1 / 70

Aðlögunarsamningur ríkis og garðyrkjubænda 2002-2012- Hverju hefur hann skilað og þá hverjum?

Haustfundur Sambands garðyrkjubænda 2013. Sigurður Jóhannesson. Aðlögunarsamningur ríkis og garðyrkjubænda 2002-2012- Hverju hefur hann skilað og þá hverjum?. Lagalegt umhverfi og stuðningur. Straumhvörf 2002. Aðlögunarsamningur.... Markmið: að lækka verð til neytenda á garðyrkjuafurðum.

osborn
Download Presentation

Aðlögunarsamningur ríkis og garðyrkjubænda 2002-2012- Hverju hefur hann skilað og þá hverjum?

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Haustfundur Sambands garðyrkjubænda 2013. Sigurður Jóhannesson. Aðlögunarsamningur ríkis og garðyrkjubænda 2002-2012- Hverju hefur hann skilað og þá hverjum?

  2. Lagalegt umhverfi og stuðningur • Straumhvörf 2002. Aðlögunarsamningur.... • Markmið: • að lækka verð til neytenda á garðyrkjuafurðum. • að auka hagkvæmni og samkeppnishæfi innlendrar grænmetisframleiðslu. • að treysta tekjugrundvöll grænmetisframleiðenda. • að styðja framleiðslu- og markaðsmöguleika innlendrar framleiðslu. • Hér hefur verið lagt mat á það hve vel hefur tekist til um nokkur þessara atriða.

  3. Tollar falla niður á sumum tegundum grænmetis... • Tollar felldir niður á tómötum, gúrkum og papriku. • Beingreiðslur 195 milljónir á ári, um 350 milljónir á verðlagi 2012. • Greiðslur skyldu vera í samræmi við selt magn í fyrsta gæðaflokki. Allir framleiðendur eiga rétt á greiðslum. • Gert ráð fyrir óbreyttum fjárhæðum m.v. 2,5% verðbólgu.

  4. ...tollar breytast á öðrum. • Tollvernd annars grænmetis breytt: • 30% verðtollur felldur niður. • Magntollur (krónutollur) settur á í staðinn, skyldi ekki valda verðhækkunum. • Þar sem fákeppni ríki verði magntollur þannig að hann skapi sanngjarnt verðaðhald.

  5. Niðurgreitt rafmagn, úrelding... • Ylræktendum tryggt rafmagn til lýsingar á sambærilegu verði og í Kanada og Noregi. • Jafnframt 5 milljónir króna til fjárfestinga í ljósum..... • Úrelding gróðurhúsa. • 30 milljónir króna á ári í 5 ár.... • Framlög til kynninga - rannsókna o.þ.h. • 25 milljónir á ári. • Komið yrði upp samstarfi til að fylgjast með verði garðyrkjuafurða og ávaxta...

  6. Stuðningur við grænmetisbændur, milljónir króna á verðlagi neyslu 2012 Heimildir: Ríkisreikningur, Hagstofan, eigin útreikningar og áætlanir.

  7. Hvernig hefur stuðningurinn þróast? • Stuðningur ríkis og neytenda minnkar um fjórðung 2002, nálægt 200 milljónum á ári. • Beinar greiðslur til bænda minnka eftir 2002, niðurgreiðslur á rafmagni aukast. • Stuðningur er svipað hlutfall af markaðsverði framan af, en minnkar nokkuð 2008. • Stuðningur ríkis og neytenda um 40% af vinnsluvirði í garðyrkju 2011. • Hlutfall stuðnings af rekstrartekjum 20-25%. • Nálægt 50% í öðrum búgreinum.

  8. Nánar um innflutningsvernd • Tölur um innflutningsvernd reistar á hlutfalli innflutnings og tolltekna. • Kann að vera misvísandi þegar tollur er aðeins lagður á hluta úr ári. • Minna er flutt inn þegar tollur er lagður á en aðra mánuði. • Ef miðað er við verðlækkun grænmetis eftir að tollar lækkuðu minnkaði tollvernd ekki um 7-8 hundruð milljónir árið 2002 (á verðlagi 2012) heldur um tæplega 1½ milljarð króna. • Ávinningur neytenda og skattgreiðenda af breytingunni verður þá allt að 1 milljarði króna...

  9. Framhald á stuðningi við garðyrkju? • Aðild að Evrópusambandinu breytir sennilega litlu fyrir framleiðslu á gúrkum, tómötum og papriku. • Þessar greinar hafa þegar tekið á sig það högg sem leiddi af niðurfellingu tolla. • Reynsla þessara greina af aðgerðunum 2002 gæti verið vísbending um hvers má vænta í öðrum greinum garðyrkju ef Íslendingar ganga í Sambandið.

  10. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á verð á grænmeti? • Árið 2001 voru innheimtir tollar á grænmeti 24% af innflutningsverði grænmetis (með flutningskostnaði). • Árið 2003 var hlutfallið rúm 3%. • Lækkun innflutningsverðs og tolla vegna minni tollverndar er þá um 17%. • Ofan á þetta verð leggst kostnaður við dreifingu og verslunarálagning • Vegin verðlækkun á grænmeti miðað við vísitölu neysluverðs eftir 2002 er 20%, eða rúmlega það.

  11. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á verð á grænmeti? Meðalverð á grænmeti, kartöflum o.fl. miðað við vísitölu neysluverðs, meðaltal 2000-2001=100. Rauðu strikin sýna meðaltal. Heimildir: Hagstofa Íslands, eigin útreikningar.

  12. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á verð á tómötum, gúrkum og papriku? Verð á grænmeti miðað við almennt neysluverð 2012. Heimild: Hagstofa, eigin útreikningar.

  13. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á verð á tómötum, gúrkum og papriku? • Verð á tómötum lækkaði um helming miðað við almennt neysluverð, gúrkuverð heldur meira, verð á paprikum aðeins minna. • Síðan hefur verð þessara tegunda haldist nokkuð stöðugt miðað við almennt neysluverð. • Verðið hækkaði nokkuð árið 2008, þegar gengi krónunnar hrundi.

  14. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á verð á lauk, sveppum og hvítkáli? Verð á grænmeti miðað við almennt neysluverð 2012. Heimild: Hagstofa, eigin útreikningar.

  15. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á verð á kartöflum, rófum og kínakáli? Verð á grænmeti miðað við almennt neysluverð 2012. Heimild: Hagstofa, eigin útreikningar.

  16. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á verð á gulrótum og blómkáli? Verð á grænmeti miðað við almennt neysluverð 2012. Heimild: Hagstofa, eigin útreikningar.

  17. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á verð á grænmeti? • Verð á lauk og sveppum breyttist lítið 2002, en aðrar tegundir lækkuðu í verði um 10-15%. • Verðið lækkaði áfram næstu ár. • Sterk króna stuðlaði að lægra grænmetisverði... • Þegar krónan hrundi 2008 hækkaði verð kartaflna og flestra tegunda grænmetis miðað við almennt neysluverð...

  18. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á neyslu á tómötum, gúrkum og papriku?

  19. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á neyslu á tómötum, gúrkum og papriku? • Neysla á papriku jókst um helming (100%) frá 2001 til 2007, neysla á tómötum um nálægt 50% og neysla á gúrkum litlu minna.

  20. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á neyslu á kartöflum, rófum, gulrótum, káli og sveppum?

  21. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á neyslu á kartöflum, rófum, gulrótum, káli og sveppum? • Neysla á öðrum tegundum en kartöflum hefur einnig aukist. • Einkum á rófum og gulrótum.

  22. Hvaða vernd felst í flutningskostnaði frá útlöndum? Munur á verði á hafnarbakka (e. fob) og verði með flutningskostnaði (e. cif). Heimild: Hagstofan, eigin útreikningar.

  23. Flutningskostnaður hefur lækkað. • Veruleg vernd í flutningskostnaði frá útlöndum. • Mestur á sveppum, um 50%, lægstur á tómötum og papriku, algengast að hann sé 10-20% árið 2012. • Óvegið meðaltal um 37% af verði á hafnarbakka erlendis 2012 en nálægt 25% 2012. • Fjarlægðarverndin hefur minnkað mikið.

  24. Markaðshlutdeild innlends grænmetis Reiknað út frá tonnum af hverri grænmetistegund fyrir sig (kartöflur eru hér taldar með grænmeti). Heimildir: Hagstofa Íslands, eigin útreikningar. Athugið að skorið er af kvarðanum við 54%.

  25. Markaðshlutdeild íslensks grænmetis • Niðurfelling tolla 2002 högg fyrir íslenska framleiðendur. • Markaðshlutdeild úr rúmum 70% 2001 í rúm 60% 2005. • Hrun í hlutdeild innlendrar papriku. • Eftir 2005 tók hlutur innlendrar framleiðslu að vaxa aftur. Var 66% 2012, enn nokkru minni en 2001.

  26. Markaðshlutdeild

  27. Markaðshlutdeild tómata, gúrkna og papriku. • Hlutdeild innlendra gúrkna og tómata nú meiri en 2001. • ....en hlutdeild íslenskrar papriku minni en þá.

  28. Markaðshlutdeild íslenskra kartaflna, rótarávaxta, káls og sveppa

  29. Markaðshlutdeild íslenskra kartaflna, rótarávaxta, káls og sveppa • Markaðshlutdeild innlendrar kartöfluframleiðslu hefur minnkað jafnt og þétt... • Hlutdeild íslenskrar framleiðslu í neyslu ýmissa tegunda grænmetis minnkaði á hágengisskeiðinu en jókst eftir að krónan hrundi 2008.

  30. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á framleiðslu á innlendu grænmeti? Tollar lækka Myndin sýnir framleiðslu á grænmeti á Íslandi í milljónum króna á útsöluverði 2001. Heimildir: Hagstofa Íslands, eigin útreikningar.

  31. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á framleiðslu á innlendu grænmeti? • Framleiðslan dróst saman um tæpan fimmtung frá 2001 til 2003, mælt á föstu verðlagi. • Allur samdrátturinn í kartöfluframleiðslu.... • Framleiðslan jókst mikið 2006 • Einkum vegna meiri kartöfluframleiðslu. • Framleiðslan eykst smám saman þegar horft er á allt tímabilið.

  32. Hvaða áhrif hafði breytingin 2002 á framleiðslu á innlendu grænmeti? Framleiðsla á grænmeti, milljónir króna á verðlagi 2001. Heimildir: Hagstofa, eigin útreikningar.

  33. Framleiðsla á tómötum, gúrkum og papriku Framleiðsla í milljónum króna á föstu verði 2001. Heimildir: Hagstofa Íslands, eigin útreikningar.

  34. Framleiðsla á gúrkum, tómötum og papriku • Samdráttur 2001-2003 en eftir það hefur ræktun allra þessara tegunda aukist mikið. • Árið 2012 var yfir 60% meira ræktað af þessum tegundum en 2001, mælt á föstu verðlagi. • Á sama tíma jókst framleiðsla annars grænmetis og kartaflna um rúm 5%.

  35. Hlutfall garðyrkju af landsframleiðslu Mælikvarði á landsframleiðslu er vergar þáttatekjur. Heimild: Hagstofa Íslands, eigin áætlanir. Skipt er um matsaðferð 2007 og eru þáttatekjur fyrir fyrri ár áætlaðar.

  36. Hlutur garðyrkju af landsframleiðslu • Hlutur garðyrkju af landsframleiðslu er rúmlega 0,1%. • Hlutfallið minnkaði á hágengisskeiðinu, en jókst eftir að krónan hrundi.

  37. Hverju munar á verði innlendra vara og erlendra? Myndin sýnir hlutfall skilaverðs til bænda og innflutningsverðs. Heimildir: Bændasamtökin, Hagstofa Íslands.

  38. Hverju munar á verði innfluttra vara og innlendra? • Innlendir tómatar og paprika hafa hækkað í verði miðað við innflutning. • Íslensk vara er nýrri en innflutt. • Innlendir framleiðendur undirstrika sérstöðu vöru sinnar með áberandi umbúðum. • Litlu munar á verði innlendra gúrkna og útlendra.

  39. Samhengi verðs, tekna og grænmetisneyslu-rannsókn. • Metum hlutdeild grænmetis, ávaxta, kjöts og fisks og annarra matvara í matarkaupum, sem fall af verði þessara 4 vöruflokka og matarkaupum á mann á föstu verðlagi. • Tímabil: 1993-2011, 19 athuganir. • Aðferð: nær fullkomið eftirspurnarkerfi (e. AIDS). Styðst við niðurstöður úr rekstrarhagfræði. Tímalaust líkan.

  40. Hvernig bregst grænmetissala við þegar verð hækkar? • Verðteygni grænmetis 1993-2011 er -0,8. • Þegar grænmeti lækkar í verði um 1% eykst eftirspurn um 0,8%. • eftirspurnin er óteygin, sem kallað er, þ.e. minni en 1, þó að ekki muni miklu. • skilyrt eftirspurn, gert ráð fyrir að hlutur matar í neyslu breytist ekki (óskilyrt tala sennilega hærri). • gögn um eftirspurn frá 1993 til 2000 áætluð að hluta, en niðurstöður breytast ekki mikið þó að þessum árum sé sleppt. Verðlækkunin 2002 gefur mestar upplýsingar.

  41. Samanburður við erlendar rannsóknir • Niðurstaðan er ekki langt frá því sem komið hefur fram í öðrum evrópskum rannsóknum. • 17 athuganir frá öðrum Evrópulöndum gefa verðteygni frá 0 til -0,9 fyrir eftirspurn eftir grænmeti og ávöxtum... • Meðaltal á bilinu -0,4 til -0,5. • Rannsókn Galdeanos frá 2001 á spænskum gögnum frá 1996-1999 bendir til þess að verðteygni nýs grænmetis þar í landi sé um -0,7.

  42. Sala á unnu grænmeti næm fyrir verðbreytingum... • Rannsókn Galdeanos frá 2001 bendir til þess að sala á unnu grænmeti sé næmari fyrir verðbreytingum (teygnari) en sala á nýju grænmeti.

  43. Samhengi verðs og grænmetisneyslu • Sænsk rannsókn sýnir að sala á grænmeti var ekki eins næm fyrir verðbreytingum á árunum 1980-2006 og áratugina á undan. • Möguleg skýring: Grænmeti lækkaði í verði. • Tekjuteygni grænmetissölu í Svíþjóð jókst hins vegar töluvert frá 1960-1979 til 1980-2006.

  44. Hvernig bregst grænmetissala við þegar tekjur aukast? • Tekjuteygni á Íslandi (skilyrt) er 2,4. • Ef tekjur (matarinnkaup) hækka um 1% aukast kaup á grænmeti um 2,4%. • Tekjuteygni frá 2001-2011 er 1,8. • Rannsókn frá Spáni frá 1996-1999 bendir til þess að tekjuteygni nýs grænmetis sé um 1,4...

  45. Grænmetisneysla vex • Neysla grænmetis hefur vaxið mikið bæði á Íslandi og í öðrum löndum undanfarna áratugi. • Í Svíþjóð þrefaldaðist neysla á mann á nýju grænmeti, öðru en kartöflum,í kílóum frá 1960 til 2006. • Neysla á nýjum kartöflum minnkaði mikið.

  46. Tekjuteygni tegunda grænmetis... • Bæði íslenska rannsóknin og rannsókn Galdeanos frá 2001, benda til þess að sala á nýju grænmeti sé munaðarvara, þ.e. að eftirspurn aukist meira en nemur auknum tekjum... • Almennt má segja að eftirspurn eftir vönduðum vörum vaxi þegar tekjur aukast. • Rannsókn Galdeanos bendir til að unnið grænmeti, þ.e. dósamatur og þess háttar, sé óæðri vara, sem kallað er, þ.e. eftirspurn minnki þegar tekjur aukast.

  47. Grænmetisneysla eykst þegar verð lækkar • Íslendingar brugðust við verðlækkun á grænmeti 2002 með því að kaupa mun meira af nýju grænmeti en áður. • Í samræmi við niðurstöður frá öðrum löndum. • Niðurstöðurnar eru vísbending um hvað kann að gerast ef tollar verða lækkaðir á öðrum grænmetistegundum. • Ef tollar verða lækkaðir á öllum matvörum verða viðbrögðin sennilega minni.

  48. Hvaða áhrif hafa markaðsherferðir? • Upplýsingagjöf um áhrif matvara á heilsu virðist hafa áhrif á sölu þeirra. • Merkingar skipta máli. • Nokkrar rannsóknir benda hins vegar til þess að auglýsingar á matvörum hafi lítil eða engin áhrif. • Rickertsen (1995, 1998) rannsakaði áhrif auglýsinga á sölu á grænmeti í Noregi og Chang o.fl. (1991) skoðuðu sölu á matarolíu í Kanada.

  49. Afkoma-blómarækt Hagnaður sem hlutfall af rekstrartekjum. Heimild: Hagþjónusta landbúnaðarins, eigin útreikningar. Nýrri tölur liggja ekki fyrir.

  50. Afkoma - blómarækt • Afar slæm afkoma á fyrstu árum aldarinnar. • Þokkaleg um miðjan áratuginn. • Hrun krónunnar mikið áfall... • ....að því er virðist. • Ágæt afkoma 2010.

More Related