1 / 8

S tafsetning

S tafsetning. 1.

druce
Download Presentation

S tafsetning

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Stafsetning 1. Á mjallahvítum veggnum hjá tannlækninum hangir eftirlíking af landslagsmálverki. Jakob reynir að einbeita sér að myndinni. Það er erfitt með munninn fullan af tækjum og tólum. Deyfingin kemur reyndar í veg fyrir allan sársauka og innan skamms fær hann áreiðanlega að stíga upp úr stólnum. Vonandi nægir þessi eina heimsókn. Tannhirða hefur ekki verið hans sterkasta hlið hingað til en nú mun verða breyting til batnaðar. Svo mikið er víst. (70 orð) Námsgagnastofnun 2002 - Málbjörg / SKS

  2. Stafsetning 2. Þegar systkinin komu heim á fimmtudaginn beið þeirra óvæntur glaðningur í anddyrinu. Foreldrar þeirra höfðu keypt nýja tölvu. Aðeins þurfti að bera hana inn í herbergi og tengja allt saman. Það reyndist þó þrautin þyngri. Þorleifur nágranni þeirra kom fjölskyldunni loks til hjálpar. Hann er þaulvanur rafmagni og snúrum. Þótt hann sé farinn að eldast kann hann ýmislegt fyrir sér eins og kom best í ljós þegar honum tókst að kveikja á tölvunni. (73 orð) Námsgagnastofnun 2002 - Málbjörg / SKS

  3. Stafsetning 3. Gatan framan við húsið mitt er þakin laufi. Trén eru orðin svolítið rytjuleg en samt finnst mér eitthvað notalegt við þetta haust. Í garðinum syngja þrestirnir á hálfnöktum greinum. Óvenju hlýtt hefur verið í september en mikið hefur rignt. Ég kvíði því svolítið þegar norðangarrinn fer að nísta merg og bein. Þá reyni ég að dúða mig í alls konar ullarfatnað. Hlýir vettlingar, húfa og trefill fyrir andlitinu geta bjargað miklu. (71 orð) Námsgagnastofnun 2002 - Málbjörg / SKS

  4. Stafsetning 4. Laufey kom ný í bekkinn minn rétt eftir jólaleyfið. Fjölskylda hennar bjó víst á Seyðisfirði áður en hún flutti hingað suður. Ég segi það satt að ég hef ekki hugsað um annað en þessa stelpu í margar vikur. Hjartað í mér tekur snöggan kipp þegar hún lítur á mig og ég finn hvernig andlitið hitnar. Vinkonur hennar flissa stundum einkennilega þegar þær sjá mig. Skyldu þær vita hvernig mér líður? (70 orð) Námsgagnastofnun 2002 - Málbjörg / SKS

  5. Stafsetning 5. Jakob faðir Þorfinns er mikill keppnismaður og skíðaíþróttin átti lengi hug hans allan. Fjölskyldan gleymir áreiðanlega aldrei skíðaferðinni um páskana, vorið sem tvíburarnir fermdust. Þá villtust þau öll í blindbyl og sátu föst í bílnum í tæpan sólarhring. Til allrar hamingju tókst björgunarsveit að finna þau áður en illa fór. Eftir það sneru systkinin sér að annarri tómstundaiðkun. Jakob einbeitti sér lengi vel að pílukasti. Núna hefur hann tekið upp gömlu skautaskóna og stefnir langt á svellinu. (77 orð) Námsgagnastofnun 2002 - Málbjörg / SKS

  6. Stafsetning 6. Síðan Egill frændi minn fékk nýja símann í afmælisgjöf hefur varla verið hægt að ná nokkru sambandi við hann. Ef hann er ekki að hringja í vini sína liggur hann í smáskilaboðum eða leikjum. Heimalærdómurinn situr alveg á hakanum. Fjölskyldu hans líst ekki á blikuna. Móður hans minnir að skrifað hafi verið í dagblöðin nýlega um skaðsemi þessara litlu tækja. Kannski verður hún að taka í taumana áður en illa fer. (71 orð) Námsgagnastofnun 2002 - Málbjörg / SKS

  7. Stafsetning 7. Hljómsveitin Bítlarnir samanstóð af fjórum ungum mönnum frá Bretlandi. Þeir byrjuðu að leika saman á hljóðfæri á unglingsárunum. Um sjö ára skeið áttu þeir fleiri lög á vinsældalistum en nokkrir aðrir. Árið nítján hundruð og sjötíu leystist sveitin upp og meðlimir hennar héldu hver sína leið. Nú eru aðeins tveir þeirra á lífi. Einn var myrtur en annar lést úr krabbameini. En lögin munu víst áreiðanlega lifa góðu lífi um ókomna tíð. (72 orð) Námsgagnastofnun 2002 - Málbjörg / SKS

  8. Stafsetning 8. Þegar Birta vaknaði í morgun fann hún hvergi íþróttaskóna sína. Hún leitaði alls staðar í herberginu, inni í skápum og bak við gluggatjöldin. Loksins fann hún annan undir rúminu. Hinn virtist vera týndur og tröllum gefinn. Stelpan snerist um allt eins og skopparakringla og rak tána svo harkalega í rúmfótinn að mamma hennar varð að hringja í frúna í næsta húsi. Núna liggur hún með fótinn í gifsi og hlustar á veðurspána í útvarpinu. (74 orð) Námsgagnastofnun 2002 - Málbjörg / SKS

More Related