1 / 12

Að stjórna heimspekilegri samræðu með nemendum

Að stjórna heimspekilegri samræðu með nemendum. Gott við heimspekina fáum að segja okkar skoðun án þess að einkunnin lækki án þess að einhver dæmi okkur eða segi okkur að skoðanir okkar séu rangar lærum nýja hluti lærum hluti sem er ekki hægt að læra í bókum

mirari
Download Presentation

Að stjórna heimspekilegri samræðu með nemendum

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Að stjórna heimspekilegri samræðu með nemendum Brynhildur Sigurðardóttir Mars 2007

  2. Gott við heimspekina fáum að segja okkar skoðun án þess að einkunnin lækki án þess að einhver dæmi okkur eða segi okkur að skoðanir okkar séu rangar lærum nýja hluti lærum hluti sem er ekki hægt að læra í bókum lærum að tjá alvöru skoðanir okkar lætur mann hugsa og pæla í hlutum og mynda skoðun á þeim maður temur sér reglubundna hugsun, hún er ekki á flakki lærir góða samræðutækni Slæmt við heimspekina maður hugsar svo mikið að manni verður illt getur verið súrt, maður er búinn að tala svo mikið og verður örmagna, veit ekki lengur hvað maður meinar Má ekki fara út úr efninu Stundum fá ekki allir að tala af því að það er gripið fram í Nemendur Garðaskóla

  3. Af hverju samræða? • Sveigjanleiki í kennslunni: • auðvelt að taka inn þau viðfangsefni sem eru efst á döfinni • Nemendur virkir: • opnar möguleikann að tengja nýja þekkingu við það sem nemendur skilja fyrir • Áhugi nemenda virkjaður: gengið er út frá þeirra spurningum og hugmyndum • þeir finna að samræðan skiptir máli • Nemendur hugsa saman: • ekki bara „tala saman,” þ.e. allir segja sína skoðun og síðan ekki meira unnið úr þeim • samræðan á að auka skilning og þekkingu nemenda á viðfangsefninu og færni þeirra í gagnrýninni hugsun. Brynhildur Sigurðardóttir Mars 2007

  4. Hvar er svigrúm fyrir samræðu í kennslunni hjá mér? • þar sem er mikilvægt að tengja námið við fyrri þekkingu nemenda • þar sem er vilji til að vinna í opinni samræðu þar sem nemendur læra hver af öðrum, þ.e. að svörin séu ekki fyrirfram ákveðin af kennara eða námsefni Brynhildur Sigurðardóttir Mars 2007

  5. Samræða = rifrildi? • Samræða nærist á ólíkum skoðunum og ágreiningi um hugmyndir. • Mikilvægt að bera virðingu fyrir þeim hvata sem býr í ágreiningi • Nauðsynlegt að gera skýran greinarmun á: • Órökstuddum ágreiningi þar sem aðilar sýna engan vilja til að læra hver af öðrum • Vel rökstuddum ágreiningi sem vilji er til að vinna með og læra af

  6. Kennarinn og samræðan • Ber ég virðingu fyrir rökstuddum ágreiningi? • Er ég tilbúin/n að læra af nemendum? • Er ég tilbúin/n að leyfa nemendum að stjórna framvindu námsins? • Er ég góð fyrirmynd í samræðunni? • Einbeiti ég mér að því að stjórna samræðutækninni fremur en innihaldi samræðunnar?

  7. Hjálpartæki kennarans hlusta vel komast að samkomulagi um viðfangsefni og áherslur virðing fyrir sjálfum sér virðing fyrir öðrum í hópnum virðing fyrir viðfangsefninu

  8. Grunnreglur í samræðu Hlusta vel á þann sem er að tala EInn á að tala í einu Nota rök til að útskýra það sem við segjum Ekki hoppa úr einu í annað. Ég á að halda mig við efnið og tengja við það sem aðrir eru búnir að segja. Brynhildur Sigurðardóttir Mars 2007

  9. Brynhildur Sigurðardóttir Mars 2007

  10. Mat á samræðunni • Hlustaði ég vel? • Talaði einn í einu? • Notuðum við rök til að útskýra mál okkar? • Hoppuðum við úr einu í annað eða vorum við dugleg að halda þræði? Hvernig gengur mér? Brynhildur Sigurðardóttir Mars 2007

  11. Heilræði til kennara sem er að byrja... Ég vil segja þessum kennara að hann sé að fara að gera eitthvað sem er gjörólíkt því sem hann er vanur, og að hann muni verða óöruggur, honum mun finnast hann vera óundirbúinn. Reyndar er það svo með alla [samræðu]kennara að þeim finnst alltaf eins og þeir séu óundirbúnir, alveg sama hversu mikla reynslu þeir hafa, vegna þess að þeir eru að fást við hið ófyrirsjáanlega. Þeir eru að fást við ómótuð hugtök, spurningar án svara, og starf þeirra felst í að vera tilbúnir að fást við hluti sem hafa raunverulegt menntunarlegt gildi. Heimild: Fisher, R. (1998). Teaching thinking. London: Cassell. (bls. 23)

  12. Frekari upplýsingar • Heimspekivefur Garðaskóla: www.gardaskoli.is/heimspeki/ • Námsefni og kennsluleiðbeiningar frá Námsgagnastofnun: • Hugsi eftir Matthías Viðar Sæmundsson og Sigurð Björnsson • Valur, saga eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur, kennsluleiðbeiningar eftir Hrein Pálsson • Leið þín um lífið eftir Leonore Brauer o.fl. • Námsefni Matthew Lipman og félaga í þýðingum Hreins Pálssonar • Fáanlegt t.d. á bókasafni KHÍ Brynhildur Sigurðardóttir Mars 2007

More Related