1 / 20

Klausturlíf

Klausturlíf. Upphaf og skipulag klausturlifnaðar. Ásókn í einveru. Í öllum stóru trúarbrögðum heims hefur það þekkst að einangra sig frá skarkala heimsins og leita hins guðlega í einveru

stephan
Download Presentation

Klausturlíf

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Klausturlíf Upphaf og skipulag klausturlifnaðar

  2. Ásókn í einveru • Í öllum stóru trúarbrögðum heims hefur það þekkst að einangra sig frá skarkala heimsins og leita hins guðlega í einveru • Í frásögnum guðspjallanna kemur víða fram að Jesús dró sig gjarnan í hlé er hann baðst fyrir og oft í lengri tíma • Strax á fyrstu öldum kristinnar trúar tók þess að gæta að heittrúað fólk leitaði næðis út í óbyggðum til að iðka þar trú sína Valdimar Stefánsson

  3. Eyðimerkurfeðurnir • Á 4. öld tók að bera á óánægju manna með eignasöfnun og stjórnmálaþátttöku kirkjunnar sem jókst til muna er hún tengdist ríkisvaldinu betur • Í Egyptalandi tók nú fólk að stunda það að setjast að út í eyðimörkinni og iðka þar meinlætalíf og trúaríhugun • Orðspor þeirra ýtti undir aðdáun almennings og farið var að nefna þá eyðimerkurfeðurna Valdimar Stefánsson

  4. Eyðimerkurfaðirinn Antóníus • Antóníus (251 – 356) mun hafa lokað sig af í yfirgefnu virki í yfir 20 ár og iðkað þar bænahald og íhugun • Fregnir um þennan heilaga mann bárust út og fólk fór að koma um langan veg og setjast að í námunda við virkið • Einn daginn gekk Antóníus út úr virkinu og tók að predika og kenna • Áður en langt um leið var hann orðinn andlegur faðir í samfélagi meinlætamanna og fyrsta kristna klaustrið varð til Valdimar Stefánsson

  5. Eyðimerkurfaðirinn Pakómíus • Pakómíus mun hafa stofnað fyrsta formlega klaustur kristinna í Egyptalandi árið 320 • Klaustrið var deildaskipt eftir kynjum því það voru ekki síður konur en karlar sem leituðu út í eyðimörkina • Áður en yfir lauk hafði Pakómíus stofnað að minnsta kosti ellefu klaustur með yfir sjö þúsund íbúum sem allir lifðu við strangan aga og meinlæti Valdimar Stefánsson

  6. Basil af Cesareu • Basil (330 – 379) hafði annan hátt á er hann stofnaði klaustur sitt • Þótt lítið væri slegið af aga og reglufestu snerist klausturlífið ekki um einveru sálarinnar heldur unnu klausturbúar líknar- og lækningastörf auk þess sem börn hlutu ókeypis menntun innan klausturveggjanna • Klausturhefð Basils varð síðan fyrirmynd annarra klaustra í rétttrúnaðarkirkjunni allt til dagsins í dag Valdimar Stefánsson

  7. Vesturkirkjan tekur við sér • Benedikt frá Núrsíu (480 – 543) er upphafsmaður klausturlífs í Vestur-Evrópu • Hann stofnaði klaustur sitt á Cassino-fjalli á Ítalíu árið 529 • Klausturlífið byggðist upp á reglufestu og samblandi af bænahaldi og líkamlegri vinnu • Munkarnir hétu því að ástunda skírlífi og skilyrðislausa hlýðni við yfirboðara auk þess sem þeir afsöluðu sér persónulegum eignarétti Valdimar Stefánsson

  8. Benediktareglan • Regla heilags Benedikts mótaði alla klausturhefð í Vestur-Evrópu um aldir • Klaustrin urðu helstu menningarmiðstöðvar samfélagsins og björguðu í raun menningu fornaldar frá glötun auk þess sem þau sáu nánast ein um alla menntun • Benediktareglan treysti þannig innviði kirkjunnar og jók vald hennar út á við • Benediktsklaustur voru stofnuð hér á landi, Þingeyraklaustur, Munkaþverárklaustur o. fl. Valdimar Stefánsson

  9. Nunnuklaustur • Ekki leið langur tími frá stofnun munkaklaustra þar til nunnuklaustur voru stofnuð en systir Benedikts stofnaði fyrsta nunnuklaustrið á Ítalíu • Konur sem gáfu sig guði á vald og gengu í klaustur höfðu sömu aðstöðu og karlar til að leita sér menntunar • Auk þess sem konurnar sjálfar stjórnuðu klaustrunum þótt yfirstjórn kirkjunnar sjálfrar væri ætíð í höndum karla Valdimar Stefánsson

  10. Klaustrin og þjóðskipulagið • Vinna munkanna við jarðrækt skilaði miklum arði er fram liðu stundir • Að auki hlutu klaustur oft lönd að gjöf og leiguliðar sem byggðu löndin gáfu af sér góðar tekjur • Með því að kirkja og klaustur gerðust umsvifamiklir landeigendur urðu fulltrúar þeirra hluti af lénskerfinu, meginuppistöðunni í þjóðfélagsskipan Evrópu Valdimar Stefánsson

  11. Klaustrin og þjóðskipulagið • Með eignasöfnun kirkju og klaustra fléttuðust saman hagsmunir þeirra og veraldlega höfðingja í gegnum margslungin bandalög lénskerfisins • Þetta skapaði óánægju hjá mörgu klausturfólki sem þótti hin veraldlega umsýsla draga úr hreinni og ótruflaðri iðkun trúarinnar • Fram komu skipulagðar hreyfingar sem boðuðu umbætur í starfi klaustranna Valdimar Stefánsson

  12. Cluny-hreyfingin • Ein áhrifamesta umbótahreyfingin er sú sem kennd er við Benediktsklaustrið í Cluny í Frakklandi • Cluny-hreyfingin var stofnuð árið 910 og skaut fljótlega rótum víða um Evrópu • Vægi Cluny-klaustursins óx stöðugt og var um miðja 12. öld orðið mikilvægasta miðstöð kristni í Evrópu að Róm frátalinni • Tveir atkvæðamestu páfar hámiðalda, Gregoríus VII og Urbanus II, komu úr röðum Cluny-manna Valdimar Stefánsson

  13. Cluny-hreyfingin • Það sem skildi á milli Cluny-klaustra og annarra var að öll klaustur Cluny-hreyfingarinnar lutu ábótanum í Cluny • Annað sérkenni var það að meiri áhersla var lögð á samfellt bænahald á kostnað hinnar líkamlegu vinnu • Cluny-klaustrin lögðu einnig áherslu á að veita munkum hagnýta þjálfun í greinum sem vörðuðu iðkun og skipulag trúarinnar; þannig varð hreyfingin öflug uppeldisstöð kirkjuleiðtoga Valdimar Stefánsson

  14. Cistersíana-hreyfingin • Ekki leið á löngu þar til Cluny-hreyfingin fékk á sig sömu gagnrýni fyrir veraldarhyggju og græðgi og hún hafði áður veitt eldri reglum • Þá kom fram ný regla sem kennd var við klaustur eitt í Citeaux í Frakklandi og byggði á forskrift heilags Benedikts líkt og Cluny-reglan • Þar var boðað afturhvarf til einfaldleika og tilbeiðslu og áhersla lögð á sjálfsaga og einbeitingu Valdimar Stefánsson

  15. Cistersíana-hreyfingin • Hreyfingin breiddist hratt út og undir lok 12 aldar voru 650 Cistersíana-klaustur starfandi víðs vegar um Evrópu • Klaustrin voru gjarnan reist á harðbýlum stöðum þar sem hafa þurfti fyrir lífinu • Cistersíanar höfðu mikil áhrif á þróun landbúnaðar í Evrópu með ýmsum nýjungum sem þeir innleidd við landnýtingu Valdimar Stefánsson

  16. Bernharður af Clairvaux (1090-1153) • Bernharður af Clairvaux var þekktasti talsmaður Cistersíana-hreyfingarinnar • Hann var ákafamaður í trú og starfi og boðaði trú sem var persónuleg og tilfinningaþrungin • Þrátt fyrir þessa áherslu á innileika og persónulega trúarupplifun var hann líka eindreginn fylgismaður kirkjunnar og var alla tíð nátengdur yfirmönnum hennar Valdimar Stefánsson

  17. Ágústínusarkanúkar • Önnur áhrifamikil regla sem lét að sér kveða á sama tíma og Cistersíana-reglan var kennd við Ágústínus kirkjuföður • Reglubræðurnir voru vígðir prestar og lögðu mikið upp úr vandaðri guðfræði og var hreyfingin m. a. sterk á Norðurlöndunum • Á Íslandi voru stofnuð kanúkaklaustur svo sem í Þykkvabæ og í Viðey • Þekktasti Íslendingurinn úr reglu Ágústínusarkanúka er heilagur Þorlákur sem mest barðist fyrir kirkjuvaldsstefnunni á Íslandi Valdimar Stefánsson

  18. Förumunkar • Á 13 öld komu fram svo kallaðar betli- eða förumunkareglur sem störfuðu úti í samfélaginu við fræðslu og umönnun þeirra sem liðu skort • Þessar reglur reistu sér engin klaustur • Þekktastar þeirra er tvær reglur sem kenndar voru við stofnendur þeirra: heilagan Frans frá Assisi (1182 – 1226) og heilagan Dóminíkanus (1170 – 1221) Valdimar Stefánsson

  19. Förumunkar: Fransiskanar • Frans frá Assisi var auðmannssonur sem fékk þá köllun að yfirgefa allsnægtarlíf sitt og helga sig þjónustu við náungann • Skýlaus krafa hans um fátækt reglubræðra að fyrirmynd postulanna átti eftir að leiða hluta Fransiskana til andstöðu við kirkjuna um skeið • Fransiskanar (grámunkar) nutu jafnan mikillar virðingar sökum fátæktarinnar, hjálpseminnar og þeirrar trúboðsstarfsemi sem þeir stunduðu Valdimar Stefánsson

  20. Förumunkar: Dóminíkanar • Dóminíkanar (svartmunkar) störfuðu á mun vitrænni grundvelli en Fransiskanar og lögðu mikið upp úr guðfræðilegri undirstöðu predikunarinnar • Í krafti lærdóms síns voru dóminikanar gjarnan settir rannsóknardómarar innan rannsóknaréttarins sem hefur ef til vill veitt þeim neikvæðari umfjöllun, á síðari öldum, en þeir eiga skilið Valdimar Stefánsson

More Related