1 / 16

Drög að starfsleyfi Seyru ehf móttaka, flokkun og jarðgerð úrgangs

Drög að starfsleyfi Seyru ehf móttaka, flokkun og jarðgerð úrgangs. Opinn kynningarfundur Siglufirði 15. september 2008. Dagskrá. Inngangur – Starfsleyfi, hvað er það? Kynning á efni starfsleyfistillögu. Fyrirspurnir og umræður. Hvað er starfsleyfi?.

ciara
Download Presentation

Drög að starfsleyfi Seyru ehf móttaka, flokkun og jarðgerð úrgangs

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Drög að starfsleyfi Seyru ehf móttaka, flokkun og jarðgerð úrgangs Opinn kynningarfundur Siglufirði 15. september 2008

  2. Dagskrá • Inngangur – Starfsleyfi, hvað er það? • Kynning á efni starfsleyfistillögu. • Fyrirspurnir og umræður.

  3. Hvað er starfsleyfi? • Byggir á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. • Lýst í reglugerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun og reglugerð nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs.

  4. Hvað er starfsleyfi? Markmið reglugerðar nr. 785/1999: • „að koma í veg fyrir og draga úr mengun af völdum atvinnurekstrar sem getur haft í för með sér mengun, koma á samþættum mengunarvörnum og að samræma kröfur.“

  5. Hvað er starfsleyfi? Markmið reglugerðar nr. 737/2003 að: • „stuðla að því að meðhöndlun úrgangs valdi sem minnstum óæskilegum áhrifum á umhverfið“ og að: • „ dregið verði með skipulögðum hætti úr myndun úrgangs eins og unnt er. Þeim úrgangi sem myndast verði komið í endurnotkun og endurnýtingu og að sú förgun úrgangs sem nauðsynleg er verði með skipulögðum hætti þannig að hann nái jafnvægi við umhverfi sitt á sem skemmstum tíma.”

  6. Hvað er starfsleyfi? Skilgreining: • Starfsleyfi er ákvörðun viðkomandi heilbrigðisnefndar eða Umhverfisstofnunar í formi skriflegs leyfis þar sem tilteknum rekstraraðila er heimilað að starfrækja tilgreindan atvinnurekstur að því tilskyldu að hann uppfylli viðeigandi ákvæði laga, reglugerða og starfsleyfisins.

  7. Hvað er í starfsleyfinu? • Hvaða starfsemi fer fram og hvar hún fer fram. • Hvaða mengunarvarnir skal við hafa. • Hvaða umhverfismörk ber að uppfylla. • Ákvæði um starfshætti. • Hvernig vöktun og eftirliti skal háttað.

  8. Ferill starfsleyfisveitingar • Fyrirtæki sækir um starfsleyfi. • Umhverfisstofnun vinnur drög að starfsleyfi og auglýsir opinberlega. • Allir hafa rétt á að gera athugasemdir við drögin. • Umsagnarfrestur er 8 vikur. • Umhverfisstofnun hefur 4 vikur til að gefa leyfi út eftir að umsagnarfresti lýkur. • Leyfi kæranlegt til ráðherra innan tveggja vikna frá útgáfu.

  9. Starfsleyfi Seyru-helstu atriði- • Starfsleyfið skiptist í 7 kafla: • Almenn ákvæði. • Varnir gegn mengun ytra umhverfis. • Jarðgerð lífræns heimilisúrgangs. • Innra eftirlit fyrirtækisins. • Eftirlit og gæðamarkmið. • Gjaldskylda. • Gildistaka.

  10. Almenn ákvæði • Tiltekið magn: • 400 tonn af heimilisúrgangi + 100 tonn af flokkuðum pappír og plasti frá fyrirtækjum. • Jarðgerð á 200 tonnum af lífrænum úrgangi. • Áætlun vegna tímabundinnar eða varanlegrar rekstrarstöðvunar: • Áætlun skal liggja fyrir eigi síðar en 1. apríl 2009. • Gangsetning og endurskoðun: • Tilkynna gangsetningu ef til stöðvunar kemur. • Endurskoðun a.m.k. á 4 ára fresti.

  11. Varnir gegn mengun ytra umhverfis • Móttaka og skráning úrgangs: • Skrá móttöku á öllum úrgangi sem berst óháð því hvað verður um hann. • Meðhöndlun spilliefna: • Spilliefni fari í viðurkennt ferli. • Daglegur frágangur: • Allur lífrænn úrgangur skal kominn í vinnslu samdægurs. • Ekki má geyma óunninn úrgang á lóð fyrirtækisins. • Sé ekki hægt að byrja jarðgerð samdægurs skal fylgja neyðaráætlun.

  12. Jarðgerð • Lífrænan úrgang verður að meðhöndla áður en hann fer í jarðgerð. • Skráning á magni lífræns úrgangs og stoðefnis sem fer í jarðgerð. • Skráning á viðbótarefnum sem notuð eru. • Skrá hitastig daglega. • Leiða loft út um skorstein til að minnka líkur á lyktarmengun. • Öll vinnsla er innan dyra eða í lokuðum ílátum. • Moltan skal uppfylla lágmarkskröfur við notkun.

  13. Innra eftirlit • Skráningar: • Skráning á tegund og magni úrgangs sem tekið er á móti. • Skráning á stoðefnum. • Skráning á magni og gerð spilliefna sem berast. • Upplýsingaskylda til eftirlitsaðila: • Upplýsingar um rekstur hreinsimannvirkja. • Sýnatökur og niðurstöður mælinga á mengunarefnum. • Magn og tegundir úrgangs sem berast móttökustöðinni.

  14. Innra eftirlit • Upplýsingaskylda til eftirlitsaðila: • Magn lífræns úrgangs og stoðefna sem fer til jarðgerðar. • Magn og tegundir úrgangs sem fara til annarrar endurnýtingar/endurvinnslu. • Magn og tegundir úrgangs sem fara til urðunar og hvert. • Magn og tegundir úrgangs sem fara til annarrar förgunar.

  15. Eftirlit og gæðamarkmið • Umhverfisstofnun hefur eftirlit með starfseminni. • Takmarka skal hávaða frá starfseminni. • Fyrirtækið skal setja sér umhverfismarkmið: • ISO staðall, EMAS eða eigið kerfi. • Athafnasvæði skal vera afgirt og aðgangur takmarkaður og tryggja skal að starfsemin valdi ekki óþrifnaði eða ónæði. • Tilkynna skal mengunaróhöpp. • Gerð skal neyðaráætlun sem nota á ef moltugerðarvél bilar eða ef fyrirtækið annar ekki að vinna úr eða flokka úrganginn.

  16. Njótum umhverfisins og stöndum vörð um það saman

More Related