1 / 20

Erfðir og erfðaefni

Erfðir og erfðaefni. 4.Kafli Maður og náttúra. “Margt er líkt með skyldum”. Við fáum í vöggugjöf eiginleika frá báðum foreldrum okkar. Erfðaefni okkar, uppskriftin að því hver við erum, er að finna inni í frumukjarna hverrar einustu frumu okkar (að undanskildum kynfrumunum).

kolton
Download Presentation

Erfðir og erfðaefni

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Erfðir og erfðaefni 4.Kafli Maður og náttúra

  2. “Margt er líkt með skyldum” • Við fáum í vöggugjöf eiginleika frá báðum foreldrum okkar. • Erfðaefni okkar, uppskriftin að því hver við erum, er að finna inni í frumukjarna hverrar einustu frumu okkar (að undanskildum kynfrumunum). • http://eyjan.pressan.is/frettir/2009/10/27/breska-konungsfjolskyldan-aettarsvipur-old-eftir-old/

  3. Hvað er erfðaefni? • Í frumukjarna mannsfrumu er að finna 46 litninga í 23 litningapörum. • Í hverjum litningi er gríðarlöng DNA-sameind, sem er vafin utan um prótín. Þessi sameind er í raun erfðaefni okkar. • Hver DNA-sameind skiptist niður í mörg gen (erfðavísa), sem hvert um sig ræður einum tilteknum eiginleika.

  4. DNA-sameindin • DNA-sameindin er tvöfaldur gormur úr tveimur langböndum sem eru tengd saman með þverböndum. Þverböndin eru úr fjórum mismunandi niturbösum: A, C, G og T Þeir mynda stafróf erfðanna. • Um 3 milljarðar svona bókstafapara eru í DNA-sameindunum í hverri frumu mannslíkamans. C T G A C C A G G T C C G

  5. Gen • Hvert gen er uppskrift að ákveðnu prótíni, en þau gegna margvíslegum hlutverkum í frumum okkar. • Aðeins hluti genanna er virkur í hverri frumugerð, þ.e. ekki sama útlit og starfsemi í húðfrumu og hjartafrumu. • Eins geta frumur kveikt og slökkt á virkni genanna. • Margir eiginleikar okkar ráðast af samspili milli erfða og umhverfis.

  6. Samantekt: • Niturbasarnir A,G,C og T mynda þverböndin í DNA-sameindinni. • DNA-sameindin er tvöfaldur gormur tengdur með niturbasapörum (A-T og C-G) • Genin eru hlutar úr DNA-sameindinni og hvert þeirra inniheldur uppskrift að ákveðnu prótíni. • DNA-sameindinni er pakkað þétt saman í litning. • Litningarnir mynda pör innan í frumukjarnanum (23 pör í manninum). • Lífvera er oftast búin til úr milljónum frumna sem allar innihalda sömu erfðaupplýsingarnar.

  7. Jafnskipting - Mítósa • Flestar frumur líkamans geta skipt sér og nýjar frumur verða til með nákvæmlega sömu erfðaupplýsingum og fyrsta fruman hafði að geyma. • Fyrir skiptinguna raknar DNA-gormurinn upp og nýir niturbasar (A,T, C og G) raða sér á móti hvoru langbandi fyrir sig. Þannig verða til tvö eintök af móðurlitningnum. • Eintökin tvö fara í sitt hvorn endann á frumunni. • Fruman dregst svo saman í miðjunni og tvær frumur með nákvæmlega sömu erfðaupplýsingar verða til.

  8. DNA afritun Mítósa - myndrænt

  9. Rýrisskipting - meiósa • Kynfrumur okkar hafa ekki 23 litningapör í sér heldur einungis 23 staka litninga. Þær verða til við rýrisskiptingu. Hún gerist í tveimur þrepum þannig að úr einni móðurfrumu verða til 4 dótturfrumur.

  10. Okfruma til einstaklings • Við frjóvgun sameinast stöku litningarnir í sáðfrumunni og eggfrumunni og úr verður ein fruma með 46 litninga (23 litningapör) Þessi fruma kallast okfruma. • Litningapar nr.23 er ólíkt í konum og körlum og kallast kynlitningar. • Konur hafa samstæða litninga (XX) en karlar hafa einn X-litning og einn Y-litning.

  11. Litningar karls

  12. Stelpa eða strákur?

  13. Lögmál erfðanna • Genasamsæta: Gen sem sitja á sama stað á samstæðum litningum • Ríkjandi gen: Gen sem ráða því alltaf hvort eiginleikinn kemur fram. Yfirleitt táknuð með stórum bókstaf. • Víkjandi gen: gen sem þú þarft að erfa frá bæði föður og móður til að eiginleikinn komi fram. Yfirleitt táknuð með litlum bókstaf. • Arfhreinn: Sá sem hefur tvö ríkjandi eða tvö víkjandi gen í genasamsætu er sagður arfhreinn. • Arfblendinn: Sá sem hefur eitt ríkjandi gen og eitt víkjandi gen í genasamsætu er sagður arfblendinn.

  14. Erfðagallar • Galli sem hefur orðið í afritun á litningum kynfrumu erfist til afkvæmis. Þá er talað um erfðasjúkdóma. • Stökkbreyting er varanlegur galli í geni. Þetta er yfirleitt skaðlegt t.d. krabbamein, en getur líka verið til þess að nýr og heppilegur eiginleiki verður til => þróun nýrra tegunda.

  15. Kyntengdar erfðir • Sum gen eru bara á X-litningnum. • Sjúkdómar af völdum galla í því geni koma miklu oftar fram hjá körlum, t.d. dreyrasýki og litblinda, þar sem karlar hafa bara einn X-litning. Konur þurfa að hafa gallann í báðum sínum X-litningum til að sjúkdómurinn komi fram í þeim.

  16. Dreyrasýki

  17. Erfðatækni • Rannsókn á genum og breytingar á þeim kallast erfðatækni. • Lyfjaframleiðsla: Bakteríur og aðrar örverur notaðar til að framleiða lyf handa mönnum. • Genalækningar: Vonir bundnar við að hægt sé ráða bót á ýmsum erfðasjúkdómum og jafnvel krabbameini. • Genapróf: Gert á öllum nýfæddum börnum á Íslandi til að athuga með þekkta erfðasjúkdóma. • Erfðamengi okkar og margra annarra lífvera hefur verið kortlagt. Þar er hægt að sjá röð niturbasanna og hvar einstök gen sitja.

  18. Erfðafræði og matvæli • Menn hafa lengi fengist við kynbætur plantna og dýra, þar sem hagstæðum genum er blandað saman til að fá fram eiginleika á borð við stærri fræ og kjötmeiri skepnur. • Þegar fengist er við að erfðabreyta lífverum eru gen flutt á milli tegunda og þannig er hægt að fá fram eiginleika lífvera sem aldrei fengjust með venjulegum kynbótum.

  19. Kostir og ókostir erfðabreytinga á matvælum  • Sjá reglur um erfðabreytt matvæli

  20. Hugleikur Dagsson um erfðatækni

More Related