150 likes | 180 Views
Discover Snæfellsjökull, one of the world's most famous glaciers with a rich history. Learn about volcanic eruptions, geological features, and the potential for future activity. Dive into local legends and literary connections.
E N D
Snæfellsjökull • Snæfellsjökull er e.t.v. eitt af frægustu fjöllum heimsins og til er það að fólk víðsvega úr heiminum kannist við jökulinn án þess að vita nokkuð um landið sjálft. • Frægð sína á hann m.a. franska rithöfundinum Jules Verne (1828-1905) að þakka, en bók hans Leyndardómur Snæfellsjökuls fjallar að stórum hluta um jökulinn.
Snæfellskjökull • Snæfellsjökull nær upp í 1446 m hæð og er áttundi hæsti jökull landsins. • Ef Snæfellsjökull nær upp í 1446 m og turn Hallgrímskirkju er 74,5 m hvað er þá Snæfellsjökull mörgum sinnum hærri en turn Hallgrímskirkju?
Snæfellskjökull • Snæfellsjökull hvílir á keilulaga eldfjalli, sem hefur ekki gosið síðustu 1800 árin. • Gosin í Snæfellsjökli eru talin hafa verið bæði sprengigos og hraungos, eins og glögglega má sjá í hlíðum fjallsins.
Hvað er sprengigos? • Í sprengigosum verður rosaleg orkulosun á skömmum tíma og viðbragðstíminn sem við höfum til að gera nauðsynlegar varúðarráðstafanir getur verið mjög lítill. • Sprengigos einkennast af mikilli gosgufu og gosmöl. • Ágætt samanburðardæmi úr daglega lífinu er þegar tappi er tekinn af gosflösku.
Hvað er hraungos? • í hraungosum kemur nær eingöngu upp hraun. Það fer svo eftir efnasamsetningu kvikunnar hversu þunn- eða seigfljótandi hún er. • Í flestum tilfellum er þó um að ræða blönduð gos þar sem gosefnin eru bæði gjóska og hraun.
Snæfellskjökull • Megineldstöðin Snæfellsjökull ber öll merki þess að vera virk. Hún hefur gosið nokkrum sinnum á síðustu 10.000 árum og er ein af um það bil 30 virkum megineldstöðvum á Íslandi.
Megineldstöðvar má skilgreina með eftirfarandi eiginleikum: Þar gýs aftur og aftur, í rótum þeirra er kvikuhólf, þar myndast margvíslegar bergtegundir – þar eru iðulega háhitasvæði. Hvað er megineldstöð?
Megineldstöðvar • Dæmigerðar megineldstöðvar utan rekbeltanna eru Snæfellsjökull, Eyjafjallajökull og Öræfajökull, en í rekbeltunum Askja og Krafla.
Megineldstöðvar • Háhitasvæðin á Reykjanesskaga eru dæmi um megineldstöðvar á frumstigi: Reykjanes, Svartsengi, Krýsuvík og Brennisteinsfjöll, • Hengill er þróaðri því þar finnast mismunandi bergtegundir.
Hvað eru miklar líkur á því að Snæfellsjökull gjósi? • Það eru næstum 100% líkur á því að Snæfellsjökull gjósi. • Megineldstöð Snæfellsjökul hefur gosið nokkrum sinnum á síðustu 10.000 árum. • Um núverandi ástand eldstöðvarinnar er það helst að segja, að aldrei hefur mælst jarðskjálfti með upptök í nágrenni hennar. • Hún hefur því sofið vært á síðustu áratugum.
Hvað eru miklar líkur á því að Snæfellsjökull gjósi? • Enginn getur þó fullyrt neitt um það hversu lengi sá svefn muni standa. • Afstaða eldstöðvarinnar til byggðar á Snæfellsnesi og við Faxaflóa • ásamt þeim vísbendingum sem þekktar eru um fyrri virkni í eldstöðinni gefa þó tilefni til að taka því með fullri alvöru ef vart verður vaxandi ókyrrðar á þessu svæði.
Sögur og þjóðsögur tengdar Snæfellsjökli • “Leyndardómar Snæfellsjökuls”, sem var þýdd á íslensku, fyrsta vísindaskáldsaga Jules Verne sem gefin var út árið 1864. • Kristnihald undir Jökli eftir Halldór Kiljan Laxnes.