1 / 25

Saga Völsunga, Buðlunga og Gjúkunga.

Saga Völsunga, Buðlunga og Gjúkunga. Þessi samantekt er unnin af Rakel Sigurgeirsdóttur, íslenskukennara við Verkmenntaskólann á Akureyri, eftir Völsunga sögu og Skáldskaparmálum. Uppruni Sigurðar.

hilde
Download Presentation

Saga Völsunga, Buðlunga og Gjúkunga.

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Saga Völsunga, Buðlunga og Gjúkunga. Þessi samantekt er unnin af Rakel Sigurgeirsdóttur, íslenskukennara við Verkmenntaskólann á Akureyri, eftir Völsunga sögu og Skáldskaparmálum. Rakel Sigurgeirsdóttir

  2. Uppruni Sigurðar • Sigmundur, sem var faðir Sigurðar, féll áður en hann fæddist. Hann arfleiddi son sinn af sverði sínu sem var gjöf Óðins. • Sigurður lærði járnsmíði af manni sem hét Reginn. • Reginn var bróðir Fáfnis sem hafði breytt sér í dreka og lá á gulli sem faðir þeirra fékk í sonargjöld frá Óðni og félögum. • Þessi sonargjöld voru greidd fyrir Otur, þriðja bróðurinn, en fengin hjá Andvara. Rakel Sigurgeirsdóttir

  3. Sigurður vegur Fáfni • Sigurður fékk hestinn Grana frá Óðni. • Reginn hjálpaði Sigurði að setja Gram (sverðið) saman. • Sigurður fór með hest sinn og sverð til móts við drekann Fáfni. • Þegar hann hafði drepið drekann drap hann Regin og kastaði eign sinni á gullið (Fáfnisarf). Rakel Sigurgeirsdóttir

  4. Sigurður með sverðið Gram Rakel Sigurgeirsdóttir

  5. Sigurður fyrir framan helli Fáfnis með sverðið á lofti. Gullið er á milli þeirra. Rakel Sigurgeirsdóttir

  6. Sigurður þvoði sér upp úr blóði Fáfnis sem gerði Hann ósæranlegan. Hann hafði þó einn veikan blett sem var á milli herðablaðanna. Rakel Sigurgeirsdóttir

  7. Brynhildur Buðladóttir • Brynhildur var valkyrja Óðins. Eitt sinn veitti hún öðrum sigur en þeim sem Óðinn hafði ákveðið. Í refsingarskyni ákvað Óðinn að hún skyldi giftast. • Fyrir þrábeiðni hennar breytti hann refsingunni og lagði á hana dásvefn. • Upp frá því hafði hún hvílt meðvitundarlaus á Hindafjalli umvafin vafurloga. Rakel Sigurgeirsdóttir

  8. Sigurður lofast Brynhildi • Eftir sigur Sigurðar á drekanum fór Sigurður á Hindafjall og fann Brynhildi. Hann vakti hana. • Hann trúði henni fyrir því að hann væri ósæranlegur nema á milli herðablaðanna. • Áður en þau skildu dró hann hringinn, Andvaranaut, á fingur henni og hét henni ást sinni og tryggð. Rakel Sigurgeirsdóttir

  9. Sigurður ásamt hestinum Grana þar sem hann finnur Brynhildi í dásvefni. Rakel Sigurgeirsdóttir

  10. Brynhildur í ýmsum myndum Rakel Sigurgeirsdóttir

  11. Sigurður hjá Gjúkum • Sigurður hafði sannað hreysti sína og hugrekki með sigri sínum á Fáfni og með því að ríða vafurlogann. Móður hans fannst þess vegna tímabært að hann hefndi föður síns. • Að því loknu kom hann við í höll Gjúka. Drottning hans, Grímhildur, blandaði Sigurði óminnis- og ástardrykk sem hún gaf honum að drekka. Hann gleymdi Brynhildi en varð á sömu stundu ástfanginn af Guðrúnu Gjúkadóttur. Rakel Sigurgeirsdóttir

  12. Sigurður Fáfnisbani og Guðrún Rakel Sigurgeirsdóttir

  13. Sigurður og Guðrún eignuðust tvö börn. Þau voru: Áslaug og Sigmundur. Rakel Sigurgeirsdóttir

  14. Gunnar Gjúkason • Bræður Guðrúnar voru: Gunnar, Högni og Guttormur (Guttþormur). • Sigurður, Gunnar og Högni sórust í fóstbræðralag. • Gunnar vildi kvongast en hann hafði heyrt söguna af valkyrju Óðins sem hafði lokað sig af innan vafurloga og heitið því að giftast eingöngu þeim sem hefði hugrekki til að ríða hann. Rakel Sigurgeirsdóttir

  15. Brynhildur svikin • Sigurður reið vafurlogann í gervi Gunnars. • Vegna gleymskudrykkjarins þekkti hann Brynhildi ekki aftur en tók þó hringinn (Andvaranaut), sem hann hafði gefið henni, aftur. • Þegar heim var komið gekk Gunnar að eiga Brynhildi. • Guðrún ágirntist hringinn og gaf Sigurður henni hann að lokum. Rakel Sigurgeirsdóttir

  16. Þýsk veggmynd sem á að sýna þau Brynhildi og Gunnar. Rakel Sigurgeirsdóttir

  17. Guðrún gat ekki þagað • Guðrún gat ekki þagað yfir leyndarmálinu varðandi það hvaða brögðum Brynhildur var beitt. • Þegar Brynhildur sá Andvaranaut á fingri Guðrúnar fylltist hún ákafri sorg og heift yfir því að Sigurður hafði bæði svikið ást þeirra og komið því til leiðar að hún rauf eið sinn við Óðin. • Þess vegna vildi hún Sigurð feigan. Rakel Sigurgeirsdóttir

  18. Brynhildur gengur í dauðann á eftir Sigurði. Rakel Sigurgeirsdóttir

  19. Eftir dauða Sigurðar var Guðrún neydd til að giftast Atla, bróður Brynhildar. Guðrún átti tvo syni með Atla. Atli ágirntist gullið; Fáfnisarf en þeir Gunnar og Högni fengu það í arf eftir Sigurð mág sinn. Atli býður því þessum bræðrum Guðrúnar til sín undir því yfirskini að hann ætli að halda þeim veglega veislu. Guðrún gift Atla Rakel Sigurgeirsdóttir

  20. Guðrún varar bræður sína við því að þiggja heimboð Atla. Hetjuhugsjón þessa tíma „bannar“ þeim þó annað en að þiggja heimboðið. Áður en þeir fara fela þeir gullið í ánni Rín. Atli drepur þá báða á grimmdarlegan hátt. Atli drepur bræður Guðrúnar Rakel Sigurgeirsdóttir

  21. Samkvæmt hugmyndum þessa tíma bar að hefna þeirra bræðra. Guðrún bregst ekki þeirri skyldu og launar líku líkt. Hún drepur ekki aðeins syni sína og Atla, og svo Atla sjálfan, heldur kveikir hún í höllinni sem brennur ásamt öllu og öllum sem er/-u inni í henni. Reynir að farga sjálfri sér í kjölfarið. Hefnd Guðrúnar Rakel Sigurgeirsdóttir

  22. Húnar réðust inn í Evrópu að austan Rakel Sigurgeirsdóttir

  23. Atli Húnakonungur í ýmsum myndum Rakel Sigurgeirsdóttir Úr myndinni Night at the Museum

  24. Atli samkvæmt Hollywood Rakel Sigurgeirsdóttir

  25. Attila the Hun kom út 2001. Gerard Buttler leikur Atla. The Ring of the Nibelungs kom út árið 2006. Sú mynd heitir reyndar ýmsum nöfnum eins og Kingdom in Twilight og Curse of the Ring. Hún er í aðalatriðum byggð á útgáfu Wagners á sögu Niflunganna. Tvær bíómyndir Rakel Sigurgeirsdóttir

More Related