1 / 43

HVATNINGSVIÐTAL

HVATNINGSVIÐTAL. Sigríður Hauksdóttir – SMT 103. HVAÐ ER ÁHUGAHVÖT. Hversu líklegur einstaklingur er til að taka þátt, viðhalda og samþykkja kerfisbundna leið til breytinga. Bakslag. Viðhald. Forstig. Íhugun. Aðgerð. Ákvörðun. FORSTIG.

fauve
Download Presentation

HVATNINGSVIÐTAL

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. HVATNINGSVIÐTAL Sigríður Hauksdóttir – SMT 103

  2. HVAÐ ER ÁHUGAHVÖT • Hversu líklegur einstaklingur er til að taka þátt, viðhalda og samþykkja kerfisbundna leið til breytinga.

  3. Bakslag Viðhald Forstig Íhugun Aðgerð Ákvörðun

  4. FORSTIG • Á þessu stigi er einstaklingurinn ekki farinn að átta sig á að hann eigi við vana að stríða • Hann leitar sér ekki aðstoðar og uppgötvar helst vandann á óbeinan nhátt • Einhver annar veit af vandanum

  5. ÍHUGUN • Hér er einstaklingurinn farinn að sjá vandann • Hann tvístígur á milli þess að sjá vanda sinn og réttlætingar fyrir að viðhalda óbreyttu ástandi • Hann kemur oft í viðtöl á þessu stigi • Meðferðaraðili reynir að auka jafnvægið til stuðnings breytingum

  6. ÁKVÖRÐUN • Komin hvatning til að breyta • Hér á að grípa tækifærið, hvetja áfram og hjálpa til við að finna leiðir til breytinga til þess að einstaklingurinn fari á aðgerðarstigið og framkvæmi breytingar

  7. AÐGERÐARSTIG • Hér hefst breytingin • Einstaklingurinn fer að gera eitthvað til að breyta hegðun sinni • Það getur verið í gegnum meðferð, ráðgjöf eða það sem einstaklingurinn framkvæmir upp á eigin spýtur • Markmiðið er að ná fram breytingu til hins betra

  8. VIÐHALDSSTIG • Hér er reynt að viðhalda breytingunum msem náðust á viðhaldsstiginu með: • Bakslagsvörn • Drykkjustjórnun • Mismunandi félagslegum- hugrænum- og atferlisleiðum

  9. BAKSLAG • Það er eðlilegt að lenda í bakslagi • Einstaklingurinn þarf stuðning til þess að læra af bakslaginu og halda áfram • Passa þarf upp á að einstaklingurinn missi ekki móðinn og trúna á árangur

  10. ÆFING • Skoðaðu hringinn útfrá einstaklingi sem þú telur að eigi við einhvers konar vanda að stríða • Veltu fyrir þér hvar þessi einstaklingur er staddur í hringnum

  11. HVERJIR BREYTA? • Þeir sem fylgja leiðbeiningum og vinna kerfisbundið með vandamálið eru líklegri til að ná árangri!

  12. RÁÐGJAFAR • Þeir geta hvatt einstakling til að fara mismunandi leiðir til að takast á við sama vanda • Meðferð • Sálfræðingur, geðlæknir • Sjálfshjálparhópar • Breyting án aðstoðar • Langtímameðferð (t.d. unglingar) • SÁÁ/Landspítali/Götusmiðjan

  13. HLUTVERK RÁÐGJAFA • Það er ekki bara hlutverk ráðgjafa að aðstsoða þann sem vill breyta • Það er líka að reyna að vekja áhugahvöt hjá þeim sem ekki finnst þeir vera tilbúnir fyrir breytingar

  14. 8. ÞÆTTIR Í RÁÐGJÖF • Gefa ráð • Fjarlægja hindranir • Gefa möguleika • Gera vandann/hegðunina minna eftirsóknarverðan • Sýna samhyggð • Gefa feedback • Gera markmið skýr • Virk hjálp

  15. GEFA RÁÐ • Leggja áherslu á og minnast á vandann og þá áhættu sem fylgir ákveðinni hegðun • Útskýra hvers vegna breyting er mikilvæg • Leggja fram ákveðna breytingartillögu eða fleiri

  16. FJARLÆGJA HINDRANIR • Einstaklingar þurfa oft að leysa praktísk vandamál, sem hindra að breytingu sé hrint í framkvæmd • Kostnaður • Ferðir/fjarlægð • Barnapössun • Feimni • Biðlistar

  17. GEFA MÖGULEIKA • Reyna að breyta vegna utanaðkomandi þrýstings er ekki líklegt til árangurs • Aukin tilfinning fyrir frelsi til að velja, eigin ábyrgð og hafa valið að breyta er líklegt til árangurs • Mikilvægt er að leggja fram mismunandi val

  18. GERA HEGÐUNINA MINNA EFTIRSÓKNARVERÐA • Skoða kosti og galla • Auka kosti þess að breyta og hætta hegðun • Sýna galla þess að halda hegðun áfram • Gera minna úr kostum áframhaldandi hegðunar

  19. SÝNA SAMHYGGÐ • Hlýja • Virðing • Stuðningur • Umhyggja • Skilningur með samhyggð • Sýna áhuga • Skuldbinding • Meiri samhyggð gefur minni mótþróa og langvirkari árangur

  20. GEFA FEEDBACK • Á vandann sjálfan • Heilsuna • Fjölskylduáhyggjur • O.s.frv.

  21. GERA MARKMIÐ SKÝR • Hjálpa einstaklingum til að finna markmið sem eru • Skýr • Möguleg • Skref fyrir skref markmið • Tengjast vandanum

  22. VIRK HJÁLP • Vera virkur í samtalinu og sýna áhuga • Hafa samband ef skjólstæðingurinn mætir ekki • Hafa samband við þá aðila sem koma að málinu

  23. ÆFING • Prófa að hafa áhrif á einstakling og nota tæknina hér á undan: • Gefa ráð • Gjarlægja hindranir • Gefa möguleika • Gera hegðunina minna eftirsóknarverða • Sýna samhyggð • Gefa feedback • Gera markmið skýr • Virk hjálp • Notaðu hringinn sem viðmið, sýndu samhyggð og notaðu kostir/gallar aðferðina

  24. FIMM GRUNNVIÐMIÐ Í VIÐTALI • Sýna samhyggð • Þróa misræmi • Forðast þrætur/átök • Fylgja mótstöðu eftir • Styrkja sjálfstraust

  25. Sýna samhyggð • Hlusta án þess að gagnrýna, ásaka og kenna um • Nota “virka” hlustun • Reyna þannig að skilja einstaklinginn og hans tilfinningar • Það er hægt að skilja án þess að vera sammála • Viðurkenna að það er eðlilegt að vera tvístígandi

  26. Þróa misræmi • Vinna í því að gera viðkomandi ljóst misræmið milli núverandi stöðu og markmiða hans (með t.d. fjölskyldu, vini, heilsu og jákvæða sjálfsmynd í huga) • Kostir og gallar • Gera meðvitund meiri fyrir afleiðingum óbreytts ástands • Nota ekki þrýsting eða hótanir • Reyna að aðstoða einstaklinginn sjálfan í að komast að niðurstöðunni

  27. Forðast þrætur • Ekki falla í þá gryfju að halda því fram að viðkomandi eigi við vandamál að stríða ef hann fer að verja stöðu sína • Eð krefjast þess að einstaklingurinn viðurkenni stimplun hefur ekki jákvæð áhrif • Saka skjólstæðing um að hann sé í afneitun eða vörn er líklegra til að auka vörn hans en að hvetja hann til breytinga • Ef þú verður var við vörn breyttu þá um tækni

  28. Fylgja mótstöðu eftir • Ekki líta á samskiptin sem að annar þurfi að vinna • Það hjálpar einstaklingi til að breyta skynjun á aðstæðum í stað þess að andmæla þeim með því að skoða fleiri hliðar • Ekki andmæla skoðun heldur hvetja til að skoða fleiri hliðar á málinu • Spyrja um lausn frekar en að gefa ráð • Einstaklingurinn er sjálfur tæki í leit að lausn • Ný hlið er boðin velkomin en ekki troðið inn í viðtal

  29. Styrkja sjálfstraust • Auka trú einstaklingsins um að breyting geti átt sér stað • Einstaklingurinn er ábyrgur fyrir að velja og framkvæma breytingar • Þú sem ráðgjafi kenni ekki heldur hjálpar einstaklingi að byggja upp trú á sjálfan sig til að geta breytt

  30. ÆFING • Ræddu við einstakling sem á við vandamál að stríða • Notaðu 5 grunnviðmiðin • Passaðu þig að boxa ekki heldur frekar nota “sálfræðilegt júdó”

  31. 5 GERÐIR AF TÆKNI SEM GOTT ER AÐ NOTA • Opnar spurningar • Virk hlustun • Hrós • Draga saman • Styrkja sjálfshvetjandi setningar sem fela í sér • Að sjá vandann • Sem lýsa yfir áhyggjum • Ætlun í að breyta • Bjartsýni á breytingar

  32. HVERNIG STYRKJUM VIÐ SJÁLFSHVETJANDI SETNINGAR? • Spyrja beint með opnum spurningum • Spyrja um jákvæðar og neikvæðar hliðar • Biðja að útskýra betur – koma með dæmi – spyrja um fleiri dæmi eða aðstæður • Spyrja um það versta: - Hvað er það versta sem gæti gerst? • Skoða fortíð þegar þetta var ekki vandamál • Skoða framtíðina eftir breytingar • Skoða markmið • Þversögn t.d. taka málstað “ekki vandamál”

  33. ÆFING • Taktu viðtal • Fylgstu með því hvort þú notar opnar eða lokaðar spurningar

  34. ÁHUGALEYSI OG VÖRN EINSTAKLINGS • Bendir til þess að aðferðin sem meðferðaraðili notar henti ekki stiginu sem einstaklingur er á

  35. VÖRN EINSTAKLINGS • Vörnin er vandi þess sem spyr ekki ekki þess sem svarar • Koma í veg fyrir að framkalla og styrkja vörn • Meiri vörn – minni líkur á breytingum • Vörn hefur sterka fylgni við það að hætta í meðferð • Vörn er mismunandi eftir þeim sem spyr • Getur mælt árangur þinn eftir vörninni hjá þeim sem svarar

  36. Dæmi um vörn • Þræta • Gagnrýnir og finnur að • Grípur fram í með vörn • Grípur fram í og sker á samræður • Neitun • Ásakar, er ósammála, afsakar sig, dregur úr, er svartsýnn, tregða, sýnir ekki vilja til að breyta • Hunsar • Skortur á athygli, svara ekki, talar um aðra hluti og snýr út úr

  37. Lykilspurningar eftir ákvörðun • Hvað heldurðu að þú munir gera? • Hvað heldur þú að verði að breytast? • Hvað gætirðu gert? • Hverjir eru möguleikarnir? • Hvað gerist núna? • Hvernig myndir þú helst vilja að hlutirnir þróuðust fyrir þig? • Hverju hefur þú áhyggjur af í framhaldinu? • Hverjar eru góðu hliðarnar við að breyta?

  38. UPPLÝSINGAR OG RÁÐGJÖF • GEFA RÁÐ • Þegar komið er að því að gefa ráð, farðu þá hægt í sakirnar • Gefðu hugmyndir, einstaklingurinn segir hvað virkar og hvað ekki, vinnið saman • Gefðu óbeinar hugmyndir um hvað virkar fyrir aðra, óskaðu eftir athugasemdum og umræðu um hugmyndirnar • Gefðu marga kosti

  39. Samningaplan • Setja markmið, semja saman • Skoða möguleika • Komast að niðurstöðu um plan

  40. ÆFING • MARKMIÐ • Æfðu með hlutverkaleik að styðja og hjálpa við að gera markmið sem eru skref fyrir skref markmið, tengjast vandamálinu og eru raunsæ og möguleg.

  41. ÆFING • Prófaðu í viðtali að nota opnar spurningar með einstaklingi. • Hugsaðu spurningarnar í tengslum við hringinn og til að vekja áhugahvöt til að breyta.

  42. AFHVERJU VERÐUR BAKSLAG • Fólk – Staðir – Hlutir: • Leiði • Kvíði • Depurð • Streita • Rifrildi • O.s.frv.

  43. ÆFING • BAKSLAGSVÖRN • Athugaðu með einstaklingi sem á við vanda að stríða hvaða aðstæður kveikja á hegðun, hvaða tími, hvaða fólk og allt annað sem er líklegt til að kveikja á ákveðinni hegðun og valda bakslagi. • Reyndu svo að vinna með einstaklingnum til að finna leiðir til að forðast þessar aðstæður, draga úr áhrifum þeirra og hvað á að gera ef verður bakslag.

More Related