1 / 9

Um víða veröld : Jörðin 1. Jörðin verður til

Um víða veröld : Jörðin 1. Jörðin verður til. Talið er að alheimurinn hafi orðið til fyrir 13.000 – 14.000 milljónum ára. Við gríðarlega sprengingu sem kallaður er miklihvellur. Í kjölfarið fóru stjörnur (sólir ) að myndast. Miklihvellur markaði því upphaf alheimsins. Jörðin verður til 2.

shubha
Download Presentation

Um víða veröld : Jörðin 1. Jörðin verður til

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Um víða veröld : Jörðin 1. Jörðin verður til Talið er að alheimurinn hafi orðið til fyrir 13.000 – 14.000 milljónum ára.Við gríðarlega sprengingu sem kallaður er miklihvellur. Í kjölfarið fóru stjörnur (sólir ) að myndast. Miklihvellur markaði því upphaf alheimsins.

  2. Jörðin verður til 2 • Sólkerfið er sólin og allt það sem gengur á brautum í kringum hana þ.e. reikistjörnur – tungl – smástirni – halastjörnur. • Sólin er í 150 milljón km. fjarlægð frá jörðinni. • Reikistjörnurnar eru 8 þeim er skipt upp í tvo hópa innri og ytri reikistjörnur. • Innri eru Merkúríus – Venus – Jörðin – Mars (yfirborðið er berg) • Ytri eru Júpíter – Satúrnus – Úranus – Neptúnus (yfirborðið er gas.) Júpíter er stærsta reikisstjarnan.

  3. Jörðin verður til 3 • Jörðin myndaðist fyrir um 4.600 milljón árum. • Jarðsögunni er skipt upp í 4 tímabil: Forkambríum – fornlífsöld – miðlífsöld – nýlífsöld. Forkambríum er langlengsta jarðsöguskeiðið og einkenndist af mikilli eldvirkni , þá fóru höfin að myndast og að lokum andrúmsloftið. Því lauk fyrir ca. 545 milljón árum. Undir lok tímabilsins varð fyrsta lífið til ,og voru það frumstæðar bakteríur.

  4. Jörðin verður til 4

  5. Jörðin verður til 5 • Þriðja tímabil jarðsögunnar kallast Miðlífsöld. Nýtt dýralíf þróaðist þá á jörðinni. Miðlífsöldin var tímabil risaeðlanna. Talið er að þær hafi síðan dáið út í kjölfar mikilla hamfara á jörðinni. Sennilega afleiðingar af risaloftsteini sem féll á jörðina.

  6. Jörðin verður til 6 • Síðustu 65 milljónir ára kallast nýlífsöld. • Vegna jarðskorpuhreifinga fóru helstu fjallgarðar jarðar að myndast á þessum tíma. Himalaja-Klettafjöll-Andesfjöll -Alparnir • Eitt af mikilvægustu einkennum þessa tímabils er þróun dýralífs. Spendýr koma fram og í kjölfarið fyrir 3-4 milljón árum forfeður manna. • Þessir forfeður okkar þróuðust áfram og til varð HomoSapiens(hinn viti borni maður)

  7. Jörðin verður til 7 • Jörðin ferðast á 100 þús. km. hraða umhverfis sólu. Þessi hringferð tekur 365 daga og 6 klukkustundir. • Til að leiðrétta almanaksárið þarf því að bæta inn degi á 4 árs fresti, það kallast hlaupár. • Jörðin snýst einn hring um sjálfan sig á 24 tímu og kallast það sólarhringur. • Tunglið snýst umhverfis jörðina og tekur hverhringur 27 sólarhringa.

  8. Jörðin verður til 8 • Halli jarðar á leið hennar umhverfis sólu er 23,5 ˚ þessi halli veldur árstíðum. • Lengstur dagur á norðurhveli er í lok júní þá eru sumarsólstöður. • Jafndægur á hausti er í lok september þá er dagur og nótt jafnlöng. • Vetrarsólstöður eru í lok desember og þá er dagurinn stystur á norðurhveli. • Í lok mars er jafndægur að vori.

  9. Jörðin verður til 9 • Sovétríkin sendu fyrsta ómannaða tunglfarið á loft 1959. • 1969 sendu bandaríkjamenn mannað far til tunglsins. • Mörg voldug ríki kappkosta að vera með geimferðaáætlanir í dag. Ástæðurnar eru bæði pólitískar-efnahagslegar-hernaðarlegar. • Í dag eru ca. 90 ómönnuð geimför á sveimi í himingeimnum við ýmiskonar rannsóknir. • Mikill fjöldi gervitungla eru á sveimi umhverfis jörðina og eru m.a. mikilvæg fyrir síma og tölvuþjónustu. • Geimstöð er stórt gervitungl þar sem geimfarar geta dvalið í lengri tíma. ,,Alþjóðlega geimstöðin“ er samstarfsverkefni margra þjóða.

More Related