1 / 18

Einkenni lífvera

Einkenni lífvera. 5.kafli. Vistfræði og vistkerfi. Vistfræði fjallar um samskipti lífvera innbyrðis og tengsl þeirra við umhverfi sitt. Einnig um ýmsar breytingar sem eiga sér stað í umhverfinu, ástæður þeirra og áhrif.

nascha
Download Presentation

Einkenni lífvera

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Einkenni lífvera 5.kafli 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  2. Vistfræði og vistkerfi • Vistfræði fjallar um samskipti lífvera innbyrðis og tengsl þeirra við umhverfi sitt. Einnig um ýmsar breytingar sem eiga sér stað í umhverfinu, ástæður þeirra og áhrif. • Lifandi umhverfi er skipt í einingar eða heildir sem ná til allra lífvera og umhverfis þeirra. Hver slík eining kallast vistkerfi. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  3. Líffélög og stofnar • Allar þær fjölmörgu og margvíslegu lífverur sem lifa á hinu tiltekna svæði kallast einu nafni líffélag. • Stofn er hópur lífvera af sömu tegund sem lifir á afmörkuðu svæði. Hin ýmsu vistkerfi framfleyta mismunandi stofnum. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  4. Kjörbýli og sess • Sá staður sem lífvera á að heimkynnum sínum kallast kjörbýli eða búsvæði. Þar finna lífverurnar fæðu og skjól. • Hver tegund lífvera gegnir tilteknu hlutverki í líffélagi svæðisins. • Sessfelur í sér öll umsvif lífverunnar og allt sem hún þarfnast innan kjörbýlis síns. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  5. Kjörbýli og sess frh. • Lífverur sem lifa saman í vistkerfi geta deilt með sér kjörbýlum án nokkurra vandkvæða, en mismunandi tegundir geta ekki haft sama sess ! 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  6. 5-2 • Flokka má lífverur í þrjá megin hópa eftir því hvernig þær afla sér orku: 1. Frumframleiðendur • Plöntur og þörungar sem framleiða eigin fæðu. Þessar lífverur eru síðan étnar af öðrum lífverum. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  7. 2. Neytendur • Lífverur sem nærast beint eða óbeint á frumframleiðendum. • Neytendur eru ófrumbjarga þar sem þeir geta ekki verið sjálfir sér nægir um fæðu. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  8. 3. Sundrendur • Þegar plöntur og dýr deyja nýta lífverur sem nefnast sundrendur (rotverur) líkama þeirra sér til viðurværis. • Sundrendur eru yfirleitt agnarsmáar lífverur t.d. gerlar og sveppir. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  9. Fæðukeðjur • Fæðukeðja lýsir því hvernig mismunandi lífveruhópar afla sér fæðu, hver á annarri í “einfaldri” röð þannig að hver tegund verður hlekkur í fæðukeðjunni. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  10. Fæðuvefur • Fæðuvefur er gerður úr öllum fæðukeðjum sem finna má í hverju vistkerfi og tengjast saman. • Með fæðuvef má sjá innbyrðis tengsl lífveranna í vistkerfinu. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  11. Fæðuhjallar - Orkupýramídi • Fæðuhlekkirnir eru gjarnan settir upp á mynd þannig að breidd hlekksins endurspeglar orkuna sem í honum býr. • Mest af orkunni er neðst, en með hverju þrepi tapast nokkuð af orkunni. Lífverur sem eru efst í pýramídanum þurfa að éta orkumeiri fæðu en þeir sem eru neðar. Sjá mynd bls. 100 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  12. Fæðuhlekkir • Fæðuhlekkur segir til um stöðu lífveru í fæðukeðjunni. • Plöntur eða þörungar eru fyrstar í fæðu-hlekk hverrar fæðukeðju. • Plöntuætur eru í hlekk númer tvö. • Kjötætur eru í þriðja hlekknum. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  13. 5-3 tengsl í vistkerfi • Samkeppni eru tengsl þar sem lífverur keppa hver við aðra um takmörkuð lífsgæði (auðlind) sem þau þurfa til þess að lifa. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  14. Ránlíf • Lífverur sem veiða og drepa aðrar lífverur sér til matar lifa ránlífi. Yfirleitt er um að ræða rándýr. • Lífverurnar sem rándýrin veiða kallast bráð. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  15. Samlíf • Í stað þess að keppa hvert við annað komast sumir lífveruhópar vel af með því að lifa með hvor öðrum og jafnvel hjálpast að ! • Til eru þrjár gerðir samlífis og er munurinn einkum fólginn í því hver hefur hag af samlífinu: 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  16. 1. Gistilíf • Gistilíf er dæmi um samlíf tveggja lífverutegunda þar sem annar aðilinn hagnast af samlífinu en hinn hvorki hagnast né hlýtur skaða af. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  17. 2. Samhjálp • Þegar samlífi tveggja tegunda er lífsnauð-synlegt fyrir báða aðila, er talað um samhjálp. • Yfirleitt snýst hagur beggja um fæðu og vernd. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

  18. 3. Sníkjulíf • Samlífið felst í því að annar aðilinn hefur hag af því en hinn ber skaða af. • Sú lífvera sem hagnast, kallast sníkill en sú sem skaðast, kallast hýsill. 5-1 Lífverur og umhverfi þeirra

More Related