60 likes | 224 Views
Svæðisleiðsögn á Vestfjörðum og í Dölum. Fræðslumiðstöð Vestfjarða Kynningarfundur 27. janúar 2010. Námið skiptist á 3 annir. Vorönn 2010 Hefst með inntökuprófum í byrjun febrúar 2 helgarlotur auk fjarnáms Haustönn 2010 3 helgarlotur auk fjarnáms Vorönn 2011 3 helgarlotur auk fjarnáms.
E N D
Svæðisleiðsögn á Vestfjörðum og í Dölum Fræðslumiðstöð Vestfjarða Kynningarfundur 27. janúar 2010
Námið skiptist á 3 annir • Vorönn 2010 • Hefst með inntökuprófum í byrjun febrúar • 2 helgarlotur auk fjarnáms • Haustönn 2010 • 3 helgarlotur auk fjarnáms • Vorönn 2011 • 3 helgarlotur auk fjarnáms
Umsjón með náminu • Framkvæmd með náminu er í höndum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða. • Umsjón með náminu hefur Kristín Sigurrós Einarsdóttir verkefnastjóri á Hólmavík • Samstarf og fagleg ábyrgð við Menntaskólann í Kópavogi.
Mætingar og lágmarkskröfur • Þeir sem ljúka öllum 16 einingum í svæðisleiðsögunámi á Vestfjörðum og Snæfellsnesi og standast lágmarkskröfur allra áfanga hljóta skírteinið svæðisleiðsögumaður á Vestfjörðum. • Mætingarskylda er á allar helgarlotur. Heimilt er nemanda að sleppa einni lotu ef til þess liggja gildar ástæður, svo sem veikindi og viðkomandi tilkynnir Fræðslumiðstöð Vestfjarða um það svo fljótt sem verða má. • Lágmarkseinkunn í hverjum áfanga er 7 á línulegum einkunnaskala frá 0 til 10. • Aðrar námskröfur verða settar af kennara/kennurum hvers áfanga.
Hversu mikið nám? • Ætla má að þetta sé 1/3 af fullu námi. • Námið er 16 einingar, sem telst fullt nám á einni önn, en skiptist á 3 annir • Bak við hverja einingu í námi er ein vinnuvika, svo reikna má með að 1/3 af vinnuvikunni fari í námið, eða um 13 tímar á viku. • Álagið er mismikið, mest í kringum helgarlotur og skilafresti verkefna.
Kostnaður • Þátttökugjöld er kr 50.000 á hverja önn eða alls 150.000.- • Fáist frekari styrkir í námið verður það lækkað. • Frmst er sveigjanleg í samningum, best er að semja sem fyrst. • Gistingu, mat og ferðir greiða þátttakendur sjálfir • Fræðslumiðstöðin mun leita tilboða í mat og gistingu • Um að gera að sameinast um ferðir!