1 / 23

63. Fiskiþing, 14. maí 2004

63. Fiskiþing, 14. maí 2004. Kröfur til þeirra sem bjóða umhverfismerki Kristján Þórarinsson stofnvistfræðingur. Hagsmunir sjávarútvegsins. Umhverfismerki getur þjónað hagsmunum sjávarútvegsins ef staðið er málefnalega og faglega að verki.

yukio
Download Presentation

63. Fiskiþing, 14. maí 2004

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. 63. Fiskiþing, 14. maí 2004 Kröfur til þeirra sem bjóða umhverfismerki Kristján Þórarinsson stofnvistfræðingur

  2. Hagsmunir sjávarútvegsins • Umhverfismerki getur þjónað hagsmunum sjávarútvegsins ef staðið er málefnalega og faglega að verki. • Nauðsynlegt er að starfsemi á sviði umhverfismerkingar byggist á alþjóðlegum reglum en ekki á geðþótta sjálfskipaðra aðila. • Halda þarf kostnaði í lágmarki. • Umhverfismerkið má ekki vera aðferð til að fjármagna aðra óskylda starfsemi, hvorki með beinum né með óbeinum hætti. • Vottun merkja er ekki nýtt fyrirbæri. Aðferðafræðin byggir á langri hefð, sbr. ISO. (MSC er að finna upp hjólið og hefur það ferkantað!)

  3. Starfið innan FAO • Norðurlönd hafa unnið að því frá árinu 1997 að afla FAO umboðs til vinnu að alþjóðlegum leiðbeiningarreglum um umhverfismerkingu sjávarafurða. • FAO fékk slíkt umboð á fundi CoFi í febrúar 2003. • Tilkvaddir sérfræðingar gerðu drög að leiðbeiningarreglum í október 2003. • Drög sérfræðinganna fengu jákvæðar viðtökur á fundi undirnefndar CoFi í febrúar 2004. • Stefnt er að ríkjaráðstefnu um málið í október 2004. • Ákvörðunar CoFi er að vænta í febrúar 2005.

  4. Grunnreglur(samstaða á ríkjaráðstefnu FAO 1998) Eftirtaldar grunnreglur skulu gilda um fyrirkomulag umhverfismerkinga á sjávarafurðir: • Vera í samræmi við siðareglur FAO um ábyrgð í fiskimálum. • Virða fullveldisrétt ríkja og fara að öllum lögum og reglum sem við eiga. • Vera valkvæmt og markaðsdrifið. • Vera gagnsætt. • Ekki mismuna né skapa viðskiptahindranir og samrýmast frjálsri samkeppni. • Skýr ábyrgð hvíli á þeim sem bjóða umhverfismerki og skoðunarstofum, í samræmi við alþjóðlega staðla.

  5. Grunnreglur (frh.) · Tryggja jafngilda staðla milli landa. • Byggi á bestu vísindalegum gögnum. • Innihaldi áreiðanlegar aðferðir við að endurskoða og sannreyna. · Fyrirkomulagið skal vera raunhæft og sannreynanlegt. · Tryggi að merki flytji sannar upplýsingar. · Boðskapur sé skýr. · Byggi að lágmarki á þeim efniskröfum, viðmiðum og aðferðum sem greint er frá í þessum leiðbeinandi reglum. Reglan um gagnsæi skal gilda um alla þætti starfseminnar, þar með talið skipulag og fjárhagslegt fyrirkomulag.

  6. Hlutverk og tengsl:Óháðir aðilar með mismunandi hlutverk

  7. Faggildingogvottun

  8. Hlutverk og tengsl:Óháðir aðilar með mismunandi hlutverk

  9. Umhverfismerki • Einu má gilda hver á umhverfismerkið, svo fremi að byggt sé á málefnalegum forsendum, kostnaði sé haldið í lágmarki, og ekki sé verið að fjármagna aðra starfsemi.

  10. Hlutverk og tengsl:Óháðir aðilar með mismunandi hlutverk

  11. Viðmið • Viðmið einskorðist við sjálfbæra nýtingu fiskistofna. • Viðmið verði sett í leiðbeiningarreglum á vettvangi FAO en ekki í lokuðum hópi sjálfskipaðra aðila.

  12. Hlutverk og tengsl:Óháðir aðilar með mismunandi hlutverk

  13. Staðlar • Staðlar eru nánari útfærsla á viðmiðum. • Staðlar skulu settir fyrirfram af til þess bærum aðilum, í samráði við alla hagsmunaaðila, en ekki af hverri skoðunarstofu fyrir sig varðandi hvern stofn fyrir sig. • Staðlasetning skal vera opinbert og gagnsætt ferli.

  14. Hlutverk og tengsl:Óháðir aðilar með mismunandi hlutverk

  15. Faggilding • Hugmyndafræði faggildingar byggir á langri hefð, sbr. ISO reglur, sem er grundvallaratriði til að tryggja fagleg vinnubrögð – MSC brýtur þessa hefð. • Faggildingu er ætlað að tryggja hæfni skoðunarstofu til að votta um sjálfbæra nýtingu og/eða til að votta um uppruna afurða. • Ákvörðun um faggildingu felur í sér ákvörðun um starfsréttindi skoðunarstofu.

  16. Faggilding (frh.) • Áskilið að faggildingaraðili eigi ekki hagsmuna að gæta, sé hlutlaus, sjálfstæður og starf hans sé gagnsætt. • Faggildingaraðili má ekki mismuna skoðunarstofum eftir uppruna né takmarka fjölda þeirra. • Faggilding er margslungið og kerfisbundið ferli. • Faggilding skal vera í höndum til þess bærra aðila – eðlilegast væri að leita til sjálfstæðra löggildingarstofa sem starfa á ábyrgð stjórnvalda.

  17. Hlutverk og tengsl:Óháðir aðilar með mismunandi hlutverk

  18. Vottun • Vottun er ferli þar sem þriðji aðili veitir tryggingu fyrir því að vara, ferli eða þjónusta uppfylli skilgreindar kröfur. • Vottun felur í sér að aðili óháður merkiseiganda upplýsi neytandann um að merkið standist kröfur. • Eingöngu faggiltar skoðunarstofur taki að sér vottun. • Gerðar eru strangar kröfur til hlutleysis og gagnsæis.

  19. MSC vottun á laxi frá Alaska og Kanada:Hryllingssaga! • Frásögn fulltrúa Kanada í undirnefnd CoFi í febrúar sl. • Mjög mismunandi kröfur í Alaska og Kanada. • Ekkert samræmi í matsferlum á vegum MSC: Liggur vandinn í “faggildingu” á vegum MSC?

  20. Áfrýjun • Gert er ráð fyrir möguleikum á áfrýjun, bæði innan kerfis og til utanaðkomandi aðila.

  21. Leiðin framundan:Verkefni • Frumkvæði norrænna samtaka í sjávarútvegi, með forystu Fiskifélags Íslands, sem miðar að alþjóðlegu umhverfismerki á faglegum forsendum. • Ljúka ferli innan FAO við setningu alþjóðlegra leiðbeiningarreglna um umhverfismerkingar.

  22. Leiðin framundan:Tilmæli • Forðist að bindast umhverfismerki áður en alþjóðlegar leiðbeiningarreglur liggja fyrir. • Veljið aðeins þau umhverfismerki sem skuldbinda sig til að fylgja alþjóðlegum leiðbeiningarreglum.

  23. Búið!

More Related