1 / 15

Breyttar áherslur í stærðfræðikennslu og mati á stærðfræðinámi

Breyttar áherslur í stærðfræðikennslu og mati á stærðfræðinámi. Þróunarverkefni unnið af umsjónarkennurum í 2. bekk Melaskóla á vorönn 2005 Margrét Ásgeirsdóttir margretasg@melaskoli.is. Breyttar áherslur í stærðfræðikennslu og mati á stærðfræðinámi. Markmið Lýsing á verkefninu

farhani
Download Presentation

Breyttar áherslur í stærðfræðikennslu og mati á stærðfræðinámi

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Breyttar áherslur í stærðfræðikennslu og mati á stærðfræðinámi Þróunarverkefni unnið af umsjónarkennurum í 2. bekk Melaskóla á vorönn 2005 Margrét Ásgeirsdóttir margretasg@melaskoli.is Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  2. Breyttar áherslur í stærðfræðikennslu og mati á stærðfræðinámi • Markmið • Lýsing á verkefninu • Niðurstöður verkefnisins • Mat á verkefninu Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  3. Markmið • Útbúa og þróa mælitæki sem auðveldar kennurum að skrá og halda utan um vinnu nemenda og framfarir þeirra frá degi til dags. • Nemendur fengju fjölbreytt verkefni sem styðja við aðferðamarkmið aðalnámskrár. • Nemendur kynntust margs konar lausnaleiðum og gætu sjálfir beitt fjölbreyttum leiðum við nálgun verkefna. • Nemendur litu á rökræður og samvinnu sem sjálfsagðan og nauðsynlegan þátt í stærðfræðinámi. Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  4. Stöðvavinna: "Póstur" Markmiðið var að • prófa stöðvavinnu í póstþema í Einingu 4 • blanda nemendum þvert á bekkjardeildir til að börnin kynntust hvert öðru og jafnframt umsjónarkennurunum í 2. bekk • skipta nemendum í getublandaða hópa • tengja námsefnið við daglegt líf Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  5. Póstur: Vika 1 • Stöð A: bls. 6, Póstnúmer. Börnin fræddust um tilgang póstnúmera og lærðu að skrifa utan á umslag. • Stöð B: bls. 7, Póststimplar. Börnin lærðu að lesa úr póststimplum af umslögum. • Stöð C: bls. 8, Hve mörg bréf? Börnin öfluðu upplýsinga um bréf sem bárust skólanum og flokkuðu póst eftir innihaldi þ.e. hvers konar bréf þetta væru. • Stöð D: bls. 9, Frímerkjaskoðun. Börnin kynntust tilgangi frímerkja og verðgildi þeirra. Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  6. Póstur:Vika 2 • Stöð A: Tölvur. Börnin notuðu forritið Pósthús til að dýpka skilning sinn á póstferlinu. • Stöð B: bls. 13, Póstburðargjöld. Lögð var áhersla á að börnin léku sér með vogir og lærðu að nota þær. • Stöð C: Frímerkjaþraut. Börnin leystu þraut á eigin forsendum. • Stöð D: bls. 10, 11 og 12, Frímerki og verðgildi þeirra. Börnin skoðuðu frímerkjasöfn. Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  7. Póstur: Vika 3 • Stöð A: bls. 14, Speglun. Börnin léku sér með spegla, skrifuðu spegilskrift og lituðu mynd af grímu með speglun í huga. • Stöð B: bls. 17 og 18, Bögglapóstur. Börnin vigtuðu pakka og lærðu að lesa úr verðskrá. • Stöð C: Önnur frímerkjaþraut. Börnin leystu þrautina á eigin forsendum. Þrautin var í sex liðum og því hægt að bæta við hana eftir getu hvers barns. • Stöð D: bls. 15 og 16, Innpökkun. Börnin lærðu að meta og mæla hversu mikinn pappír þau þyrftu til að pakka inn hlut af ákveðinni stærð. Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  8. Þrautavinna Markmið var að • prófa að getuskipta hópnum í þrautavinnu • samþætta þrautirnar þemaverkefnum og laga að daglegu lífi • leggja fyrir þrautir vikulega • fylgjast með hvernig nemendum gekk að leysa þrautirnar • hver og einn fengi að leysa þraut á eigin forsendum og rökstyðja lausnarleið sína Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  9. Ferli þrautavinnu • Kennarar bjuggu til þrautir sem tengdust daglegu lífi eða þema í stærðfræði, samfélags- og / eða náttúrufræði. • Þrautirnar voru í nokkrum liðum. Þær voru byggðar upp með stígandi frá hinu einfalda til hins flókna. • Kennari lagði fyrstu þrautina fyrir allan hópinn en síðan fyrir hvern og einn. • Nemendur fengu að velja hjálpargögn. • Nemendur leystu þrautirnar hver á sínum forsendum. • Nemendur útskýrðu lausnir sínar munnlega eða skriflega með orðum, myndum eða sundurliðuðum dæmum. • Nemendur útskýrðu fyrir hópnum lausnarleiðir sínar og umræður sköpuðust um leiðirnar og það sem var líkt og ólíkt með þeim. Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  10. Stöðvavinna: "Mold og grjót" Markmið var að • skipta nemendum í sömu hópa og í póstþema þ.e. getublandaða hópa þvert á bekkjardeildir • vinna með þemað "Mold og grjót" í Einingu 4 ásamt verkefnablöðum úr möppu sem fylgir Einingu 3 og 4 • nemendur ynnu saman að lausn verkefna Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  11. Mold og grjót • Stöð A: bls. 42, Steinar og verkefnablað nr. 117, Steinarannsókn. Helmingur barnanna greindi steina og skráðu á verkefnablaðið á meðan hin giskuðu á þyngd steina, vigtuðu svo og skráðu í námsbók. Þegar tíminn var hálfnaður skiptu börnin um verkefni. • Stöð B: bls. 45, Hitastig ásamt verkefnablaði nr. 124, Hitinn úti. Börnin lærðu að lesa á hitamæli og mældu hita inni í kennslustofunni og úti á leikvelli, á jörðu og í lofti og skráðu á verkefnablaðið. Síðan unnu þau verkefni í námsbók. Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  12. Mold og grjót frh. • Stöð C: bls. 50, Afmælisgjöfin og bls. 51, Hyrningar. Börnin leystu þraut, léku sér með pinnabretti og bjuggu til ýmsa hyrninga og yfirfærðu í bók. • Stöð D: bls. 43, Rúmmál og verkefnablað nr. 118, Stóri steinninn. Börnin kynntust hugtakinu rúmmál með því að mæla breytingu á yfirborði vatns þegar steinn er látinn ofaní vatn í mælikönnu og skráðu niðurstöður sínar. Eftir það fóru þau í steinaleiki. Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  13. Námsmat • Námsmat var einstaklingsmiðað. • Kennarar fóru jafnóðum yfir verkefni með nemendum og þeir löguðu eða leiðréttu. • Valið námsmat úr Einingu 4 var lagt fyrir nemendur að lokinni lotu eða þema. • Vikulegar þrautalausnir voru metnar jafnóðum. Lausn og leið voru metnar að jöfnu. • Í annarlok var lögð fyrir þraut sem nemendur þurftu að leysa án aðstoðar kennara. • Sjálfsmat nemenda var lagt fyrir að lokinni stöðvavinnu. Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  14. Niðurstöður • Kennarar þróuðu greiningartækitil að skrá og halda utan um vinnu nemenda frá degi til dags. • Nemendur fengu fjölbreytt verkefni. • Nemendur fengu að leysa verkefni á eigin forsendum. • Umræður og samvinna var snar þáttur í kennslunni. • Kennararnir sem tóku þátt í verkefninu hafa tileinkað sér þau vinnubrögð sem hér hafa verið tíunduð. Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

  15. Mat á verkefninu • Með hópaskiptingunni kynntust kennararnir öllum börnunum í árganginum og þau kennurunum og hvert öðru. • Börnin fengu meiraút úr námsefninu þar sem kennararnir sérhæfðu sig í ákveðnum verkefnum. • Getuskipting í þrautum reyndist góð tilbreyting. • Verkefnið er tengt beint við námsefnið Einingu 4 og nýtist því vel í öðrum skólum við kennslu í 2.bekk. • Þrautirnar er hægt að nálgast á vefslóðinniwww.melaskoli.is. Uppbygging þrautanna þarf að vera markviss en hægt er að breyta efni textans og tölum. Margrét Ásgeirsdóttir - 22. apríl 2006

More Related