1 / 38

Aldursskipting og íslenskur vinnumarkaður

Nóvember 2004. Aldursskipting og íslenskur vinnumarkaður. Ásgeir Jónsson Steingrímur Arnar Finnsson. Yfirlit. 1. Af hverju skiptir aldur máli á vinnumarkaði?. Þróun aldursbundins launamunar. 2. 3. Áhrif fjármagnstekna. 4. Aldursbundnar atvinnutekjur sem mannauðsmælikvarði. Niðurstaða.

Download Presentation

Aldursskipting og íslenskur vinnumarkaður

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Nóvember 2004 Aldursskipting og íslenskur vinnumarkaður Ásgeir Jónsson Steingrímur Arnar Finnsson

  2. Yfirlit 1 Af hverju skiptir aldur máli á vinnumarkaði? Þróun aldursbundins launamunar 2 3 Áhrif fjármagnstekna 4 Aldursbundnar atvinnutekjur sem mannauðsmælikvarði Niðurstaða 5

  3. 1 Af hverju skiptir aldur máli á vinnumarkaði?

  4. Aldur fólks skiptir máli fyrir atvinnutekjur Meðalatvinnutekjur landsmanna árið 2003, m. kr. Heimild: Hagstofa Íslands

  5. Aldursstiginn hefur orðið brattari frá 1990 Meðaltekjur landsmanna eftir aldri 1990 og 2003 Heimild: Hagstofa Íslands

  6. Ástæður fyrir aldursbundnum launamun • Aldursbundin framleiðni • Menntun. Nám tekur tíma og er af flestum stundað á fyrri hluta ævinnar, en það skilar sér með hærri framleiðni á síðari hluta ævinnar. • Reynsla. Það tekur tíma að ná færni í ákveðnu starfi auk þess sem bestu störfin gera oft kröfur um reynslu frá fyrri störfum – fólk vinnur sig upp á milli starfa framan af ævinni. • Líkamleg og andleg færni. Það tekur tíma fyrir fólk að þroskast og ná fullum andlegum og líkamlegum styrk, t.d. á aldursbilinu sextán til þrítugs. Ennfremur, þegar fólk eldist minnkar líkamleg færni og hæfileikar til þess að tileinka sér nýjungar sem oft leiðir til þess framleiðnin lækkar eftir ákveðinn aldur.

  7. Ástæður fyrir aldursbundnum launamun • Tímafrek sundurgreining hæfileika. • Að sanna sig í starfi. Það tekur tíma að sanna sig í starfi og draga athygli að hæfileikum sínum og klífa metorðastigann innan fyrirtækjanna. • Biðraðir í stöðuhækkun. Ekki nægilegt að vera hæfur starfsmaður, oft þarf að bíða eftir að röðin komi að þér varðandi stöðuhækkanir sú bið getur tekið nokkur ár. • Aldursbundnir launahvatar. • Samningsbundar aldurshækkanir. Aldurshækkanir eru innbyggðar í flesta kjarasamninga hérlendis. Verkalýðsfélög hafa lagt töluverða áherslu á aldursbundnar hækkanir til sinna félagsmanna og fyrirtækin hafa einnig séð töluverðan hag í því að verðlauna tryggð.

  8. Ástæður fyrir aldursbundnum launamun • Aldursbundið vinnuframlag. • Aldursbundið vinnuþrek. Eftir að ákveðnum aldri er náð minnkar vinnuþrek, s.s. getan til þess að vinna yfirvinnu. • Aldursbundið mat á frítíma. Eldra fólk leggur oft meiri áherslu á frítíma fremur en laun og dregur úr vinnuframlagi sínu þegar líða tekur á ævina. • Aldursbundnar fjölskylduaðstæður. Barneignir auka yfirleitt vinnuálag fólks – fyrir konur skapar þetta yfirleitt auknar (ólaunaðar) skyldur innan heimilisins en fyrir karla kallar þetta yfirleitt á aukna sókn eftir launaðri vinnu utan heimilis. Konur síðan auka vinnuframlagið utan heimilis eftir að börnin hafa náð ákveðnum aldri.

  9. 2 Þróun aldursbundins launamunar 1990-2003

  10. Þróun aldurtengdra launabreytinga Meðalatvinnutekjur árið 2003 metnar með annarrar gráðu margliða • Aldursstigi launa metinn með annarrar gráðu margliðu. • Hallatala margliðunnar (fyrsta afleiða) – sem er bein lína – er síðan notaður sem mælikvarði a bratta aldurstengdra launahækkanna. • Hallatala mælir bæði hækkunina á fyrri hluta ævinnar og lækkunina á síðari hluta ævinnar Heimild: Hagstofa Íslands

  11. Atvinnutekjur rísa hraðar en áður tíðkaðist en fallhraðinn síðari hluta hefur ekki aukist jafn mikið – fólk toppar síðar á ævinni en áður Hallatölumat á aldurstiga allra landsmanna árin 1991 og 2003

  12. Munurinn er þó eilítið minni ef litið er til aldursstiga hjóna Hallatölumat á aldursstiga hjóna árin 1990 - 2003

  13. Hagsveiflur og aldursstigi • Bratti aldursstigans eykst í efnahagslegum niðursveiflum en vex í uppsveiflum. • Samræmi við kenningar um að þeir hópar sem hafi lægsta framleiðni – þeir sem eru of ungir eða of gamlir – og komi verst út úr niðursveiflum. • Skortur á vinnuafli – í uppsveiflum – getur líka leitt til þess að fólk klífi aldursstigann hraðar en áður og færist fyrr upp í launum. • Greina má langtímaleitni til meiri halla á milli áranna 1990 og 2003 sem þýðir að aldursgreining hefur vaxið á íslenskum vinnumarkaði. • Ástæðurnar gætu stafað af því að sérhæfing hafi vaxið þannig að lengri tíma tekur að afla menntunar og reynslu, og fólk komi seinna út á vinnumarkaðinn en áður og hljóti hærri umbun fyrir.

  14. Bratti hallatölu (2. afleiða) meðalatvinnutekna hefur verið að aukast á síðastliðnum áratug Þróun hallatölu meðalatvinnutekna allra landsmanna frá 1991-2003

  15. Hallatala aldursstiga hefur almennt lækkað frá því 1993 Þróun hallatölu aldursstiga atvinnutekna frá 1993-2003

  16. Kynferði og aldursstigi • Bratti aldursstigans er meiri hjá körlum – þeir vinna sig hraðar upp í tekjum yfir vinnuævina og falla hraðar á seinni hluti ævinnar. • Ef til vill hægt að tengja þetta við kenningar um „glerþak” og „límgólf”, þ.e. að konur sitji eftir þegar kemur að stöðuhækkunum. • Starfsumhverfi kvenna byggir frekar á miðlægum kjarasamningum og flatari stöðuhækkunarstrúktur. • Fjölskylduástæður gætu valdið því að karlmenn leggja fram hlutfallslega meira vinnuframlag á fyrri hluta ævinnar en endurkoma kvenna á vinnumarkað eftir barneignir veldur því að aldursstigi þeirra á seinni hluta ævinnar er flatari. • Launakjör karla – einkum ófaglærðra – ráðast ef til meira af líkamlegri starfsorku og dragast saman í takt við minnkandi vinnuþrek.

  17. Mun meiri bratti er á aldursstiga karla en kvenna – karla rísa hraðar fyrri hluta ævinnar og falla líka hraðar á seinni hluta ævinnar. Aldursstigi karla og kvenna árið 2003

  18. Halli aldurstigans hefur sýnt leitni til lækkunar hjá körlum en hækkunar á konum og munurinn hefur minnkað á milli kynja. Hallatölumat meðalatvinnutekna karla og kvenna 1993-2003

  19. 3 Áhrif fjármagnstekna

  20. Fjármagnstekjur koma til kastanna á seinni hluta ævinnar Meðalatvinnutekjur og meðalheildartekjur allra landsmanna árið 2003 Heimild: Hagstofa Íslands

  21. Fjármagnstekjur vaxa hratt með aldri Fjármagnstekjur árið 2003 • Aldursstigi annarra tekna en atvinnutekna er einnig metinn með annarrar gráðu margliðu. • Hér er einkum um að ræða fjármagnstekjur og ellilífeyri. • Hallatala margliðunnar (fyrsta afleiða) er síðan notaður sem mælikvarði á bratta aldurstengdra fjármagnstekna. Heimild: Hagstofa Íslands

  22. Fjármagnstekjur minnka á milli tvítugs og þrítugs en vaxa síðan með aldri. Atvinnutekjur aukast með aldri fram til fimmtugs en minnka svo. Aldursstigi fjármagns- og atvinnutekna landsmanna árið 2003 y=0,093X-0,194 y=-0,06X+0,4124

  23. Fjármagnstekjur koma nú til áhrifa á fyrri stigum ævinnar en áður Aldursstigi meðalfjármagnstekna allra landsmanna árin 1992 og 2003

  24. Halli meðalfjármagnstekna hefur verið að minnka Halli meðalfjármagnstekna landsmanna á árunum 1994-2003

  25. Áhrif fjármagnstekna á heildartekjur • Árið 1992 voru atvinnutekjur og lífeyrissgreiðslur nær einu tekjurnar sem um gat á Íslandi. • Frá þeim hefur vöxtur fjármálamarkaða og aukinn sparnaður orðið til þess að fjármagnstekjur fara að vera vaxandi þáttur fyrir tekjur fólks yfir fimmtugt. • Ennfremur kunna ný skattalög orðið til þess að fólk tekur laun sem fjármagnstekjur úr einkahlutafélögum. • Hækkun fjármagnstekna kann síðan að leiða til þess að hvati til launavinnu minnkar á síðari hluta ævinnar og fólk fari síðan fyrr á eftirlaun.

  26. Heildartekjur (atvinnu- og fjármagnstekjur) landsmanna árið 2003 y = -0,0442x+0,3117 y = -0,0484x+0,3672

  27. 4 Aldursbundnar atvinnutekjur sem mannauðsmælikvarði

  28. Áhrif aldursamsetningar á vinnuframboð • Aldursamsetning þjóðarinnar hefur tvíþætt áhrif á vinnuframboð. • Vinnuframboð vex hraðar en fólksfjölgun ef hlutfall þjóðarinnar á vinnualdri, 16-70 ára, fer vaxandi. Það leiðir til þess að landsframleiðsla á mann hækkar og velferðarkostnaður á mann (dependency ratio) lækkar. • Gæði vinnuframboðs fer vaxandi ef breyting á aldurssamsetningu fólks á vinnualdri er með þeim hætti að stórir árgangar eru að færast upp aldursstigann frá 16 ára til 35. Breyting á aldurssamsetningu er þá mælikvarði á mannauðsmyndun sem skapast með menntun og reynslu auk hærri atvinnuþátttöku þegar fólk kemur úr skólum inn á vinnumarkaðinn. • Þróun aldurssamsetningar þjóðarinnar hefur verið mjög hagstæð frá 1970 – hvort sem litið er magns eða gæða.

  29. Hlutfall fólks á vinnualdri mun ná hámarki árið 2015 Fólk á aldrinum 16-70 sem hlutfall af heildar mannfjölda á Íslandi Heimild: Hagstofa Íslands

  30. Aldurshækkanir sem mælikvarði á framleiðni • Aldursbundnar meðalatvinnugreiðslur eru í raun mælikvarði á aukningu í mannauði sem safnast fyrir með árunum með reynslu og menntun. Þær varpa einnig mynd af því sem gerist þegar fólk kemur út á vinnumarkaðinn að loknu námi. • Hægt er að reikna út mannauðsstuðul (Human capital index) með því að vega mannafla á vinnumarkaði með hlutfallslegum meðaltekjum eftir aldri. • Frá 1970-2004 hafa breytingar á aldurs-samsetningu mannafla skilað 12,7% aukningu á mannauð umfram fjölgun fólks á aldrinum 16-70 ára. Heimild: Hagstofa Íslands

  31. Meðalgæði vinnuaflsins mun ná hámarki árið 2006 Framleiðnistuðull mannafla miðað við aldursbundnar launagreiðslur Heimild: Hagstofa Íslands

  32. Breytingar á aldurssamsetningu hafa skilað töluverðum „labor input” í hagkerfið umfram fólksfjölgun á árunum 1965-2010 Vöxtur mannauðs umfram fólksfjölgun

  33. Áhrif aukinnar mannauðsmyndunar • Á árunum 1965-2010 jókst mannauður – mældur sem mannafli á aldrinum 16-70 leiðréttur með aldursbundinni framleiðni – umfram fólksfjölgun um 0,4-0,6% á ári. • Þetta felur í sér töluverð auka innspýtingu (input) af mannauði inn í efnahagslífið sem hefði átt að leiða til þess að hagvöxtur væri örari en ella á tímabilinu. • Ef þetta er haft í huga er auðsætt hve mjög framleiðni vinnuafls hrakaði á verðbólguárunum 1970-1992 og hve niðursveiflan 1989-1996 var í rauninni djúp. • Ennfremur sést að ekkert sérstakt framleiðniundur hefur átt sér stað á síðustu árum þar sem vöxtur landsframleiðslu á aldursleiðréttan mannafla er aðeins á meðaltali síðustu 55 ára. • Þetta felur í sér að þanþol hagkerfisins gagnvart launaskriði og aukinni vinnuaflseftirspurn hefur verið sérstaklega mikið á síðustu árum.

  34. Öldrun þjóðarinnar Landsframleiðsla á mannafla, 16-70 ára, leiðrétt fyrir aldursbundinni framleiðni

  35. Öldrun þjóðarinnar Landsframleiðsla á mann og landsframleiðsla á mannafla 16-70 ára, leiðrétt fyrir aldursbundinni framleiðni

  36. Frá 1970-2004 hafa breytingar á aldurssamsetningu mannafla á aldrinum 16-70 skilað 12,7% aukaframleiðni

  37. 5 Niðurstöður

  38. Niðurstaða • Greina má langtímaleitni til meiri halla á aldursstiga á milli áranna 1990 og 2003 sem þýðir að aldur skiptir nú meira máli fyrir atvinnutekjur en áður. • Brattinn er meiri fyrir karla en konur, en hefur farið minnkandi á síðustu 10 árum. • Fjármagnstekjur hafa farið vaxandi mjög vaxandi fyrir fólk á milli fimmtugs og sjötugs. • Hægt er að reikna út mannauðsstuðul (Human capital index) með því að vega mannafla á vinnumarkaði með hlutfallslegum meðaltekjum eftir aldri. • Frá 1970-2004 hafa breytingar á aldurs-samsetningu mannafla skilað 12,7% aukningu á mannauð umfram fjölgun fólks á aldrinum 16-70 ára. • Framleiðni vinnuafls hrakaði verulega á verðbólguárunum 1970-1992 og niðursveiflan 1989-1996 var því í rauninni ein sú dýpsta sem gengið hefur yfir landið. • Ekkert sérstakt framleiðniundur hefur átt sér stað á síðustu árum þar sem vöxtur landsframleiðslu á aldursleiðréttan mannafla er aðeins á meðaltali síðustu 55 ára.

More Related