1 / 41

Fræðslufundur hjá tónlistarmönnum 9. október 2012

Fræðslufundur hjá tónlistarmönnum 9. október 2012. Ríkisskattstjóri/Elín Alma Arthursdóttir. Snertifletir og samskipti. Enginn „kemst hjá“ samskiptum við skattinn „Frá vöggu til grafar“ Hvort heldur barn, fullorðinn eða félag

tamas
Download Presentation

Fræðslufundur hjá tónlistarmönnum 9. október 2012

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Fræðslufundur hjá tónlistarmönnum9. október 2012 Ríkisskattstjóri/Elín Alma Arthursdóttir

  2. Snertifletir og samskipti • Enginn „kemst hjá“ samskiptum við skattinn • „Frá vöggu til grafar“ • Hvort heldur barn, fullorðinn eða félag • Hvort heldur innan tekjuársins (staðgreiðsluársins) eða á framtalsári (álagning) • Staðgreiðsla, tryggingagjald, tekjuskattur, útsvar, vaxtabætur og barnabætur…o.fl.

  3. Snertifletir og samskipti-frh. • Einstaklingur í rekstri • Bein skráning rekstrar - undantekning • Virðisaukaskattsskrá - eftir atvikum • Launagreiðendaskrá - alltaf • Skil staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds • Launauppgjöf • Skattframtal vegna rekstrar

  4. Snertifletir og samskipti-frh. • Lögaðilar • Skráning • Virðisaukaskattsskrá • Launagreiðendaskrá • Skil staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds • Launauppgjöf • Skattframtal • Skil á ársreikningi til ársreikningaskrár

  5. Hvað er atvinnurekstur ? • Engin sérstök skilgreining í skattalögum • Einkum horft til þess hvort um er að ræða sjálfstæða starfsemi – sem rekin er reglubundið – í nokkru umfangi – í þeim efnahagslega tilgangi að skila hagnaði ........... • Getur verið „í eigin nafni“ eða í formi félags

  6. Skráning atvinnurekstrar • Ef hlutafélag/einkahlutafélag => hjá fyrirtækjaskrá RSK – á hlutafélagaskrá • Ef sameignarfélag => hjá sýslumanni • Allur rekstur, þ.e. bæði í félagaformi og sjálfstætt starfandi einstaklingar – á launagreiðendaskrá og virðisaukaskatts-skrá – hjá ríkisskattstjóra

  7. Bókhaldsskylda Bókhaldsskyldir aðilar: Atvinnurekstur Þeir sem fara með fé annarra Félög og sjóðir, í rekstri eða ekki í rekstri Einstaklingar sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi

  8. Bókhaldsgögn Bókhaldsgögn séu sýnileg í bókhaldi Innri gögn beri með sér hvaða tilgangi þau þjóna Viðskipti við erlenda aðila eða aðila sem ekki eru bókhaldsskyldir: Bókhaldsgögn uppfylli lágmarkskröfur um áreiðanleika Lög nr. 145/1994, um bókhald

  9. Geymsla bókhaldsgagna Allar bókhaldsbækur og bókhaldsgögn skulu varðveitt hérlendis í sjö ár Ársreikning skal ætíð varðveita í 25 ár Innri sjóðvélastrimla skal geyma í þrjú ár Dagsöluyfirlit skal geyma í sjö ár Rafræna dagbók skal geyma í sjö ár

  10. Sölureikningar Sölureikningar í þríriti Reikningseyðublöð fyrirfram tölusett (áprentuð númer) Efni sölureikninga: Nafn, kennitala og skráningarnúmer útgefanda Útgáfudagur Nafn og kennitala kaupanda Lýsing á hinu selda, magn, verð og vsk.þrep

  11. Sýnishorn af sölureikningi

  12. Skattskil atvinnurekstrar • Á yfirstandandi rekstrarári: Staðgreiðsla opinberra gjalda v/launagreiðslna Staðgreiðsla tryggingagjalds v/launagreiðslna Virðisaukaskattur ef um skattskylda starfsemi er að ræða • Að liðnu rekstrarári: Viðeigandi skattframtal Ársreikningur

  13. Launagreiðandi • Sá sem innir af hendi launagreiðslur telst launagreiðandi samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda. • Hver sá sem innir af hendi launagreiðslu í fyrsta sinn skal eigi síðar en átta dögum áður en starfsemi hefst senda skattstjóra tilkynningu um starfsemi sína. Eyðublað RSK 5.02

  14. Reiknað endurgjald • Endurgjald (laun) fyrir starf í þágu eigin rekstrar • Á bæði við um starf í einstaklingsrekstri og félagi • Á ekki að vera lægra en maður hefði haft fyrir sams konar vinnu hjá óskyldum eða ótengdum aðila • Er ekki heildarsala vöru eða þjónustu – enda á þá eftir að draga frá allan kostnað af rekstrinum

  15. Reiknað endurgjald og skil á staðgreiðslu • Skila þarf til ríkisskattstjóra greinargerð um reiknað endurgjald. Eyðublað RSK. 5.11 • Skila þarf staðgreiðslu og tryggingagjaldi mánaðarlega. GíróseðillRSK 5.10 • Ef starfsemi er svo óverulega að reiknað endurgjald verði lægra en 215.000 kr. á ári fellur það utan staðgreiðslu.

  16. Viðmiðunarreglur um reiknað endurgjald • Settar árlega af ríkisskattstjóra • Eru viðmiðun um lágmark reiknaðs endurgjalds fyrir fullt starf • 8 flokkar eftir atvinnugreinum. • Listamenn = flokkur C í viðmiðunarreglum. • => árslaun fyrir fullt starf árið 2012 á bilinu 3.432.000 kr. – 8.748.000 kr. eftir umfangi starfseminnar

  17. Staðgreiðsla opinberra gjalda • Reiknast af greiddum launum og reiknuðu endurgjaldi eigenda rekstrar • Greiðist í mánuðinum á eftir launamánuði • Gjalddagi 1. næsta mánaðar eftir launamánuð • Eindagi 14 dögum síðar • Ef ekki er greitt á eindaga reiknast álag

  18. Útreikningur staðgreiðslu • Inn í stofn til útreiknings staðgreiðslu koma m.a. laun og reiknað endurgjald að frádregnu iðgjaldi launamanns í lífeyrissjóð (hámark 8%) • Inn í stofn til útreiknings tryggingagjalds koma m.a. laun og reiknað endurgjald að viðbættu mótframlagi launagreiðanda í lífeyrissjóð

  19. Tryggingagjald • Lög nr. 113/1990 um tryggingagjald • Launagreiðendur greiða tryggingagjald af greiddum vinnulaunum, þóknunum, reiknuðu endurgjaldi og öðrum tegundum greiðslna og launa • Innheimt samkvæmt lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda • Er nú 7,79% - og aldrei reiknað af lægri fjárhæð en 748.224 kr.

  20. Þjónustuvefur skattur.is

  21. Rafræn skil staðgreiðslu • Við skráningu á launagreiðandaskrá þarf að óska eftir að fara í rafræn skil – eða sækja um til RSK ef áður skráð • Við afgreiðslu umsóknar er sendur veflykill sem nota skal við skilin • Skilað á skattur.is eða rsk.is með því að fara á þjónustuvef • Reiknivél til staðar • Tryggingagjald reiknast sjálfkrafa

  22. Rafræn skil staðgreiðslu

  23. Iðgjald í lífeyrissjóð • Skylda að greiða að lágm. 12% af iðgjaldsstofni fyrir launamenn 16 til 70 ára • Launþegi greiðir 4% og er iðgjaldið frádráttarbært frá launum en launagreiðandi greiðir a.m.k. 8% mótframlag og er það frádráttarbært frá rekstrartekjum • Greiða skal tryggingagjald af reiknuðu endurgjaldi, launum og mótframlagi og er tryggingagjaldið frádráttarbært

  24. Skattframtal - skil • Einstaklingar – án rekstrar: • Skila persónuframtali • Vefframtal á skattur.is • Mikið af fyrirfram árituðum upplýsingum sem leiða framteljanda áfram við framtalsgerðina • Fylgiblöð, ef t.d. dagpeningar, ökutækja-styrkur, húsbygging, kaup/sala eignar....

  25. Skattskil - einstaklingsrekstur • Rekstrartekjur að 1.000.000 kr., ekki virðisauki, ekki laun til annarra, ekki aksturskostnaður, ekki fyrnanlegar eignir => skila má einföldu rekstraryfirliti RSK 4.10 • Rekstrartekjur 1.000.000 kr. – 20.000.000 kr. eða skilyrði fyrir RSK 4.10 ekki uppfyllt => skila má rekstrarskýrslu RSK 4.11; hugsanlega líka: • Rekstraryfirlit fólksbifreiðar, RSK 4.03 • Samræmingarblað, RSK 4.11 • Launaframtal, RSK 1.05 • Eignaskrá, RSK 4.01 • Samanburðarskýrsla vsk., RSK 10.25

  26. Skattskil - einstaklingsrekstur • Ef velta er yfir 20.000.000 kr. => skila þarf skattframtali rekstraraðila RSK 1.04 • Auk þess í öllum tilvikum persónuframtal þangað sem færast niðurstöðufjárhæðir úr rekstrarframtölum

  27. Einkahlutafélag • Skila þarf skattframtali lögaðila, RSK 1.04 • Skila þarf ársreikningi • Hugsanlega: • Eignaskrá, RSK 4.01 • Samanburðarskýrsla vsk. RSK 10.25 • Greinarg. um fólksbifr., RSK 4.09

  28. Einstaklingsrekstur eða einkahlutafélag • Skatthlutföll mismunandi • Ákvörðun skattstofns • Kostnaður við stofnun og skattskil einkahlutafélags • Skil á gögnum mismunandi • Takmörkun ábyrgðar

  29. Einstaklingsrekstur eða einkahlutafélag, frh. • Staðgreiðsluhlutfall er 37,34% - 46,24% • Tekjuskattshlutfall hlutafélaga og einkahlutafélaga er 20% • Fjármagnstekjuskattur er 20% • Heildarskattur á hagnað hlutafélags eða einkahlutafélags er því 36% þegar arðurinn er kominn í hendur hluthafans

  30. Samanburður á skattlagningu einstaklingsrekstrar og félags • Almennt gilda sömu reglur um rekstrar-kostnað í einstaklingsrekstri og hjá félagi. Mismunur er þó einhver. • Meiri kröfur eru gerðar varðandi framtals-skil hjá félagi en hjá einstaklingi. Rekstrarskýrsla og meðfylgjandi eyðublöð eru fylgigögn með framtali hjá einstaklingi.

  31. Hvað telst rekstrarkostnaður? • Í 31. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er heimild til frádráttar frá rekstrartekjum, en þar segir að frá þeim megi draga: „Rekstrarkostnað, það er þau gjöld sem eiga á árinu að ganga til að afla teknanna, tryggja þær og halda þeim við… “ • Reglugerð nr. 483/1994 um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi

  32. Rekstrarkostnaður frh. • Kostnaður sem gengur til að afla tekna er almennt frádráttarbær– persónulegur kostnaður er það ekki • Sönnunarbyrði fyrir rekstrarkostnaði hvílir á rekstraraðila => passa þarf vel upp á alla reikninga og hafa á hreinu hverju útgjöldin tengjast.

  33. Rekstrarkostnaður frh. • Allt viðkomandi starfseminni sjálfri – ekki persónulegur kostnaður • Ferðakostnaður – vegna ferða í þágu rekstrarins • Kostnaður vegna húsnæðis – ef heima => einungis viðbótarkostnaður sem leiðir af rekstrinum • Starfsmannakostnaður – t.d. kaffi, árshátíð – þó ekki ef einungis einyrki • Risna – þ.e. kostnaður sem beinist að því að ná eða halda viðskiptasamböndum

  34. Rekstrarkostnaður frh. • Viðhald – t.d. á húsnæði og tækjum – endurbætur teljast hins vegar eign • Vaxtagjöld – af lánum sem tengjast rekstrinum • O.s.frv…………

  35. Ófrádráttarbær rekstrarkostnaður • Útgjöld til eignakaupa eða annarra fjárfestinga • Útgjöld til einkaþarfa, nema að því marki sem þau eru talin til tekna; t.d. almennur fatnaður, snyrting, hárgreiðsla o.s.frv. • 50. gr. laga nr. 90/2003 • gjafir • fjársektir • Takmörkun á kostnaði vegna fólksbifreiða sem reikna ber hlunnindi af o.fl.

  36. Bifreiðakostnaður • Eigin fólksbifreið => kostnaður á hvern ekinn kílómetra * eknir kílómetrar í þágu rekstrarins => gott að halda á einhvern hátt utanum ekna kílómetra í þágu rekstrar. • Ekki heimilt að fyrna slíka bifreið en föst fyrning (675.000 kr. framtalsárið 2012) bætist við rekstrarkostnað.

  37. Bifreiðakostnaður frh. • Ef fólksbifreiðar eru eingöngu notaðar í rekstri getur verið heimilt að fyrna þær og telja þær alfarið með í rekstrinum • Engin einkanot eiganda heimil • Ef starfsmaður hefur slíkan bíl til eigin nota þarf að reikna honum bifreiðahlunnindi til tekna

  38. Bifreiðahlunnindi • Ef fólksbifreið, þ.m.t. skutbifreið, jeppi og bifreið sem hægt er að hafa sambærileg not af, er látin launamanni í té – þarf að reikna honum bifreiðahlunnindi til tekna – eftir reglum í skattmati • Ef eigandi félags, framkvæmdastjóri og aðrir í sambærilegum störfum, og stjórnarformaður hefur bifreið í eigu félags til einkanota => reikna skal full og ótakmörkuð bifreiðahlunnindi til tekna samkvæmt skattmati

  39. Fyrningar • Fyrning = afskrift • Fyrnanlegar eignir eru varanlegir rekstrar-fjármunir sem notaðir eru til öflunar tekna í atvinnurekstri og rýrna að verðmæti við eðlilega notkun og aldur • Kaupverðið er gjaldfært á nokkrum árum. • Heimilt að gjaldfæra að fullu á kaupári ef kaupverð er undir 250.000 kr. • Full fyrning á kaupári en engin á söluári • Fyrningarhlutföll heimiluð á tilteknu bili

  40. Fyrningar, frh. • Lausafé, þ.m.t. hljóðfæri og tölvubúnaður; 20%-35% • Skrifstofuáhöld og -tæki; 20%-35% • Fólksbifreiðar; 10%-20% • Aðrar bifreiðar; 20%-35% • Skrifstofu- og verslunarbyggingar; 1%-3% • Verksmiðjub., verkstæðisb., vörugeymslur......aðrar ótaldar byggingar; 3%-6%

  41. Staðgreiðsla 2012 • Þrepaskipt staðgreiðsla opinberra gjalda • 37,34% af tekjum 0 - 230.000 kr. • 40,24% af tekjum 230.001 - 704.367 kr. • 46,24% af tekjum yfir 704.367 kr. • Persónuafsláttur 46.532 kr. á mánuði

More Related