100 likes | 245 Views
Viðbótarlaun. Reglur um greiðslu viðbótarlauna Guðmundur H. Guðmundsson 30. mars 2007. Tvær stoðir viðbótarlauna. Lög 70/1996 – 2. og 3. mgr. 9. greinar Kjarasamningar grein 1. 3 Reglurnar eru settar á grundvelli laganna. 2. mgr. 9. gr. starfsmannalaganna.
E N D
Viðbótarlaun Reglur um greiðslu viðbótarlauna Guðmundur H. Guðmundsson 30. mars 2007
Tvær stoðir viðbótarlauna • Lög 70/1996 – 2. og 3. mgr. 9. greinar • Kjarasamningar grein 1. 3 • Reglurnar eru settar á grundvelli laganna
2. mgr. 9. gr. starfsmannalaganna Forstöðumenn stofnana geta ákveðið að greiða einstökum starfsmönnum, öðrum en embættismönnum og þeim sem kjararáð ákvarðar laun, laun til viðbótar grunnlaunum, sem samið er um skv. 1. mgr., vegna sérstakrar hæfni er nýtist í starfi eða sérstaks álags í starfi, svo og fyrir árangur í starfi. Þessum ákvörðunum má breyta hvenær sem er. Starfsmaður getur kosið að segja upp starfi sínu vegna slíkrar breytingar, enda skýri hann forstöðumanni frá því innan eins mánaðar frá því að breytingin var tilkynnt honum. Sé breytingin starfsmanni í óhag tekur hún ekki gildi fyrr en að liðnum uppsagnarfresti hans, sbr. 46. gr.
3. mgr. 9. gr. starfsmannalaga Ákvarðanir forstöðumanna skv. 2. mgr. skulu fara eftir reglum sem fjármálaráðherra setur þar sem meðal annars skal kveðið á um það að karlar og konur hafi sömu möguleika á að fá viðbótarlaun. Fjármálaráðherra hefur eftirlit með framkvæmd þessara reglna. Þar á meðal getur hann að eigin frumkvæði breytt ákvörðunum um viðbótarlaun ef þær brjóta í bága við reglurnar og afnumið heimild einstakra forstöðumanna til að ákvarða starfsmönnum viðbótarlaun ef rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma stofnunar er ekki í samræmi við fjárlög.
Sérstök tímabundin umbunkjarasamningsgrein 1.3 • Heimilt er að greiða sérstaka umbun umfram mánaðarlaun skv. greinum 1.2.1 og 1.2.2 sem aldrei skal þó nema hærri fjárhæð en 30.000 kr. á mánuði. Það hámark tekur ekki breytingum á samningstímanum. Umbun þessi greiðist vegna sérstakra tímabundinna þátta sem ekki falla undir grein 1.2.2 og greiðist aldrei lengur en áhrif þeirra þátta vara. Ákvörðun um greiðslu slíkrar umbunar skal tekin af forstöðumanni og byggjast á skriflegum reglum sem hann hefur kynnt starfsmönnum.
Viðbótalaun eru tímabundin • 3. gr. reglna um greiðslu viðbótarlauna: “ Viðbótarlaun fela í sér tímabundinn launaauka umfram reglubundin mánaðarlaun og eru greidd vegna sérstakrar hæfni í starfi, sérstaks álags svo og fyrir árangur í starfi. “
Launategundin • Launategundin er nr. 565 í launakerfinu. • Félagsgjald og sjóðir reiknast ekki. • Lífeyrissjóður og séreign reiknast nema til B-deildar LSR. • Orlof er ekki greitt af viðbótarlaunum. • Viðbótarlaun verða stofn til tryggingagjalds. • Launatengd gjöld nema frá 18,84% til 5,34%
Nokkur atriði • Sérreglur hvers forstöðumanns. • Viðbótarlaun eru tímabundin. • Viðbótarlaun eru ákvarðanir forstöðumanns. • Þau eiga ekki heima í stofnanasamningum. • Engar launabætur koma til stofnana. • Varast að tvíborga fyrir sömu afrekin. • Umbun hefur tilhneigingu til að festast.
Uppsögn viðbótarlauna / viðbótarlaun í veikindum • 1 mánuður ef þau eru tímabundin. • 3 mánuðir ef ekkert tímabil er tiltekið. • Fastar greiðslur í veikindum eins og þeim er ætlað að standa. • Stutt tímabil betri.
Upplýsingar og eftirlit • Stéttarfélög fá upplýsingar tvisvar á ári. • Fjármálarn. fer yfir notkunina á þeim tíma. • Hugsanleg afturköllun eða breyting: • Fjárheimildir • Stríðir gegn reglum fjármálaráðherra