1 / 66

2.ÞROSKASÁLFRÆÐI VERÐUR TIL

2.ÞROSKASÁLFRÆÐI VERÐUR TIL. SÁLFRÆÐI 203. Íslenzkar gátur. Fyrstu tíu vetur barn, tuttugu ára: úngur, þrjátíu ára: fullorðinn, fjörutíu ára: í sínum blóma, og þá hvorki aptur né fram, fimmtíu ára: athugaaldur, sextugur: með aldri, sjötugur: færist aldur á,

kara
Download Presentation

2.ÞROSKASÁLFRÆÐI VERÐUR TIL

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. 2.ÞROSKASÁLFRÆÐI VERÐUR TIL SÁLFRÆÐI 203

  2. Íslenzkar gátur Fyrstu tíu vetur barn, tuttugu ára: úngur, þrjátíu ára: fullorðinn, fjörutíu ára: í sínum blóma, og þá hvorki aptur né fram, fimmtíu ára: athugaaldur, sextugur: með aldri, sjötugur: færist aldur á, áttræður: fellur minnið frá, níræður: þarf staf að fá, hundrað ára: náði guð þá.

  3. Inngangur • Efni kaflans er rannsóknir og saga þroskasálfræðinnar. • Áhugi á þroskasálfræði hefur aukist á þessari öld. • Lenging bernskunnar. • Lengri skólaganga. • Þroskasálfræði: Fæst við breytingar sem verða á hegðun og sálarlífi samfara aldri. • Þroskinn er örastur framan af ævi. Þá er mest hætta á þroskaskaða. • Þroska fullorðinna verður ekki sinnt í þessari bók þótt það sé verðugt viðfangsefni.

  4. Þorski er örastur framan af og þá er mest hætta á að erfið reynsla geti haft skaðleg áhrif • Öll dýr eru viðkvæmust fyrir umhverfisáhrifum meðan þau eru að þroskast • Þroskasálfræðin varð snemma sjálfstæð fræðigrein og er eins elsta sjálfstæða undirgrein sálfræðinnar ásamt tilraunasálfræði

  5. Nokkur meginstef í rannsóknum á sviði þroskasálfræði • Er þroskaferill mannsins jafn og hægfara eða stigundinn? • Má greina ákveðin hættu- eða næmiskeið í þroska og hversu auðvelt er að bæta upp þroskatap • Hvort setja erfðir eða umhverfi meira mark á atgervi fólks? • Þar sem engar tvær mannverur eru nákvæmlega eins hljótum við að spyrja hvernig einstaklingseðlið verður til?

  6. Brautryðjendur þroskasálfræðinnar • Bandaríski sálfræðingurinn James Mark Baldwin frumkvöðull • Alfred Binet sem bjó til fyrsta nothæfa greindarprófið • Sigmund Freud • Rannsóknaraðferðir • Langtíma- og þverskurðarsnið • Skyldleikarannsóknir

  7. ÞRÓUNARSÁLFRÆÐI ER SKYLD VÍSINDAGREIN • Þroskun: Breytingar sem verða í fari mannsins yfir æviskeiðið. • Þróun: Breytingar sem orðið hafa á tegundinni maður í tímans rás. • Þessu tvennu var áður blandað saman. • Þrír meginþættir sem kenningar um þroskun þurfa að ná til: • Uppruni/Orsök hegðunar og hegðunarmynstra. • Hvernig viðhelst hegðun. • Hvernig hegðun breytist.

  8. frh. • Flestar kenningar miðaðar við afmarkaða þætti sem endurspeglast með eftirfarandi kaflaskiptingu þessarar bókar: • Líkamsþroska • Greind • Máltöku • Tilfinningar

  9. Uphhaf þróunarsálfræðinnar rakið til bókar Darwins Uppruni tegundanna (1859) • Fjallar um atferli og sálarlíf manna og dýra • Leitaðist við að skýra breytingar sem hafa orðið á atferli, tilfinningalífi og atgervi tegundanna • Áhrifa þróunarkenningarinnar gætir í því að gengið er út frá því að lögmálið um náttúruval hafi haft áhrif á þróun sálfræðilegra eiginleika frá einni kynslóð til annarrar

  10. Líkamshæð og offita • Karlar eru að jafnaði hærri en konur og konur sækjast eftir maka sem er nokkru hærri en þær • Varði fjölskylduna • Þegar fæðuframboð var takmarkað áttu þeir sem höfðu góðan forða á sér meiri möguleika á að komast af en aðrir • Í dag vandamál þegar framboð á mat er nægt

  11. Almennt þurfa þroskakenningar að skýra • Uppruna eða orsakir hegðunar og hegðunarmynstra • Hvernig hegðun viðhelst • Hvernig hún breytist yfir æviskeiðið

  12. NOKKUR MEGINSTEF • Fjögur meginstef í þroskasálfræði • Lúta að ýmsum álitaefnum um eðli þroska og hvaða þættir hafa afdrifaríkust áhrif á hann

  13. Er þroskaferillinn samfelldur eða stigbundinn? • Samfelldur þroski: Jafn og hægur. • Þroski í stökkum: Miklar breytingar á afmörkuðum tímabilum. • Kenningar um félags- og tilfinningaþroska gera yfirleitt ráð fyrir samfelldum þroska. • Kenningar um vitsmuni og hreyfiþroska gera ráð fyrir þroska stökkum. • Mynd 2.2 bls. 41 sýnir mun á stökum og samfelldum þroskaferli. • Kenningar Piaget, Freud og Kohlberg gera ráð fyrir þroskastigum.

  14. Fernt þarf að vera til staðar • Þroski á hverju stigi um sig þarf að hafa ákveðin samkenni og oftast verða framfarir á mörgum sviðum samtímis. Eðlismunur þarf að vera á þroska á ólíkum stigum, þ.e. ekki er nóg að barnið sýni einungis meira af tiltekinni hegðun. • Í annan stað verður röð stiganna að lúta ákveðnum reglum, þau mega ekki vera í handahófsröð. Einfaldara stig A verður að koma á undan flóknara stigi B o.s.frv. Þroskastigin eru þó ekki rígbundin við aldur.

  15. c) Ekki má heldur sleppa stigi úr (þá verður rof í þroska) og alls staðar í heiminum ganga börn í gegnum stigin í sömu röð. d) Skil á milli stiga eru að jafnaði skörp; engu að síður má greina ákveðin þrep innan stiga: • Undirbúningsþrep • Jafnvægisleitni • Lokaátak sem gerir barni kleift að stökkva yfir á næsta stig (Flavell)

  16. Hættu – eða næmisskeið • Það eru vísbendingar um að áhrif umhverfis á lífverur séu mest þegar þroskinn er örastur, þ.e. í æsku. • Ekki þar með sagt að hægt sé að móta börn að vild. • Ákveðin örvun á ákveðnum tímabilum er nauðsynleg til að ná þroska. • Næmiskeið: Tímabil þar sem áhrif ákveðinna umhverfisþátta eru í hámarki. • Hættuskeið: Tímabil þar sem lífvera er móttækileg fyrir ákveðnum umhverfisáhrifum og lærir ekki að svara þeim umhverfisáhrifum nema verða fyrir þeim á viðkomandi tímabili.

  17. frh. • Mörkun: Tilhneiging ungviðis til að elta það fyrsta sem er á hreyfingu eftir að þau fyrst koma í heiminn. (sjá nánar á mynd 2.3 á bls.44). • Ekki er talið að þroskun manna sé eins mikið komin undir hættuskeiðum eins og margra annarra dýra. Þroski taugkerfisins gerir manninn sveigjanlegri. • Sumir telja að næmisskeið geðtengsla sé á tímabilinu 6-18 mánaða hjá börnum. • Næmisskeið máltöku er frá 2-12 ára aldurs. • Næmisskeið félagsmótunar er 3-6 ára.

  18. Erfðir og umhverfi • Erfðahyggjumenn: Telja að arfgerð ráði mestu um þroska mannsins og umhverfi hafi takmörkuð áhrif. • A.R. Jensen og H.J. Eysenck telja að 80% greindar ákvarðist af erfðum. • Umhverfishyggjumenn: Telja að umhverfi ráði mestu um þroska mannsins. • Leon Kamin telur að 80% greindar ákvarðist af umhverfi. • Skoðið mynd 2.4 bls. 45. Hún sýnir vaxandi fylgni greindar með vaxandi skyldleika. Styður frekar erfðahyggju.

  19. Frh. • Fyrirvari: Oftast deila skyldir einnig umhverfi. • Fjölskyldustærð hefur áhrif á greinarvísitölu. Því fleiri sem systkini eru því lægri verður greindarvísitala yngstu systkina samanborið við þau elstu (sjá mynd 2.5 bls. 46). • Erfðir hafa einnig áhrif á tíðni geðsjúkdóma eins og t.d. geðklofa (sjá mynd 2.6 bls. 47). • Mynd 2.6 á bls. 47 sýnir bæði fram á áhrif umhverfis og erfða. Það er sterk fylgni milli eineggja tvíbura en alls ekki algjör. • Nú er algeng skoðun að nær sé að tala um gagnvirkt samband umhverfis og erfða. D.O. Hebb: Umhverfi er 100% háð erfðum, erfðir eru 100% háðar umhverfi.

  20. Einstaklingar eða hópsálir • Hvað er það sem gerir okkur að þeim einstaklingum sem við erum? • Hvað eigum við sameiginlegt með öðru fólki og hvað gerir okkur einstök? • Mælingar á mannamun – greindarpróf • Markmið greindarprófa að finna hverjir eiga við einhvers konar vandamál að stríða • Aðrir leggja áherslu á samkenni • Piaget um vitsmunaþroska

  21. Foreldrar taka eftir að börnin þeirra eru ólík í ýmsu t.d. þegar kemur að skapgerðarþáttum • Rannsóknir benda til að þeir séu varanlegir • Rannsókn Kagans og Snidmans frá 2004 bendir til að skapgerðareinkenni geti átt rætur að rekja til einhverra líffræðilegra ákvarðaðra eða meðfæddra þátta • Greindu tvær afgerandi persónuleikageðrir hjá börnum • Viðbrigðin og óviðbrigðin

  22. Viðbrigðin börn = feimin og uppburðarlaus börn, heft eða innilokuð sem unglingar • Óviðbrigðin = óheft sem börn og opnir unglingar • Einstaklingseðlið segir til sín strax frá fyrstu tíð

  23. FYRSTU ÞROSKASÁLFRÆÐINGARNIR • 1880-1912: Fyrstu ár þróunarsálfræði sem sjálfstæðrar fræðigreinar. • 1879: Upphafsár sálfræðinnar: Fyrsta tilraunastofan stofnuð af Wilhelm Wundt. • Sumir nemenda Wundt höfðu sérstakan áhuga á þroska og þróun. • Barnadagbækur: Bækur þar sem þroski barna var skráður af fræðimönnum, t.d. Dietrich Tiedemann og Charles Darwin. Eldra en rannsóknir Wundt.

  24. frh. • Þróunarkenning Darwins efldi áhuga á þróun og þroska. • Francis Galton rannsakaði mismun einstaklinganna og þróaði tölfræði sem tækni. • Gregor Mendel gerði uppgötvanir í erfðafræði (rannsóknir hans voru þó ekki almennt kunnar). • Wilhelm Preyers: Gaf út fyrstu bókina í þroskasálfræði: ,,Hugsun barns” árið 1881. Bókin byggði á kerfisbundnum rannsóknum sambærilegum við þær sem gerðar eru nú á tímum.

  25. James Mark Baldwin (1891 – 1934)

  26. Ekki sá þekktasti en hafði veruleg áhrif • Sálfræðingur og heimspekingur • Taldi tengsl á milli þroska og þróunar • Hallaðist að hlutverksstefnunni • Sálfræðin fjallaði um hlutverk atferlis og hugsana • Lagði út frá þróunarkenningu Darwins

  27. Helstu hugmyndir Baldwins • Hugur barnsins og andlegt atgervi þroskast í gegnum ákveðin stig sem eiga sér jafnframt hliðstæðu í þróun vitsmuna meðal tegundanna • Þroski hugsunar og vitsmuna (sem og þróun) er háður örvun frá umhverfinu (lífveran hegðar sér gagngert á tiltekinn hátt til að fá umbun frá umhverfinu) • Meginaflvaki þroska er aðlögun sem greina má annars vegar í samlögun og hins vegar aðhæfingu. Hið fyrra felst í að meðtaka upplýsingar eða áhrif frá umhverfinu inn í þau “kerfi” sem fyrir eru, en hið síðara í því að lífveran verður að breyta kerfunum sem fyrir eru til að geta meðtekið ný áhrif

  28. G. Stanley Hall (1844-1924)

  29. Frh. • Oft kallaður fyrsti þroskasálfræðingurinn. • Hafði verið nemandi Wundt. • Var frumkvöðull í sálfræði í Bandaríkjunum, stofnaði sálfræðirannsóknarstofu 1883, varð háskólakennari í sálfræði 1884 og hóf útgáfu sálfræðitímarits árið 1887. • Áhugi Hall beindist frekar að hagnýtri en fræðilegri sálfræði.

  30. Frh. • Hann rannsakaði samband persónuleika barna og aðlögunarvandamála. • Áhrif umhverfis og félagslegra aðstæðna á getu manna til að koma sér áfram. • Líta má á rannsóknir hans sem vísi að atferlisstefnunni. • Hall þróaði spurningalista sem aðferð við rannsóknir. Lét bæði börn og foreldra svara spurningalistum sínum.

  31. frh. • 1891 hóf Hall útgáfu tímarits um þroskasálfræði. • 1904 gaf hann út fyrstu kennslubókina um unglingsárin. • 1892 varð Hall fyrsti forseti bandaríska sálfræðingafélagsins. • Hall setti ekki fram neinar umfangsmiklar kenningar í þroskasálfræði heldur einbeitti sér að reynslu-rannsóknum. • Hall átti mikinn þátt í að skapa grunn fyrir frekari rannsóknir.

  32. Alfred Binet (1857-1911)

  33. Binet bjó til fyrsta greindarprófið ásamt fleirum. • Binet-prófið er enn í notkun í endurbættum útgáfum. • Rannsakaði minni og vitsmuni með nútímalegum aðferðum. • Rannsakaði meðal annars spönnun minnis.

  34. frh. • Terman og Goodard þýddu og stöðluðu greindarpróf Binet í Bandaríkjunum. Þeir lögðu áherslu á að þau mældu meðfædda greind sem var annar skilningur en hjá Binet. Þeir vildu nota greindarpróf til að flokka frá þá sem hefðu óæskilega erfðaeiginleika. Í Bandaríkjunum voru sett lög um vönun þroskaheftra. • Binet áleit að greindarpróf sín væru hagnýt tæki til að mæla þroskastig greindar. Hann hafði áhuga á því hvernig mætti efla greindarþroska.

  35. Sigmund Freud (1856-1939) • Einn áhrifamesti maður sálfræðinnar, hafði áhrif langt út fyrir sálfræðina, á vestræna menningu. • Freud fékkst við geðlæknisfræði enda var hann geðlæknir. • Þroskasálfræði Freuds varð til í tengslum við geðlæknisfræði-kenningar hans.

  36. Helstu hugmyndir • Hann vakti athygli á því að þroski á fyrstu árum ævinnar, og framkoma fullorðinna í garð barna, gæti haft afdrifarík áhrif til langframa • Þannig taldi hann að persónuleikinn mótaðist í mikilvægum dráttum á fyrstu fimm árunum eða svo og til að öðlast skilning á sálarástandi fólks þyrfti að kanna þroskasögu þess • Hann taldi að þroskinn færi í gegnum ákveðin stig og að stigin afmörkuðust af líffræðilegu og lífeðlislegu þroskaferli

  37. Hann byggði hugmyndir sínar að nokkru á þróunarkenningunni þar sem hann taldi að líffræðilegar hvatir og hvernig þær mótuðust af umhverfinu væru driffjaðrir sálarlífsins (hvatir sem menn fá í arf frá dýrslegri fortíð sinni) • Rétt eins og Darwin taldi Freud að markmið hvatanna væri annars vegar að komast af og hins vegar að auka kyn sitt (eða tryggja erfðarþáttunum frekara líf)

  38. Hann vakti athygli á hinu sérkennilega bernskuóminni • Hann skilgreindi hugtakið Ödipusarduld sem lifað hefur áfram í menningu Vesturlanda • Verulega umdeild er sú hugmynd hans að börn séu í einhverjum skilningi kynverur • Hann gekk út frá því að verulegur hluti sálarlífsins væri dulvitaður

  39. Mjög umdeildur • Verið að endurvekja sumar hugmyndir hans í dag • Bersnkuóminni • Vísar til þeirrar staðreyndar að fæst fólk er fært um að muna hvað dreif á daga þess fyrir 3ja ára aldur • Leitaðist við að skýra þroskaferilinn í kenningum sínum en hann gerði bara athuganir á fullorðnu fólki aðallega konum • Þroskakenningin lýtur aðallega að þroskaferli stráka

  40. Löggengi hegðunar – löghyggja • Öll hegðun á sér orsakir rétt eins og önnur náttúruleg fyrirbæri • Taka þarf tillit jafnt til líffræðilegra sem og sögu einstaklings þegar hegðun hans og sálarlíf er skoðað • Samband milli hegðunarvandkvæða á fullorðinsárum og ójafnvægis á uppvaxtarárum • Stöðnun getur orðið hvenær sem er á þroskaferlinum ýmist vegna of mikillar eða of lítillar örvunar

  41. Afturhvarf er einn af varnarháttum sjálfsins, viðkomandi bregst við áföllum eða innri togstreitu með því að hverfa til baka á lægra þroskastig • Lækningaraðferð Freuds • Grafast fyrir um orsakilr taugaveiklunar og geðraskana með því að grafa í undirdjúp sálarlífsins og hörfa aftur til bernskuáranna • Kynhvöt og árásarhvöt • Mikilvægt hvernig börn fá útrás fyrir þær hvatir í bernsku • Grunnhugmynd kenningar um geðtengsl

  42. AÐFERÐIR VIÐ ÞROSKARANNSÓKNIR • Ýmsar aðferðir • Helsti óvissuþátturinn er tíminn • Margar samsláttarbreytur, aðrar breytur en þær sem eru undir stjórn rannsakanda, tengjast sögulegum tíma • T.d. þroski barna í dag annar en hann var fyrir 50 árum • Rannsóknir varða mörg svið • Geta farið fram á sjúkrahúsum, leikskólum, skólum, stofnunum, heimilum og rannsóknarstofum

  43. Siðareglur eru strangar • Ekkert má aðhafast sem getur haft áhrif á þroskaferil barna sem taka þátt í rannsókn • Mikilvægt að fylgjast með börnum og ungmennum í sem eðlilegustu umhverfi • Þá hafa rannsakendur síður áhrif á hegðun • Undirkaflar • Rannsóknarsnið • Aðferðir við gagnasöfnun • skyldleikarannsóknir

  44. Rannsóknarsnið • Langtímasnið og þverskurðarsnið • Langtímasnið – sami hópur rannsakaður aftur og aftur á ákveðnu tímabili • Þverskurðarsnið – stöðugt tenkir nýir hópar fyrir hvert aldursskeið á því tímabili sem rannsóknin nær yfir • Dæmi bls. 73

  45. Langtíma- og þverskurðarrannsóknir • Langtímaaðferð: Sami hópur einstaklinga er rannsakaður yfir lengra tímabil. • Dæmi: Börn sem fædd eru 1995 er rannsökuð árið 2005 (10 ára), 2015 (20 ára) og 2025 (30 ára). • Þverskurðarrannsókn: Mismunandi aldurshópar eru rannsakaðir á sama takmarkaða tímabilinu. • Dæmi: Árið 2005 eru rannsakaðir þrír hópar, 10 ára (fæddir 1995), 20 ára (fæddir 1985) og 30 ára (fæddir 1975).

  46. frh. • Samanburður á langtímaaðferð og þverskurðaraðferð • Dæmi um langtímarannsókn: Gáfubarnarannsókn Lewis Terman. • Rannsóknin kollvarpaði þeirri skoðun að mjög greind börn væru andlega og líkamlega veiklaðri en aðrir. • Hófst 1921. • Börn fædd 1907-1912. • Greindavísitala yfir 135 þegar rannsóknin hófst.

  47. frh. • Gáfumenn áttu að vera sérstakir, • líkamlega veiklaðri, • nærsýnir, • Vinafáir • tilfinningalega bældir • hættara við geðheilsubresti • Nördar • Markmið rannsóknar að athuga hvað væri til í þessum hugmyndum

  48. Lífsafkoma könnuð • 1528 börn með frá upphafi, 671 kvk og 857 kk • Öll með greindarvísitölu yfir 135 • Kannaður greindarþroski, • áhrif GV, persónuleika og uppeldisaðstæðna á lífsafkomu, lífshamingu, félagsleg samskipti og fjölskyldulíf • Goðsögnin hefur ekki staðist, ofvitunum hefur vegnað vel í lífinu, bæði í einkalífi og starfi

  49. Vegnaði ekki öllum vel, það sem þar skipti sköpum var • Skapgerð og félagslegar aðstæður • Aðeins 3% höfðu átt við áfengisvanda að stríða • Með fimm sinnum hærri meðaltekjur en meðaltekjur í landinu • Höfðu allir gifst en 16% skilið • Heimilisaðstæður skipta máli

  50. Vandamál: • Lewis Terman lést 1956 • 1979 höfðu 40% þátttakenda fallið út • Mikið magn gagna, þ.e. 4 milljónir atriða • Samfélagið breyttist meðan á rannsókninni stóð • Fræðilegt gildi takmarkað vegna óvissuþáttanna

More Related