1 / 16

Samningar við íþróttafélög í Árborg

Samningar við íþróttafélög í Árborg. Karl Björnsson bæjarstjóri. Rammasamningur Árborgar og Umf. Selfoss. Gildistími frá árinu 2000 til ársloka 2003. Í samningnum er kveðið á um gagnkvæmar skyldur aðila vegna fjárframlaga Árborgar til Umf. Selfoss.

clara
Download Presentation

Samningar við íþróttafélög í Árborg

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Samningar við íþróttafélög í Árborg Karl Björnsson bæjarstjóri

  2. Rammasamningur Árborgar og Umf. Selfoss • Gildistími frá árinu 2000 til ársloka 2003. • Í samningnum er kveðið á um gagnkvæmar skyldur aðila vegna fjárframlaga Árborgar til Umf. Selfoss.

  3. Tilgangur samnings Árborgar og Umf. Selfoss • Að festa í sessi ákveðið samskiptaferli milli aðila auk þess að draga fram áherslur varðandi verkefni, hlutverk og skyldur þeirra. • Að viðurkenna þýðingu íþrótta- og félagsstarfs fyrir samfélagið og nauðsyn þess að til þess starfs komi fólk sem tilbúið er að leggja af mörkum sjálfboðna vinnu.

  4. Hlutverk Umf. Selfoss • Hlutverk félagsins er að standa að uppbyggilegu íþrótta- og félagsstarfi á Selfossi fyrir alla aldurshópa. • Þetta hlutverk rækir félagið með starfsemi íþróttadeilda innan félagsins og sjálfboðinni vinnu fólks að félagsstarfinu. • Öll starfsemi félagsins lýtur að heildarmarkmiðum Ungmennafélags Íslands og Íþróttasambands Íslands.

  5. Aðalmarkmið Aðalmarkmið samningsins er að stuðla að því að Umf. Selfoss geti rækt hlutverk sitt eins vel og kostur er með beinum og óbeinum stuðningi sveitarfélagsins sérstaklega í þágu barna- og ungmenna auk þess að styðja við þá íbúa sveitarfélagsins sem stunda vilja almennings- og keppnisíþróttir.

  6. Markmið Umf. Selfoss • Að efla íþrótta- og félagsstarf á Selfossi fyrir alla aldurshópa. • Að efla íþrótta- og tómstundastarf barna m.a. með starfrækslu íþrótta- og tómstundaskóla. • Að efla íþrótta- og félagsstarf meðal unglinga og vinna þannig gegn brottfalli þeirra úr íþrótta- og félagsstarfi. • Að auka þátttöku stúlkna í íþróttum. • Að vinna að eflingu almenningsíþrótta. • Að koma á markvissu forvarnarstarfi innan félagsins og efla forvarnarþátt íþrótta- og félagsstarfs í samfélaginu.

  7. Nálgun markmiða Til að nálgast þessi markmið mun Umf. Selfoss vinna eftir samþykkt 2. íþróttaþings ÍSÍ frá 24.-26. mars 2000 um "Fyrirmyndarfélag-fyrirmyndardeild".

  8. Fyrirmyndarfélag-fyrirmyndardeild • Skipulag félaga og deilda • Umgjörð þjálfunar og keppni • Fjármálastjórnun • Þjálfaramenntun • Félagsstarf • Foreldrastarf • Fræðslu- og forvarnastarf • Jafnréttismál • Umhverfismál

  9. Verkefnaáhersla Að Umf. Selfoss hafi aðgang að eftirtöldum íþróttamannvirkjum fyrir félagsmenn sína til æfinga og keppni án endurgjalds: • Sundhöll Selfoss. • Íþróttahúsinu á Selfossi. • Íþróttasalnum við Gagnheiði. • Íþróttavallasvæðinu við Engjaveg. • Smærri útisvæðum sem notuð eru fyrir boltaíþróttir.

  10. Verkefnaáhersla Að framfylgja eftirtöldum samningum aðila • Um rekstur Íþróttasalarins við Gagnheiði. • Um rekstur og endurbætur á Íþróttavallasvæðinu við Engjaveg og rekstur húseigna þar. • Um uppbyggingu félags- og búningsaðstöðu á Íþróttavallasvæðinu við Engjaveg. • Um framkvæmd 17. júní hátíðarhalda. • Um framkvæmd þrettándahátíðarhalda.

  11. Verkefnaáhersla Að hjá Umf. Selfoss starfi framkvæmdastjóri sem auk almennra rekstrar- og framkvæmdaverkefna fyrir félagið hafi almennar þjónustuskyldur við íþróttastarf í sveitarfélaginu varðandi útbreiðslu íþrótta- og félagsstarfs og vinni að víðtæku forvarnastarfi í samvinnu við þá aðila sem starfa á því sviði innan félagsins og á vegum Árborgar.

  12. Verkefnaáhersla • Að Árborg geri langtímaáætlun um uppbyggingu íþróttamannvirkja og opinna sparkvalla. • Að starfræktur verði íþrótta- og tómstundaskóli . • Að bættur verði búnaður fimleikadeildar Umf. Selfoss til æfinga og búnaður til knattspyrnu- og körfuboltaiðkunar. • Að auðvelduð verði æfingasókn íþróttamanna í Árborg í Ölfushöllina. • Að náin samvinna verði um þau mál sem samningar aðila fjalla um og að fjárstreymi frá sveitarfélaginu til félagsins markist að mestu leyti af samningsbundnum greiðslum.

  13. Framkvæmd Bæjarstjóri og form. Umf. Selfoss ganga árlega frá greiðslusamningi.

  14. Önnur verkefni • Knattspyrnudeild Umf. Selfoss steypir gangstéttar í sveitarfélaginu. • Handknattleiksdeild Umf. Selfoss málar ljósastaura fyrir Selfossveitur. • Körfuknattleiksdeild Umf. Selfoss annast viðhald körfuboltavalla á Selfossi. • Sunddeild Umf. Selfoss hreinsar miðbæ Selfoss um helgar. • Umf. Stokkseyrar rekur íþróttasal á Sokkseyri og annast umhirðu knattspyrnuvallar á staðnum. • Umf. Eyrarbakka annast umhirðu knattspyrnuvallar á staðnum.

  15. Heildarútgjöld Árborgar vegna íþróttafélaga

  16. Lokaorð • Fjárhagur íþróttafélaganna er sjálfstæður að því leyti að sveitarfélögin hafa ekki bein afskipti af ráðstöfun fjármuna þeirra. • Ef illa gengur er leitað til sveitarfélaganna. • Þannig eru sveitarfélögin nokkurs konar ábyrgðaraðili þessara félaga þó svo þau hafi lítið um það að segja hvernig hin eiginlega fjármálaumsýsla félaganna er. • Sveitarfélögin geta lent í því að standa við skuldbindingar sem til hefur verið stofnað af hálfu félaga á þann hátt að engar líkur eru á að sveitarfélögin sjálf hefðu tekið slíkar ákvarðanir. Þannig hefur í raun óbein ráðstöfun skatttekna átt sér stað hjá félagasamtökum sem ekki eru til þess kjörin að ráðstafa sköttum almennings. • Slíka þróun ber að varast.

More Related