1 / 34

LEIKURINN Í LJÓSI SÁLKÖNNUNAR

LEIKURINN Í LJÓSI SÁLKÖNNUNAR. LEIKUR NÁMS OG ÞROSKA 103. INNGANGUR. Í kaflanum er fjallað um leikinn í ljósi sálkönnunar Helstu fræðimenn sem hér koma við sögu eru Sigmund Freud Erik H. Erikson Donald W. Winnicott Að lokum koma fram skýringar og gagnrýni. SIGMUND FREUD (1856-1939). Frh.

hastin
Download Presentation

LEIKURINN Í LJÓSI SÁLKÖNNUNAR

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. LEIKURINN Í LJÓSI SÁLKÖNNUNAR LEIKUR NÁMS OG ÞROSKA 103

  2. INNGANGUR • Í kaflanum er fjallað um leikinn í ljósi sálkönnunar • Helstu fræðimenn sem hér koma við sögu eru • Sigmund Freud • Erik H. Erikson • Donald W. Winnicott • Að lokum koma fram skýringar og gagnrýni

  3. SIGMUND FREUD (1856-1939)

  4. Frh. • Leikkenningar sem byggjast á sálkönnun hafa haft djúp og víðtæk áhrif á skilning manna á leik • Sigmund Freud var upphafsmaður sálkönnunar • Greinir þrjá meginþætti persónuleikans • frumsjálf (id) • sjálf (ego) • yfirsjálf (super ego)

  5. Vellíðunarlögmál • Freud taldi að hvatir stjórnuðust af einu lögmáli = vellíðunarlögmáli • Barnið leitast við að fullnægja hvötum sínum og þörfum • Til að verða fullþroska þarf að læra að hafa stjórn á hvötunum • Yfirsjálfið = samviska • Sjálfið = vitræni þátturinn • Frumsjálf/það = hvatræni þátturinn • Veruleikalögmálið

  6. Frjáls leikur sem rannsóknaraðferð • Freud beitti frjálsri hugrenningaraðferð • Eftirmenn hans notuðu frjálsan leik í stað hugrenningaraðferðar í meðferð á sjúkum börnum til að greina vanda þeirra og skilja þau • Freud setti aldrei fram neina kenningu um leik þótt hann viki oft að honum í ritum sínum og hafi lagt mikilvægan grundvöll að skilningi manna á leik barnsins og gildi hans fyrir geðheilsu þess og sálarheill

  7. Geðhreinsunarkenningin • Skýring Freuds á hlutverki leiksins byggist á geðhreinsunarkenningunni • Kenningin á rætur að rekja til ævagamallar kenningar í listfræði Aristotelesar • Hlutverk lista og leikja er að hreinsa sálina af þeim hneigðum sem maðurinn má ekki fullnægja í raunveruleikanum af siðferðiástæðum • Í leik fær barnið útrás fyrir innbyrgðar tilfinningar og beinir þeim inn á jákvæðar brautir • Freud leggur áherslu á að alvara sé ekki andstæða leiks heldur raunveruleikinn

  8. Frh. • Í heimi raunveruleikans getur barnið ekki fengið allar sínar óskir uppfylltar • Leikurinn • er tæki barnsins til að breyta veruleikanum í sína þágu og ryðja burt þeim hindrunum sem veruleikinn setur því • gefur barninu tækifæri til að fá óskir uppfylltar • gefur barninu færi á að láta óheftar tilfinningar í ljós eins og reiði, afbrýðisemi og árásargirni • gefur barninu færi á að vera sjálft við völd og stjórna gangi mála • gefur barninu færi á að endurtaka leik sem veldur kvíða og vonbrigðum og þannig sigrast barnið á erfiðleikum, varpar þeim yfir á aðra hluti og persónur

  9. Frh. • Freud taldi leikinn mikilvægt tjáningarform sem hefði ótvírætt lækningagildi • Hann leit á leik sem spegil sálarlífsins • Sálkönnun hefur haft mikil áhrif á sviði leiklækninga/leikmeðferða • Anna Freud og Melanie Klein voru meðal þeirra fyrstu til að nota leiki og leikföng til að sjúkdómsgreina börn • Byggðu starf sitt á sálkönnunarkenningu Freud

  10. ERIK H. ERIKSON (1902-1989)

  11. Frh. • Einn af lærisveinum Freud • Hefur beint athygli sinni að mikilvægi leiksins í eðlilegri, sálrænni þróun barnsins • Gengur út frá persónuleikakenningu Freud • Leggur meiri áherslu á sjálfið í persónuþroska mannsins

  12. Frh. • Leikur er mikilvægur og virkur starfsþáttur í mótun sjálfsins • Leikurinn er tjáningarháttur barns sem er að þroskast, aðferð þess til að fást við veruleikann • Barnið skapar sér aðstæður þar sem það nær valdi á sjálfu sér og umhverfinu = Tilgangur leiks

  13. Frh. • Greinir milli þriggja sviða eða heima í þróun leiks • Einkaheimur • Litli heimur • Stóri heimur

  14. Einkaheimur • Leikur barna hefst með eigin líkama og snýst um hann • Leikurinn fer fram í einkaheimi barnsins • Byrjar áður en við tökum eftir honum sem leik • Gengur í fyrstu út á að kanna skynjanir, hreyfingar og hljóðmyndanir með sífelldri endurtekningu • Beinist síðar að annarri manneskju sem er oftast móðirin

  15. Litli heimur • Lítill heimur nærtækra hluta og leikfanga • “Höfn sem barnið byggir sér til þess að leita skjóls í þegar það þarf að átta sig á eigin sjálfi” • Hlutir geta brotnað, barnið má ekki leika sér með þá, einhver annar á þá, fullorðna fólkið tekur þá frá barninu • Litli heimurinn tælir barnið til að tjá sig ógætilega um hættuleg málefni og viðhorf sem vekur því kvíða svo það hættir skyndilega að leika sér • Erfitt fyrir barnið sem getur haldið því frá leik • Getur leitt til þess að það leiti aftur til einkaheimsins

  16. Stóri heimur • 2 – 6 ára • Leikþörf og leikgleði knýr börn áfram inn í stóra heiminn, heim félagsskapar • Farið með önnur börn eins og hluti, þau rannsökuð, ýtt og hrint • Barnið lærir smám saman hvers konar leikur eða hegðun hentar í hverjum þessara þriggja heima • Nauðsynlegt fyrir barnið að fá að leika sér eitt og vera út af fyrir sig • “Einleikur er ómissandi höfn þangað er leitað til að bæta tvístraðar tilfinningar eftir stormasöm veður í ólgusjó félagslífsins” • Í leik nýtur barnið afþreyingar, læknar sjálft sig og verndar geðheilsu sína

  17. Tilgangur leiksins • Greinir á milli leiks barna og fullorðinna • Fullorðnir = flótti yfir í annan veruleika • Barnið = leið til að sigrast á erfiðleikum og efla eigið sjálf • Leikur lykillinn að skilningi manna á því hvernig frumstætt sjálf barnsins vinnur að því að ná jafnvægi, efla sig og styrkja • “Að ímynda sér vald sjálfsins....er tilgangur leiksins” • Áhersla lögð á þýðingu leiksins fyrir sjálfs barnsins og heilbrigða þróun persónuleikans

  18. DONALD W. WINNICOTT (1896-1971)

  19. Frh. • Breskur sálkönnuður • Barnalæknir að mennt sem kynntist ungur sálkönnun • Starfaði sem barnalæknir og sálkönnuður

  20. Hvers vegna leika börn sér? • Spurning sem Winnicott velti fyrir sér • Telur orsakir margar ýmist augljósar eða óljósar • Meðal annars ánægjunnar vegna • Börn njóta alls konar líkamlegra og tilfinningalegra upplifana í leik

  21. Kvíði og leikur • Leika sér til að vinna bug á kvíða eða til að ná tökum á hugsunum og hvötum sem valda kvíða ef ekki er höfð stjórn á þeim • Kvíði mikill þáttur í leik barna • “Ef mikill kvíði ógnar barninu, veldur hann þráhyggju eða áráttuleikjum, staglkenndum endurtekningarleikjum eða hann leiðir til öfgafullrar leitar að nautnum sem leik fylgja; og verði kvíðinn óbærilegur flosnar leikurinn upp og í staðinn kemur fullnæging líkamlegarar nautnar”.

  22. Frh. • Mikilvægt að uppalendur geri sér grein fyrir kvíða í leik barna • Hægt að biðja börn að hætta leik þegar þau leika sér ánægjunnar vegna • Þegar leikurinn snýst um kvíða getum við ekki haldið börnum frá honum án þess að valda þeim raunverulegum kvíða og stuðla að nýjum varnarháttum gegn honum • Þegar þeir koma fram í tilhneigingu til sjálfsfróunar eða leit á náðir sjúklegra dagdrauma þarf barnið á hjálp að halda • Sífelld bönn til ills

  23. Leikurinn einkenni heilbrigðs lífs • Barnið aflar sér reynslu og dýrmætrar upplifunar • Leikurinn greiðir fyrir vexti og þroska, sálarlífið mótast og þroskast • Hugmyndaflug örvar þroska og eykur hæfni • “Leikur er stöðugur vitnisburður um sköpun og það merkir líf” • Skapar vináttubönd og félagsskap • Fullorðnir þurfa að viðurkenna mikilvægi leiks og kenna hefðbundna leiki án þess að hefta hugkvæmni barna eða spilla henni • Leikur, listiðkun og trúariðkun af svipuðum toga • Leikur tengir viðhorf einstaklings við innri veruleika viðhorfum hans við ytri veruleika

  24. Andlega sjúk börn og leikur • Skiljum og viðurkennum heilbrigt atferli leiks þegar við fáum í hendur sjúk börn • Haldin þráhyggjusjálfsfróun • Hafa að staðaldri leitað á náðir þráhyggjudrauma • Í tilfinningalegum erfiðleikum hefur barnið tvo kosti • Leika sér • Leita á náðir líkamlegra nautna eins og sjálfsfróunar, fingursogs, borða yfir sig eða leita í dagdrauma • Leikurinn hin eðlilega sjálfstjáning barnsins • Getur verið einlægt

  25. Lækningarmáttur sjálfsprottins leiks • Leikur er lækningameðferð • Læknar sig sjálft í sjálfsprottnum leikjum sínum • Tengsl leiksins við raunveruleikann • Kenning um svið milli ungbarns og móður • Anstæða við innri heim eða innri veruleika og andstætt hinum ytri, raunsanna veruleika • Millisvið þar sem upplifanir og ýmis fyrirbæri geta átt sér stað • Eins konar töfraheimur eða undraland þar sem allt getur skeð • Hér er vettvangur leiksins

  26. Skapandi upplifun í leik • Gerir þýðingarmikinn greinarmun á merkingu orðsins leikur og að leika sér • Að leika sér er skapandi upplifun eða sköpun og upplifun sem gerist í tíma og rúmi • Leikurinn er hvorki innri né ytri veruleiki heldur eitthvað þar á milli • fer fram á leikvettvangi sem barnið stjórnar með eins konar töframætti • Barnið svo upptekið oft að það þolir ekki afskipti annarra af leiknum • Þarf að öðlast traust tengsl við aðra manneskju til að geta leikið sér

  27. Tengihlutir og tengifyrirbæri • Kenning um tengihluti og tengifyrirbæri og hlutverk þeirra í þróun leiksins og uppruna • Stærsta framlag hans til að endurnýna sálkönnunarkenninguna • Skömmu eftir fæðingu byrjar barnið að örva svæðið í kringum munninn með þumlinum, fingrunum og hnefanum • Frumstætt afbrigði af þykjustuleik, upphaf að leik ungbarnsins sem það tengir tryggðarböndum tilteknum bangsa, brúðu eða örðum hlutum og leikföngum

  28. Töframáttur gæluhluta • Tengihlutir eru hlutir sem barnið tekur ástfóstri við, huggar sig við í fjarveru móður eða staðgengils hennar og vill hafa hjá sér þegar það á að fara að sofa eða þegar eitthvað bjátar á • snuð, bangsi, koddi o.s.frv. • gæluhlutir • Bangsimon er frægastur allra tengihluta • Tengihluturinn er tákn fyrir móðurina eða einhvern sem barnið er nánast tengt • Tengifyrirbærin gerast á hinu hugsanlega millisvæði sem skapast þegar barnið fer að greina sjálft sig frá móðurinni og gera greinarmun á sér og móðurinni • Tengihluturinn öðlast einhvers konar töframátt • Í framhaldi af tengifyrirbærinu þróast leikur barnsins

  29. Frá hönd til leikfanga • Þróunin frá hönd til leikfanga er algild og mikilvæg í lífi barnsins • Hvernig notar barnið tengihlutina? • Eignar sér hlutinn • Hjúfrar tengihlutinn að sér og gælir við hann • Má ekki breyta á neinn hátt nema barnið geri það sjálft • Má ekki þvo • Missir smám saman tákn sitt og gildi • “Geymdur en ekki gleymdur.” • Missir merkingu sína • “tengifyrirbærið hefur breiðst út yfir allt millisviðið millil hins innra sálræna veruleika og hins ytra heims....Yfir öll svið menningarinnar.”

  30. Leikurinn – frjóangi menningar og listsköpunar • Tengihluturinn, tákn hans og töfrar þróast smám saman yfir í víðfeðmari viðfangsefni og stærri svið mannlegrar tilveru, mannlegrar vitundar og mannlegrar sköpunar • Kemur fram í leik og listsköpun, listupplifun og draumum, hlutdýrkun eða skurðgoðadýrkun, trú á töfra- eða verndargripi og jafnvel í fíkniefnaneyslu • Í tengihlutum og gæluhlutum lítils barns býr frjóangi allrar menningar og listsköpunar • Leikurinn er ekki bara bernskufyrirbæri, njótum hans alla ævi

  31. Frh. • Kenningar Winnicott hafa haft mikil og heilladrjúg áhrif á viðhorf manna til leikja barna og fullorðinna svo og skilning manna á listsköpun allri

  32. SKÝRINGAR OG GAGNRÝNI • Þekkjum flest dæmi um það að börn fá útrás fyrir togstreitu og kvíða eða vonbrigði í leik • Sjáum börn þykjast vera foreldri, lækni eða söngvara • Leikirnir eru ýktir, foreldrar gerðir að harðstjórum og læknar ógnvekjandi með sín tól og tæki • Börn fá uppbót fyrir vanmetakennd í leik sem vaknar gegn valdi fullorðinna

  33. Takmarkanir leikkenninga sálkönnuða • Nær skammt þótt hún sé mikilvæg • Eru að mestu byggðar á leikjum barna sem komið hafa til sálfræðinga vegna geðrænna vandamála • Þeir sem starfa með börnum upplifa fyrst og fremst leik hins heilbrigða barns og samleiki barna • Sálkönnun gefur ekki svar við því hvers vegna börn sækjast eftir að leika sér saman eða hvað gerist í samspili barna sem leika sér saman • Getum samt lært margt af kenningunum um leik • Sýnt hefur verið fram á mikilvægi hins sjálfsprottna leiks fyrir tilfinningalíf og persónuþroska barna og lækningamátt hans

  34. Virðing fyrir sjálfsprottnum leik • Sálkönnunarkenningar hafa stuðlað að aukinni virðingu fyrir leiknum og sjálfstjáningu barnsins og eðlilega athöfn hans • Áhersla lögð á að leikur lítilla barna á að fara fram á forsendum barnsins sjálfs • Hefur mikilvæg og varanleg áhrif á starfsemi leikskóla og skóla víða um heim • Viðhorf sálkönnunar til leiksins rennir styrkum stoðum undir gildi leikuppeldis og áhrifamátt þess

More Related