1 / 24

Kyngervi og skólastarf

Kyngervi og skólastarf. Jafnréttisfræðsla - lagaskylda. 19. gr. laga um jafna stöðu kvenna og karla

keona
Download Presentation

Kyngervi og skólastarf

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Kyngervi og skólastarf

  2. Jafnréttisfræðsla - lagaskylda 19. gr. laga um jafna stöðu kvenna og karla Menntun og skólastarf. Á öllum skólastigum skal veita fræðslu um jafnréttismál, m.a. með því að leggja áherslu á að búa bæði kynin jafnt undir virka þátttöku í samfélaginu, fjölskyldulífi og atvinnulífi. Í náms- og starfsfræðslu og við ráðgjöf í skólum skal leitast við að kynna bæði piltum og stúlkum störf sem hingað til hefur verið litið á sem hefðbundin karla- eða kvennastörf. Gæta skal þess sérstaklega að kennslu- og námsgögn séu þannig úr garði gerð að kynjum sé ekki mismunað. Efla skal rannsóknir á stöðu kynjanna í íslensku samfélagi, jafnt fræðilegar grunnrannsóknir sem hagnýtar rannsóknir, og miðla niðurstöðum þeirra markvisst innan skólastarfsins og til fjölmiðla. Menntamálaráðuneytið skal fylgjast með þróun jafnréttismála í skóla- og uppeldisstarfi og að jafnréttis kynja sé gætt í íþrótta- og tómstundastarfi. Einnig skal ráðuneytið fylgjast með rannsóknum á sviði jafnréttismála, sbr. 4. mgr. (Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla 2000 nr. 96 22. maí ) Þórdís Þórðardóttir

  3. Gagnleg hugtök fyrir kyngervi og skólastarf I • Kyngervi (félagsleg mótun um hvað felst í að tilheyra ákveðnu kyni) • Kyn vísar til líffræðilegs kyns en kyngervi er notað um þá menningarbundnu merkingu sem samfélagið leggur í hið líffræðilega kyn, það er væntingar um karlmennsku og kvenleika. Hvert samfélag hefur ákveðnar væntingar um hvað það felur í sér að vera karl eða kona, um verksvið og skyldur kynjanna og hvernig konur og karlar eiga að líta út og hegða sér. Kyngervi lærist í félagslegum samskiptum Þórdís Þórðardóttir

  4. Gagnleg hugtök fyrir kyngervi og skólastarf II • Kynjun • Getur þýtt ýmislegt en er einkum notað sem mælikvarði á hugtök, viðmið og gildi sem á einhvern hátt eru kynbundin. Þjóðfélagið hefur kynjaðan mælikvarða á hvaða störf henta hvoru kyni um sig og gildismat þjóðfélagsins metur karlastörf hærra en kvennastörf. Þórdís Þórðardóttir

  5. Gagnleg hugtök fyrir kyngervi og skólastarf III • Kvenleiki (staðalmyndir) • Algengt er líta á kvenleikann sem einhverskonar vöntun eða skort t.d. Freud sem skilgreinir kvenleika sem vöntun á lim. (Þorgerður Þorvaldsd, vísindavefurinn ). • Kvenleikinn er venjulega skilgreindur sem andstæða karlmennskunnar og nýtur minni virðingar en karlmennska, t.d. blíða, hlédrægni og umburðarlyndi. Þórdís Þórðardóttir

  6. Gagnleg hugtök fyrir kyngervi og skólastarf IV • Karlmennska (staðalmyndir) • Karlmennska og kvenleiki eru ekki fastar óbreytanlegar stærðir. • Karlmennska felur í sér kraft, t.d. þátttöku í kraftmiklum leikjum og athöfnum. Dirfska og þor. • Freud taldi kynhvöt karla vera birtingarmynd lífskraftsins en að kynhvöt kvenna væri knúin áfram af löngun í getnaðarlim (Sæunn Kjartansdótti, 2004). Þórdís Þórðardóttir

  7. Gagnleg hugtök fyrir kyngervi og skólastarf V • Kynímynd • Algengara að tala um kynjaímyndir. En þær vísa til ríkjandi gilda í samfélaginu um hvað það þýðir að vera kona eða karl og hvernig kynin eiga að hegða sér. • Kynjaímyndir eru hvarvetna sýnilegar t.d. í fjölmiðlum, þar sem ,,eðlileg” kynhlutverk eru sett á svið. Þórdís Þórðardóttir

  8. Gagnleg hugtök fyrir kyngervi og skólastarf VI • Eðlishyggja • Kenning sem skýrir kynjamismun með því að hann sé áskapaður og eðlislægur. Kynin séu andstæður sem búi yfir ólíkum tilfinningum og sálfræðilegum eiginleikum. Þetta eru ævafornar hugmyndir. Þórdís Þórðardóttir

  9. Gagnleg hugtök fyrir kyngervi og skólastarf VII • Félagsleg mótunarhyggja • Gerir ráð fyrir að kyngervi og kynhlutverk mótist af menningu, samfélagslegum gildum og lífsstíl sem hópar í samfélagi tileinka sér. Þórdís Þórðardóttir

  10. Gagnleg hugtök fyrir kyngervi og skólastarf VIII • Mótunarhyggja, byggð á félagslegum mótunarkenningum (e.social construction theory) • Gert ráð fyrir að kyngervi og kynhlutverk ráðist af menningu og samfélagslegum lífsstíl. Fyrirbæri eins og kynþættir, kyngervi og stétt séu félagslega mótaðir og háðir upplifunum fólks Þórdís Þórðardóttir

  11. Gagnleg hugtök fyrir kyngervi og skólastarf IX • Veruháttur (e. habitus) • Veruháttur er hugsanaformgerð. Veruháttur mótast af félagslegri stöðu sérhvers einstaklings og mótar hvernig hann eða hún vinnur úr veruleikanum. Ef ég er kona þá læri ég að hegða mér sem slík, ef ég er barn þá læri ég að hegða mér sem slíkt, ef ég er í lágstétt þá læri ég að hegða mér í samræmi við það, o.s.frv. Þórdís Þórðardóttir

  12. Erfðir og umhverfi • Maðurinn er ekki hnútur á DNA streng. Við hugsum, eygjum möguleika, lærum nýja færni og tökum ákvarðanir um líf okkar. Þrátt fyrir það höfum við meðferðis farangur fortíðarinnar sem er menning okkar þar sem ýmis hlutverk eru flokkuð sem viðeigandi fyrir annaðhvort kynið. Umhverfið hefur áhrif á taugaboð og hormónaflutning, jafnvel virkni genanna og þetta getur haft lúmsk áhrif á líffræðilega þætti og atferli á æviskeið hvers manns (Fisher,1999, bls.xix) Þórdís Þórðardóttir

  13. Menningarsvið, veruháttur og menningarauður Menningarsvið Hugmyndir Ímyndir Smekkur, (stétt, trú Etnískur hópur (o.fl) Veruháttur Tengsl innri og ytri áhrifsþátta Ómeðvituð leikni Menningarauður, Þekking, merking (merkingarbær heimur) Einstaklingsbundin hegðun, hugsun, áhugi, ákvarðanataka vrðingarsess o.fl Smekkur- ómeðvituð leikni – áhugi-hegðun Uppeldi mótar viðbrögð manneskju við aðstæðum. Það hefur í för með sér að fólk geymir í sér félagslegar athafnir sem verða að veruháttum.Veruháttur er m.a. hugtak yfir það sem maður telur að manni beri að gera, hverju manni geðjast að og hvernig maður öðlast skilning á sjálfum sér (Bourdieu,1997). Þórdís Þórðardóttir

  14. Kynjaveruháttur (íslensk leikskólabörn) • Útlit kynjanna Konur; eru síðhærðar, klæðast fallegum fötum, nota glimmer og háhælaða skó, “Hún (prinsessan í Svanavatninu) var svo falleg að allir urðu ástfangnir af henni” (5 ára stelpa) Karlar; fremur óljós mynd en þeir eru sterkir, eru í dökkbláum, fjólubláum, grænum og svörtum fötum. Góðu karlarnir og vondu karlarnir eru líkir. ,,Ég veit það ekki þeir eru í alveg eins fötum” ( 5 ára strákur) ,,kannski eru vondu karlarnir svartir í framan” (4 ára strákur) Þórdís Þórðardóttir

  15. Kynjaveruháttur (íslensk leikskólabörn) • Athafnir kynjanna • Konur; elda, baka, gefa börnum að borða, vinna mikið, kaupa inn fyrir heimilið, dansa, fara í líkamsrækt, mála myndir, reyna að fá karla til að taka þátt í húsverkum. • Karlar , spila fótbolta, handbolta og körfubolta, fara út á hverjum degi, vinna, bjarga fólki, klifra í trjám og veggjum og leita að fjársjóðum. Þórdís Þórðardóttir

  16. Drengjaorðræðan (sbr.Ingólfur Ásgeir Jóhannesson) • Ingólfur á við orðræðuna um: • ,,að drengjum gangi sérstaklega illa í skólum,skólamenningin sé ekki sniðin fyrir drengi, kvennamenning sé ríkjandi og fleira í þeim dúr”(Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2004, Fléttur II bls. 218) • Rannsókn Ingólfs: Kennslukonum finnst stelpur vandvirkari, færari í ritun og eigi auðveldara með nákvæmnisvinnubrögð. Þær eru ekki nógu forvitnar til að fara út fyrir námsefnið, týna sér í vandvirkni og spyrja minna en drengir. • Vandinn með strákana er að þeim eru yfirleitt ekki falin verkefni heima fyrir, er ekki kennt að taka ábyrgð, hafa engin sérstök hlutverk. Þeir eru fríir og frjálsir og mamma gerir allt fyrir þá (kennslukona í viðtölum Ingólfs) Þórdís Þórðardóttir

  17. Kynjamismunur í skólum I • Frammistaða stráka og karlmennskan • Strákar og stelpur eru jafnhá í efsta fjórðungi einkunna en strákar fleiri í lægsta fjórðungnum. • Ýmsar rannsóknir t.d. Whitelow o.fl. 2000 sýna að rekja má lakari frammistöðu stráka til karlmennskuviðhorfa. T.d viðhorf um að vinna (nám) í skólum sé ókarlmannlegt. Strákar virðast einnig hafa háar og óraunhæfar hugmyndir um námsgetu sína (t.d. Pisa á Ísl. og Berglind Rós Magnúsdóttir) • Þrýstingur í félagahóp stráka og andúð á kvenleika virðist ýta undir að strákar leggja sig ekki fram í skóla Þórdís Þórðardóttir

  18. Kynjamismunur í skólum II • Frammistaða stelpna og kvenleiki Hafa þarf í huga þjóðfélagsbreytingar og baráttu kvenna fyrir jöfnum aðgangi kynjanna að skólum. Orðræðan einkennist af því að það sé vandamál að stelpur standi sig betur í skóla en strákar. Litið er framhjá því að iðjusemi, vandvirkni o.fl. er forsenda árangurs í námi og lítið gert úr námsarangri stelpna þar sem hann er kenndur við vinnusemi, samviskusemi og dugnað Þórdís Þórðardóttir

  19. Kynjamismunur í skólum III • Hærri einkunnir stelpna voru einnig staðreynd meðan að karlar voru í meiri hluta í kennarastétt (Berglind Rós Magnúsdóttir, Þorgerður Einarsdóttir, 2005, Þórdís Þórðardóttir 2005) • Meðaleinkunn drengja sem fá sérkennslu er hærri en meðaleinkunn telpna sem fá hana(Berglind Rós Magnúsdóttir, Þorgerður Einarsdóttir, 2005) • Samkennsla í handavinnu hefur leitt til þess að hefðbundnar kvennahannyrðir eins og listprjón verða fremur útundan í skólastarfi (Berglind Rós Magnúsdóttir, Þorgerður Einarsdóttir, 2005) Þórdís Þórðardóttir

  20. Kynjamismunur í skólum IV • Fjöldi rannsókna sýnir að strákar fá meiri athygli en stelpur í skólum • Strákar eru skammaðir oftar en stelpur (t.d. ísl. rannsókn í leikskóla Þórdís Þórðardóttir 1993) • Strákar fá hrós fyrir að vera klárir en stelpur fá hrós fyrir dugnað • Erfiðara þykir að kenna strákum en stelpum (Berglind Rós Magnúsdóttir, Þorgerður Einarsdóttir, 2005, Þórdís Þórðardóttir, 2005) • Strákar virðast koma ver undirbúnir í skóla og þeim virðist semja ver við kennara en stelpur (Berglind Rós Magnúsdóttir, Þorgerður Einarsdóttir, 2005) Þórdís Þórðardóttir

  21. Kynjamismunur í skólum V • Stéttamismunur er tengdur kynjamismuni • Fyrirmyndarnemandinn er úr millistétt • Lágstéttarbörn eru ósáttari í skólum en millistéttarbörn • Lágstéttardrengir (Bretland, Ástralía) draga niður meðaleinkunn drengja í skólum • Hvað með landsbyggðarstrákana á Íslandi? Lítill munur er á frammistöðu stelpna og stráka í stærðfræði í Reykjavík . Þar fá, stelpur ögn hærri einkunnir í stærðfræði en það er ekki tölfræðilega marktækur munur • Íslenskir strákar hafa almennt betra sjálfsöryggi og minni kvíða gagnvart stærðfræði en stelpur (Júlíus K. Björnsson o.fl. 2004) Þórdís Þórðardóttir

  22. Valdatengsl kynjanna og formgerð skólanna • Valddreifingin sem blasir við börnum í skóla Líklega er skólastjórinn karl. Karlar kenna fremur á unglingastigi en í yngri bekkjum. Kennsla karla tengist oftar fræðigreinum og kennsla kvenna umönnun t.d. í yngstu bekkjunum. Skólaliðar eru oftast konur og neðst í virðingarstiganum eru ræstingakonur af erlendu bergi brotnar. Valdastiginn er báðum kynjum ljós Þórdís Þórðardóttir

  23. Vinnubrögð kennara; eru þau kynjabundin eða persónubundin eða hvorutveggja • Flestir kennarar ( í rannsókn Ingólfs) telja að vinnubrögðin séu fremur persónubundin en kynjabundin • Viðhorf kennara virðast fremur tengd fagmennsku (sérfræðiþekkingu) en kyni þeirra • Kennslukonur ( í rannsókn Ingólfs) telja ekki að strákar þurfi endilega fleiri karla til að kenna sér en telja mikilvægt fyrir vinnustaðinn að jafna kynjahlutföllin í kennaraliðinu. Bæði stelpur og strákar þurfa kven- og karlfyrirmyndir Þórdís Þórðardóttir

  24. Áhugi íslenskra kennaranema á að bregðast við ólíkri stöðu kynja í skólum (nokkur dæmi úr könnun í KHÍ 2004,) • Vita hvaða áhrif staðalmyndir hafa á börn • Sjá hvaða áhrif kyn hefur á börn • Telja að leggja þurfi áherslu á kynjamál í skólastarfi • Vilja fræðast um áhrif kynjaskiptra og kynjablandaðra bekkja • Vilja vita hvort það sé rétt að skólinn sé miðaðaur við þarfir stelpna og að strákar fari halloka í skólum Þórdís Þórðardóttir

More Related