1 / 17

Lykilspurningar

Lykilspurningar. Hversu mikilvægir eru leikir í skólastarfi? Hvaða leikir henta best? Hvað þarf helst að hafa í huga við val á leikjum og framkvæmd þeirra? Markmiðið er að þeir sem ljúka þessu námskeiði með góðum árangri verði sérfræðingar í notkun leikja!.

jeanne
Download Presentation

Lykilspurningar

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Lykilspurningar • Hversu mikilvægir eru leikir í skólastarfi? • Hvaða leikir henta best? • Hvað þarf helst að hafa í huga við val á leikjum og framkvæmd þeirra? Markmiðið er að þeir sem ljúka þessu námskeiði með góðum árangri verði sérfræðingar í notkun leikja! Leikir sem kennsluaðferðr – valnámskeið vor 2013

  2. Og þurfum við ekki líka að svara þessu:Hvers vegna leika börn og fullorðnir sér?Hvað er leikur?

  3. Herbert Spencer: Börn þurfa að losa sig við umframorku G. Stanley Hall: „Upprifjunarkenningin“ – Barnið endurlifir þróun mannsins Karl Groos: Í leiknum felst þjálfun og undirbúningur fyrir lífsbaráttuna Sigmund Freud: Í leikjum fá börn útrás fyrir bældar tilfinningar. Leikur sem „tilraunastöð“ fyrir tilfinningar og athafnir Jean Piaget: Leikur er ein hlið virkrar hugsunar - þegar barnið reynir eða æfir e-ð það sem það hefur tileinkað sér Hvers vegna leika börn sér?

  4. Til umhugsunar! Afar örðugt er að útskýra hvað leikur er! Engin viðurkennd alhliða skil-greining á leik / leikjum mun vera til Viðurkennt er að leikir hafi verulegt uppeldisgildi Leikir skapa ótæmandi möguleika í skólastarfi Flest bendir til þess að leikir séu fremur lítið notaðir í öðrum skólum en leikskólum

  5. Gildi leikja fyrir ... • málþroska • samskiptahæfni og félagsþroska • siðferðisþroska • sköpunargáfu og ímyndunarafl • vitsmunaþroska • tilfinningaþroska • hreyfiþroska

  6. Leikur og nám (Aðalnámskrá leikskóla) Leikur er órjúfanlegur þáttur bernskuáranna og þungamiðja leikskólastarfsins. Leikur er sjálfsprottinn og börnum eðlislægur. Þau leika sér af fúsum og frjálsum vilja og á eigin forsendum. Leikur getur veitt gleði og vellíðan en jafnframt falið í sér valdabaráttu og átök. Leikur er meginnámsleið barna. Hann skapar börnum tækifæri til að læra og skilja umhverfi sitt, tjá hugmyndir sínar, reynslu og tilfinningar og þróa félagsleg tengsl við önnur börn. Þegar börn leika sér saman mynda þau félagslega hópa og skapa eigin menningu. Þau taka þátt í lýðræðislegum athöfnum þegar þau setja fram eigin hugmyndir og þurfa jafnframt að skilja hlutina frá sjónarmiði annarra. (Bls. 26)

  7. Aðalnámskrá grunnskóla Börnum er leikur sjálfsprottin leið til náms- og þroska. Í grunnskóla er mikilvægt að viðhalda þessari aðferð í skólastarfi og þróa hana eftir því sem nemendur eldast. Leikur er 15 ára nemanda jafn árangursrík leið til þroska og skilnings og sex ára barni. Leik má koma við innan allra námsgreina og námssviða í fjölbreyttu náms- og starfsumhverfi og í félags- og tómstundastarfi. (Bls. 36) Leikurinn er leið ungra barna til að læra á heiminn og læra um heiminn . Miklu skiptir að leiknum sem námsaðferð sé gert hátt undir höfði í grunnskóla og sú áhersla einskorðist ekki við yngstu nemendurna. (Bls. 42)

  8. Fræðigreinar í 1. kennslubréfi, sjá hér Myndaflokkurinn Promise of Play (Bókasafn, Moodle) Efni um gildi leiksins og gildi leikja í kennslu

  9. Sérstakt leikja fyrir kennara Koma til móts viðeðlilegar þroskaþarfir nemenda Efla félagsanda Virkja nemendur Efla námsáhuga Stuðla að fjölbreytni Tilbreyting – að það geti verið gaman í skólanum

  10. Takið enga hugmynd sem gefna – alla leiki má þróa – breyta og bæta Spyrjið alltaf: Hvernig getur þessi leikur höfðað enn betur til nemenda? Eða: Hvernig má fá meira út úr leiknum? Einn góður leikur á dag kemur skapinu í lag!!! Meginatriði við notkun leikja

  11. Dæmi um leik sem hægt er að leika sér með

  12. Hvernig má flokka leiki? Stærðfræðileikir Landafræðileikir ...eftir námsgreinum eða markmiðum? Tungumálakennsluleikir Umhverfisleikir Hópeflileikir Kynningarleikir Hugþroskaleikir (Thinking Games)

  13. Rökleikir, þrautir, heilabrjótar ... eftir því á hvað reynir Hreyfileikir Athyglis- og skynjunarleikir Söngleikir Teikni- og litaleikir Orðaleikir Rúmfræðileikir Minnisleikir

  14. Leiki má flokka eftir gerð eða uppbyggingu Ratleikir Spurningaleikir Hlutverkaleikir Námspil Hermileikir(Simulation Games)

  15. Leikirmeð pappír Leiki má flokka eftir með hvað er unnið? Eldspýtnaþrautir Grímur Tölvuleikir Raðþrautir - púsl Brúðuleikhús Kubbaleikir Leikir með teninga Fuglafit

  16. Telst þetta með leikjum? Töfrabrögð? Skrýtlur? Flugdrekar? Skutlur?

  17. Leikjaflokkar á Leikjavefnum • Hreyfileikir og æfingar (43) • Ýmsir hópleikir (35) • Orðaleikir (32) • Ýmsir námsleikir (32) • Rökleikir (25) • Söng- og hreyfileikir (24) • Námspil (21) • Leikbrúður og leikræn tjáning (17) • Athyglis- og skynjunarleikir (14) • Kynningarleikir (13) • Hreyfiþrautir (13) • Spurningaleikir (12) • Hópstyrkingarleikir (10) • Hópskiptingarleikir (7) • Teikni- og litaleikir (6) • Ratleikir (5) • Söguleikir (4) • Hver á að ver'ann? (3) • Origami - pappírsbrot (3) • Raðþrautir (2)

More Related