1 / 14

Fjarnám og fjarkennsla

Fjarnám og fjarkennsla. Fyrirlestur fluttur á ráðstefnu 3f og HR 17. október 2008 Sigurlaug Kristmannsdóttir, fjarnámsstjóri VÍ. Skóli og fjarkennsla. Skólinn þarf að hafa skýr markmið með fjarkennslu Leiðirnar að markmiðunum þurfa að vera ljósar

waite
Download Presentation

Fjarnám og fjarkennsla

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Fjarnám og fjarkennsla Fyrirlestur fluttur á ráðstefnu 3f og HR 17. október 2008 Sigurlaug Kristmannsdóttir, fjarnámsstjóri VÍ

  2. Skóli og fjarkennsla • Skólinn þarf að hafa skýr markmið með fjarkennslu • Leiðirnar að markmiðunum þurfa að vera ljósar • Verkefnið þarf að vera í sterkum tengslum við skólann og • byggjast á hefðum hans og venjum • vera sýnilegt í skólanum • sem flestir starfsmenn þurfa að taka þátt • Fjarnemandi er hluti af skólanum og hann þarf að finna fyrir því, skólabragurinn þarf að smitast út í fjarnámið • Stoðkerfi skólans þurfa að vera tiltæk fjarnemendum • Bókasafn • Námsráðgjöf • Tækniaðstoð Sigurlaug Kristmannsdóttir

  3. Skipulag fjarnáms í VÍ • Þrjár annir á ári og hverri önn skipt í 10 vikur • Um 130 áfangar í boði og áfangi kenndur fyrir einn nemanda • Í hverjum áfanga er námsáætlun og þar er gerð grein fyrir • markmiðum • efnisatriðum • námsefni • verkefnum • námsmati • vikuáætlunum • Kennslukerfið (WebCT/Blackboard) er skóli í netheimum með • skólastofum fyrir hvern áfanga • miðrými þar sem nemendur hittast í frímínútum - Marmarinn • gagnasmiðju fyrir kennara • Í kennslukerfinu er • námsefni og möguleiki á samskiptum • reynt að búa til námssamfélag (bekk) nemenda Sigurlaug Kristmannsdóttir

  4. Fjarnemendur á haustönn 2008 • 810 nemendur í fjarnámi á haustönn 2008 • 6% einnig í dagskóla VÍ • 18% í grunnskólum landsins • 64% konur og 36% karlar • Meðalaldur 23,9 ár • Sá elsti fæddur 1930 • Þau yngstu fædd 1996 • Fjölmennustu árgangar • 1989, þau eru á 4. ári í framhaldsskóla • 1993, þau eru í 10. bekk grunnskóla • 65% nemenda býr á Stór-Reykjavíkursvæðinu, flestir í pnr 220 • Hver nemandi tekur að meðaltali 6 einingar • Sundurleitur hópur nemenda • Vanir námsmenn með langa skólagöngu að baki • Óöruggir nemendur eftir langt námshlé Sigurlaug Kristmannsdóttir

  5. Aldursdreifing fjarnemenda á haustönn 2008 • Sjá nánar http://www.verslo.is/fjarnam/flytivisanir/nemendur/ Sigurlaug Kristmannsdóttir

  6. Hópar fjarnemenda • Grunnskólanemendur • Nemendur VÍ og annarra framhaldsskóla • Nemendur sem hætt hafa námi og eru að safna einingum til lokaprófs • Nemendur með stúdentspróf sem eru að bæta við sig áföngum vegna framhaldsnáms • Nemendur háskóla sem eru að styrkja undirstöður sínar • Nemendur sem eru að bæta við sig vegna vinnu sinnar • Nemendur sem eru að læra sér til ánægju Sigurlaug Kristmannsdóttir

  7. Mæting í próf • Meðalmæting í próf á önn: 61,4 %. Tölur miðast við einingar. Sigurlaug Kristmannsdóttir

  8. Einkunnadreifing fjarnemenda • Einkunnadreifing á árunum 2006 og 2007 • 67,6% prófa lýkur með einkunn sem er stærri eða jafnt og 5 Sigurlaug Kristmannsdóttir

  9. Mæting í próf eftir aldri nemenda • % mæting í próf eftir aldri nemenda á haustönn 2007 Sigurlaug Kristmannsdóttir

  10. Fjarnám • Fjarnám gerir kröfur til nemandans varðandi • ábyrgð á eigin námi • námstækni • sjálfsaga • sjálfstæði • skipulagningu náms og tíma • Einnnemandiorðaðiþettasvona: • Munurinn á fjarnámiogdagskólaer í sjálfusérekkimjögmikill. Þúert í skólatilþessaðnáárangriogþeimárangrinærðubarameðstöðugrivinnuogaga. Dagskólinnerauðvitaðfélagslegriogþarerskyldumæting. Þarfinnstmérreginmunurinnliggja. Í dagskólaermaðurskyldugurtilaðmæta í tíma. Tímasemmannifinnstkannskibeturnýttur í þaufögsemmaðurerslakur í. Þarnanýtistfjarnámiðhrikalega vel. Ég á t.d. mjögauðveltmeðlestur. Ég get lesiðbókdaginnfyrirprófognáðmjöggóðumárangri. Annaðgildir um stærðfræði, eðlisfræðiogefnafræði. Þarafleiðandi gat égnýttmeiritíma í raungreinarnarogskipulagttímaminnþannig. Sveinn Óskar Hafliðason Sigurlaug Kristmannsdóttir

  11. Námsefni • Námsefni í samræmi við Aðalnámskrá framhaldsskóla • Námsgögn • Bækur og tímarit • Rafræn námsgögn á netinu • Vefsíður með efni sem öllum er frjálst að nota • Rafrænt námsefni framleitt í VÍ og vistað í kennslukerfinu • Dæmi um rafræn námsgögn á neti framleidd í VÍ • Ritvinnsluskjöl: Word, Excel, Power Point • Töflukennsla (Smartboard), stærðfræði • Talglærur (Articulate), jarðfræði • Hljóðskrár (Audacity), spænska • Kvikmyndir, setningarávarp skólastjóra • Upptaka úr tölvu (Camtasia), upplýsingar fyrir nýnema • Vélritunarforrit Sigurlaug Kristmannsdóttir

  12. Kröfur og gæði • Sömu námskröfur í fjarnámi og dagskóla • Sama námsefni • Sams konar verkefni • Sambærileg próf • Sami matskvarði • Deildir bera ábyrgð á innihaldi áfanga, prófum, námsmati • Sömu kennarar í fjarkennslu og dagskólakennslu • Skólinn ber faglegt traust til kennara, þeir eru fagmenn og tryggja gæðin • Áhersla lögð á að efla fagmennsku kennara • Tölvunámskeið • Fyrirlestrar um fjarkennslu • Samræður um fjarkennslu • Kennslureynsla • Vettvangsheimsóknir og jafningjamat Sigurlaug Kristmannsdóttir

  13. Jafningjamat byggt á vettvangsheimsóknum • Fjarkennarar gestir í áföngum hverra annarra, í þeim tilgangi að • læra af því sem þar er vel gert • benda á það sem betur mætti fara • Fjarkennarar fengu • gátlista, þar sem bent var á ýmis atriði sem betur mættu fara í kennslukerfinu • matsblað sem nota átti við úttektina á áföngum • Vinnunni var skipt í þrjá fasa • Tiltektarfasi, hver kennari lagaði til í sínum áfanga með gátlistann og matsblöðin til hliðsjónar • Matsfasi, kennarar fengu aðgang að áföngum annarra og framkvæmdu matið með því að fylla út matsblöð • Úrvinnslufasi, kennarar fengu matsblöð sinna áfanga í hendurnar og betrumbættu þá eftir því sem við átti. Fjarnámsstjóri fékk matsblöðin og vann úr þeim skýrslu sem allir fengu Sigurlaug Kristmannsdóttir

  14. Jafningjamat • Jafningjamatið var tilraun til að auka umræðu um fjarkennslu og fjarnám innan Verzlunarskóla Íslands • Áfangar eru mismunandi og þeir eiga að vera þannig • Þeir fjalla um mismunandi efni • Þeir eru misefnismiklir • Kennarar eru ólíkir og þeim lætur misvel að skipuleggja efnið sem þeir setja fram og þeir eru mislagnir við að „performera“ í kennslukerfinu • Fjarkennarar eru að læra að tileinka sér þá tækni sem felst í fjarkennslu og þurfa tíma til að ná tökum á henni. Allir leggja sig fram við að gera sitt besta og vinna sitt starf af fagmennsku • Á einu matsblaðinu kom fram þessi setning • Þegar ég opnaði viku eitt, leið mér eins og kennarinn væri við hliðina á mér! • Það ætti að vera markmið hvers fjarkennara að búa áfangann sinn þannig úr garði að nemanda finnist kennarinn standa við hlið sér þegar hann er í kennslukerfinu Sigurlaug Kristmannsdóttir

More Related