1 / 11

Vistkerfi sem undirstaða velferðar Erindi bygg t á : Millennium Ecosystem Assessment

Vistkerfi sem undirstaða velferðar Erindi bygg t á : Millennium Ecosystem Assessment. Tryggvi Felixson framkvæmdastjóri Landverndar Umhverfisþing 2005. Megin niðurstaða víðtækrar úttektar:.

vega
Download Presentation

Vistkerfi sem undirstaða velferðar Erindi bygg t á : Millennium Ecosystem Assessment

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Vistkerfi sem undirstaða velferðarErindi byggt á :Millennium Ecosystem Assessment Tryggvi Felixson framkvæmdastjóri Landverndar Umhverfisþing 2005

  2. Megin niðurstaða víðtækrar úttektar: • Síðustu 50 ár hefur maðurinn valdið hraðari og víðtækari breytingum á vistkerfum Jarðar en nokkru sinni fyrr til þess að afla sér fæðu, ferskvatns, viðar, trefja og eldsneytis. Þetta hefur valdið umtalsverðum og að megin hluta óafturkræfum breytingum á líffræðilegum fjölbreytileika á Jörðunni. • Breytingar á vistkerfum hafa bætt velferð og efnahag manna, en þessi ávinningur hefur kostað mikið þar sem mörgum vistkerfum hefur hrakað hægt og bítandi. Þessi breyting hefur valdið meiri fátækt en ella hjá vissum hópum. Ef ekki verður snúist til varnar gegn þessari þróun mun hún draga umtalsvert úr þeirri þjónustu sem komandi kynslóðir geta notið frá vistkerfum Jarðar. • Við höfum orðið vitni af hægri og bítandi hrörnun vistkerfa. Hröð hnignun sem ekki yrði hægt að stöðva gæti verið yfirvofandi. • Það má stöðva þessa óheilla þróun. Til þess þarf að breyta í grundvallaratriðum pólitískri stefnu og framkvæmdum. Merki slíkra breytinga eru ekki til staðar í dag.

  3. Focus: Ecosystem Services The benefits people obtain from ecosystems

  4. Focus: Consequences of Ecosystem Change for Human Well-being

  5. Framleiðsla, auðlindir og vistkerfi Viðhald endurnýjanlegra auðlinda: • jarðvegsviðhald • loftgæðaviðhald • loftslagsviðhald • vatnsviðhald • vatnshreinsun • varnir gegn sjúkdómum og sníkjudýrum • frjóvgun Til framleiðslu þarf: • Vinnuafl /tækniþekkingu • Fjármagn/tæki • Endurnýjanlegar auðlindir • Óendurnýjanlegar auðlindir

  6. Staða „lífsviðurværis-þjónustu”

  7. Staða „viðhalds-, varnar- og menningarþjónusta” vistkerfa

  8. Spilling vistkerfa getur dregið umtalsvert úr velferð manna • Heildarverðmæti þess að viðhalda vistkerfum getur oft á tíðum verið meira en að umbreyta þeim til annarra nota. • Engu að síður er oft farið út í umbreytingu vistkerfa þar sem einkahagsmunir eru meiri við umbreytingu þeirra en viðhald.

  9. Vistkerfaþjónusta og þjóðhagsreikningar • Glötuð verðmæti vegna spillingar á þjónustu vistkerfa • eru ekki færð til afskrifta í þjóðhagsreikningum • Vistkerfisþjónusta og auðlindir eins og málmar, næringarefni í jarðvegi og jarðefnaeldsneyti eru í hagrænu samhengi sambærileg við hverja aðra fastafjármuni. • Hefðbundnir þjóðhagsreikningar taka ekki tillit til eyðileggingar á auðlindum og vistkerfum. • Þjóð sem heggur niður skóg eða eyðileggur fiskimið færir tekjur af þessari starfsemi í þjóðhagsreikninga en greinir ekki frá því raunverulega eignartapi sem þessu fylgir. • Athugun frá árinu 2001 bendir til þess að nokkur lönd sem sýndu jákvæða eignarmyndum í þjóðhagsreikningum hafi í raun verið að ganga á þjóðarauð þegar áhrif þessarar nýtingar á auðlindir voru meðtaldar.

  10. Viðbrögð • Tækniþróun • Stuðla að tækniþróun sem eykur afköst án þess að valda skaða á vistkerfum. • Endurreisa vistkerfi. • Hvetja til tækniþróunar sem eykur orkunýtni og dregur úr losun gróðuhúsalofttegunda. • Atferli • Aðgerðir til að draga úr neyslu á þjónustu sem ekki er hægt að veita án þess að skaða vistkerfi. • Efla samfélagshópa sem byggja afkomu beint á þjónustu vistkerfa. • Þekking • Afla þekkingar sem gerir kleift að leggja mat á verðmæti vistkerfisþjónustu sem ekki hefur markaðsvirði og hafa þessar upplýsingar til hliðsjónar þegar teknar eru ákvarðanir um nýtingu auðlinda. • Efla getu samfélagsins til að takast á við þessi mál.

  11. Maðurinn lifir af náttúrunni ...en ekki af tækninni.

More Related