1 / 35

1.1 Hver er ég ?

1.1 Hver er ég ?. 1. hluti - Sjálfsmyndin. Þú ert engum líkur ( bls . 10). Þú heitir ákveðnu nafni og enginn í heiminum hefur nákvæmlega sömu reynslu, hugsanir, útlit og lífsstíl og þú. Jafnvel eineggja tvíburar eru ekki nákvæmlega eins í einu og öllu.

thiery
Download Presentation

1.1 Hver er ég ?

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. 1.1 Hvererég? 1. hluti - Sjálfsmyndin

  2. Þúertengumlíkur (bls. 10) • Þú heitir ákveðnu nafni og enginn í heiminum hefur nákvæmlega sömu reynslu, hugsanir, útlit og lífsstíl og þú. • Jafnvel eineggja tvíburar eru ekki nákvæmlega eins í einu og öllu.

  3. Þúerteinsogaðrir (bls. 10) • Einstaklingar sem hafa svipaðan félagslegan bakgrunn eiga eitthvað sameiginlegt sem aðrir hafa ekki. • Félagslegur bakgrunnur mótast af umhverfinu sem umlykur þig svo sem móðurmáli, menningu, menntun, starfi og ótalmörgu öðru.

  4. Þú ert eins og aðrir (bls. 10) • Fólk sem hefur alist upp í sama landi er mótað af þeirri reynslu og það er einmitt sú reynsla sem gerir það ólíkt fólki frá öðrum löndum.

  5. Sjálfsmyndin (bls. 11) • Hver ertu? • Lýstu þér í stuttu máli (eins og þú værir að skrifa afmælisgrein um þig).

  6. Sjálfsmyndin (bls. 11) • Þú ert samsett(ur) úr fjölmörgum þáttum sem gera þig að því sem þú ert. • Persónuleikinn mótast af öllum brotunum eða eiginleikunum sem þú ert samsett(ur) úr, svo sem skapgerð, gildismati, hugsun, skynjun, tilfinningalífi og mörgu fleiru.

  7. Sjálfsmyndin (bls. 11) • Allar hugmyndir sem þú hefur um hver þú ert kallast sjálfsmynd.

  8. Hvaðerusérkenni? (bls. 12) • Sérkenni er að vera það sem maður er en ekki einhver annar. • Sérkenni eru notuð til að útskýra hver við erum sem persónur.

  9. Umhverfi (bls. 13-14) • Engir tveir búa í nákvæmlega sama umhverfi. • Umhverfi sem lítur út fyrir að vera einsleitt er þegar öllu er á botninn hvolft mjög fjölbreytt og ólíkt. Þess vegna sýna einstaklingar, sem virðast hafa alist upp í nákvæmlega sama umhverfi, ólík viðbrögð við mismunandi aðstæður.

  10. Lengibýraðfyrstugerð (bls. 13) • Erfðir, greind, heilsufar, menntun, efnahagur og búseta móta þig og skýra af hverju þú ert eins og þú ert.

  11. Áhrifsystkina (bls. 14) • Hvaða áhrif hafa systkini á þig? • Elstu börn: Vön að taka ábyrgð, ráðskast með þau yngri, kenna þeim og leiðbeina. • Miðjubörn: Þurfa oft að berjast til að sanna og sýna getu sína. Sveigjanleg í umgengni vegna umgengni við eldri og yngri systkini.

  12. Áhrifsystkina (bls. 14) • Hvaða áhrif hafa systkini á þig? • Yngstu börn: Verða oft háð eldri systkinum og foreldrum. Komast langt á sjarmanum. • Hversu vel finnast þér þessar lýsingar passa miðað við þína reynslu (úr eigin systkinahóp eða annarra)?

  13. Erfðirogumhverfi (bls. 14) • Upphaf þitt hófst í frjóvguðu eggi. Í frumu hvers eggs eru 23 litningapör, það er 46 litningar. Helmingurinn kemur frá föðurnum og hinn helmingurinn frá móðurinni. • Á vefsíðunni gen.is eru upplýsingar um allt það sem þú hefur alltaf viljað vita um erfðafræði en þorðir ekki að spyrja um: http://www.gen.is/erfdir3/litningar.html

  14. Umhverfi (bls. 15) • Allir þættir sem móta þig og eru ekki erfðabundnir teljast til umhverfis. • Dæmi um umhverfisþætti: Matur, drykkur, ljós, hiti og samskipti við aðra.

  15. Umhverfi (bls. 15) • Hvort er mikilvægara við mótun einstaklingsins, umhverfið eða erfðirnar? • Hver er þín skoðun? Færðu rök fyrir svarinu (ekki „af því bara“ svar).

  16. Umhverfi (bls. 15) • Hvort er mikilvægara við mótun einstaklingsins, umhverfið eða erfðirnar? • Það er útilokað að finna rétt svar við spurningunni. Flestir vísindamenn halda því fram að báðir þættir vegi um það bil jafnt.

  17. Tvíburar (bls. 16) • Eineggja tvíburar eru einstaklingar sem hafa nánast sama erfðaefnið. Eru þeir þá ekki alveg eins? • Bæði já og nei. Rannsóknir sýna að ef heimili sem aðskildir eineggja tvíburar ólust upp á voru ólík, þá urðu tvíburarnir líka ólíkir.

  18. Greind (bls. 16) • Í sálarfræði er með þessu orði átt við það sem mælist á tilteknum prófum sem kallast greindarpróf. Þau hafa reynst hafa forsagnargildi um tiltekna eiginleika manna sem hafa til dæmis áhrif á framtíð þeirra. • Greindarpróf sýna meðal annars talsverða fylgni, sem kallað er, við almennan námsárangur manna eða gengi í almennum skólum (sjá vísindavefinn: http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=615) .

  19. Greindarpróf (bls. 17) • Er hægt að taka greindarpróf á Netinu og ef svo er á hvaða síðum? • Já, farðu á vefsíðu Vísindavefsins og þar færðu uppgefnar síður með prófum. • Sjá: http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=5074

  20. Rannsóknir á eineggjatvíburum (bls. 17) • Munur á greind systkina sem alast upp aðskilin er meiri en meðal systkina sem alast upp á sama heimili. • Stjúpsystkini sem alast upp saman eru líkari en venjuleg, óskyld börn.

  21. Rannsóknir á eineggjatvíburum (bls. 17) • Af hverju hafa vísindamenn áhuga á að rannsaka hvort erfðir eða umhverfi virki sterkara á mótun einstaklingsins? • Ef umhverfið virkar sterkara þá er hægt að hafa áhrif á óæskilega þætti þess og stuðla að sem bestum þroska fyrir einstaklinginn.

  22. Rannsóknir (bls. 18) • Það eru skiptar skoðanir á því hvað teljist gott umhverfi. Hver er þín skoðun á því?

  23. Maðurinnsemfélagsvera (bls. 18) • Félagsleg hegðun: Lang stærsti hluti hegðunar er félagslegur en það þýðir að hún er lærð. • Félagsleg hegðun lærist við að taka þátt í lífinu. Reynsla sem þú hefur aflað þér meðal vina og í skólanum hefur mótað þig.

  24. Félagsleghegðun (bls. 18) • Viðmið: Sérstakar skráðar og óskráðar reglur sem segja til um hvernig við eigum að hegða okkur við tilteknar aðstæður. • Dæmi um skráð viðmið: Skólareglurnar. • Dæmi um óskráð viðmið: Ganga í samstæðum sokkum.

  25. Félagsleghegðun (bls. 18) • Félagsmótun: Samskipti sem móta persónuleika fólks og lifnaðarhætti. • Þú hefur hlotið íslenska félagsmótun sem þýðir að þú hefur lært leikreglur íslensks samfélags. • Hægt er að líkja félagsmótun samfélaga við að læra leikreglur í fótbolta eða handbolta, þú spilar ekki fótbolta með sömu reglum og gilda í handbolta.

  26. Börnsemhafaalistupp (bls. 19) • Þau börn sem hafa ekki alist upp meðal manna eru ekki mennsk. • Þó nokkrar sögur eru til af börnum sem hafa farið á mis við félagsmótun manna og til dæmis alist upp meðal dýra. Frásagnirnar eru ekki mjög nákvæmar eða áreiðanlegar. • Hundadrengurinn frá Rúmeníu – sjá bls. 19

  27. Börn í einangrun (bls. 20) • Enn eru að finnast börn sem hafa alist upp í einangrun. Upplýsingar um slík börn gefa margt til kynna um „eðli mannsins“. Hvernig verður barn sem fær ekki venjulega félagsmótun? • Sjá sögurnar um Önnu og Ísabellu (bls. 20 og 21) og söguna um Jenny sem er á vefnum Á ferð um samfélagið.

  28. Rökhugsun (bls. 21) • Með rökrænni hugsun er átt við að fólk geti hugsað óhlutstætt (abstrakt) og búið til kenningar um allt mögulegt í huganum. • Kenning:Eðli einhvers fyrirbæris skýrt, kerfi reglna eða lögmála sem notað er til að útskýra af hverju eitthvað gerist og hvernig það gerist.

  29. Rökhugsun (bls. 21) • Þú ert alltaf að setja fram tilgátur og búa til kenningar án þess að gera þér grein fyrir því. Tilgáta er fullyrðing um orsakasamhengi – og ef hún reynist rétt þá er komin kenning. • Strákar eru betri ökumenn en stelpur er dæmi um tilgátu (fullyrðingu) sem gengur ekki upp sem kenning („náttúrulögmál“).

  30. Viðbrögð (bls. 22) • Á unglingsárunum lærir þú af hverju reglur eru nauðsynlegar en þú setur líka stundum spurningarmerki við þær. • Ef engar reglur væru eða ef enginn færi eftir þeim, þá myndir þú aldrei átta þig á til hvers aðrir ætluðust af þér.

  31. Viðbrögð (bls. 22) • Til að breyta samfélaginu verðum við að setja spurningarmerki við allar reglur og geta fjallað um þær á gagnrýninn hátt. • Við verðum meðal annars að spyrja hver setti regluna og hvaða tilgangi þjónar hún? Af hverju þarft þú til dæmis að mæta í skólann daglega?

  32. Tíska (bls. 22-23) • Tíska er félagslega mótuð – en það þýðir m.a. að margir byrja að nota sams konar fatnað á sama tíma. • Tískufyrirbæri koma og fara. Margir nota klæðaburð eða lífsstíl (tísku) til að gefa til kynna að þeir tilheyri ákveðnum hópum.

  33. Tíska (bls. 24) • Samkennd innan hóps getur verið mjög sterk en fordómar sem hópurinn hefur í garð annarra, eða aðrir hafa gagnvart honum, geta einnig verið mjög miklir.

  34. Einneðameðöðrum (bls. 24) • Manneskjunni finnst best að deila sigrum og ósigrum með öðrum. • Einkennisbúningar herja heimsins eiga að efla samkennd hermanna og svipta þá eigin persónuleika og vilja. • Knattspyrnuáhugamenn einkenna sig einnig með treflum og treyjum og undirstrika þannig samstöðu sína og afl.

  35. Hluta 1.1 erlokið • Hér lýkur glósum úr hluta 1.1 • Nú áttu bara eftir að svara spurningunum á bls. 26.

More Related