1 / 11

Úrræðin gera gæfumuninn Eigindleg rannsókn á upplifun foreldra af að eiga barn greint með ADHD

Úrræðin gera gæfumuninn Eigindleg rannsókn á upplifun foreldra af að eiga barn greint með ADHD. Ásdís Aðalbjörg Arnalds M.A. í félagsfræði Verkefnastjóri á Félagsvísindastofnun HÍ. Yfirlit . Framkvæmd rannsóknar Niðurstöður: Upplifun foreldra af úrræðum Samantekt

eman
Download Presentation

Úrræðin gera gæfumuninn Eigindleg rannsókn á upplifun foreldra af að eiga barn greint með ADHD

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Úrræðin gera gæfumuninn Eigindleg rannsókn á upplifun foreldra af að eiga barn greint með ADHD Ásdís Aðalbjörg Arnalds M.A. í félagsfræði Verkefnastjóri á Félagsvísindastofnun HÍ Ásdís Arnalds

  2. Yfirlit • Framkvæmd rannsóknar • Niðurstöður: • Upplifun foreldra af úrræðum • Samantekt • Mikilvægi og takmarkanir rannsóknarinnar Ásdís Arnalds

  3. Framkvæmd • Eigindlegar rannsóknaraðferðir • Að skilja hlutina út frá sjónarhóli þátttakenda • Þáttakendur: • Tíu mæður og einn faðir • Gagnaöflun • Opin viðtöl • Skráning og úrvinnsla gagna Ásdís Arnalds

  4. NiðurstöðurFjögur meginþemu: • Greiningarferlið • Úrræði • Viðbrögð umhverfisins • Foreldrahlutverkið • Hér verður fjallað um hvernig foreldrar taka ákvörðun um hvaða úrræði skuli valin til hjálpar börnunum og reynslu þeirra af þessum úrræðum Ásdís Arnalds

  5. Úrræði • Lyfjagjöf • Sérstök þjónusta í skólanum • Ráðgjöf og þjálfun • Foreldranámskeið Ásdís Arnalds

  6. Erfið ákvörðun að setja börnin á lyf „Það er aldrei þannig að lyfjagjöfin sé góður kostur. Og það var mjög erfitt og mikið sálarstríð áður en við ákváðum að prófa. En þegar maður er búinn að reyna allt sem maður getur að þá er ekkert annað að gera en að reyna eitthvað annað.” Ráðleggingar þegnar frá aðstandendum Réttmæti ákvörðunarinnar sannreynd með ýmsum leiðum og ákvörðunin síðan tekin til endurskoðunar Niðurstaðan er sú að lyfin geta skilað árangri, en það ber á líta á þau sem hjálpartæki fremur en lausn á vandanum Úrræði:Lyfjagjöf Ásdís Arnalds

  7. Formleg úrræði: - Stuðningsfulltrúar - Sérkennsla Óformleg úrræði - Skólar miði þjónustu sína út frá þörfum einstaklinga - Viðurkenning list- og verknáms - Að skapa ró og frið (t.d. með kennslu í smærri hópum) „Og málið er að þetta eru frábærir einstaklingar sem geta nýst þjóðfélaginu á svo margan hátt, ef að þeir komast í gegnum skólann.” Úrræði:Sérstök þjónusta í skólanum Ásdís Arnalds

  8. Góð úrræði í boði á BUGL en erfitt að komast þar að Sálfræðimeðferð þótti mikilvægt tæki til að bæta færni og líðan barnanna Sumum bauðst engin sérfræðiþjónusta Sérfræðiþjónusta er dýr „Ef hún væri á BUGL þá gæti maður fengið þessa þjónustu þar, sko. Ég meina ef þú ætlar að fara til næringarráðgjafa þá kostar það 5000 kall og ef maður ætlar að fara til sálfræðings þá kostar það 6000 kall. Og ég meina á tímabili hefði hún þurft að fara bara í hverri viku.” Úrræði:Ráðgjöf og þjálfun hjá sérfræðingum utan skólakerfisins Ásdís Arnalds

  9. Atferlismótandi uppeldisaðferðir virkuðu vel á hegðun barnanna Í sumum tilvikum þurftu foreldrar sjálfir að leita slík námskeið uppi Foreldranámskeið geta kostað fjárútlát „Ég meina ímyndaðu þér ef barnið þitt væri með sykursýki og bara já, ég skal segja þér allt um sykursýki, komdu bara og borgaðu fyrir það.” Úrræði:Foreldranámskeið Ásdís Arnalds

  10. Ýmis úrræði voru í boði fyrir börnin en það skortir úrræði fyrir foreldra Foreldrar óska eftir ráðgjöf og stuðningi, sér í lagi fyrst eftir greininguna Þörf er á heildstæðari úrræðum almennt fyrir fjölskyldur barna með ADHD Úrræði:Hvernig úrræði þótti helst skorta? Ásdís Arnalds

  11. Samantekt • Mikilvægi rannsóknarinnar - Mikilvægt að leyfa röddum foreldra að heyrast - Þannig geta komið fram ábendingar um hvernig hægt er að auðvelda líf fjölskyldna og barna sem glíma við ADHD • Takmarkanir - Lítill og „sérvalinn” hópur Ásdís Arnalds

More Related