1 / 9

Upplýsingabyltingin

Upplýsingabyltingin. Námskeið í framhaldsdeild KHÍ: Upplýsingatækni og stjórnun. Kallar samfélagið raunverulega á slíkt námskeið? Upplýsingasamfélag – upplýsingabylting. Hvað erum við að tala um? Hvað einkennir þessa byltingu? Eða er þetta kannski engin bylting?. Upplýsingabyltingin.

jensen
Download Presentation

Upplýsingabyltingin

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Upplýsingabyltingin • Námskeið í framhaldsdeild KHÍ: Upplýsingatækni og stjórnun. Kallar samfélagið raunverulega á slíkt námskeið? • Upplýsingasamfélag – upplýsingabylting. Hvað erum við að tala um? Hvað einkennir þessa byltingu? Eða er þetta kannski engin bylting?

  2. Upplýsingabyltingin • Hátækni (fjarskiptatækni, tölvur, margmiðlun og flutningur renna saman í eitt). Samruni sem hefur áhrif á valdakerfi samfélagsins? • Áhrif upplýsingatækni á skóla, fyrirtæki og ýmsar stofnanir (mat, endurskoðun, áætlanagerð og stefnumótun). • Miklar og skjótar breytingar – hraði, hraði, hraði og aftur hraði. Tölvunet, kapalkerfi, gervitungl, þráðlaus tækni, sýndarfyrirtæki, fjarvinnsla, fjarnám, fljótandi og óljós vinnumarkaður.

  3. Upplýsingabyltingin • Hugvit, hugmyndaauðgi, skapandi hugsun og frumkvæði. Verkamönnum færibandanna fækkar. • Stjórnmálamenn greina jafnvel þessar breytingar og koma með nýjar áherslur. • 25. flokksþing Framsóknarflokksins á Hótel Sögu, 20. nóvember 1998 Yfirlitsræða formanns Framsóknarflokksins Halldórs Ásgrímssonar (sýnishorn)

  4. Upplýsingabyltingin • “Upplýsingasamfélagið gerir nýjar kröfur til þeirra sem forystustörfum gegna um stefnumótun og framtíðarviðhorf. Íslendingar verða að taka áskorun upplýsingasamfélagsins af fullri alvöru. Þjóð eins og Íslendingar verður að leggja verulega áherslu á rannsóknir, vísindastörf og nýsköpun því að sóst er eftir mannlegu atgervi úr öllum áttum. Þetta leggur okkur nýjar skyldur á herðar í fræðslu- og menntamálum. Þau verða í öndvegi í samfélagsþróuninni á komandi tímum.”

  5. Upplýsingabyltingin • Menntun fær aukið vægi. Uppspretta auðsins liggur hjá þekkingarstarfsmönnum sem hafa brotist undan ofurvaldi vana, trygglyndis og flokkshollustu. • Hugsanaflóðgáttir opnast. Samfélagsveruleikinn verður flóknari. Skapar spennu og öðruvísi átök í samfélaginu sem verður opnara og gerir með því alla valdaþræði óljósari. • Hvað er að gerast innan hins íslenska valdakerfis?

  6. Upplýsingabyltingin • Neytandahugtakið styrkist. Tæknineytandi er umvafinn tölvum og tölvutækni. • Allir nota þessa tækni hvort sem þeir þekkja hana eða ekki. Flestir þekkja hana þó lítið sem ekkert en nota þó bíla, farsíma, leikföng, myndavélar og hraðbanka. Hvað gerum við ef þessi tæki bila? • Hvað gerðum við fyrir ca. 25 árum þegar bíllinn okkar bilaði?

  7. Upplýsingabyltingin • Erum við að fjarlægjast náttúruna, eða erum við að vakna við vondan draum? • Hefur hátæknisamfélagið og upplýsingabyltingin fært okkur nýja sýn á ósnortna náttúru. • Orðatiltækið: “Fjarlægðin gerir fjöllin blá” á kannski vel við í dag og þá svolítið í nýrri merkingu.

  8. Upplýsingabyltingin • Erum við að ofmeta þær samfélags- og tæknibreytingar sem við skynjum? • Komast breytingarnar nálægt þeim breytingum og áhrifum sem t.a.m. rafmagnið og síminn höfðu á sínum tíma? • Ofmetum við möguleika Internetsins? • Er allt þetta kannski eðlilegur hluti af þeirri þróun sem löngu er hafin og þá í raun engin upplýsingabylting?

  9. Upplýsingabyltingin • Hefur t.d. Internettæknin ein og sér stuðlað að meiri viðskiptum í alþjóðlegu samhengi? • Hefur Netið, hið alþjóðlega samskiptatæki sem getur flutt texta, myndir og hljóð, kannski verið ofmetið? • Ef svo er þá er tölva með Internettengingu ofmetið kennslutæki.

More Related