóla með um 40 nemendur og um 5-6 kennara • Í litlu sjávarþorpi þar sem mikið er um nýbúa. 25% af nemendum skólans skólaárið 2003-2004 höfðu ekki íslensku sem móðurmál

  13. Hvers vegna? Hvað varð til þess að þau sóttust eftir kennaranámi í fjarnámi? • Sara fékk mikið hrós bæði frá nemendum og foreldrum þegar hún prófaði fyrst að kenna bekk og öðlaðist þá nægilegt sjálfstraust til að vilja verða kennari og sótti um námið. • Samúel er á fimmtugsaldri og er ættaður úr plássinu þar sem hann vill gjarna búa áfram – en vill þá fá sér vinnu sem er ekki alveg eins slorug og sú sem hann hefur unnið við hingað til, þ.e. sjómennska og útgerð. • Emmu líkar kennarastarfið vel og henni finnst að það sem veki áhuga á námi sé áhugi á að halda áfram að læra • Bæði Emma og Samúel eiga kennara og skólastjóra í ættinni – bróðir hans og mamma hennar hafa verið skólastjórar.

  14. Hvað og hvernig læra þau? Sara • Lýsir af ákafa hvernig hún hefur nýtt það sem hún hefur lært í fjarnáminu í bekkjarkennslunni • Hvenig námið hefur gert hana öruggari í því sem hún er að gera • Með nemendunum og • Í foreldrasamstarfinu • Söru finnst vefkennslukerfið WebCT frábært • Henni finnst hún læra mikið af framlagi samnemenda sinna á netinu og umræðum sem fram fara milli þeirra á umræðuvefnum • Hún hefur engan í sínum skóla til að vinna með í náminu • Samvinna við fjarnema í grenndinni sem ekki eru að kenna hefur ekki verið laus við vandamál

  15. Hvað og hvernig læra þau? Samúel and Emma • Fjölbreyttari aðferðir í bekkjarkennslu • Eru öruggari í umræðum við aðra kennara á kennarastofunni – hafa fleiri rök fyrir skoðunum sínum • Þau hafa farið að hugsa öðruvísi um skólann sem stað fyrir börnin til að dveljast á og hvað nám er, þau eru til dæmis farin að efast um matsaðferðir sem skólinn notar • Leggja ekki mikla áherslu á mikilvægi vefkennslukerfanna • Þau hafa verið mjög mikilvægir félagar hvort fyrir annað og getað rætt saman og unnið saman að námsverkefnum

  16. Fjarnámið: fjölþætt athafnakerfi • Fjarnámið við KHÍ: • Staðlotur • Vefkennslukerfi á netinu (WebCT eða önnur samskiptakerfi) • Vettvangsnámið • Grunnskólar í heimabyggð • Bekkjarkennsla • Kennarassamstarf og kennarasamfélagið í skólanum • Foreldrar og nærsamfélag • Samstarf kennara í héraðinu

  17. Greina meginkerfi (central activities) :Farið á milli bekkjarkennslu og skólastofu á vefnum (WebCT) • Greining á viðtölunum leiðir í ljós að þátttaka í undirkerfum sem tilheyra fjarnáminu er mismikilvæg fyrir nemendur • Þau kerfi sem fjarneminn tekur mestan þátt í eru skilgreind sem ‘central activities’ samkvæmt athafnakenningunni. • Söru finnst hún læra mest af praktískum verkefnum sem hún getur notað í bekkjarkennslunni • Hún segist læra af því að taka þátt í umræðum á WebCT • Hún yfirfærir það sem hún lærir við vinnu sína í kennslustofunni og notar það í samskiptum við foreldra • Ekki er um að ræða einfalda yfirfærslu þekkingar – heldur beitir hún því sem hún hefur lært til að þróa nýjar vinnuaðferðir í skólastofunni og í foreldrasamstarfinu

  18. Emma and Samúel: Farið milli kerfa • Hlusta á það sem kennarar hafa fram að færa í staðlotum og á netinu – eru gagnrýnin • Vettvangsnám byggir á öðruvísi reglum en kennsla í heimaskóla sem leiðbeinandi • Skoðað í ljósi athafnakenningarinnar byggir það á öðru vísi reglum, öðrum markmiðum og öðruvísi verkaskiptingu • Þau segja frá að þau hafi lært muninn á milli kennsluaðferða sem draumsýnar og veruleika • Þau virðast yfirfæra nám sitt og nýta það • Í bekkjarkennslu í skólastofunni • Í faglegum umræðum í skólanum og á fundum kennara í héraðinu

  19. Samúel og Emma: Ferð yfir mæri? • Umræður og samvinna • Miklvægt að hafa félaga fyrir félgaslega umræðu jafnt sem samvinnu við námsverkefni • Emma er gagnrýnin á umræður á netinu – oft er bara verið að endurtaka það sem stendur í kennslubókinni • Gagnrýnin á kennsluaðferðir margra kennara • Mótsagnir í kenningu og praxís

  20. Þróuð yfirfærsla? • Sumir af fyrstu fjarnemunum virðast hafa virkað sem mæra-ferðalangar og talsmenn breytinga (boundary-crossers and change agents) Sjá greinina Fjarnám í ljósi athafna-kenningarinnar: • Það skilaði sér í þróaðra vinnulagi (praxis) í skólunum • Mikilvægt að menning eða andrúmsloft í viðkomandi starfssemi (activity system) sé móttækilegt fyrir þróun og breytingum

  21. Fjarnemar sem virkir þátttakendur • Þessir þrír fjarnemar hafa allir fundið sína leið til að ferðast á milli þeirra ólíku athafnakerfa sem þeir þurfa að taka þátt í • Í fjarnáminu þurfa þeir að taka þátt í • staðlotum, vettvangsnámi og vera virkir á netinu í fjarlotum • Heima nýta þeir þekkingu og hæfni sem þeir sækja í námið á mismunandi hátt og í mismunandi samhengi • Sumir beita því sem þeir læra í skólastofunni aðrir í skólanum sem heild – Það fer eftir því að hvaða hlutum starfseminnar sem þeir taka þátt í þeir hafa aðgang til að beita sér. • Fjarnemar eru gerendur í heimasamfélagi sínu og þar beita þeir því sem þeir læra og þegar þeir gera það getur það orðið til að það athafnakerfi sem þeir taka þátt í þróist og breytist – sé það á annað borð móttækilegt fyrir breytingum

  22. Mótstaða gegn breytingum • Hvers vegna takmarkast það rými sem Sara hefur til að beita því sem hún lærir við bekkinn og foreldrana? • Viðtal við skólastjórann í hennar skóla staðfestir að skólinn sem heild var ekki móttækilegur – kennarasamfélagið kærði sig ekki um að læra af henni • Skorti vilja til að vera opið fyrir breytingum og vilja til að vinna saman • Kennararnir hlustuðu á nýjar hugmyndir sem Sara kom með úr náminu en þar við sat • Skólastjórinn vissi að hún var að gera verulega góða hluti með nemendum sínum • Kanna þarf bæði persónulega og stofnanabundna þætti frekar til að hægt sé að skýra betur hvað veldur

  23. Opið fyrir breytingum • Af hverju virðast Samúel og Emma geta beitt sér á víðara sviði? • Bæði persónulegir og stofnanalegir þættir • Tveir fjarnemar í hópi 5-6 kennara • Aðeins einn í kennarhópnum með formlega kennaramenntun • Kennarnemarnir geta verið rödd síns litla skóla út á við á fundum kennara í héraðinu

  24. Mikilvæg vitneskja • Kennaraháskólinn sem skipuleggur fjarnám þarf að vera meðvitaður um þá stöðu sem kennaranemar eru í vítt og breitt um landið • Skipuleggja námsathafnir og kennsluathafnir með það fyrir augum að styðja þá tegund af ferð yfir mæri – eða ferðalagi milli kerfa - sem fjarnemar í dreifbýli eru útsettir fyrir. • Þróuð yfirfærsla (e. Developmental transfer) ætti að vera markmiðið – bæði einstaklingar og kerfi þróast/þroskast • Og þá má ekki gleyma að KHÍ þarf að vera móttækilegur fyrir því að læra af því sem fjarnemar hafa fram að færa

  25. Birtar greinar • Þuríður Jóhannsdóttir. 2004. Fjarnám í ljósi athafnakenningarinnar: Tilviksathugun úr kennaranámi við Kennaraháskóla Íslands.Rannsóknir í félagsvísindum V. Félagsvísindadeild. Erindi flutt á ráðstefnu í október 2004. Úlfar Hauksson (ritstjóri). Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Háskólaútgáfan. Greinin • Þuríður Jóhannsdóttir og Randi Skjelmo. 2004. Flexibility and Responsibility in Teacher Education: Experiences and Possibilities in Iceland and North Norway.On Top of It: Overcoming the Challenges of ICT and Distance Education in the Arctic. (Ed Leo Pekkala et al.)University of the Arctic Press No. 1. • Randi Skjelmo og Thuridur Johannsdottir. 2004. Fleksible læringsformer i norsk og islandsk lærerutdanning. Hvilke erfaringer har vi gjort og hvor går vejen videre?  Norsk lærerutdanningsdidaktik i ændring. Læring undervisning og danning i lys av nyere forskning. (red Mary Brekke) Høyskoleforlaget. Norwegian academic press. 77-91

More Related