1 / 28

2.kafli Ferð um alheiminn

2.kafli Ferð um alheiminn. Immanuel Kant setti fram þá kenningu 1755 að sólin væri í geysistórri vetrarbraut en einnig væru aðrir ,,eyheimar” á víð og dreif um heiminn.

tilden
Download Presentation

2.kafli Ferð um alheiminn

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. 2.kafliFerð um alheiminn • Immanuel Kant setti fram þá kenningu 1755 að sólin væri í geysistórri vetrarbraut en einnig væru aðrir ,,eyheimar” á víð og dreif um heiminn. • Nú er talið að vetrabrautirnar séu hundrað milljarðar og í hverri þeirra geti verið hundruð milljarða stjarna sem eru sambærilegar við sólina okkar. Sól, tungl og stjörnur

  2. 2.kafliFerð um alheiminn • Vetrarbrautir skiptast í þrjá flokka: Þyrilþokur, sporvölu-þokur og óreglulegar þokur. • Vetrarbrautirnar eru að fjarlægast hver aðra með gífurlegum hraða. • Alheimurinn er sífellt að þenjast út. • Vetrarbrautin okkar er þyrilþokuvetrarbraut. Sól, tungl og stjörnur

  3. 2.kafliFerð um alheiminn • Í okkar vetrarbraut eru gömlu stjörnurnar í kjarnanum eða miðjunni. • Talið er að vetrabrautin okkar sé 100.000 ljósár í þvermál og 15.000 ljósár á þykkt. • Það tekur því 100.000 ljósár að fara þvert yfir Vetrarbrautina á hraða ljóssins. • Sólin okkar er ein af yngri stjörnunum í vetrarbrautinni og í þyrilarminum – 30.000 ljósár frá þykkildinu í miðjunni. Sól, tungl og stjörnur

  4. 2.kafliFerð um alheiminn • Allar stjörnur ganga í hring um Vetrarbrautina. • Talið er að sólin og reikistjörnur hennar séu um 200 milljón ár að fara einn hring um miðju Vetrarbrautarinnar. Sól, tungl og stjörnur

  5. 2.KafliLíf í alheimi • Talið er að fáar reikistjörnur hafi þá náttúrulegu þætti sem líf krefst. • Talið er að aðeins sé lífvænlegt á einni stjörnu af 200 í hverju sólkerfi. • Þetta á við um 1 milljarð sólkerfa í okkar vetrarbraut. • Ólíklegt þykir að við fáum heimsóknir frá ET því meðal fjarlægð milli lífvænlegrar reikistjarna er 24 ljósár. Sól, tungl og stjörnur

  6. 2.KafliAlheimur verður til • Litjá sýnir samsetningu ljóssins. • Með litsjá er hægt að greina hreyfingar vetrarbrauta til og frá jörðu. • Ljósið frá stjörnunum er í raun bylgjur og litur ljóssins ræðst af bylgjulengdinni. • Litsjá greinir lit í sundur eftir bylgjulengd. • Rautt ljós hefur mesta bylgjulengd en fjólublátt minnst Sól, tungl og stjörnur

  7. 2.KafliAlheimur verður til • Ef stjarna nálgast jörðina þjappast ljósbylgjurnar frá stjörnunni saman og bylgjulengd ljóssins verður minni og allt litróf stjörnunnar hliðrast í átt að bláu. Blávik • Ef stjarna fjarlægist jörðu lengjast bylgjurnar og litirnir í ljósinu hliðrast í átt að rauðu. Rauðvik. Sól, tungl og stjörnur

  8. 2.KafliAlheimur verður til • Með því að rannsaka rauðvik frá stjörnum hafa stjörnufræðingar komist að því að allar vetrarbrautirnar ásamt stjörnunum sem í þeim eru hreyfast með verulegum hraða hver burt frá annarri. • BIG BANG = MIKLIHVELLUR er kenning um uppruna alheimsins. Sól, tungl og stjörnur

  9. 2.KafliAlheimur verður til • Kenningin um Miklahvell segir að í upphafi hafi alheimurinn verið samþjappaður. • Síðan sprakk alheimurinn og er enn að þenjast út. • Kenningin styðst við að vetrarbrautir sýndu/sýna yfirleitt rauðvik sem segir okkur að þær eru að fjarlægjast hvor aðra. • Þyngdarkrafturinn heldur samt efninu í þeim saman svo að útþenslan er jöfn og í beinu hlutfalli við fjarlægðina frá okkur. Sól, tungl og stjörnur

  10. 2.KafliAlheimur verður til • Kenningin um Miklahvell segir að hluti orkunnar frá frumsprengingunni eigi að vera jafndreifður um allan geiminn sem örbylgjugeislun, sem nefnist örbylgjukliður. • Vegna þyngdarkrafts og massa fór efnið í alheiminum að dragast saman í gríðarmikla kekki eftir Miklahvell. Kekkirnir urður síðan að vetrarbrautum, um leið og þær mynduðust héldu þær áframa að þeytast í allar áttir. Sól, tungl og stjörnur

  11. 2.KafliAlheimur verður til • Ef vetrarbrautirnar halda endalaust áfram að þenjast út, kallast hann opin. • Stjörnurnar munu þó deyja út að lokum og alheimurinn verður að algeru tómi. • Ef þyngdarkrafturinn nær að snúa þróuninni við, dragast vetrabrautirnar aftur að hvor annarri og þjappast saman í punkt eins og þennan.. Sól, tungl og stjörnur

  12. 2.KafliAlheimur verður til • Ef vetrarbrautirnar þjappast aftur saman er líklegt að þær muni aftur springa BIG BANG. • Ef slík hringrás er í alheiminum kallast hann lokaður. • Þá gæti Miklihvellur orðið á um 80-100 ármilljarða fresti. • Dulstirni er talið vera vetrarbraut að fæðast. • Dulstirni er talið vera 13 milljarða ljósára í burtu frá okkur. Sól, tungl og stjörnur

  13. 2.kafliStjörnur og einkenni þeirra • Stjörnur eru ólíkar í ýmsum atriðum svo sem stærð, massa, lit, hita og birtu. • Allar stjörnur eru háðar tilteknum kröfum. • Stjörnufræðingar notfæra sér þessa krafta þegar þeir draga ályktannir um stjörnurnar. • Þróun stjarna ræðst nær eingöngu af massa þeirra. • Stjörnum er skipt í 5 flokka eftir stærð. Sól, tungl og stjörnur

  14. 2.kafliStjörnur og einkenni þeirra • Stærðarflokkar stjarna eru: Reginrisi, risastjarna, meðalstórstjarna, hvítur dvergur og nifteindastjarna. • Sólin okkar er meðalstór stjarna, minnstu meðal stjörnurnar eru 1/10 af henni og meðal stærstu 10X stærri. • Stjörnur sem eru 10-100X stærri en meðal stjörnur kallast risar og stjörnur sem eru 1000X stærri en meðal stjörnur reginrisar. Sól, tungl og stjörnur

  15. 2.kafliStjörnur og einkenni þeirra • Stjörnur sem eru mikið minni en meðal stjörnur kallast hvítir dvergar og eru u.þ.b. 100X minni en sólin. • Minnstu stjörnurnar kallast nifteindastjörnur og eru svo litlar að þvermál þeirra mælist í km. • Dæmigerð nifteindastjarna er aðeins 16 km í þvermál. Sól, tungl og stjörnur

  16. 2.kafliStjörnur og einkenni þeirra • Til að tilgreina efni er hægt að beina loga þeirra í litsjá, þar sjást alltaf tvær gular línur. Þessar línur eru alltaf á sama stað og eru einstakar fyrir hvert efni. Nokkurs konar DNA efnisins. • Með því að senda ljós stjarnanna í gegnum litsjá geta vísindamenn efnagreint stjörnur nákvæmlega. Sól, tungl og stjörnur

  17. 2.kafliStjörnur og einkenni þeirra • Næstum allar stjörnur hafa sömu efnasamsetningu. • 60-80% vetni, næst er helín, samtals 96-99%. • Súrefni, kolefni, neon, nitur o.fl. eru minna en 4%. • Með því að skoða lit stjarna er hægt að ákvarða yfirborðshita hennar. • Kaldar rauðar stjörnur eru um 3000°C en heitar bláhvítar eru um 50.000°C. Aðrir litir eru þarna á milli. Sól, tungl og stjörnur

  18. 2.kafliStjörnur og einkenni þeirra • Kjarninn í stjörnunum er miklu heitari en yfirborðið. • Hornamælingar/stjörnuhliðrun eru notaðar til að finna fjarlægð stjarnanna. • Hliðrun er aðeins hægt að nota við hluti sem eru nálægt. • Frá jörðu er aðeins hægt að mæla fjarlægðir upp í nokkur hundruð ljósár. • Fyrir utan lofthjúpinn má mæla þúsund ljósára fjarlægð. Sól, tungl og stjörnur

  19. 2.kafliStjörnur og einkenni þeirra • Ef stjarna er meira en 1000 ljósár í burtu er stuðst við lit, hita og tegund til að ákvarða reyndarbirtu hennar og hún síðan borin saman við sýndarbirtu hennar. • Ef fjarlægðin er 7milljónir ljósára eða meira styðjast fræðingar við rauðvik stjörnunnar. Magn rauðviks í ljósi gefur hugmyndir um fjarlægð. Sól, tungl og stjörnur

  20. 2.kafliStjörnur og einkenni þeirra • Birta stjörnu fer eftir stærð, yfirborðshita og fjarlægð frá jörð. • Birta stjörnu eins og hún sýnist frá jörðinni kallast sýndarbirta. • Hægt er að reikna út raunverulega birtu stjarnanna eftir stærð, yfirborðshita og fjarlægð, slík birta kallast reyndarbirta. • Birta flestra stjarna breytis ekki með tímanum. Sól, tungl og stjörnur

  21. 2.kafliStjörnur og einkenni þeirra • Ef stjörnur breyta birtu sinni kallast þær breytistjörnur. • Ef breyting á stærð og birtu er í reglulegri sveiflu kallast þær sveiflustjörnur. • Pólstjarnan er sveiflustjarna sem breytist á 4ja sólarhringja sveiflu. • Hertzsprungs og Russell komust að því að stjarna var yfirleitt bjartari ef hitinn var meiri. Sól, tungl og stjörnur

  22. 2.kafliStjörnur og einkenni þeirra • HR-línuritið er nefnt eftir þeim. • HR-línuritið sýnir samband milli hita og birtu stjarnanna. • Flestar stjörnur eru ein meginröð á línuritinu. • Fyrir ofan meginröðina eru rauðir risar og reginrisar. • Fyrir neðan meginröðina eru hvítir dvergar. Sól, tungl og stjörnur

  23. 2.kafliStjörnur og einkenni þeirra • Stjarna skín því að í henni er svo mikill hiti að frumeindir hafa rofnað og frumeindakjarnar og rafeindir mynda rafgas. • Þyngdarkrafturinn þjappar kjörnunum saman svo þeir rekast á og mynda ný frumefni, helín þetta kallast kjarnasamruni. Sól, tungl og stjörnur

  24. 2.kafliStjörnur og einkenni þeirra • Þegar vetniskjarni breytist í helínkjarna minnkar massi kjarnans. • Massinn sem losnar verður að orku sem kemur út sem geislun t.d. ljós, innrauð geislun, útfjólubláir geislar, útvarpsbylgjur og röntgengeislar. • Vetnissprengja er kjarnasamrunni. Sól, tungl og stjörnur

  25. 2. kafliÞróun stjarna • Sumar stjörnur hafa veri til næstum allar götur síðan alheimurinn myndaðist, aðrar þ.m.t. sólin hafa orðið til úr efni sem fyrstu stjörnurnar mynduðu. • Stjörnur verða til úr efninu úr geimþokum. • Stjörnur skína á meðan vetni breytist í helín í stjörnukjarnanum. Verður að rauðum risa. Sól, tungl og stjörnur

  26. 2. kafliÞróun stjarna • Þegar allt vetnið hefur breyst í helín fer helínið að hitan að myndar kolefni. • Að lokum breytist síðasta helínið í kolefni og stjarnan þjappast saman og verður að hvítum dverg. • Hvíti dvergurinn hættir að lokum að gefa frá sér orku og verður að dauðri stjörnu. • Eftir því sem massi stjarnanna er minni í upphafi er líftími þeirra lengir. Sól, tungl og stjörnur

  27. 2. kafliÞróun stjarna • Massamiklar stjörnur, breytast í rauða- eða reginrisa. • Þegar kjarnasamruna í massamikilli stjörnu er lokið getur kjarninn ekki þjappast meira saman og orka losnar með gríðarlegir sprengingu, Sprengistjarna. • Stjörnufræðingar telja að í geimþokum þar sem stjörnur fæðast séu leifar af sprengistjörnum. Sól, tungl og stjörnur

  28. 2. kafliÞróun stjarna • Nifteindastjörnur, myndast út frá sprengistjörnu. • Svarthol, eftir að sprengi-stjarna myndast hefur stjörnu- kjarninn áfram svo mikinn massa að hann orkan og þrýstingurinn vinnur ekki á þyngdinni og þyngdarkrafturinn verður svo sterkur að ekkert sleppur í burtu ekki einu sinni ljós. Sól, tungl og stjörnur

More Related