1 / 23

Fjarnám í íslenskum framhaldsskólum: Frá þörfum til þæginda

Fjarnám í íslenskum framhaldsskólum: Frá þörfum til þæginda. Erindi 2.nóvember 2007 Á ráðstefnu 3f um upplýsingatækni og menntun Sólveig Jakobsdóttir, Kennaraháskóli Íslands, soljak@khi.is. Rannsókn, markmið.

ivy
Download Presentation

Fjarnám í íslenskum framhaldsskólum: Frá þörfum til þæginda

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Fjarnám í íslenskum framhaldsskólum: Frá þörfum til þæginda Erindi 2.nóvember 2007 Á ráðstefnu 3f um upplýsingatækni og menntun Sólveig Jakobsdóttir, Kennaraháskóli Íslands, soljak@khi.is

  2. Rannsókn, markmið • Meginmarkmið verkefnisins er að skoða hvernig framhaldskólar hér á landi eru að blanda saman stað- og fjarnámi og hvernig þær blöndur eru að reynast fyrir þá nemenda- og kennarahópa sem stunda viðkomandi skóla. • Rannsókn styrkt af KHÍ, rannsóknarsjóði og aðstoðarmannasjóði

  3. Rannsókn, 3 hlutar 1.-2. Stjórnendur, haustið 2005 og 2006, úr 29 skólum • Símaviðtöl • Fáyfirlit um stöðu í framhaldsskólum, breytingar, helstukosti og galla 3. Nemendur og kennararúr sex skólum, vorið 2007 • Viðtölvið 25 kennara (mestsímaviðtöl, í einumlandsbyggðarskóla á staðnum), tekinupp; • Viðtölvið 53 nemendur (mestsímaviðtöl, skráðsvörjafnóðum; nokkurviðtölúr MSN eðameðtölvupósti) • Skoða viðhorf lykilhópa

  4. Fyrri kynningar á verkefninu • Sólveig Jakobsdóttir. (2005). Á öndverðum meiði eða allt í bland? Um þróun kennsluaðferða og tæknilausna í fjarkennslu. Erindi var flutt 14.10.2005 á málþingi um fjarnám og -kennsla Reykjanesbæ. http://soljak.khi.is/erindi/blandadnam/blandadnam_files/Default.htm • Sólveig Jakobsdóttir og Sigurður Fjalar Jónsson. (2006). Í takt við tímann? Tími, rými og nám í framhaldskólum á Íslandi. Erindi var flutt 21.10.2006 á málþingi RKHÍ Reykjavík. http://soljak.khi.is/erindi/itaktsjsfj.ppt • Sólveig Jakobsdóttir, Sigurður Fjalar Jónsson, Þórhildur Elfarsdóttir og Sigurbjörg Jóhannesdóttir. (2007). Regatta for life and learning? Trends and blends in distance education at the secondary level in Iceland. Í A. Gaskell og A. Tait (Ritstj.), The 12th Cambridge International Conference on Open and Distance Learning. What do we know about using new technologies for learning and teaching? (bls. 153-160). Milton Keynes, UK: The Open University.

  5. Flokkar – skóla (niðurstöður úr 1.og 2.hluta) • Sterkir stofnar, stór hluti nema stundar fjarnám, fjar+stað misjafnlega mikið aðskilið eða mikil skörun eða blanda. • Fjarnám vaxandi sproti af stofni - töluverður-mikill gangur eða dreif-/fjarnám álitlegur sproti, hægari eða lítill vöxtur. • Staðnám en vísir að fjarnámi fyrir hópa. Eða dreifnám farið að einkenna staðnámið (minni viðvera í hefðb. kennslust; nám verkefnamiðað; námstjórnunarkerfi) • Notkun námstjórnunarkerfi eða innra nets almenn eða í mjög örum vexti, ekki farin að hafa áhrif á stundatöflu. • Kennslukerfi, innra net, en notkun ekki orðin almenn eða vöxtur e.t.v.hægari en í flokki 4; stundum vísir að fjarnámi f. einstaklinga, stundum verið að skoða hlutina vel og ýmislegt í deiglunni t.d. námskeið f. kennara, stundum grasrót.

  6. Flokkar – skóla, þróun milli ára Frekar fjar/dreifnám í áfangakerfum

  7. 2005 FSH starfsendurmenntun öryrkja, og sjómenn/lífeðlisfr. í FÍV, ekki í boði 2006 Í töflu: efri lína 2005, neðri lína nefndir til viðbótar 2006

  8. Blöndurnar? • Mjög fjölbreyttir nemendahópar • Mismunandi tæknilausnir, kerfi • Breytilegt hvernig staðið er að skipulagi; hversu mikil staðkennsla; notkun myndfunda; blöndun nemendahópa; hverjir eru fjarri • Nýting kerfa fremur einsleit - áhersla á miðlun efnis; notkun netprófa fer líklega vaxandi sem partur af símati; umræður og samskipti síður

  9. Rannsókn, 3.hluti, þátttakendur

  10. Viðtalsspurningar

  11. Nemendur: Ástæður fyrir fjar/dreifnámiFramboð, menntun, ástundun með öðru • Áfangarnir ekki kenndir í skólanum sem ég er í og þess vegna neyddist til (S2); Það var eina sem var í boði í þessu námi (S2) • Í mínum heimabæ er engin framhaldsskóli (S1) • Langaði til að mennta mig meira (S2) • ..vantaði að bæta við mig nokkrum áföngum til að komast í háskóla (S1) • mig langaði að taka tvö aukafög með vinnu til að bæta þekkingu mína í fögum sem gætu nýst mér í [háskóla] • Stunda með öðru námi (S3) • Stunda með vinnu (S1, S2, S3, S5): D. Þrátt fyrir ungan aldur þá er ég gift, á hús og er í vinnu og hef ekki efni á að ljúka námi öðruvísi (S3); af því ég er að vinna með skóla og það komst ekki inn í töflu (S5) • ég valdi ekki var sett í það, bjó í Danmörku og tók nám í grunnskóla þar (S6); Hluti af náminu (S6); Ekki val, var svona uppsett (S4)

  12. Af hverju fjarnám?... Þægindi, sveigjanleiki (staður+tími), heimili/fjölskylda, kostnaður • Mjög þægilegt. • Því ég er að nýta tímann í eitthvað gáfulegt meðan konan er í námi erlendis (S1) • Mig langaði ekki að flytja... (S2) • Fyrir fjarnámið hafði ég aðeins þann kost að flytja og prufaði ég það en líkaði ekki vel. (S1) • vegna þess að ég ákvað að flytja aðeins til útlanda og langaði ekki að dragast eftir á í skólanum (S3) • ég hef minn eigin tíma og allt er miklu frjálsara, finnst mér (S1) • Ég valdi fjarnám því að ég er að útskrifast á 6 önnum í staðinn fyrir 8 og hef þess vegna verið að taka mjög stórar annir og þó komust ekki allir áfangarnir inní töflu (S2) • Vegna þess að það hentar mér er með 3 börn (S2) • Bara til þess að vera meira heima (S5) • hef ekki efni á að ljúka námi öðruvísi (S3)

  13. Af hverju fjarnám?..., frammistaða, líkamlegar eða félagslegar ástæður • því ég féll í því í fyrra og ef ég næ þessu ekki þarf ég að endurtaka árið (S3) • Var sett í það frá [öðrum skóla]– féll (S4) • Ég valdi fjarnám því ég er heyrnarskert og það fer margt framhjá mér í dagskólanum sem fer ekki framhjá mér í fjarnámi (S3) • Svo er ég líka misjöfn í að vakna í skólann, kvíðin og morgunþungynd... (S3) • ég átti erfitt með að fóta mig í framhaldsskólanum vegna þess hversu mikla félagsfælni ég er með (S3) • Það hentar mér vel vegna þess að mér líður betur að læra heima hjá mér, .. Ég var ekki að fíla mig á skólabekk, ég entist ekki í skóla, ... (S1)

  14. Helstu kostir fjarnáms/dreifnáms (um 27 gefnir upp) • Sveigjanleiki í tíma (11): d. Að þú hefur þá tíma til að gera eitthvað annað og villt frekar setja tímann í það sem þér gengur ekki jafn vel í (S5); Þú ræður hvenær þú lærir – ræður hvenær þú skilar miklu frjálslegra (S2); Að þu getur gert þetta þegar þér hentar t.d. seint á kvöldin eða lært á kaffihúsi (S4) • Sveigjanleiki, frelsi (9): d. Kostir við þetta nám er allra helst það, maður hefur meira frelsi (S1); Frelsi fyrir þá sem ekki hafa kost á því að stunda staðarnám (S1) • Sveigjanleiki, staðsetning (9): d. gott fyrir fólk sem býr erlendis eða útá landi • Vinna+nám (9): Að geta stundað nám með vinnu (S2); Það er að geta unnið eins og fáviti með (S1)

  15. Helstu kostir fjar/dreifnáms, frh. • Aðgengi að upplýsingum, glósur (7)., d. Aðallega að maður fær meira upplýsingaflæði milli nemenda og kennara og maður fær betri glósur en maður myndi gera sjálfur (S6) • Auðvelt aðgengi, almennt (4). d. Maður getur lært hvar og hvenær sem er (S4) • Þarf ekki (endilega) að mæta í tíma (4): d. Ef maður missir úr tíma eða er veikur getur maður fylgst með (S6); Þarf ekki að sitja í leiðinlegum tímum sem maður hefur þannig lagað ekki not fyrir (S5) • Hægt að fara í frí/hlé en ná upp (3) • Engin mætingarvandamál (3) • Hraðari endurgjöf í netprófum (3), betri undirbúningur f. próf (3)

  16. Helstu kostir fjar/dreifnáms, frh • Meira sjálfstæði (2) • Þarf ekki að flytja (2) • Meiri tími með fjölskyldu (2) • Laus við óþroskaða nemendur (2) • Sumir geta ekki tekið staðnám • Meiri ábyrgð • Sveigjanlegur aldur • Fjölbreyttara námsframboð • Læra heima • Laus við margmenni • Minni pappír, betra fyrir þá sem eru betri að nota tölvur til að skrifa • Tími fyrir eitthvað sem þú ert ekki góður í • Auðveldara að skil inn verkefnum, auðveldara að vinna að verkefnum

  17. Frá þörfum.... • Umtalsverðir maður getur unnið sína vinnu og allt svoleiðis og eins og í mínu tilfelli þá gat ég búið áfram hér og samt lært • Að geta unnið með námi og sinnt heimili og fjölskyldu • Að geta tekið hvaða áfanga sem þú vilt – fjölbreytinin í náminu eru miklu meiri

  18. ... til ... • Helstu kostirnir eru að geta lært heima hjá sér, haft kennarann nánast inni í stofu. Getað stundað vinnu á fullu með náminu og í mínu tilfelli að þurfa ekki að vera innan um mörg hundruð manns sem ég þekki ekki á hverjum degi. Í þessu námi finnst mér líka gott að geta tekið mér pásur þegar ég vill og þegar ég nauðsynlega þarf þess. • bara sjálfstæðið, í fyrra fór ég í brúðkaupsferðina mína og var liggjandi í sólinni í 3 vikur (önnin er vanalega 10-12 vikur), þegar ég kom heim þá tók ég lestrartörn og náði öllu. • náttúrulega frelsið og tíminn sem fer í annað t.d. vinna og líka vinnufriðurinn. Ég á erfitt með skap og að vinna nálægt fólki sem er ennþá í 8. bekkjar hegðan, finnst fólk ekki taka námið alvarlega, borgar fyrir það og nennir ekki að vinna, fínt að vera laus við það

  19. ... þæginda • Þetta er ógeðslega þægilegt. Ég hef alltaf átt í smáá vanda með skólasókn svo að þetta hentar mér vel. Svo er náttúrulega geðveikt að geta tekið sér smá frí frá Íslandi en samt ekki dregist aftur úr í skóla! Svo lengi sem þú ert í góðu tölvusambandi er þetta fullkomið.

  20. NemendaviðtölHelstu kostir og gallar fjar/dreifnáms

  21. NemendaviðtölHvernig má gera betur?

  22. Umræða – til umhugsunar • Menntun vs. einangraðir námsbútar? • Of lítil áhersla á samskipti, uppbyggingu námssamfélags og hugsanlega á fagsamfélags fjarkennara? – úr takti við samfélag? Ath. t.d. þörf fyrir fólk vant teymisvinnu, þróun í notkun ýmissa kerfa sem styðja við félagsleg samskipti og/eða uppbyggingu þekkingar (Elgg, Wiki, Flickr, Facebook, Second life, ...) • Áhrif námsumsjónarkerfis? • Brottfall, stað vs. fjar? Hvað með innflytjendur? • Hvað er að gerast annars staðar á þessu skólastigi? T.d. hvað með efri endann á framhaldsskólanum? Picciano, A. G. og Seaman, J. (2007). K-12 online learning: a survey of U.S. school district administrators. Needham, MA: Babson Survey Research Group, Hunter College - CUNY, The Sloan Consortium. Sótt 31.júlí 2007 af http://www.sloan-c.org/publications/survey/survey06.asp

  23. Nám og kennslaÍ stað og/eða fjar

More Related